Tíminn - 09.12.1988, Síða 13
Föstudagur 9. desember 1988
Tíminn 13
lllllllllllllll ÚTLÖND lllllllllll
Fækkun í herjum Rauða hersins hefur strax áhrif:
NATO vill helmings
fækkun skriðdreka
Sovétmenn ætla að fækka skriðdrekum sínum í Evrópu og riii bjóða
vamarmálaráðherrar NATO samninga um helmingsfækkun skriðdreka.
Varnarmálaráðherrar
ríkja Atlantshafsbandalags-
ins brugðust snarlega við yfir-
lýsingu Mikhafl Gorbatsjofs
um að Sovétríkin hygðust
fækka í herliði sínu um 500
þúsund manns á næstu tveim-
ur árum og að skriðdrekum
yrði fækkað um 5000 á sama
tíma. Eftir fund sinn í gær
buðust NATO ráðherrarnir
til að semja um nær helm-
ingsfækkun skriðdreka í Evr-
ópu eða um 40 þúsund skrið-
dreka í það heila.
í yfirlýsingu ráðherranna er lagt
til að ekkert ríki í hernaðarbanda-
lögunum tveimur ætti fleiri en 12
þúsund skriðdreka í Evrópu. Það
þýðir að Sovétmenn yrðu að fækka
allra mest í sínum skriðdrekaflota,
en önnur austantjaldsríki minna.
Fækkun í skriðdrekaflota NATO
myndi dreifast jafnar milli aðildar-
ríkjanna.
Vamarmálaráðherrarnir fögnuðu
mjög ákvörðunum Sovétmanna um
fækkun í herliði og samdrætti í
vígbúnaði, en sögðu að meira þyrfti
til svo að jafnvægi ríkti í hefðbundn-
um vígbúnaði milli Varsjárbanda-
lagsins og Atlantshafsbandalagsins,
en NATO telur herstyrk Varsjár-
bandalagsins mun meiri en NATO.
Pað voru ekki einungis varnar-
málaráðherra NATO ríkja sem
fögnuðu áætlunum Sovétmanna um
fækkun í herafla Rauða hersins.
Almenn ánægja virðist ríkja meðal
flestra ríkja og má þar nefna Kín-
verja sem lýstu sérstakri ánægju
með fækkun í Asíuher Sovétríkj-
anna og þá ætlun Sovétmanna að
kalla stærsta hluta sovéska herliðsins
í Mongólíu heim.
Megn óánægja ríkir þó í herbúð-
um hergagnaiðnaðarins í Bandaríkj-
unum með þessa ákvörðun Sovét-
manna, enda féllu hlutabréf í helstu
fyrirtækjum er framleiða hefðbund-
in vopn fyrir Bandaríkjaher í verði
strax í kjölfar ræðu Gorbatsjofs hjá
Sameinuðu þjóðunum. Líkur eru á
að aðgerðir Sovétmanna verði til
þess að Bandaríkjamenn dragi úr
framleiðslu hergagna fyrir herlið sitt
og heri NATO. Það veldur að sjálf-
sögðu miklum skaða fyrir fyrirtæki
eins og Lockheed, Northrop og
Rockwell International Corpora-
tion. Hlutabréf í þessum fyrirtækj-
um féllu snarlega í verði í Wall
Street í gær.
Shamir og Peres einhuga um Stokkhólmsyfirlýsingu Arafats:
Yfirlýsingin breytir engu
Yfírlýsing Yassers Arafats um að PLO viðurkenni tilveru-
rétt Gyðingaríkisins ísrael og að samtökin fordæmi og hafni
hvers kyns hryðjuverkum bítur ekki á helstu forystumenn í
ísrael.
Andstæðingarnir Yitzhak Shamir
forsætisráðherra ísraels og formaður
hins hægri sinnaða Likudbandalags
og Shimon Peres formaður Verka-
mannaflokksins og utanríkisráð-
herra landsins voru einhuga um að
yfirlýsingin breytti í engu afstöðunni
til PLO sem Israelar telja ekkert
annað en hryðjuverkasamtök. Peir
vilja báðir meina að engu skipti hvað
Arafat segi, takmark PLO sé að má
Ísraelsríki af landakortinu.
- Þeir geta lýst yfir hverju sem er,
en takmark þeirra sem er tortíming
Ísraelsríkis, er óbreytt, sagði Shamír
í viðtali við ísraelska sjónvarpið.
Shamir sagði yfirlýsingu Arafats
og gýðinganna fimm í Stokkhólmi
engu breyta um afstöðu PLO og að
aldrei kæmi til greina að ræða við
þau glæpasamtök.
Peres tók í sama streng hvað
yfirlýsingu Arafats varðaði, en hann
hefur ekki gefið frá sér þann mögu-
leika að ræða við PLO og Palestínu-
menn um frið, enda var það kosn-
ingaloforð Verkamannaflokksins í
haust að semja um frið.
