Tíminn - 28.12.1988, Qupperneq 3
Miðvikudagur 28. desember 1988
Tíminn 3
Týndist „kreppan“ í jólaösinni?
Enginn samdráttur
í jólaversluninni
Kreppan margumtalaða kom ekki fram í innkaupum
landsmanna fyrir jólin. Af viðtölum við kaupmenn má
merkja að salan var með svipuðu móti og í fyrra. Notkun á
greiðslukortum var síst meiri fyrir þessi jól, virðist jafnvel
vera heldur minni ef miðað er við þær tölur sem nú liggja
fyrir hjá greiðslukortafyrirtækjunum. Þess má jafnframt geta
að ekki hefur aukist að fólk fari fram úr úttektarheimildinni.
Tíminn setti sig í samband viö
nokkra kaupmenn til að kanna hvort
staðhæfingar stjórnvalda um
kreppuástand í landinu fengju stað-
festingu í samdrætti í jólainnkaupum
landsmanna. Kaupmennirnir sem
talað var við voru sammála unt það
að í jólaösinni hafi ekki verið hægt
að merkja að fjárráð fólks væru
eitthvað minni en áður.
Notkun á greiðslukortum vifðist
vera nokkuð mismunandi eftir teg-
undum verslana. í stórmörkuðunum
var notkunin hlutfallslega mesl.,. í
Miklagarði fengust t.d. þær upplýs-'1
ingarað hún væri urn 60% af heildar-
sölunni. í bókaverslunum var helm-
ingur jólasölunnar tekinn út á
greiðslukort. 'V •
í skartgripa- og heimilistækja-
verslunum virðist notkun greiðsluk-
orta vera mun niinni. í viðtölum við
verslunarstjóra í slíkum verslunum
kom fram að staðgreiðslur á dýrum
hlutum voru ótrúlega algengar fyrir
jólin. Sem dæmi má nefna að hjá
Bræðrunum Ormsson voru greiðslur
nteð greiðslukortum aðeins 15-20%
af heildarsölunni og í langflestum
tilfellum var varan staðgreidd. Er
þar um að ræða upphæðir frá 35
þúsund krónum og allt upp í 300
þúsund krónur.
í versluninni Gull rtg Silfur fengust
þær upplýsingar að salan á dýrunt
skartgripum var töluverð fyrir þessi'
jól og síst minni en í fyrra. Yfirleitt
voru gripirnir staðgrciddir og veröið.
var allt upp í 300 þúsund krónur.
Algengast var þó aö keyptar væru
gjafir fyrir um tíu þúsund krónur.
Þess má geta að góð sála í gjafa-
vörum virðist ekki hafa haft áhrif á
áfengiskaup landsmanna fyrir jólin.
í viðtali við verslunarstjóra hjá
ÁTVR kom fram að fljótt á litið væri
salan vera mjög svipuð að magninu
til og í fyrra.
Erfitt er að segja til um hvort
krepputal stjórnmálamanna eigi sér
stoð þrátt fyrir líflega verslun fyrir
jólin. Einn kaupmannanna sent
Tíminn ræddi við var á þeirri skoðun
að allt tal um kreppu hefði þann eina
tilgang að draga úr neyslunni en ef
litið væri til sölunnar fyrir jólin væri
Ijóst að stjórnvöld töluöu fyrir dauf-
um eyrum og almenningur skynjaði
stöðuna á annan veg en stjórnvöld
gera. SSH
Jólaös í Kringlunni á Þorláksmessu.
Týndist „kreppan" í innkaupunum?
Tíminn: Cunnar
Félag húsgagna- og innréttingaframleiðenda:
Mótmæla álagn-
ingu vörugjalds
Rcvkholtsskóli í Borgarfírði.
Vatnsleki í Reykholtsskóla:
Tværkennslustofur
skemmdust talsvert
Tvær kennslustofur í Reykholts-
skóla skemmdust talsvert þegar
heitavatnskrani gaf sig í einni skóla-
stofunni á efstu hæð skólahússins.
Vatnið lak sem leið lá niður milli
hæða og skemmdust m.a. loftplötur
sem nýlega hafði verið komið fyrir.
