Tíminn - 30.12.1988, Blaðsíða 13
Föstudagur 30. desember 1988
Tíminn 13
111 ÚTLÖND ■iiii^ii'ili'lllililliiiilijliliii1!^; :■ . .■ .. i'll'l'1
Abu Nidal og Fatha byltingarráöið stóð við orð sín:
Frönsku systrunum
skaut upp í Líbýu
Frönsku systurnar Marie-Laure
og Virginie sem verið hafa í haldi í
Líbanon í þrettán niánuöi hafa nú
fcngið frelsi. Þær birtust í Lfbýu í
gærmorgun eftir að ekkert hafði til
þeirra spurst í tvo daga. Fatha
byltingarráðið sem hélt þcim í gísl-
ingu hafði tilkynnt á þriðjudag að
stúlkunum yrði sleppt og þær sendar
til fjölskyldu sinnar í París. En
ekkert bólaði á þeim fyrr en í gær og
voru ættingjar stúlknanna orðnir
mjög kvtðafullir.
Stúlkurnar tvær eru aðeins sex og
sjö ára gamlar. Þær voru teknar í
gíslingu ásamt móður sinni og fimm
Belgum er voru á siglingu á
skemmtisnekkju út af stönd ísrael.
Palestínsku skæruliðasamtökin
halda því statt og stöðugt fram að
möðir þeirra og Belgarnir tengist
Mossad. leyniþjónustu ísrael. Því
þrjóskast þeir við að sleppa móður
stúlknanna.
Sápuskort-
ur í Sovét
Sápuskortur hrjáir nú sovéska
borgara þrátt fyrir „sósíalískan
markað“ sem Gorbatsjof er að
reyna að koma á fót í þessu
víðfeðmasta ríki veraldar. Sovét-
menn þurftu að greiða að minnsta
kosti 80 kópeka fyrir sápustykkið
sem notað var í jólasturtuna. Það
var lúxussápa því ódýr sápa fæst
alls ekki. 80 kópekar jafngilda
um 100 krónum íslenskum sem er
mikið á sovéskan mælikvarða.
Tannkrem, handklæði og sal-
ernispappír hafa verið mjög
sjaldgæf sjón í sovéskum stór-
mörkuðum undanfarna mánuði
og er svartamarkaðsverð á þess-
um vörum nú í hámarki. Ekki
bætir það skort á salernispappír
að Pravda og önnur ágæt dagblöð
eru ekki gefin út í nema tiltölu-
lega fáum eintökum og þarf að
spara þau mjög svo allir geti lesið.
Það er engin tilviljun að stti'kun-
um var flogið til Lílrýu og líbýikum
stjórnvöldum falið að koma þeim í
hendur franskra stjórnvalda. Það
var einmitt Gaddafi forseti Lýbíu
sem bað skæruliðaforingjann Abu
Nidal að sleppa stúlkunum í tijefni
jólanna.
Faðir stúlknanna tveggja Jaques
Betille, amma þeirra Brigitte Val-
ente og frændi þeirra Andre Metral
heimsóttu Beirút í síðustu viku til að
freista þess að fá þær lausar. Þá
lofaði Walid Khaled talsmaður
Fatha byltingarráðsins að stúlkunum
yrði sleppt á öruggum stað utan
Líbanon. Það hefur nú komið á
daginn.
Abu Nidal var sagður liafa heim-
sótt stúlkurnar tvær og kvatt þær
áður en þær voru sendar til Líbýu.
Með því vill hann eflaust fegra sig í
augum hcimsins, því hann er talinn
hættulegasti og grimmasti hryðj-
Frá Þór Jónssyni í Stokkhólmi.
Inflúensufaraldurinn í Skandi-
navíu er síst í rénun, enda hafa
aldrei verið fleiri skráðir veikir í
Svíþjóð en nú er.
í Morgunblaði 28. desember er
haft eftir Ólafi Ólafssyni, landlækni,
að sýkingar af völdum inflúensuveir-
unnar á íslandi hefðu ekki verið
staðfestar, en að ekki sé ólíklegt að
hún hafi borist til landsins með
jólagestum frá Norðurlöndum.
Faraldurinn er ekki illvígur og
skv. Morgunblaði vonar Skúli
Johnsen, borgarlæknir, að bólusetn-
ing 30.000 manna á íslandi ætti að
tefja fyrir útbreiðslu inflúensunnar á
uverkamaður heims.
Khalid talsmaður Fatha byltingar-
ráðsins sagði á blaðamannafundi þar
sem hann tilkynnti ;ið stúlkunum
yrði sleppt. að þær væru við „af-
bragðs góða heilsu". Hann sagði
einnig að læknir kæmi reglulega og
skoðaði gíslana.
Slík læknisþjónusta hefur svo
sannarlega komiö sér vel, því móðir
stúlknanna Jaqueline Valente eign-
aðist barn í vor. en hún var barnshaf-
andi eftir ástmann sinn Belgann
Fernand Houtekins sem er með
henni t gíslingunni. Þau eignuöust
stúlku er nefnd hefur verð „Liberte"
sem útleggst „Frelsi" á íslensku.
Astarlíf þeirra skötuhjúa hefur
greinilega blómstrað í gíslingunni
því nú á hún von á sér á nýjah leik.
Auk þeirra er Emmanucl bróðir
Fernand í gíslingunni ásamt konu
lians Godlieve og börnum þeirra
táningunum Laurent og Valerie.
Islahdi.
