Tíminn - 09.12.1988, Qupperneq 16

Tíminn - 09.12.1988, Qupperneq 16
16 Tíminn Föstudagur 9. desember 1988 [llllllllllllllllllll DAGBÓK ÚTVARP/SJÓNVARP llllllllllllllllllillllllllllllllllllllllllllllllllllEI Neskirkja - félagsstarf aldraðra Samverustund verður á morgun laugar- daginn 10. des. kl. 15:00 í safnaðarheimili kirkjunnar. Gestir verða Borgþór Kærn- ested og börn úr Grandaskóla. Kvæðamannafélagið Iðunn heldur jólafund Kvæðamannafélagið Iðunn vill minna á jólafund að Hallveigarstöðum á morgun, laugard. 10. des. Fjölbreytt dagskrá tengd jólum. Góðar veitingar. Fundurinn hefst kl. 20:00 stundvíslega. Alþýðuleikhúsið: Koss Kóngulóarkonunnar Alþýðuleikhúsið sýnir leikritið Koss Kóngulóarkonunnar eftir Manuel Puig í kjallara Hlaðvarpans, Vesturgötu 3. Miðapantanir í síma 15185 allan sólar- hringinn. Miðasala í Hlaðvarpanum kl. 14:00-16:00. Sýningar nú um helgina verða: föstu- daginn 9. des. og laugardaginn 10. des. kl. 20:30 bæði kvöldin. Þetta eru síðustu sýningar fyrir jól. FÍM-salurinn verður sölugallerí Félag íslenskra myndlistamanna hefur nýjan rekstur í galleríi sínu, FÍM-salnum, Garðastræti 6. Þar verður rekið annars- vegar sölugallerí, þar sem fólk getur keypt verk því sem næst beint af lista- manninum, en hins vegar verður haldið áfram með sýningarsalinn, þar sem stöðugar sýningar verða. Verk sem boðin verða til sölu í gallerí- inu verða eingöngu eftir viðurkennda myndlistamenn. Félag íslenskra myndlistamanna er elsta og virtasta félag myndlistamanna hér á landi. í descmber og janúar verður galleríið eingöngu starfrækt sem sölugallerí og verður skipt um upphengi viku - til hálfsmánaðarlega. Opnunartími verður kl. 12:00- 18:00 virka daga, en í desember verður lokað um leið og verslanir loka. Á laugardögum er opið kl. 14:00- 18:00, en í desember verður opið jafn lengi á laugardögum og verslanir hafa opið. Lokað er á sunnudög- um. Sýning TOLLA Um þessar mundir eru til sýnis og sölu í fslensku óperunni, Gamla bíói, Ingólfs- stræti, 16 málverk eftir Þorlák Krístins- son, TOLLA. Hann stundaði nám við Myndlista- og handíðaskóla íslands árin 1977-1983 og við Myndlistarháskólann í V-Berlín 1983-’84. Hann hefur haldið fjölda einka- og samsýninga, hér á landi sem erlendis og einnig sýnt á vinnustöðum víða á landsbyggðinni. Sýningin í Óperunni er opin til 18. desember kl. 15:00-19:00 alla daga. Jólasala 3. árs nema MHÍ Hin árlega jólasala Myndlista- og hand- íðaskóla íslands hófst um síðustu helgi í turninum á Lækjartorgi. Til sölu eru ýmsir hlutir unnir af nemcndum sjálfum, svosem: piparkökuhús, smákökur, laufa- brauð, jólakort, kerti, eyrnalokkar, tölur, slæður, málverk o.m.Ó. Jólasalan er í umsjá 3. árs nema og rennur allur ágóði í námsferð. í MHf er áralöng hefð fyrir utanlandsferð 4. árs nema áður en hafin er vinna lokaverkefna. Salan er opin sem hér segir: Mánud. - fimmtud. 16:00-18:00, föstud. 16:00-19:00 og laugard. 10:00-18:00. 