Tíminn - 30.12.1988, Side 16

Tíminn - 30.12.1988, Side 16
16 t'í iminn ieoriie^eí'> flf, ■iuoeL,ui!>ó*l Föstudagur 30. desember 1988 ’ DAGBÓK Jólafrumsýning Þjóöleikhússins: Fjalla-Eyvindur og kona hans Á annan dag jóla frumsýndi Þjóð- leikhúsið hið sígilda verk Jóhanns Sigur- jónssonar, „Fjalla-Eyvindur og kona hans“ í leikstjórn Bríetar Héðinsdóttur. Sigurjón Jóhannsson teiknaði leikmynd og búninga, Leifur Þórarinsson samdi tónlist við verkið og Ijósahönnuður er Páll Ragnarsson. Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir leikur Höllu, Þórarinn Eyfjörð leikur Kára (Fjalla-Eyvind), Hákon Waage leikur Arnes, Erlingur Gíslason leikur Björn hreppstjóra. Aðrir leikarar eru: Bryndís Pétursdóttir, Jón Símon Gunnarsson, Guðný Ragnarsdóttir, Þórunn Magnea Magnúsdóttir, Ævar R. Kvaran, - sem heldur upp á fimmtíu ára leikafmæli sitt með þessari sýninguRúrik Haraldsson, Baldvin Halldórsson, Guðbjörg Þor- Jólatrés- skemmtun Verzlunarmannafélag Reykjavíkur heldur jólatrés- skemmtun fyrir börn félagsmanna sunnudaginn 8. janúar kl. 15.00 á Hótel íslandi. Miöaverö fyrir börn kr. 400,- og fyrir fullorðna kr. 100,- Miðar eru seldir á skrifstofu V.R. Húsi verslunarinn- ar, 8. hæö. Upplýsingar í síma 687100. Verzlunarmannafélag Reykjavíkur. Jólahappdrætti Framsóknarflokksins Dregið hefur verið í jólahappdrætti Framsóknarflokksins. Númerin eru í innsigli hjá borgarfógeta til 13. janúar 1989. Vinsamlegast gerið skil fyrir þann tíma. Gleðilega jólahátíð. Framsóknarflokkurinn. Jólaalmanak SUF 1988 Eftirtalin vinningsnúmer hafa komið upp: 1. des. 1. nr. 1851 9. des. 17. nr. 6401 17. des. 33. nr. 784 2. nr. 4829 18. nr. 5984 34. nr. 1932 2. des. 3. nr. 7315 10. des. 19. nr. 6305 18.des. 35. nr. 4457 4. nr. 1899 20. nr. 1398 36. nr. 2933 3. des. 5. nr. 6122 11. des. 21. nr. 4671 19. des. 37. nr. 7299 6. nr. 1500 22. nr. 5488 38. nr. 5351 4. des. 7. nr. 2993 12. des. 23. nr. 714 20. des. 39. nr. 1068 8. nr. 8376 24. nr. 7300 40. nr. 5818 5. des. 9. nr. 1780 13. des. 25. nr. 4456 21. des. 41. nr. 1733 10. nr. 3258 26. nr. 1016 42. nr. 174 6. des. 11. nr. 1984 14. des. 27. nr. 3260 22. des. 43. nr. 154 12. nr. 8352 28. nr. 6725 44. nr. 6533 7. des. 13. nr. 8240 15. des. 29. nr. 808 23. des. 45. nr. 6501 14. nr. 7307 30. nr. 6106 46. nr. 1242 8. des. 15. nr. 1340 16. des. 31. nr. 3764 24.des. 47. nr. 3588 16. nr. 7485 32. nr. 7229 48. nr. 474 Velunnarar! Látið ekki happ úr hendi sleppa. Gerið skil og leggið baráttunni lið. Allar frekari upplýsingar eru veittar í síma 91-24480 eða 91-21379 og á skrifstofu Framsóknarflokksins, Nóatúni 21, Reykjavík. SUF Fjalla-Eyvindur (Þórarinn Eyfjörð) og Halla (Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir) með Tótu litlu. bjarnardóttir, Jón Júlíusson og Þóra Friðriksdóttir. Börnin, sem skiptast á um að leika hlutverk eru: Aðalsteinn Jon Bergdal, Þorleifur