Þrátt fyrir bólusefningarherferö
Svía, scm var rekin af slíku kappi,
að bóluefni gckk til þurröar, hcfur
inflúcnsan breiöst sem cldur í sinu
um alla Svíþjóð.
Tíminn hafði spurnir af því að
fjölskyldur keyptu bólucfni á svört-
um markaði og greiddu scm svarar
750 krónum fyrir hverja sprautu.
Margt bendir til þcss aö inflúcnsu-
veiran í Skandinavíu sé af nýjum
stofni, en Morgunblaðið hcfur cftir
borgarlækni að bóluefnið scm
sprautað er með á íslandi cigi að
gagnast vel gegn Skandinavíuflens-
unni.
Svíþjóö:
Bóluefnið kom
að litlu gagni
INNLAUSNARVERÐ
VAXTAMÐA VERÐTRYGG©RA
SPARISKfRTEINA RfKISSJÓÐS
(1.FLB1985
Hinn 10. janúar 1989 er áttundi fasti gjalddagi vaxtamiða verðtryggðra
spariskírteina ríkissjóðs með vaxtamiðum í 1. fl. B1985.
Gegn framvísun vaxtamiða nr. 8 verður frá og með 10. janúar n.k. greitt sem hér segir:
Vaxtamiði með 5.000,- kr. skírteini kr. 373,80
Vaxtamiði með 10.000,- kr. skírteini kr. 747,60
Vaxtamiði með 100.000 kr. skírteini kr. 7.476,00
Ofangreind fjárhæð er vextir af höfuðstól spariskírteinanna fyrir tímabilið 10. júlí 1988
til 10. janúar 1989 að viðbættum verðbótum sem fylgja hækkun sem orðið hefur
á lánskjaravísitölu frá grunnvísitölu 1006 hinn 1. janúar 1985 til 2279 hinn 1. janúar 1989.
Athygll skal vakin á því að innlausnarfjárhæð vaxtamiða breytist aldrei eftir gialddaga.
Innlausn vaxtamiða nr. 8 fer fram gegn framvísun þeirra í afgreiðslu Seðlabanka Islands,
Kalkofnsvegi 1, Reykjavík, og hefst hinn 10. janúar 1989.
Reykjavík, 30. desember 1988
SEÐLABANKIÍSLANDS
Iðnaðarráðuneytið Tæknifræðingafélag íslands
Auglýsing
um mat á umsóknum um leyfi til að kalla sig
tæknifræðing.
í lögum um rétt manna til að kalla sig verkfræðinga,
húsameistara, tæknifræðinga eða byggingarfræð-
inga frá 5. september 1986 segir svo í 5. og 6.
grein:
5. gr.
Rétt til að kalla sig tæknifræðing eða heiti, sem
felur í sér orðið tæknifræðingur, hafa þeir menn
einir hér á landi, sem fengið hafa til þess leyfi
ráðherra.
6. gr.
Engum má veita leyfi það er um ræðir í 5. gr. nema
hann hafi lokið fullnaðarprófi í tæknifræði frá
teknískum æðri skóla sem T.F.Í. viðurkennir sem
fullgildan skóla í þeirri grein. Þeir menn, sem
fullnægja skilyrðum þeim, sem sett eru í 1. mgr.
þessarar greinar eiga rétt á, að þeim sé veitt leyfi
til að kalla sig tæknifræðinga.
Iðnaðarráðuneytið og Tæknifræðingafélag Islands
(T.F.Í) hafa komið sér saman um að miða við
eftirfarandi reglur við mat á umsóknum um leyfi til
að kalla sig tæknifræðing:
1. Umsækjandi er hlotið hefur grunnmenntun í
tæknifræði og eina eða fleiri prófgráður því til
staðfestingar skal öðlast leyfi til að kalla sig
tæknifræðing ef öllum eftirfarandi atriðum er
fullnægt:
a) Námið skal vera heilsteypt tæknifræðinám,
sem TFÍ viðurkennir.
b) Próf sé frá skóla eða skólum, sem TFÍ telur
færa um að veita fullnægjandi tæknifræði-
menntun.
c) Námslengd sé minnst 107 einingar þar sem
hver námseining (c) svarar til einnar viku í fullu
námi (próftími ekki meðtalinn). Samsetning
námsins uppfylli þar að auki eftirfarandi skilyrði.
(lágmörk):
Stærðfræði
Eðlisfræði
Aðrar undirstöðugreinar
Tæknilegar undirstöðugreinar
Rekstrargreinar
Tæknigreinar
Valgreinar
10 einingar
6 einingar
5 einingar
20 einingar
7 einingar
41 eining
18 einingar
Samtals: 107 einingar
d) Skilyrði þau sem Tækniskóli fslands setur
hverju sinni um verklega þjálfun og verkskólun
skulu vera uppfyllt. Miðað er við að þessar
kröfur samsvari 35 einingum.
Reglur þessar taka gildi 1. janúar 1989 og skulu
auglýstar í Lögbirtingablaði, dagblöðum og sér-
staklega kynntar nemendum í tæknifræði.
Reglur þessar gilda þar til annað verður ákveðið
og auglýst með sama hætti.
Ákvæði til bráðabirgða
Umsóknir manna sem hafa byrjað samfellt nám í
tæknifræði fyrir 1. janúar 1987 og ekki geta
aðlagað nám sitt ofangreindum reglum skulu
metnar eftir þeim reglum sem notaðar hafa verið
að undanförnu.
Reykjavík, 19. desember 1988
Iðnaðarráðuneytið
Tæknifræðingafélag íslands.