'rottins dýrðarsól Kór Keflavíkurkirkju Sfttirtvtndt: Steuróli Geirs*ón Hljómplata með kór Keflavíkurkirkju: Drottins dýrðarsól Út er komin hljómplatan Drottins dýrðarsól á vegum Kórs Keflavíkur- kirkju. Á henni syngur kórinn þekkta hátíðarsálma og önnur kirkjuleg verk, er sunt hafa ekki áður komið út á hljóm- plötu. Undirleik annast félagar úr Sinfón- íuhljómsveit íslands og Tónlistarskóla Keflavikur. Dr. Orthuldf Prunner leikur á orgcl. Einnig koma fram cinsöngvararn- ir María Guðmundsdóttii, Hrafnhildur Guðmundsdóttir, Sverrir Guðmundsson og Steinn Erlingsson. Stjórnandi er Sigur- óli Geirsson. Hljóðritun fór fram með stafrænni tækni í Keflavíkurkirkju á vegum Hall- dórs Víkingssonar. Hljómplatan er bein- skorin (Direct Metal Mastering) og fram- leidd hjá Teldec í V-Þýskalandi. Kórinn mun halda aðventutónleika í Keflavíkurkirkju sunnud. 11. des. kl. 20:30 og kynna þar lög af plötunni, en tilefni útgáfunnar er 45 ára afmæli kórsins á sl. ári. Hægt er að panta plötuna í símum: 92 - 11905, 12417, 12275 og 12416. Þau sýna í Gallerí Grjót, Skólavörðustíg 4A Jólasýning í Gallerí Grjót 1 Gallerí Grjót, Skólavörðustíg 4A stendur nú yfir jólasýning, - sem jafn- framt er sölusýning. Á sýningunni eru verk þeirra 9 listamanna sem að galleríinu standa, þ.e.: Gestur Þorgrímsson, Jónína Guðnadóttir, Magnús Tómasson, Ófeig- ur Björnsson, Páll Guðmundsson frá Húsafelli, Ragnheiður Jónsdóttir, Sigrún Guðjónsdóttir (Rúna), Þorbjörg Hösk- uldsdóttir og Örn Þorsteinsson. Opið er alla virka daga kl. 12:00-18:00 en næsta laugardag kl. 10:00-17:00, en þá verður Ingibjörg Þóra Gestsdóttir (Inga) fatahönnuður með tískusýningu, þar sem hún sýnir fatnað á börn, unglinga og fullorðna. Verðlaun í „Forsíðukeppni" tímaritsins Hárs & fegurðar Veitt hafa verið verðlaun í Forsíðu- keppni tímaritsins Hárs & fegurðar, og vann fyrstu verðlaun Anna Margrét Elías- dóttir, sem starfar á Salon Ritz. Verð- launin voru málverk af Edgar Alan Poe, eftir Nicolai, sem starfar í París. Einnig veitti tímaritið sem fyrstu verðlaun opinn flugmiða með Flugleiðum á þeirra leið- um. í öðru sæti varð Helena Hólm, sem starfar á Klassísku hárgreiðslustofunni, Til hægri á myndinni er Anna Margrét með listaverkið eftir Nicolai ásamt fleirí verðlaunum, Pétur Melsted rítstjóri tíma- ritsins og t.v. Helena Hólm með sín verðlaun en hún fékk myndavél frá Ljósmyndabúð- inni, Laugavegi 118. Fleiri verðlaun voru veitt af fyrirtækj- unum: Eldborg, Sebastian, H. Helgason og Forval (Oggi) Tímaritið Hár & fegurð kemur á mark- að innan nokkurra daga og er þar sagðar nánari fréttir af „forsíðukeppninni" og hvað sé að gerast í hártískunni. Opið hús á vinnustofum Kópavogshælis Laugardaginn 10. desember verður opið hús á vinnustofum Kópavogshælis kl. 14:00-18:00. Ætlunin er að kynna þá starfsemi sem þar fer fram og bjóða jafnframt til sölu ýmsa eigulega hluti sem unnir hafa verið af vistmönnum. Nær eitt hundrað einstaklingar koma til hinna ýmsu starfa á vinnustofurnar daglega. Boðið er upp á kaffi og piparkökur um leið og vinnustofur Kópavogshælis eru kynntar. Karlakórínn Stefnir Laugardagsganga Hana nú Vikuleg laugardagsganga hana nú í Kópavogi verður á morgun, laugardaginn 10. desember. Lagt af stað frá Digra- nesvegi 12 kl. 10:00. „Úr því ntyrkrið aftur snýr-ofar færist sól." Mætið skammdeginu í góðunt fé- lagsskap í bæjarrölti Hana nú. Nýlagað molakaffi á boðstólum. JÓLAVAKA í M0SFELLSBÆ Sunnudaginn 11. des. kl. 20:30 halda Karlakórinn Stefnir og Leikfélag Mos- fellssveitar sína árlegu jólavöku. Leikfélagið flytur m.a. söngogupplest- ur úr verkum Þórbergs og Guðjón Sveins- son les nútíma jólasögu. Karlakórinn Stefnir syngur undir' stjórn Lárusar Sveinssonar. Stefnur sjá um vcitingar. 