Arnarson, Manúela Ósk Harðard., Helga Þórðardóttir, Dagbjört Guðmundsdóttir, Heiðrún Jónsdóttir, María Mjöll Jónsdóttir og Hildur Eiríks- dóttir. Jóhann Sigurjónsson fæddist 1880 á Laxamýri í Þingeyjarsýslu. Hann gekk í Latínuskólann í Reykjavík og hugði á dýralæknisnám og hélt til Kaupmanna- hafnar til náms í Landbúnaðarháskólan- um, en hætti námi vegna ritstarfa. Jóhann bjó í 20 ár í Danmörku en lést 39 ára. Hann skrifaði leikrit, Ijóð, ævintýri og spakmæli. Leikrit Jóhanns eru: Skugginn (óprentað) Dr. Rung (1905), Bóndinn á Hrauni (1908), Fjalla-Eyvindur (1911), Galdra-Loftur (1915), Mörður Valgarðs- son (1917). 4. sýning á Fjalla-Eyvindi verður. 30. desember. 1 BILALEIGA með utibú allt i kringurri landið, gera þér mögulegt aö leigja bíl á einum stað og skila honum á öðrum. Reykjavík 91-31615/31815 Akureyri 96-21715/23515 Pöntum bíla erlendis interRent Bílaleiga Akureyrar ÚTVARP/SJÓNVARP iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiI 85 ára Haukur Þorleifsson, fyrrum aðalbókari Búnaðarbankans, verður 85 ára á morgun, gamlársdag. Hann og kona hans Ásta Björnsdóttir taka á móti gestum í fundarsal Lionsklúbbanna Sigtúni 9 kl. 2-4 á afmælisdaginn. Laugardagsganga Hana nú Vikuleg laugardagsganga Hana nú í Kópavogi verður á morgun, laugardaginn 31. desember - gamlársdag. Lagt af stað frá Digranesvegi 12 kl. 10.00 Við kveðjum gamla árið og fjórða ár laugardagsgöngunnar. Þetta bæjarrölt er fyrir alla unga og eldri. Komi þeir sem koma vilja. Nýlagað molakaffi, samvera, súrefni og hreyfing í góðum félagsskap. Sr. Gunnar Björnsson messar í Kvennaskólanum Hátíðarmessa og altarisganga verður á gamlárskvöld kl. 18.00 í Kvennaskólan- um við Fríkirkjuveg. Sr. Gunnar Björns- son prédikar og þjónar fyrir altari. Flutt verður klassísk messa. Ræðuefni: „Erallt nýtt undir sólunni?" Ágústa Ágústsdóttir, Hrönn Hafliða- dóttir, Viktor Guðlaugsson og Anders Josephson syngja. Organisti ogsöngstjóri er Jónas Ingimundarson. Básúnukvartett undir stjórn Odds Björnssonar leikur í hálfa klukkustund á undan athöfninni. Allir cru velkomnir. Jólasýning I Gallerí Grjót f Gallerí Grjót, Skólavörðustíg 4A, stendur nú yfir jólasýning, - sem jafn- framt er sölusýning. Á sýningunni eru verk þeirra 9 listamanna sem að galleríinu standa, þ.e.: Gestur Þorgrímsson, Jónína Guðnadóttir, Magnús Tómasson, Ófeig- ur Björnsson, Páll Guðmundsson frá Húsafelli, Ragnheiður Jónsdóttir, Sigrún Guðjónsdóttir (Rúna), Þorbjörg Hösk- uldsdóttir og Örn Þorsteinsson. Oll verk- in á sýningunni eru til sölu. Opið alla virka daga frá kl. 12-18. Happdrætti Styrktarfélags vangefinna Dregiö hefur verið í happdrætti Styrkt- arfélags vangefinna og hafa vinningar komið á eftirfarandi númer: Bifreið Subaru Station 1800 kr. 1.000.000: nr. 74654 Bifreiö Honda Civic 4D GL kr. 835.000: nr. 30327 Bifreið að eigtn vali á kr. 500.000: nr. 40057,46092,55036,81633,43738,51305, 59123, 90877. 