Tíminn - 28.12.1988, Blaðsíða 7
Miðvikudagur 28. desember 1988
Tíminn 7
Starfsemi nefndar forsætisráöherra um framtíðarspár liggur niðri:
Framtíðamefnd
föst í fortíð ?
„Við höfum fengið tvær bækur frá nefndinni; Gróandi
þjóðlíf og Auðlindir um aldamót en við keyptum og greiddum
fyrirfram ofannefndar bækur og tvær eða þrjár aðrar og
áttum að fá þær sendar“, sagði Vilborg Bjarnadóttir ritari
forstjóra Flugleiða.
Vilborg sagði að hún hefði skrifað
bréf til nefndarinnar þegar næstu rit
hennar bárust ekki á tilsettum tíma
og alls sagðist hún hafa haft samband
vegna þessa, ýmist bréflega eða
símleiðis, a.m.k. sex sinnum.
Hjá starfsmanni nefndarinnar
hefði hún alltaf fengið sömu svörin
á þá leið að þetta færi nú alveg að
koma en nú væri um eitt og hálft ár
síðan bækurnar áttu að berast og
ekki bólaði á þeim enn.
Magnús Ólafsson var um sinn
starfsmaður nefndarinnar og Tíminn
spurði hann hvort hún væri sofnuð
svefninum langa?
Magnús sagði að nefnd hefði verið
skipuð að tilhlutan Steingríms Her-
mannssonar forsætisráðherra árið
1984 sem kanna átti í sem víðustu
samhengi framtíðarhorfur á íslandi
til næstu aldamóta.
Skipuð var í fyrstunni 40 manna
ráðgjafanefnd og úr henni valdir 7
menn til að skipa framkvæmda-
nefnd. Framkvæmdanefndin kom
síðan á laggirnarsextán starfshópum
sem hver um sig átti að annast
afmörkuð verkefni.
Magnús kom til starfa um áramót-
in 1985-‘86 og var hann ráðinn til
eins árs við að búa niðurstöður
hópanna undir prentun og sjá um
útgáfu efnisins. Akveðið var að gefa
út fimm bækur eða rit flokkuð eftir
efni þeirra. Bækurnar voru síðan
kynntar ýmsum stofnunum og fyrir-
tækjum og seldar í einu lagi gegn
fyrirframgreiðslu.
í ársbyrjun komu síðan út tvær
bækur. Önnur þeirra; Gróandi þjóð-
líf var um mannfjöldaspár. umhver-
fismál o.fl. Hin; Auðlindir um alda-
inót fjallaði um náttúruauðlindir ís-
lendinga.
Um svipað leyti rann ráðningar-
tími Magnúsar út og enginn tók við
hans starfi. Bæði var fé það búið sem
til verksins hafði verið veitt og
komið los á þá sem í framkvæmda-
nefndinni unnu. Því varð ekki fram-
hald á útgáfunni. enda sumir hópar
búnir að skila af sér greinargerðum
meðan aðriráttu þaðalgerlega eftir.
Aðspurður urn hvort þeir sem
keypt höfðu oggreitt fyrirfram fimm
bækur fengju endurgreiddar hinar
þrjár óskrifuðu, sagðist hann búast
við því og það félli trúlega í hans hlut
að ganga endanlega frá þessum
málum.
Hann sagðist myndu ganga úr
skugga um hverjir þessir aðilar væru
og hafa samband við þá innan
skamms. - sá
ASÍ ályktar um launalækkun hjá Arnarflugi:
LAUNAUEKKUN
EKKI LÖGLEG
Svo sem kunnugt er af fréttum ákvað starfsfólk Arnarflugs fyrir nokkru
að gefa 10% launa sinna cftir til félagsins vegna bágrar stöðu þess.
A Þorláksmessu funduðu svo fulltrúar starfsmanna um mál sín í
húsakynnum ASÍ. Á þessum fundi var ákveðið að stéttarfélög starfsmanna
kynntu sér hvort verið geti að launalækkunin geti talist brot á landslögum.
Samkvæmt landslögum eru samningar launamanna og atvinnurekenda
sem kveða á um lakari kjör en kjarasamningar stéttarfélaga, ógildir.
Dómstólar hafa reyndar komist að þeirrí niðurstöðu að yfirborguð laun
megi ekki lækka öðruvísi en að segja fyrst upp ráðningarsamningi
starfmannsins með löglegum uppsagnarfresti. Launalækkun starfsfólks
Arnarflugs nú um áramaótin var ekki ákveðin með uppsagnarfresti.
-áma
'íAVjYI. K\\\
Skýrsla Útvarpsréttarnefndar:
Fisksölur á Bretlands- og
Þýskalandsmarkaöi vikuna
19. til 23. desember:
85-90% ná sendingum
einkasjónvarpsstöðva
Nú þegar þrjú ár eru liðin frá setningu nýrra útvarpslaga
ná 85-90% landsmanna útsendingum einkasjónvarpsstöðva
en 80% landsmanna geta hlustað á einkahljóðvarpsstöðar.
Frá því að útvarpsréttarnefnd tók
til starfa hafa 13 aðilar fengið leyfi
til reksturs hljóðvarps og 6 aðilar
leyfi til sjónvarpsreksturs. Að auki
hafa 35 aðilar fengið leyfi vegna
skólaútvarps og 26 aðilar vegna s.k.
tækifærisútvarps.