21.30 Kvöldtónar. Lög af ýmsu tagi. 22.07 Snúningur. Stefán Hilmarsson ber kveöjur milli hlustenda og leikur óskalög. 02.05 Rokk og nýbylgja. Skúli Helgason kynnir. (Endurtekinn þáttur Irá mánudagskvöldi). 03.00 Vökulögin. Tónlist af ýmsu tagi í næturút- varpi til morguns. Fréttir kl. 4,00 og sagðar fréttir af veðri, færð og flugsamgöngum kl. 5.00 og 6.00. Veðurfregnir frá Veðurstofu kl. 4.30. Föstudagur 9. desember 6.45 Veðurfregnir. Bæn, séra Hreinn Hákonar- son flytur. 7.00 Fréttir. 7.03 I morgunsárið með Ingveldi Ólafsdóttur. Fróttayfirlit kl. 7.30 og 8.30, fróttir kl. 8.00 og veðurfregnir kl. 8.15. Lesið úr forustugreinum dagblaðanna að loknu fréttayfirliti kl. 8.30. Tilkynningar laust fyrir kl. 7.30, 8.00, 8.30 og 9.00. 9.00 Fréttir. 9.03 Jólaalmanak Útvarpsins 1988. Umsjón: Gunnvör Braga. (Einnig útvarpað um kvöldið kl. 20.00). 9.20 Morgunleikfimi Umsjón: Halldóra Björns- dóttir. 9.30 Bókaþing. Kynntar nýjar bækur. Umsjón: Friðrik Rafnsson og Halldóra Friðjónsdóttir. 10.00 Fréttir. Tilkynningar. 10.10 Veðurfregnir. 10.30 Maðurinn á bak við borgarfulltrúann. Umsjón: Jóhann Hauksson. 11.00 Fréttir. Tílkynningar. 11.05 Samhljómur. Umsjón: Anna Ingólfsdóttir. 11.55 Dagskrá. 12.00 Fréttayfirlit. Tilkynningar. 12.20 Hádegisfréttir. 12.45 Veðurfregnir. Tilkynningar. 13.35 Miðdegissagan: „Konan í dalnum og dæt- urnar sjö“. Ævisaga Moniku á Merkigili skráð af Guðmundi G. Hagalín. Sigríður Hagalín les (10). 14.00 Fréttir. Tilkynningar. 14.05 Ljúflingslög. Svanhildur Jakobsdóttir kynnir. (Einnig útvarpað aðfaranótt miðvikudags að loknum fréttum kl. 2.00). 15.00 Fréttir. 15.03 Hann sá lífið fremur sem leik sorgar en gleði. Þáttur um breska rithöfundinn Thomas Hardy. Sigurlaug Björnsdóttirtók saman. Lesar- ar ásamt henni: Herdís Þorvaldsdóttir og Hallm- ar Sigurðsson. (Endurtekinn frá kvöldinu áður). 15.45 Þingfréttir. 16.00 Fréttir. 16.03 Dagbókin. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir. 16.20 Barnaútvarpið. Sigurlaug M. Jónasdóttir talar við börn um það sem þeim liggur á hjarta í símatíma Bamaútvarpsins. 17.00 Fréttir. 17.03 Tónlist á síðdegi. a. Ljóðasöngvar eftir Joseph Haydn við Ijóð eftir Anne Hunter. Elly Ameling sópran syngur; Jörg Demus leikur á píanó. b. Tilbrigði eftir Wolfgang Amadeus Mozart ’um lagið ABCD. Christian Lindberg leikur á básúnu og Roland Pöntinen á píanó. c. Fantasía op. 30 eftir Femando Sor. Göran Söllscher leikur á gítar. 18.00 Fréttir. 18.03 Þingmál. Umsjón: Amar Páll Hauksson. (Einnig útvarpað næsta morgun kl. 9.45). Tónlist. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. 19.00 Kvöldfréttir. 19.30Tilkynningar. 19.33 Kviksjá. Þáttur um menningarmál í umsjá Friðriks Rafnssonarog Halldóru Friðjónsdóttur. 20.00 Jólaalmanak Útvarpsins 1988. (Endurtekið fr.imorgni). 20.15 Blásaratónlist. a. ftalskar kaprísur eftir Pjotr Tsjaíkovskí. Breska unglingahljómsveitin leikur; Geoffrey Brand stjómar. b. Konsertforleikur eftir John 0‘Gaunt. „Black Dyke Mills“ lúðrasveitin leikur; Geoffrey Brand stjórnar. 