Tíminn - 30.12.1988, Side 12
12 Tíminni
FRÉTTAYFIRLIT
LONDON — Bandarísk
flugfélög hafa hert til mikilla
muna öryggisgæslu sína á
breskum flugvöllum eftir aö
Ijóst var að sprengju þeirri er
grandaði breiðþotu PanAm
flugfélagsins var komið um
borð á Heaththrow flugvelli.
Ættingjar þeirra er fórust hyggj-
ast lögsækja PanAm þar sem
flugfélagið gerði engar sér-
stakar öryggisráðstafanir þrátt
fyrir að bandarísk flugmálayfir- i
völd höfðu varað við yfirvofandi j
hættu af völdum hryðjuverka-
manna á þessari flugleið.
PARIS — Líbýsk yfirvöld
afhentu frönskum yfirvöldum
ungu stúlkurnar tvær sem i
haldi voru í Líbanon í þrettán
mánuði. Þær eru nú komnar til
föður síns París.
MOSKVA - Fyrrum leiðtogi
Sovétríkjanna Leonid Brésnef
má muna fífil sinn fegri. Nafn
hans hefur nú verið máð af
öllum opinberum byggingum, ■
þar með talið af húsi því erj
hann eitt sinn bjó í. Hin opin-;
bera fréttastofa Tass skýrði frá |
þessu.
MÚNCHEN — Vesturþýsk-
ar húsmæður vinna um það bil
80 klukkustundir á viku hverri I
en reynsla þeirra og vinnu-
framlag er mjög vanmetið. Þá!
er fjárhagslegt öryggi þeirra í!
algjöru lágmarki.
AMSTERDAM — Forstjóri
filippseyska flugfélaasins |
„Philippine Airiines" sagði að,
þeim hafi borist aðvörun um að
palestínskir skæruliðar hafi í j
huga að ræna einhverri flugvél [
félagsins. Þá hafa „China Air- j
lines“ og „Garuda Indonesiaj
Airways" einnig fengið aðvör-
un. Ertalið að liðsmenn skæru-'
liðaforingjans Abu Musa hafi)
þegar undirbúið flugrán í Aust-
urlöndum.
LISSABON — Angólustjórn
hefur formlega beðið Samein-
uðu þjóðirnar um fjárstyrk að
upphæð 800 milljónir króna til
ao greiða kostnaðinn við að
flytja þá 50 þúsund hermenn
Kúbumanna sem nú eru í Ang-
óla heim til Kúbu í samræmi
við nýgerða friðarsamninga,
Föstudagur 30. desember 1988
lllllllliilllliillllllllll ÚTLÖND
Shamir forsætisráðherra ísraels segist vilja viðræður um hernumdu svæðin:
Egyptar lykilmenn
í f riðarsamningum
Forsætisráðherra ísraels Yitzhak
Shamir biðlar nú mjög til Egypta og
segir þá geta leikið lykilhlutverk til
að koma á friði á hernumdu svæðun-
um á Vesturbakkanum og í Gaza.
Sagðist hann vonast til þess að innan
tveggja mánaða gætu hafist friðar-
viðræður undir umsjá risaveldanna
þar sem Egyptar yrðu milligöngu-
menn arabaríkjanna og Palestínu-
manna í viðræðum við Israela.
Shamir sagði í gær að hann væri
reiðubúinn til þess að leyfa kosning-
ar á hernumdu svæðunum svo Pal-
estínumenn þar geti kjörið eigin
fulltrúa til að taka þátt í friðarvið-
ræðum við ísraelsmenn.
Shamir hafnar algerlega viðræð-
um við Frelsissamtök Palestínu sem
fyrr. Egyptar hafa sett það sem
skilyrði fyrir friðarviðræðum að ísra-
elar ræði við PLO. Prátt fyrir það
segist Shamir bjartsýnn á að geta átt
fund með Hosni Mubarak forseta
Egyptalands á næstunni.
