Tíminn - 30.12.1988, Side 4

Tíminn - 30.12.1988, Side 4
4 Tíminn Föstudagur 30. desember 1988 Osonlagiö og þar með mannkynið er í stórhættu ! Úðabrúsar bannaðir 1991 Nýverið boðaði Jón Sigurðsson iðnaðarráðhcrra til blaða- mannafundar þar sem kynnt var innihald skýrslu um notkun ósoneyðandi efna á íslandi árið 1986 og framkvæmdaáætlun um minni notkun og mat á kostnaði. Skýrsla þessi er unnin af nefnd sem þáverandi iðnaðarráð- herra, Friðrik Sophusson, skipaði 15. júní síðastliðinn. Mat nel'ndarinnar er það að heild- arnotkun ósoneyðandi efna á íslandi hafi verið um 200 tonn árið 1986. Þar af voru um 70 tonn flutt inn sem hráefni til notkunar í iðnaði og í framleiöslu, og um 130 tonn í liálf- unnum og fullunnum varningi. Nefnd þessi gcrir tillögur um fram- kvæmdaáætlun, er tekur mið af hverju notkunarsviði fyrir sig, auk tillagna um framkvæmd og eftirlit, svo og endurskoðun framkvæmda- áætlunur árið 1991. Samkvæmt þessari áætlun hcnnar cr gert ráð fyrir því að tninnka hcildarnotkun klórflúorklórefna, en þaö er annar tvcggja efnaflokka scm taldir eru eyða ósonluginu, um meira en 25% fyrir árið 1991. Þar vegur þyngst tillaga um bann viö notkun úðabrúsa frá og með árinu 1991. Það er jafnframt skoðun nefndarinnar, að hægt eigi að vera að minnka hcildarnotkun klórflúorkolefna fyrir lok ársins 1994 um 50% af notkun- inni árið 1986. Þetta bann við úöabrúsum á sér rcyndar hliðstæður víða um heim, eftir því sem fram kom á lundinum. Mcðal annars munu þeir liafa veriö bannaðir í Handaríkjunum til l'jölda ára sem og víðsvegar í Livrópu. Með orðinu „úðabrúsi" í þessu lill'clli er ekki átt við þá brúsa sem eru með loftpumpu og þarf þar af leiðandi aö dæla vökvanum úr, heldur brúsa sem dæla vökvanum út í loftið svo lengi sem þrýst er á þar til gerðan tappa. Það er mtit ofangreindritr nefndar að kostnaöur við að draga úr notkun klórflúorelnímna hér á landi, geti oröið hliðstæður við áætlaðan kostn- að annars staðar á Norðurlöndum, cða 300-400 kr. á kílóið. Heildar- kostnaður við að minnka notkun þessara efna um hclnting fyrir lok ársins 1994 yröi þannig 30-40 mill- jónir króna, rciknað á vcrölagi í lok ársins 1988. Ósonlagið gegnir mjög þýöingar- miklu hlutvcrki í verndun alls lífríkis á jörðu. Þaö stöðvar orkumikla, útfjólubláa geislun frá sólinni. Þynn- ing lagsins hcfur í för með sér aukna útfjólubláa gcislun á yfirborö jarðar, með skaðlegum áhrifum fyrir menn, dýr og gróður. Áhril'in sem slíkt hefur á mannskcpnuna er fyrst og frcmst aukin tíöni húökrabbameins, veikaraónæmiskerfi og augnskaðar. Eitt af því sem beint hcl'ur athygli manna að ósonlaginu undanfarin ár, eru mælingar á þykkt þess yfir Suðurskautslandinu. Þar hcfur mælst, l'rá árinu 1979, umtalsverð þynning í september og október, svokallað „ósongat". Þetta svæöi hel'ur verið að stækka undanfarin ár. Nú beinast augu Ijölmargra vísinda- manna aö því að svipuð þróun geti orðið á noröursvæðum, með tilvar- legri áhril'um vcgnti þéttari byggöar. Á næstunni verður gerður rit leiðangur vísindamanna víðsvcgar að úr heiminum til rannsókna á ósonlaginu yfir norðurskautinu. Leiöangur þessi mun verða geröur út l'rá Stavanger í Noregi og er búist við að rannsóknir hans muni sýna enn l'rekar Iram á nauðsyn þcirra aðgerða sem nú hafa veriöákveðnar. - áma. Sænskir læknar enn ráðalausir gegn skæðum skarlatssóttarsýkli: Islensk stúlka vann bug á streptokokkum í mánuðinum dó fimmtíu ára gömul kona á sjúkrahúsi í Malmö Frá Þór Jónssyni i Stokkhólmi. íslensk stúlka í Stokkhólmi veikt- ist af streptokokkaflensunni. sem lagt hefur ellefu fórnarlömb að velli í Svíþjóð einni. Dánartalan er meira en tvöfalt hærri í Noregi. íslenska stúlkan smitaðist að öll- um líkindum á dagheimili, sem hún var vistuð á, en dagheimilinu var lokað, þegar hvert barnið á fætur ö,ðru veiktist. íslenska stúlkan var flutt á spítala, þar sem henni voru gefin fúkalyf, en hún reyndist hafa nægilegt mót- stöðuafl til að vinna bugásjúkdómn- um. ■ Öllum börnunum batnaði