Tíminn - 30.12.1988, Blaðsíða 8

Tíminn - 30.12.1988, Blaðsíða 8
8 Tíminn Föstudagur 30. desember 1988 Tíminn MÁLSVARIFRJÁLSLYNDIS, SAMVINNU 0G FÉLAGSHYGGJU Útgefandi: Framsóknarflokkurinn og Framsóknarfélögin í Reykjavík Framkvæmdastjóri Ritstjórar: Aöstoðarritstjóri: Fréttastjórar: Auglýsingastjóri: Kristinn Finnbogason Indriöi G. Þorsteinsson ábm. IngvarGíslason OddurÓlafsson Birgir Guömundsson Eggert Skúlason SteingrímurGíslason Skrifstofur: Lyngháls 9, Reykjavík. Sími: 686300. Auglýsingasími: 680001. Kvöldsímar: Áskrift og dreifing 686300, ritstjórn, fréttastjórar 686306, íþróttir 686332, tæknideild 686387. Setning og umbrot: Tæknideild Tímans. Prentun: Blaöaprent h.f. Auglýsingaverð kr. 465,- pr. dálksentimetri. Póstfax: 68-76-91 Árangur stjórnarstefnu Þegar ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar kom til valda í septembermánuöi síöastliönum, var ráðist í margs konar stefnubreytingu frá því sem verið hafði í fyrri ríkisstjórn. f*ær breytingar, sem hér um ræöir, voru aðkall- andi vegna fenginnar reynslu af þeirri stefnu sem ríkt. haföi á tilteknum sviðum auk þess sem breyttar þjóðhagsforsendur kröfðust breytinga að því er varðar efnahagsráðstafanir í þágu atvinnu- lífsins. Ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar lýsti yfir því sem grundvallaratriði, að hún væri til þess mynduö aö leysa bráðan efnahagsvanda, sem steðjaði að þjóðinni. Höfuðverkefni hennar er að treysta grundvöll atvinnulífsins, tryggja undirstöð- ur vclferðarríkis á íslandi og vinna að því að landsbyggðin haldi sínum hlut í uppbyggingu og framförum þjóðfélagsins. Ef þriggja mánaða ferill ríkisstjórnarinnar er athugaður, kcmur í ljós, að þar hefur festa ráðið hvað varðar markmið stjórnarstefnunnar. Ríkis- stjórnin hefur lagt sig fram um að leysa efnahags- vandann eins og hann hefur birst þjóðinni undan- farna mánuði og misseri. Efnahagsvandinn hefur óumdeilanlega snúist um rekstrargrundvöll útflutningsfyrirtækjanna og afkomu ríkissjóðs. Nátengt þessum meginvanda efnahagslífsins er síðan allt það, sem snýr beint að afkomu einstaklinga og heimila. Vissulega eru hagsmunir atvinnulífsins, ríkisbúskaparins og heimilanna samofnir. Ríkisstjórninni ber að hafa heildarsýn um þessa samofnu hagsmuni innan þjóðfélagsgerðarinnar. Efnahagsaðgerðir að undanförnu hafa m.a. miðast við það að kanna af nákvæmni hag og rekstrarmöguleika framleiðslugreinanna, ekki síst sjávarútvegsgreina. Um það efni liggja nú fyrir betri upplýsingar en áður og ráðstafanir gerðar til þess að koma fjárhag fyrirtækja á viðunandi grundvöll. Hvað rekstur ríkissjóðs varðar hefur sú stefna verið tekin að forðast hallarekstur og lántökur og jafna byrðunum af ríkisrekstrinum á landsmenn með breyttri tekjuöflun ríkissjóðs. Vafalaust finna ýmsir til breytingarinnar af þessari stefnu vegna þess að áður var látið reka á reiðanum um ríkisbúskapinn vegna áhrifa frá Sjálfstæðisflokkn- um. Ríkisstjórnin hefur tekið upp gerbreytta stefnu í peningamálum, lánsfjármálum og vaxtamálum. í tíð ríkisstjórnarinnar hafa vextir stórlækkað og bætt afkomu atvinnufyrirtækja og heimila. Prátt fyrir samdrátt og minnkandi atvinnu hjá ýmsum, þá er augljóst að kaupgeta meginþorra launþega hefur haldist. Verðlags- og launastöðvunin er að vísu lögþvinguð bráðabirgðaaðgerð, en hún hefur eigi að síður sannað það sem efnahagsleg dæmi- saga, að verðbólguhjöðnun og siðmannlegt verð- bólgustig er í senn eina raunhæfa kjarabótin fyrir launþega og alger forsenda þess að hægt sé að reka atvinnufyrirtæki á vitlegan hátt. llllllllllllllllllllll GARRI - ' í aldanna skaut I>á vr uö líAa þctta þrautaár í efnahag.slífi okkar, ár stjórnar- skipta, ár vona og harma og ár þcirrar stööugu hjartsýni, sem ger- ir okkur fært að lifa við sæmilcgan kost