Egyptar eru eina arabaríkið sem Yitzhak Shamir hefur alltaf verið harður gegn Palestínumönnum. Nú vill !
samið hefur um frið við Israelsmenn. |,ann friðarviðræður.
Rajiv Gandhi og Benazir Bhutto hittast í Islamabad:
Allt viö þaö sama í Líbanon:
Þyrlu-
árásirog
sprengju-
tilræði
Ofbeldið sem virðist orðið óað-
skiljanlegur þáttur í hinu
stríðshrjáða landi Líbanon braust
út að nýju í gær þegar kröftug
bílasprengja sprakk nærri varð-
stöð sýrlenskra hermanna í Líb-
anon og ísraelskar herþyrlur
gerðu árásir á stöðvar Amal-
skæruliða.
ísraelsku herþyrlurnar réðust
á stöðvar Amalskæruliða í þorp-
inu Sultaniyeh 80 km suður af
Berút. Að sögn liðsmanna friðar-
gæslusveitar Sameinuðu þjóð-
anna á þessum slóðum særðust
átta liðsmenn Amalliða í árás-
inni, en enginn lést. Hins vegar
varð mikið tjón á búðum skæru-
liðanna.
Þessi árás er fyrsta árás ísraela
á Amalliða á þessu ári sem er að
líða, en þeir hafa gert margar
árásir á skæruliða Palestínu-
manna og Hizbollahsamtakanna.
Manntjón varð heldur ekki í
sprengjutilræðingu í Beirút, en
einn maður særðist þar. Sýrlensk-
ir hermenn lokuðu öllum götum
er liggja að Kolahverfinu í Beirút
þar sem sprengjan sprakk.
Vilja bæta samskipti
Pakistans og Indlands
Vel fór á með þeim Benazir
Bhutto forsætisráðherra Pakistans
og Rajiv Gandhi forrsætisráðherra
Indlands er þau hittust að máli í
Islamabad höfuðborg Pakistans í
gær, en þau sitja bæði þriggja daga
fund leiðtoga sjö ríkja í suðaustur
Asíu. Samskipti Indlands og Pakist-
ans hafa verið vægast sagt stirð frá
því ríkin fengu sjálfstæði frá Bretum
árið 1947. Þrisvar sinnuin hafa ríkin
háð blóðug stríð á þessu tímabili.
Bhutto og Gandhi munu að
minnsta kosti hittast tvisvar á einka-
funduni meðan á þessari ráðstefnu
stendur. Er talið víst að þau munu
leggja áherslu á bætt samskipti ríkj-
anna tveggja á næstunni.
í ræðu sinni í gær lofaði Gandhi
mjög friðarhug Benazir Bhutto og
sagðist vona að friðasamleg sam-
skipti þjóðanna myndu aukast á
næstunni. Bhutto hvatti hins vegar
óll ríkin til að taka höndum saman
og stuðla að öruggum friði í Suðaust-
ur-Asíu.
í fyrradag var undirritaður griða-
sáttmáli milli Indverja og Pakistana
sem kveður á um að bæði ríkin heita
því að ráðast ekki gegn kjarnorku-
verum hins ríkisins.
Leiðtogar Bangladesh, Bhutan,
Maldívaeyja, Nepals og Sri Lanka
sitja fundinn auk Gandhi og Bhutto.
Khartoum:
Skothríð á
mótmælendur
Lögreglan í Khartoum höfu-
ðborg Súdans hóf skothríð á
mótmælendur sem héldu áfram
mótmælaaðgerðum sínum þrátt
fyrir að ríkisstjórn landsins hefði
hætt við hækkun á hrísgrjónum.
Ekki hafa borist fréttir af mann-
falli. Hækkað verð á hrísgrjónum
var einmitt kveikjan að mótmæla-
aðgerðum gegn stjórnvöldum.