og dagheimilið hefur verið opnað á ný. Vara loks við Sænskir læknar vara nú loks ák- veðna áhættuhópa við þessum skæða sjúkdómi, sem þeirstanda ráðalausir frammi fyrir. Þeir hafa ckki áður séð ástæðu til þess, - einungis bent á að ekki sc um faraldur að ræða -, en nú cr komið annað hljóð í strokkinn. eftir uppskurð sem hún hafði gengist undir þar. Uppskurðurinn tókst að óskum, en í Ijós kom að streptok- okka-sýkillinn hafði borist í blóðið og dregiö hana til dauða. Allt starfs- fólk og sjúklingar-samtals hundrað manns - á deildinni voru umsvifa- laust rannsakaðir. Sextíu höfðu smitast! Læknarnir hvetja á þessu stigi málsins allar óléttar konur og þá, sem eiga að gangast undir uppskurð, að leita læknis undir eins og þeir eða einhver nákominn þeim finni til eymsla í hálsi. Uggvænleg þróun Poul Christensen, sýklafræðingur á sjúkrahúsinu í Malmö, segir í viðtali við Aftonbladet að full ástæða sé að vara við þessum sjúkdómi. - Við fæðingu eða uppskurð eykst hættan á því að þessi tegund af streptokokkum berist í blóðið og þá er hann stórhættulegur, segir hann. Sýklafræðingurinn telur að ástandið á skurðdcild sjúkrahússins í Malmö sé ekki einsdæmi. Hann óttast að streptokokkarnir hafi bor- ist um alla Svíþjóð. Þó tekur hann skýrt fram að flestir fá sjúkdóminn á vægu stigi. - En þetta er uggvænleg þróun og ný uppgötvun að svo margir hafi smitast af sömu tegund af streptok- okkurn. Ulfar og Ljón opna enn á ný Nýir eigendur hafa lekiö við veitingastaðnum Úlfar og Ljón sem opnaður hefur verið aftur eftir eigendaskipti og breytingar. Staðurinn hefur nafn sitt af nöfn- um fyrri eigenda, þeirra Úlfars Eysteinssonar og Leós Löve, én Lcó þýðir ljón á latínu, langi einhvern að vita. Úlfar Eysteinsson hefur opnað vcitingastað vestur á Hagamel þar sem liann matreiðir lisk af kunnri snilld sinni. en eigendaskiptin á Úlfar og Ljón munu ekki hafa i för með sér stefnubreytingu í rekstri staöarins því nýju eigendurnir. þeir Tómas Kárason og Ágúst Cnið- mundsson, ætla að leggja mikla áherslu á fiskrétti hér eftir sem hingað til. - sá Amnesty International sendir bref til allra ríkisstjóra í Brasilíu: Misþyrmingar af hálfu lögreglu og embættismanna I mörgum málum sem Amnesty International hefur haft afspurn af, hafa lögregluyfirvöld farið í kringum skráningu á glæpum eða sleppt alfar- ið að afla sér sönnunargagna sem nauðsynleg eru, samkvæmt brasil- ískum lögum. Það er áhyggjuefni að í ákveðnum tilfellum hafa embættismenn jafnvel af ráðnum hug eyðilagt fyrir rann- sókn sem þeim hefur verið falin. Amnesty telur, að brasilísk lög hafi að geyma fullnægjandi ákvæði til að hægt sé að láta fara fram rannsókn á svo alvarlegum glæpum sem morð eru, og að unnt sé að lögsækja þá sem bera á þeim ábyrgð. Sannanir eru fyrir því, að misbrestur er á notkun Jreira ákvæða, bæði af hálfu lögreglu og dómsvalds í mörgum fylkjum. Staðreynd er, að opinberir em- bættismenn samþykkja ólöglegt at- hæfi vopnaðra manna og örygg- isvarða. Þar sem markviss uppbygg- ing hefur át sér stað. hafa margsinnis borist fréttir af því að smábændum og indíánum hefur veriö misþyrmt, og einnig hafa verið framin pólitísk morð á bændaleiötogum og stuðn- ingsmönnum þeirra. Þegar talsmönnum stjórnarinnar hafa borist fyrirspurnir frá Amnesty International um þessi efni, fást þau svör að náin tengsl milli embættis- manna ríkisins og landbúnaðarins, sé skýring á óeðlilega fáum handtök- um og ófullnægjandi málssóknum á hendur þeim sem ábyrgir eru fyrir morðunum. Amnesty International fer þess á leit við fylkisstjóra og embættismenn stjórnarinnar að þeir geri nauðsyn- legar ráðstafanir til að skylda alla embættismenn ríkisins til þess að hlíta lögum. Þeir sem gerast sekir um ólöglegt ofbeldi, handtökur eða brjóta rétt fanga á annan hátt sam- kvæmt stjórnarskránni. skulu fá viðhlítandi málsmeðferð og réttmæt- an dóm. Ökumenn þreytast fyrr noti þeir léleg sólgleraugu. Vondum IUMFEROAR Iráð

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.