í landinu. Sc fariö hundraö ár aftur í tímann, scm cr ckki langt, leit hcimurinn allt ööruvísi út. l>á, scm liafa þá vcriö í áramótahug- lciöingum, hefur ctlaust ekki óraö fyrir tvcimur hcimsstyrjöldum á nicstu öld, og alls ekki órað fyrir því nýja íslandi scm reis upp úr öskustó á l'yrri tugum þcssarar aldar, tók margvíslcga tækni í sína þjónustu og gcröist sífcllt flóknara sumfélag, svo aö nú hafa margvís- lcgarstofnanir þann starfu aö scgja fyrir um og spá hvaö næstu mánuö- ir hcra í skauti sínu, oft án sýnilcgs árangurs cöa þá aö mikillar misvís- unar gæti. Samt sem áður er baslaö viö margvíslcgt hokur, og fæstir gcfa spádómunuiu gaum. Ár kemur, ár fer Fyrir um hundraö áruin vur tíö- arfar mikið vcrra hér á landi en þaö cr nú, og haröindin hröktu murgt gott fólk til Vesturheims. f>á var líka minna lianda á milli til aö vcrjust óhlíöri náttúru, hús voru köld og crTitt um aðföng jafnvcl á árstima sem hér verður bcstur vcgna vætu og stórviðra. I>á voru dæmi þcss aö snjóaöi í júnímánuöi. Engu aö síður þokiiöust menn áfrain viö störf sín ulls óvísir um hin flóknu cfnahagsdæini, scm nú tckur huga svo margra fanginn. Við hclditm áfram aö lifa þá eins og viö liöldum áfrain aö lil'a nú. I>ótt ckki sc lcngra um liðið, og incnn hafi nii stigiö fótum á tungliö, var ckki fullvíst oröiö imi sjálfa jöröina fyrir hundraö árum. Mcim voru í óðaönn að leita aö upptökum Nílar og Davíð Living- stonc hufði látist i Tanganíku finmitán árum áöur í núöri ókann- aðri ogmyrkri hulinniálfu. Þremur árum áöur haföi hann verið lýstur týndiir, cn þá fann bandaríski blaöamaöurinn Stanlcy liann og heilsaöi lionuni cinum hvítra manna á öllu því svæöi scm miö- hluti Afríku cr, cins og hann væri aö heilsa manni á götu í New York, með oröimuin: „Livingstonc, vænti ég.“ Og þaö var orö að sönnu. Fimmtán þrep í vatn Þarfir okkar og nauösynjar hafa tckiö niiklum breytingum á liundr- að árum. Nú þiirfum viö bíi, sjónvarp, (jafnvcl ruglara) síma, ísskáp, þvottavél og nóg af stöðu- gilduin, ckki cndilega til að sinna nauösynjaverkum, heldur til að efla sjálfsímynd uppanna. Ekkcrt af þcssu var til fyrir hundraö árum. í bcsta fulli taldist til þæginda, cf bóndinn tók sig til í stórhríöunum aö moka eins og fimmtán þrcp í snjóinn niður aö bæjarlæknum svo hægt væri aö ná í vatn handa fólki og fcnaöi. Það cr auövitaö fyrir löngu hætt aö tala um rafmagn og vatn scm þægindi. Hvort tvcggja kcinur bara cinhvcrs staöar að í gegnum húsvcgginn. Nútíniamaöurinn þakkar ckki fyrir neitt. Allt sem hann hefur eru sjálfsagöir hlutir og nauösynlcgir í þeim samtima scm við lifum. Nú- tímamaöurinn cr svo viss í sinni sök og svo ákveöinn í aö þannig hafi þaö alltaf vcriö hvað þægindin sncrtir, að ilcstir þeirra veigra sér viö aö kíkja cftir því í bókum livort lífsþægindin hafi cinhvern tínia veriö önnur. Hclstu slysfarir í land- inu fyrir hundraö árum voru drukknanir ýmist í sjó eða í ám og vötnum. Nú sér bílaumfcröin um aö koma fyrir mannslífum, þótt sjóslys vcröi því itiiður af því okkur cr gert aö sækja sjó. En þau eru livorki eins tíö eöa cins inannskæö og þau voru. Engu hægt að fagna Hlý hús okkar cru cinfaldlega munaöur sem þckktist ekki fyrir hundraö árum. Á jólaföstunni 1888 sat maöur inn í inargmcnnri bað- stofu og las úr bók á kvöldvökunni. Þcgar lestrinum lauk yggldi hann sig og liarði sér svolítið, hætti svo andartak og tók húfu sína og sagöi: „Ég ætla snöggvast út til að hlýja mér." Úti var yfir limmtán stiga gaddur. Eólk hló nú aö þcssu, en cngu aö síöur var þctta staðreynd. En hverju eruin við nær. Eru ekki allir óánægðir? Eru ekki allar ríkis- stjórnir ómögulcgar? Er ckki allt ráölaust? Vitund okkar hcfur tckið mikl- um stakkaskiptum til hins verra. Við fögnum ckki neinu lengur. Við höfum svo mikið og húum