Talsmaður ríkisstjórnarinnar
sagði að ný ríkisstjórn yrði mynd-
uð í landinu innan nokkurra
klukkustunda eftir að Lýðræðis-
legi sambandslokkurinn dró sig
út úr ríkisstjórn Sadeq al-Mahdi
forsætisráðherra.
Gæsluvarðhaldsúrskurður rennur út í dag:
Blaðamenn fá
skömm í hatt
/
Frá I»ór Jónssyni í Stokkhólmi.
í dag, 30. desember, lýkur hálfs
mánaðar löngu gæsluvarðhaldi, sem
Christer Petterson var úrskurðaður
í, grunaður um morðið á Olof Palme
fyrir tæpum þremur árum.
Ekki er við öðru að búast en að
gæsluvarðhaldið verði framlengt í
dag, en sannanir á hendur hinum
grunaða hafa hrannast upp á þessum
tíma, eftir því sem fréttir herma.
Verjandi hans hefur árangurslaust
áfrýjað gæsluvarðhaldsúrskurðin-
um.
Lögreglan gagnrýnir sænsku dag-
blöðin og þá kannski helst síðdegis-
blöðin fyrir fréttaflutning þeirra.
Það hefur leitt af þagmælsku lögregl-
unnar um framvindu rannsóknarinn-
ar að blöðin hafa farið að kanna
málið á eigin spýtur. Meðal annars
hafa blaðamenn rætt við kunningja
Christers, sem segja að hinn grunaði
hafi beðið þá um að veita sér fjarvist-
arsönnun.
Þetta eru þó allt óstaðfestar fréttir
og segir talsmaður lögreglunnar að
takist að fá fram formlegan vitnis-
burð um slíkt væri sekt Christers
Pettersons endanlega sönnuð.
Um það er þó deilt á blaðsíðum í
Svíþjóð um þessar mundir. Fyrrver-
andi dómsmálaráðherra Svía hefur
látið hafa eftir sér að þegar svo langt
er um liðið frá því verknaðurinn var
framinn nægi ekki einu sinni viður-
kenning af hálfu hins grunaða til
þess að fella hann fyrir dómi.
Þannig séu nú einu sinni lögin í
Svíþjóð.
Christer Petterson heldur enn
fram sakleysi sínu, þrátt fyrir sam-
felldar yfirheyrslur reyndustu rann-
sóknarlögreglumanna Svía.
Bandaríska farþegaþotan sem grandað var yfir Skotlandi:
Bush lofar að
refsa hryðju-
verkamönnunum
George Bush sem taka mun við
forsetaembættinu í Bandaríkjun-
um 20. janúar hét því í gær, að
hryðjuverkamönnum þeim er
grönduðu bandarísku farþegaþot-
unni er hrapaði yfir Skotlandi 21.
desember síðastliðinn, yrði harð-
lega refsað. Hann lagði þó áherslu
á að erfitt yrði að hafa hendur í
hári þeirra, en að Bandaríkjastjórn
myndi ekkert til spara í leitinni að
ódæðismönnunum.
Ekki er vitað hverjir stóðu að
tilræðinu. Efst á lista grunaðra eru
öfgasamtök Palestínumanna sem
andstæð eru hugmyndum Frelsiss-'
amtaka Palestínu og Yassers
Arafat leiðtoga þeirra um friða-
rsamkomulag í Mið-Austurlönd-
um.
Sir Edgar Howe utanríkisráð-
herra Bretlands hvatti til víðtækrar
samvinnu állra ríkisstjórna, þar
með talið ríkistjórna i Mið-Austur-
löndum, til að finna tilræðismenn-
ina.
-Það mikilvæga á þessari stundu
er að allar leyniþjónustur og ríkis-
stjórnir vinni af heilindum í sam-
einingu að því að finna út hverjir
standa að ódæðinu og koma lögum
yfir þá, sagði Howe í útvarpsviðtali
í BBC í gær.