21.00 Kvöldvaka. a. Þáttur af Klemens Guðm- undssyni. Sigurður Gunnarsson segir frá eina kvekara landsins um sína daga. Annar hluti. b. Sigrún Valgerður Gestsdóttir syngur lög eftir Björgvin Þ. Valdimarsson. Höfundur leikur á píanó. c. Blanda. Kristinn Kristmundsson les úr þjóðsögum Jóns Ámasonar. d. Lög eftir Þórarin Guðmundsson. Umsjón: Gunnar Stefánsson. 22.00 Fréttlr. Dagskrá morgundagsins. Orð kvöldslns. 22.15 Veðurfregnir. 22.20 Visna- og þjóðlagatónlist. 23.00 í kvöldkyrru. Þáttur í umsjá Jónasar Jónas- sonar. 24.00 Fréttir. Næturútvarp á samtengdum rásum til morguns. 01.10 Vökulögin. Fréttir kl. 2.00 og 4.00 og sagðar fréttir af veðri, færð og flugsamgöngum kl. 5.00 og &.00. Veðurfregnir frá Veðurstofu kl. 4.30. 7.03 Morgunútvarpið. Dægurmálaútvarp með fréttayfirliti kl. 7.30 og 8.30 og fréttum kl. 8.00. Leifur Hauksson og Ölöf Rún Skúladóttir hefja daginn með hlustendum, spyrja tíðinda víða um land, tala við fólk i fréttum og fjalla um málefni líðandi stundar. Jón örn Marinósson segir sögur frá Ódáinsvöllum kl. 7.45. Veðurfregnir kl. 8.15 og leiðarar dagblaðanna kl. 8.30. 9.03 Viðbit - Tröstur Emilsson. (Frá Akureyri) 10.05 Morgunsyrpa Evu Ásrúnar Albertsdóttur og Óskars Páls Sveinssonar. 12.00 Fréttayfirlit. Auglýsingar. 12.20 Hádegisfréttir. 12.45 í Undralandi með Lísu Páls. Sigurður Þór Salvarsson tekur við athugasemdum og ábend- ingum hlustenda laust fyrirkl. 13.00 í hlustenda- þjónustu Dægurmálaútvarpsins og í framhaldi af því gefur Hilmar B. Jónsson hlustendum holl ráð um helgarmatinn. 14.00 Á milli mála - Eva Ásrún Albertsdóttir og Óskar Páll Sveinsson. 16.03 Dagskrá. Stefán Jón Hafstein, Guðrún Gunnarsdóttir og Ævar Kjartansson bregða upp mynd af mannlífi til sjávar og sveita og því sem hæst ber heima og erlendis. Kaffispjall upp úr kl. 16.00, „orð í eyra“ kl. 16.45 og dagsyfirlit kl. 18.30. Frásögn Arthúrs Björgvins Bollasonarfrá Þýskalandi og fjölmiðlagagnrýni Einars Kára- sonar á sjötta tíir.anum. Ódáinsvailasaga endurtekin frá morgni kl. 18.45. 19.00 Kvöldfréttir. 19.33 Áfram ísland. Dægurlög með islenskum flytjendum. 20.30 Vinsældalisti Rásar 2. Stefán Hilmarsson kynnir tíu vinsælustu lögin. (Einnig útvarpað á sunnudaq kl. 15.00). Fréttir kl. 2.00, 4.00, 7.00, 7.30, 8.00, 8.30, 9.00, 10.00, 11.00,12.00,12.20,14.00,15.00, 16.00,17.00,18.00,19.00, 22.00 og 24.00. SVÆÐISÚTVARP Á RÁS 2 8.07- 8.30 Svæðisútvarp Norðurlands 18.03-19.00 Svæðisútvarp Norðurlands 18.03-19.00 Svæðisútvarp Austurlands SJÓNVARPIÐ Föstudagur 9. desember 17.50 Jólin nálgast í Kærabæ. 18.00 Sindbað sæfari (41) Þýskur teiknimynda- flokkur. Leikraddir: Aðalsteinn Ðergdal og Sig- rún Waage. Þýðandi Jóhanna Þráinsdóttir. 18.25 Líf í nýju Ijósí (18) (II était une fois... la vie). Franskur teiknimyndaflokkur um mannslíkam- ann, eftir Albert Barrillé. 18.50 Táknmálsfréttir. 18.55 Austurbæingar (Eastenders) Sjötti þáttur. Breskur myndaflokkur í lóttum dúr. Aðalhlutverk Anna Wing, Wendy Richard, Bill Treacher, Peter Dean og Gillian Taylforth. Þýðandi Krist- mann Eiðsson. 19.25 Búrabyggð (Fraggle Rock) Breskur teikni- myndaflokkur úr smiðju Jim Hensons. Þýðandi Guðni Kolbeinsson. 19.50 Jólin nálgast í Kærabæ. 20.00 Fréttir og veður. 20.35 Ekkert sem heitir. Þáttur fyrir ungt fólk. Umsjón Gísli Snær Erlingsson. 21.05 Þingsjá. Umsjón Ingimar Ingimarsson. 