6> Rás I FM 92,4/93,5 FOSTUDAGUR 30. desember 6.45 Veðurfregnir. Bæn, séra Gunnlaugur Garð- arsson flytur. 7.00 Fréttir. 7.03 í morgunsárið Fréttayfirlit kl. 7.30 og 8.30, fréttir kl. 8.00 og veðurfregnir kl. 8.15. Lesið úr forustugreinum dagblaðanna að loknu fréttayfir- liti kl. 8.30. Tilkynningar laust fyrir kl. 7.30,8.00, 8.30 og 9.00. 9.00 Fréttir. 9.03 Litli barnatíminn Lesin sagan um Palla og álfastrákinn eftir Helgu Egilson. (Einnig útvarp- að um kvöldið kl. 20.00). 9.20 Morgunleikfimi Umsjón: Halldóra Björns- dóttir. 9.30 Bókaþing Kynntar nýjar bækur. 10.00 Fréttir. Tilkynningar. 10.10 Veðurfregnir. 10.30 Maðurinn á bak við bæjarfulltrúann Umsjón: Erna Indriðadóttir. (Frá Akureyri) 11.00 Fréttir. Tilkynningar. 11.05 Samhljómur Umsjón: Anna Ingólfsdóttir. 11.55 Dagskrá. 12.00 Fréttayfirlit. Tilkynningar. 12.20 Hádegisfréttir 12.45 Veðurfregnir. Tilkynningar. 13.35 Miðdegissagan: „Konan í dalnum og dæt- urnar sjö“ Ævisaga Moniku á Merkigili skráð af Guðmundi G. Hagalín. Sigríður Hagalín les (24). 14.00 Fréttir. Tilkynningar. 14.05 Ljúflingslög Svanhildur Jakobsdóttir kynnir. (Einnig útvarpað aðfaranótt miðvikudags að loknum fréttum kl. 2.00). 15.00 Fréttir. 15.03„Kerti og spil“ Ragnheiður Davíðsdóttir ræðir um jól áður fyrr og fær til sín gesti. (Endurtekinn frá kvöldinu áður). 16.00 Fréttir. 16.03 Dagbókin Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir. 16.20 Barnaútvarpið Börn senda vinum og vandamönnum nýárskveðjur sínar. 17.00 Fréttir. 17.03 Þjóðlög og dansar frá ýmsum löndum. a. Skosk þjóðlög og þjóðdansar. Alexander-bræð- ur syngja og leika. b. Fantasía um tvö rússnesk þjóðlög. Osipov-þjóðlagahljómsveitin leikur; Vi- taly Gnutov stjórnar. c. Syrpa af argentínskum þjóðlögum. Los Cantores de Quilla Huasi flokk- urinn syngur og leikur. d. Rúmenskur Zígauna- ástarsöngur og hringdans. RúmenskirZígaunar syngja og leika. e. Tveir Flamenco dansar frá Andalúsiu. f. Þjóðlög frá ýmsum löndum í breska heimsveldinu. The Spinners leika og syngja. 18.00 Fréttir. 18.03 Þingmál Umsjón: Arnar Páll Hauksson. (Einnig útvarpað daginn eftir kl. 9.45). Tónlist. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. 19.00 Kvöldfréttir 19.30 Tilkynningar. 19.35 „HRYGGILEG ÖRLÖG ORÐA“, smásaga eftir Úlf Hjörvar Erlingur Gíslason les. 20.00 Litli barnatíminn (Endurtekinn frá morgni). 20.15 Hljómplöturabb Þorsteins Hannessonar. 21.00 Kristján fjórði - Goðsögn og veruleiki Tryggvi Gíslason tekur saman dagskrá í tilefni af fjögurra alda ríkisstjórnarafmæli hins fræga danska einvaldskonungs. 22.00 Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orð kvöldsins. 22.15 Veðurfregnir. 22.20 Vísna- og þjóðlagatónlist 23.00 í kvöldkyrru Þáttur í umsjá Jónasar Jónas- sonar. 