- Við þurfum skýr tilboð og við
þurfum skýra yfirlýsingu um að endi
verði bundinn á ofbeldið. Við þurf-
um skýra samþykkt á rétti fsraels til
að lifa í friði.
Verkamannaflokkur Peresar
fundaði í gærkvöldi um það hvort
flokkurinn eigi að taka þátt í áfram-
haldandi samsteypustjórn með Li-
kudbandalaginu. Þingmenn flokks-
ins hafa einu sinni hafnað því en nú
er að bíða og sjá.
Suður-Afríka:
Mandela fluttur
í stofufangelsi
Nelson Mandela leiðtogi Afríska
þjóðarráðsins hefur nú verið flutt-
ur af heilsuhæli þar sem hann fékk
meðhöndlun við berklum í íbúðar-
hús í bænum Paarl þar sem honum
verður haldið í stofufangelsi á
næstunni. Er þetta talið merki þess
að Nelson verði bráðlega sleppt
endanlega úr haldi, en fjölskylda
Nelsons mun nú fá að umgangast
hann mun meira og frjálslegar en
áður.
Um húsið er að vonum ströng
öryggisgæsla og ekki langt til næsta
fangelsis ef nauðsynlegt verður að
flytja Mandela í pottþétta gæslu
einhverra hluta vegna.
Winnie eiginkona Nelsons
Mandela hefur lýst því yfir að hún
muni ekki notfæra sér rýmri mögu-
leika til að hitta Mandela þar sem
hann væri enn fangi og því muni
hún aðeins híímsækja hann í 40
mínútur í senn til að sýna samstöðu
með öðrum pólitískum föngum í
Suður-Afríku.
- Mandela er enn fangi. Það
eina sem hefur gerst er að hann
hefur verið fluttur úr einu fangelsi
í annað.sagði í yfirlýsingu Winnie-
ar.
Mandela var dæmdur í lífstíðar-
fangelsi árið 1964 fyrir andóf sitt og
baráttu fyrir afnámi aðskilnaðar-
stefnunnar í Suður-Afríku. Hann
hefur alla tíð verið sameiningar-
tákn afríska þjóðarráðsins.
Á sama tíma og Mandela var
fluttur um set og komið fyrir í
eilítið frjálsara umhverfi þá voru
tólf andstæðingar aðskilnaðar-
stefnunnar í Suður-Afríku dæmdir
í tólf ára fangelsi fyrir „landráð",
eftir lengstu réttarhöld í sögu Suð-
ur-Afríku.
Manntjón er
þota fellur
á íbúðarhús
Manntjón varð er banda-
rísk orrustuþota brotlenti í
íbúðarhverfi í bænum
Remscheid í Vestur-Þýska-
landi í gær. Eitt lík hafði
fundist í húsarústum í gær-
kveldi, en Ijóst var að mun
fleiri höfðu farist þó ekki
væri enn vitað hve margir, en
flugmaðurinn er á meðal
þeirra. Margir slösuðust.
Orrustuvélin lenti á húsaröð og
kviknaði í sex húsum í þessum 125
þúsund manna bæ þegar þotan
sprakk í loft upp.
Slysið er fyrsta alvarlega flugslys
flugherja NATO frá því í harmleikn-
um í Ramstein þegar sjötíu manns
létust er þotur í ítalskri sýningarsveit
skullu saman á flugsýningu og brak
dreifðist yfir áhorfendur.
Hins vegar hafa nokkrar orrustu-
þotur NATO herja farist síðan, en
alls <faafa hundrað orrustuþotur
þeirra farist á þessu ári, flestar í
Vestur-Þýskalandi.
Framsóknarvist á Sögu
Framsóknarvist verður haldin
á Hótel Sögu sunnudaginn 11.
desember n.k. kl. 14.00.
Veitt verða þrenn verðlaun
kvenna og karla.
Stutt ávarp flytur Guðmundur
Bjarnason heilbrigðis- og
tryggingaráðherra.
Stjórnandi: Jónína Jónsdóttir.
Verð aðgöngumiða kr. 400,-
(Veitingar innifaldar)
Framsóknarfélag Reykjavíkur
Jólakort - Jólakort!
Höfum til sölu tvær gerðir af fallegum jólakortum. Einnig hálsbindi,
blómavasa og glösin vinsælu með flokksmerkinu.
Landssamband framsóknarkvenna
Nóatúni 21, - s. 24480
Hörpukonur Hafnarfirði,
Garðabæ og Bessastaðahreppi
Jólafundur Hörpu verður haldinn miðvikudaginn 14. desember kl.
20.30 í Góðtemplarahúsinu í Hafnarfirði.
Jóladagskrá - jólaveitingar.
Freyjukonur í Kópavogi eru boðnar á fundinn.
Mætum allar í jólaskapi og tökum með okkur gesti.
Stjórnin
Selfoss og nágrenni
Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra ræðir
stjórnmálaviðhorfið á Hótel Selfossi fimmtudags-
kvöldið 15. desember kl. 21.00.
Allir velkomnir.
Framsóknarfélag Selfoss