21.30 Söngelski spæjarinn (3) (The Singing De- tective) Breskur myndaflokkur sem segir frá sjúklingi sem liggur á spítala og skrifar saka- málasögu. Hann sjálfur er aðalpersónan í sögunni en vegna veikinda sinna á hann oft erfitt með að greina raunverulega atburði frá ímyndun sinni. Þýðandi Gauti Kristmannsson. 22.40 Blóðsáttmálinn. (The Holcroft Covenant). Bresk bíómynd frá 1985 gerð eftir sögu Robert Ludlum. Leikstjóri John Frankenheimer. Aðal- hlutverk Michael Caine, Anthony Andrews, Victoria Tennant og Lilli Palmer. Arkitekt í Bandaríkjunum fær boð um að koma til Sviss og hitta þar háttsettan bankastjóra. Hann af- hendir honum bréf frá föður hans sem var hershöfðirigi í þýska hemum, og innihald þess brófs hrindir af stað flókinni atburðarás. Myndin er ekki við hæfi bama. Þýðandi Sigurgeir Steingrímsson. 00.30 Útvarpsfréttir í dagskrárlok. Föstudagur 9. desember 16.35 Táldregin. A Night in Heaven. Myndin fjallar um unga kennslukonu og náið samband hennar við fyrrverandi nemanda sinn. Hann vekur með henni bældar tilfinningar sem síðar verða prófsteinn á hjónaband hennar. Aðalhlutverk: Christopher Atkins, LeSley Ann Warren og Robert Logan. Leikstjóri: John G. Avildsen. Þýaðndi: Ástráður Haraldsson. 20th Century Fox 1983. Sýningartími 80 mín. 17.55 Jólasveinasaga. The Story of Santa Claus. Teiknimynd. Níundi hluti af 23. Leikraddir: Robert Arnfinnsson, Júlíus Brjánsson og Saga Jónsdóttir. Telecable. 18.20 Pepsí popp. Tónlistarþáttur með nýjustu myndböndum, ferskum fréttum úrtónlistarheim- inum, viðtölum, getraunum, leikjum og alls kyns uppákomum. Þátturinn er unninn í samvinnu við Sanitas hf. sem kostar gerð hans. Kynnar Hafsteinn Hafsteinsson og Nadia K. Banine. Umsjón: Helgi Rúnar Óskarsson. Dagskrár- gerð: Hilmar Oddsson. Stöð 2. 19.19 19:19. Frétta- og fréttaskýringaþáttur ásamt umfjöllun um þau málefni sem ofarlega eru á baugi. 20.45 Fjölskyldubönd. Family Ties. Bandarískur gamanmyndaflokkur. 20.45 Alfred Hitchcock. Stuttar sakamálamyndir sem gerðar eru í anda þessa meistara hrollvekj- unnar. Þýðandi: Pálmi Jóhannesson. Sýningar- tími 30 min. Universal 1986. 21.45 Magnum P.l. Thomas Magnum er fyrrver- andi flotaforingi í bandaríska hernum sem gerist einkaspæjari á Hawaii. Aðalhlutverk: Tom Selleck og John Hillerman. Sýningartími 90 mín. Aukasýning 23. des. 23.15 Þrumufuglinn. Airwolf. Bandarískur spennumyndaflokkur. Aðalhlutverk: Jan-Mi- chael Vincent og Ernest Borgnine. Þýðandi: Ásthildur Sveinsdóttir. 00.05 Gott gegn illu. Good Against Evil. Það hefur hver sinn djöful að draga, segir einhvers staðar og það á svo sannarlega við um Jessicu, aðlaðandi, unga stúlku, sem er ofsótt af illum nornum. Aðalhlutverk: Dack Rambo, Elyssa Davalos og Richard Lynch. Leikstjóri: Paul Wendkos. 20th Century Foz 1979. Sýningartími 80 mín. Alls ekki við hæfi yngri barna. Aukasýn- ing 20. jan. 01.25 Jeremiah Johnson. Fyrrum hermaður er • dæmdur í útlegð.- Hann leitar upp í óbyggðir þar sem hann á í stöðugri baráttu við náttúruöfl og árásargjarna indíána. Aðalhlutverk: Robert Redford, Will Geer og Stefan Fierasch. Leik- stjóri: Sidney Pollack. Þýðandi: Ásthildur Sveinsdóttir. Warner 1972. Sýningartími 105 mín. 03.10 Dagskrárlok.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.