Þessar upplýsingar er að finna í
skýrslu sem útvarpsréttarnefnd hef-
ur tekið saman um starfsemi sína frá
upphafi. Þar kemur einnig fram að
engri umsókn um leyfi til útvarps-
rekstrar hefur verið hafnað, cn þó
hefur nefndin enn ekki afgrcitt um-
sóknir vcgna útvarps um þráð, þar
sem afstaða Póst- og símamálastofn-
unar sem umsagnaraðila um tækni-
lega eiginleika slíkra útvarpsstöðva
liggur ekki fyrir.
Nefndin hefur ekki séð ástæðu til
að afturkalla útvarpsleyfi.
Á blaöamannafundi sagði Kjartan
Gunnarsson formaður ncfndarinnar
að friður og samkomulag hefði ríkt
um starf nefndarinnar enda hefði
hún gætt þess aö setja sér einfaldar
rcglur til að fara eftir. Kjartan tók,
einnig fram að samkomulag innan
nefndarinnar hcfði verið meö ein-
dæmum gott þó að í nefndinni sætu
lulltrúarscm skipaðir væru al'stjórn-
málaflokkunum.
Þeir sem sæti eiga í útvarpsréttar-
ncfnd voru kosnir til þess af Alþingi
í desembcr 1985 til fjögurra ára.
SSH
Endurskinsmerki fáan-
leg í öllum apótekum;
í Garðabæ sem annars-
, staðar:
Omakleg
gagnrýni
„Apótekin selja endurskinsmerki
Umferðarráðs og fyrir endurskins-
merkjavikuna sem var í haust var
gengið rækilega úr skugga um að
þau fengju merkin.
Apótekið í Garðabæ fékk þrjár
sendingar af endurskinsmerkjum og
pantanir sem ráðinu bárust voru
meiri en nokkru sinni áður held ég
að ég megi segja,“ sagði Sigurður
Helgason hjá Umferðarráði.
Sigurður Helgason hafði samband
við Tímann í tilefni af samtali blaðs-
ins við Hilmar Ingólfsson skólastjóra
í Garðabæ sem birtist fyrir skömmu,
en þar gagnrýnir Hilmar ómarkviss
vinnubrögð Umferðarráðs fyrir
endurskinsmerkjavikuna og þátt
ráðsins í þessum málum almennt.
Sigurður hafnaði gagnrýni Hilm-
ars sem hann kvað gera lítið úr starfi
Umferðarráðs á þessu sviði og mættu
kjörnir fulltrúar Garðabæjar líta
beturfeigin barm íþessummálum.
-sá
Á myndinni eru, talið frá vinstri: Kristinn Skúlason, verslunarstjóri SS, Guðjón Guðjónsson, markaðsfulltrúi SS,
Valur Blomsterberg, Dagný Ivarsdóttir, hlaut 30 þúsund króna vöruúttekt, Kristín Þórhallsdóttir, Magnúsína
Guðmundsdóttir og Valur Fannar. Á myndina vantar Guðrúnu Bjartmarz og Sigrúnu Ingóifsdóttur, sem einnig
hlutu verðlaun.
Rúm 1100
tonn seld
Um 1181 tonn af ísfiski voru
seld á Þýskalands- og Bretlands-
markaði i vikunni fyrir jól og var
kítóverðið í hærri kantinum.
Hcildarverðmæti aflans var um
89 milljónir króna.
í Bretlandshöfnum seldu að-
eins tvö skip þessa vikuna, sam-
tals 157,5 tonn og fcngust samtals
13 milljónir fyrir aflann. Þetta
voru Álftafell SU og Arnarncs
ÍS. Þorskur var um 122 tonn af
heildarmagninu og fengust fyrir
kílóið 83,25 krónur að meðaltali.
18 tonn voru seld af ýsu, meðal-
verð 95,78 krónur og sex tonn af
ufsa, mcðalverð 49,94 krónur.
Úr gámum voru seld rúm 503
tonn, þar af 294 tonn af þorski,
meðalverð 88,12 krónur, 86 tonn
af ýsu, meðalverð 123,57 krónur
á kíló og af ufsa voru seld 38
tonn, meðalverð 39,71 króna. Af
öðrum fisktegundum var selt
minna.
í Þýskalandshöfnum lönduðu
þrír bátar samtals 521 tonni.
Þetta voru Hegranes SK (143
tonn), Ottö N. Þorláksson RE
(196 tonn) og Breki VE (181
tonn). Heildarverðmæti aflans
var um 30 milljónir króna. Meg-
inuppistaðan í afla þessara báta
var karfi og voru um 356 tonn
seld og fcngust 62,64 krónur á
kíló. Af ufsa voru 127 tonn seld
og fengust 48,73 krónur fyrir
kílóið. -ABÓ
Verðlaun veitt
í kjötkynningu
Alls bárust hátt í sjö þúsund svör
viö getraun sem Sláturfélag Suður-
lands gekkst fyrir nýlega.
Félagið stóð fyrir kjötkynningar-
herferð um síðustu mánaðamót og'
var uplýsingabæklingum um kjöt
dreift á 50 þúsund heimili á höfuð-
borgarsvæðinu. í því tilefni var efnt
til getraunar þar sem spurt var um
ýmis atriði úr bæklingnum.
Þátttaka var góð og voru vegleg
verðlaun í boði, ein 30 þúsund króna
vöruúttekt og fimm 10 þúsund
króna.
SS þakkar öllum þeim sem tóku
þátt í getrauninni.