Snorri Jóhannesson yfirkennari í
Reykholtsskóla sagði f samtali við
Tímann að lekinn hefði uppgötvast
um hádegisbilið í gær og var auðsjá-
anlegt að vatnið hefði þá lekið um
nokkurn tíma. Ekki er að fullu ljóst
hvenær leiðslan gaf sig, en síðast var
farið í skólann á jóladag og var þá
ekkert óvenjulegt að sjá. þannig að
heita vatnið hefur ekki lekið meir en
í um sólarhring, þar til það uppgötv-
aðist á hádegi í gær og var unnið við
það síðdegis að þurrka vatnið upp.
„Þetta mun hafa verið krani sem lá
upp í vask í kennslustofu, sem cr á
efstu hæð í austurhluta skólahúss-
ins,“ sagði Snorri. Vegna hita var
ekki viðlit að fara inn í kennslustof-
una þar sem kraninn gaf sig og urðu
mestar skemmdir á þeirri stofu og
stofunni á næstu hæð, auk þess sem
minni skemmdir urðu á öðrum
stofum.
Skólabyggingin er þrjár hæðir auk
kjallara og hafði vatnið lekið frá
þeirri efstu og niöur í kjallara, þar
sem það hafði síðan lekið út um
sprungur í gólfi kjallárans.
Snorri sagði að skemmdir væru
einkum á loftplötum sem nýlega
hefði verið komið fyrir, en gólfdúk-
urinn virtist ekkert eða lítið hafa
skemmst, og skemmdir minni en
ætla mætti þar sem um hcitt vatn var
að ræða. Aðspurður hvort menn
gerðu sér grein fyrir tjóninu sem af
þessu hefði hlotist, sagði hann svo
ekki vera. Hann sagði að þctta kæmi
ekki til með að hafa áhrif á skóla-
haldið og lekinn engin áhrif haft á
rafmagnið. -ABÓ
Húsgagna- »g innréttingaiönaöur
á mjiig í vök aö vcrjast, aö því cr
frain kcniur ályktun scm sainþykkt
var á fclagsfundi hjá Fclagi hós-
gagna- »g innréttingaframleiöenda
nýveriö. Félagiö mótmælir harölcga
þcirri aöför aö íslcnskum húsgagna-
og innréttingaiönaöi, sem felst í
frumvarpi uin brcytingu á lögum um
vörugjald, scm ríkisstjórnin hcfur
lagt fyrir Alþingi.
í þessu sambandi bcndir félagið á
að íslcnskur húsgagna- og innrétt-
ingaiðnaöur hefur árum saman átt í
mjög harðri samkcppni viö crlenda
aðila og samkcppnisaðstaðan stór-.
um versnaö á undanförnum misser-
um vegna fastgcngisstcfnu, óhóflcgs
fjármagnskostnaðar og erfiðra
starfsskilyrða, segir í ályktuninni.
Þá kemur fram að þrátt fyrir mikið
uppbyggingarstarf íslenskra hús-
gagnaframleiðenda, helur markaðs-
hlutdeild þeirra sílellt farið minnk-
andi, allt frá unt 73% á árinu IÓ77
niður í um 32% á síðasta ári. I
innréttingalramleiðslu hcfur innlend
markaðshlutdeild cinnig minnkaö
stórlega, eða úr um 90% niöur í um
52% á síöasta ári.
„Að leggja vörugjald á íslensk
húsgögn oginnréttingarogjafnframt
á hráefni til þeirrar framlciðslu er
því forkastanlcgt og lýsir óskiljan-
legri vanþckkingu eða skilningsleysi
stjórnvalda á samkcppnisstöðu
þessa iönaðar," scgir í ályktuninni.
Ef vörugjaldið vcrður að veruleika.
segir í ályktuninni, mun það lciða til
að mörg fyrirtæki vcrði að hætta
starfsemi og hluti þeirra 1400 manna
sem við hann starfa missi því atvinn-
una. -ABÓ
Ekið á mann
á gönguskíðum
Ekiö var á mann á gönguskíöum
á Ólafsfjarðarvegi skammt fyrir
norðan bæinn Hof í Arnarneshrcppi
skömmu eftir klukkan níu í fyrra-
kvöld. Hann var fluttur á sjúkrahús-
ið á Akurcyri ogNíðan mcð flugvél
til Reykjavíkur þar sem hann liggur
nú mjög þungt haldinn á sjúkrahúsi.
Hann var við annan mann á
gönguskíðum á letð milli ba:ja í
sveitinni. Þeir stoppuðu til ;iö ræða
við kunningja sinn sem þeir mættu
þar á btl. cn skömniu siöat korn
annar bíil norðanað og ók á annan
manninn með fyngs'cindum at-