Tíminn - 09.12.1988, Qupperneq 20
RIKISSKIP
NÚTÍMA FLUTNINGAR
Hafnarhúsinu v/írYggvagötu,
S 28822
Átján mán. binding
▼ ▼
^ 7,5% ÞRDSTUR
685060
SAMVINNUBANKINN VANIR IVIENN
Ttmiiin
Fundahöld milli þingflokka um að freista þess að afgreiða fjárlög fyrir jól:
SJÁI .FST/EÐISMENN MÆI Á
w
FRESTUN FJARLAC SA
Fulltrúar allra þingflokka munu koma saman í dag og
næstu daga til að ræða tekjuöflunarfrumvörp fjárlaga
næsta árs og hvernig hraða megi afgreiðslu þeirra svo unnt
sé að afgreiða fjárlög fyrir jól.
Ósk þessa efnis kom fram í
umræðum á Alþingi í gær, frá
Halldóri Ásgrímssyni sem gegnir
embætti forsætisráðherra í fjar-
veru Steingríms Hermannssonar.
Talsmenn stjómarandstöðunnar
tóku vel' í þessa málaleitan og
sagði Kristín Halldórsdóttir
kvennalistakona meðal annars að
þingmenn hlytu að reyna að ná
einhverju samkomulagi um störf
þingsins, þar sem mörg og stór
mál biðu afgreiðslu þess fyrir jól.
Frumvarp um tekju- og eigna-
skatt ásamt öðrum tekjuöflunar-
frumvörpum ríkisstjórnarinnar
verða væntanlega lögð fyrir þing-
ið í dag, en stefnt er að því að
önnur umræða um fjárlög geti
farið fram á mánudag. Olafur
Ragnar Grímsson fjármálaráð-
herra sagði að við það yrði staðið
að öll fjáröflunarfrumvörpin yrðu
lögð fram fyrir aðra umræðu en
það væri spurning hvort að þau
yrðu öll afgreidd fyrir þriðju
umræðu fjárlaga. Pálmi Jónsson
sagði að áður en þriðja umræða
færi fram yrði afgreiðsla fylgi-
frumvarpanna að vera Ijós, að
öðrum kosti væru fjárlögin hald-
lítið plagg. Af því má ráða að
sjálfstæðismenn munu ekki fara
út í þriðju umræðu fyrr en af-
greiðslu þeirra er lokið.
Þær raddir gerast nú æ háværari
á þingi að fresta beri afgreiðslu
fjárlaga fram yfir áramót, bæði
innan stjórnar og stjórnarand-
stöðu. Pálmi sagði ljóst að af-
greiðsla fjárlaga gæti ekki farið
fram fyrir jól og benti á máli sínu
til stuðnings að lítið væri nú
fundað í fjárveitinganefnd, en á
þessum tíma væri venjan að
meðlimir hennar legðu nótt við
dag til að ganga endalega frá
fjárlagafrumvarpinu. Ölafur
Ragnar kvaðst vona að Alþingi
sæi sér fært að afgreiða frumvarp-
ið fyrir jól, það væri vel hægt og
einungis spurning um pólitískan
vilja. - ág
EBE á dagskrá
Steingrímur Hermannsson
forsætisráðherra átti fund með
Wilfried Martens forsætisráð-
herra Belgíu í gærdag, þar sem
viðhorf íslendinga til Evrópu-
bandalagsins og þess sem þar er
að gerast voru rædd.
Steingrímur sagði í samtali við
Tímann, að hann hefði gert Mar-
tens grein fyrir því að full aðild
fslands að EBE væri ekki æskileg,
en hins vegar fríverslunarsamn-
ingar og samstarf á öðrum sviðum
vel hugsanlegt. „Ég lýsti yfir
áhyggjum okkar þess efnis að
saltfiskur skuli ekki vera með í
þeim samningi sem við höfum og
gerði honum grein fyrir því að við
legðum mikla áherslu á að honum
yrði bætt við og sömuleiðis
flökum," sagði Steingrímur.
Hann sagði að Martens hefði sýnt
fullan skilning á því að full aðild
okkar kæmi ekki til greina og
mun Martens hafa svarað þannig
tiTað hann skildi mæta vel að slíkt
kynni að vera okkur óhentugt.
Á þriðjudaginn átti Steingrím-
ur viðræður við Margaret Thatch-
er forsætisráðherra Bretlands um
sömu mál og mætti afstaða fs-
lendinga fullum skilningi frú
Thatchers. -ABÓ
STRUMPARNIR
Heildsala
síml
91-39550
Bömin virtust sum hver ekki yfir sig spennt fyrir Hnotubrjótnum, enda héit vist einn snáðinn að verkið héti Hrotubrjóturinn.
Tímamynd: Gunnar
Boðið á jólatónleika
Öllum börnum sem fædd eru 1983,
og eru á dagheimilum og leikskólum
borgarinnar, var í gærmorgun boðið
að sjá jólaævintýrið Hnotubrjótinn
eftir Hoffmann. Benedikt Ámason
sagði söguna um Hnotubrjótinn við
tónlist Tsjajkofskís sem flutt var af
Sinfóníuhljómsveit fslands.
Tónleikarnir voru í Háskólabíói
og voru þeir næstsíðustu á þessu ári.
Bömin fóm í fylgd umsjónarfóstra
sinna og að sögn voru allir mjög
ánægðir með tónleikana sem hófust
kl. 9.30 og lauk um klukkan hálf
ellefu. elk