svo vel, aö það er í rauninni cngu aö fagna. Kcrtaljós á jólum cr bara gamall siður. Jólalagasöngur í fjölmiðlum cr mcstmcgnis á ensku. Þaö eru að vísu keypt jólatré enn þá og börn fá aö horfa á einhvcrja spriklara í rauöiim göllum, nokkurs konar cftirlíkingu af hcilögum Nikulási úr kaþólsku, cn allt er þetta gcrt án mikillar tilfinningar eöa innlifunar, nema hvaö börnin eru það ung að liægt cr að halila fram þcim ósann- indum. aö þctta rauðklædda sprikllið í rauðu göllunum úr Whitc Christmas sé komið ofan af Hellis- heiöi. Þaö mun ganga miklu mcira á í þjóðfélaginu, þegar kaup og kjarajólin koma á næsta ári. Garri óskar svo lesendum sínuni gleöi- legs árs, því þrátt fyrir allt væliö lifum við gleðileg ár um þessar inundir. Garri 'llllllllllllll! VÍTTOG BREITT Nýlcga cr komið út tveggja binda afmælisrit Búnaðarfélags íslands. mikið sögulcgt stórvirki, scm hcfur að gcyma yfirlit yfir íslcnska búnaðarsögu í 150 ár, 1837-1987. Augljóst cr að hér er um vandað rit að ræða að efni og ytri búnaði. Þeir scm kynnast vilja þcssum merka þætti í atvinnu- og framfarasögu íslendinga á 19. og 20. öld sækja um hann mikinn fróðleik í þetta myndarlega afmæl- isrit. 1837 Þcgar talað er um 150 ára afmæli búnaðarsamtaka hér á landi er miðað við stofnun fyrstu almanna- samtaka. sem svo má kalla, hér á landi, cn þau nefndust Suðuramts- ins liúss- og bústjórnarfélag. Nafn- ið cr að vísu dönskuskotið og ber merki síns tíma að því leyti. Enn ríkti í landinu dönsk einvaldsstjórn með mikilsráðandi embættisstétt, þar sem svo kölluð háyfirvöld trón- uðu yfir hinum lægra settu þjónum konungsveldisins og skrifstofu- valdsins í ríki Danakonungs. Á þessum tíma var varla við að búast að stórvirki yrðu unnin í lýðræðis- legum samtökum. Eigi aðsíðurvar þjóðin að vakna til vitundar um að efla samtakamátt sinn, bæði hvað varðar stjórnmál, verklegar fram- farir og sókn í menningarmálum. Frumkvæði einvaldsþjóna Þótt ekki hafi það verið siður að hrósa embættisstéttinni, sem þá ríkti í landinu, síst af öllu háyfir- völdunum, þá er þess að minnast að frumkvæðið að búnaðarsam- tökunum í Suðuramtinu kom frá æðstu valdsmönnum landsins. Hin órofna 150 ára saga búnaðarsam- taka á því rætur í einveldisöldinni. Þrátt fyrir allt voru meðal æðstu embættismanna í lok þess tíma frjálslyndir og framfarasinnaðir menn, sem að sínu leyti milduðu skilin milli nýs og gamals í þjóðar- sögunni. Fyrri rit Hvað þessa nýju búnaðarsögu varðar, eins og hún liggur fyrir, þá fjallar meginefni hennar um síð- ustu 50 ár. Á 100 ára afmæli búnaðarsamtakanna 1937 komu út myndarleg afmælisrit eftir dr. Þorkel Jóhannesson og Sigurð Sig- urðsson búnaðarmálastjóra. Þau rit eru nú notuð sem heimild að aðfaraþætti búnaðarsögu síðustu 50 ára. Verður ekki annað séð en að hér hafi verið rétt að verki staðið, enda hafa rit þeirra Þorkels og Sigurðar á engan hátt úrelst, heldur standa þau fyrir sínu. Aðlögunarvandi Þegar lesin er búnaðarsaga ís- lands í 150 ár, þá er vert að benda á, að landbúnaðurinn hefur oft á þessum tíma staðið frammi fyrir miklum vandamálum, sem vel má kalla aðiögunarvanda, eins og nú er tamt að tala um á síðustu árum, þegar yfir stendur að laga búvöru- framleiðslu að síbreytilegu þjóð- félagi, tækni, neysluháttum og markaðsmöguleikum. Hver tími hefur fært sinn vanda að landbún- aðinum. Það hefur verið hlutverk stjórnvalda og forystumanna bændastéttarinnar að bregðast við vanda síns tíma. Vafalaust verður svo lengst af. Hvað það varðar er áreiðanlega færra nýtt undirsólinni en margir vilja vera láta. Þegar fjallað er um nútíðarvanda land- búnaðar er gagnlegt að kunna skil á búnaðarsögunni. Afmælisrit Búnaðarfélags íslands kemur sann- arlega að gagni í því efni. Ing.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.