24.00 Fréttir. Næturútvarp á samtengdum rásum til morguns. & FM 91,1 01.10 Vökulögin Tónlist af ýmsu tagi í næturút- varpi. Fréttir kl. 2.00 og 4.00 og sagðar fréttir af veðri, færð og flugsamgöngum kl. 5.00 og 6.00. Veðurfregnir frá Veðurstofu kl. 4.30. 7.03 Morgunútvarpið Dægurmálaútvarp með fréttayfirliti kl. 7.30 og 8.30 og fréttum kl. 8.00. Leifur Hauksson og Ölöf Rún Skúladóttir hefja daginn með hlustendum, spyrja tíðinda víða um land, tala við fólk í fréttum og fjalla um málefni líðandi stundar. Jón öm Marinósson segir Ódáinsvallasögur kl. 7.45. Veðurfregnir kl. 8.15 og leiðarar dagblaðanna kl. 8.30. 9.03 Viðbit - Þröstur Emilsson. (Frá Akureyri) 10.05 Morgunsyrpa Evu Ásrúnar Albertsdóttur og Óskars Páls Sveinssonar. 12.00 Fréttayfirlit. Auglýsingar. 12.20 Hádegisfréttir 12.45 í Undralandi með Lísu Páls. Sigurður Pór Salvarsson tekur við athugasemdum og ábend- ingum hlustenda laust fyrirkl. 13.00 í hlustenda- þjónustu Dægurmálaútvarpsins og í framhaldi af því gefur Hilmar B. Jónsson hlustendum holl ráð um helgarmatinn. 14.00 Á milli mála - Eva Ásrún Albertsdóttir og Óskar Páll Sveinsson. 16.03 Dagskrá Stefán Jón Hafstein, Guðrún Gunn- arsdóttir og Ævar Kjartansson bregða upp mynd af mannlífi til sjávar og sveita og því sem hæst ber heima og erlendis. Kaffispjall upp úr kl. 16.00, „orð í eyra" kl. 16.45 og dagsyfirlit kl. 18.30. Frásögn Arthúrs Björgvins Bollasonar frá Þýskalandi og fjölmiðlagagnrýni Einars Kára- sonar á sjötta tímanum. Ódáinsvallasaga endurlekin frá morgni kl. 18.45. 19.00 Kvöldfréttir 19.33 Áfram ísland íslensk dægurlög. 20.30 Vinsældalisti Rásar 2 Stefán Hilmarsson kynnir tíu vinsælustu lögin. (Einnig útvarpað aðfaranótt mánudags að loknum fréttum kl. 2.00). 21.30 Kvöldtónar 22.07 Snúningur Stefán Hilmarsson ber kveðjur milli hlustenda og leikur óskalög. 02.05 Vökulögin Tónlist af ýmsu tagi í næturút- varpi til morguns. Fréttir kl. 4.00 og sagðar fréttir af veðri, færð og flugsamgöngum kl. 5.00 og 6.00. Veðurfregnir frá Veðurstofu kl. 4.30. Fréttir kl. 2.00, 4.00, 7.00, 7.30, 8.00, 8.30, 9.00, 10.00, 11.00, 12.00, 12.20, 14.00, 15.00, 16.00, 17.00,18.00, 19.00, 22.00 og 24.00. SVÆÐISÚTVARP Á RÁS 2 8.07- 8.30 Svæðisútvarp Norðurlands 18.03-19.00 Svæðisútvarp Norðurlands 18.03-19.00 Svæðisútvarp Austurlands SJÓNVARPIÐ Föstudagur 30. desember 18.00 Líf í nýju Ijósi (20) (II était une fois... la vie) Franskur teiknimyndaflokkur um mannslíkam- ann, eftir Albert Barrillé. 18.25 Gosi (1). Nýr teiknimyndaflokkur um ævintýri Gosa - tréstrákinn sem átti þá ósk heitasta að verða mennskur. Myndaflokkurinn er byggður á upprunalegum sögum höfundarins Carlo Lor- engrini - Collodi frá árinu 1876. Leikraddir Örn Árnason. Þýðandi Jóhanna Þráinsdóttir. 18.50 Táknmálsfréttir. 18!55 Austurbæingar (Eastenders) Tíundi þáttur. Breskur myndaflokkur í léttum dúr. Aðalhlutverk Anna Wing, Wendy Richard, Bill Treacher, Peter Dean og Gillian Taylforth. Þýðandi Kristmann Eiðsson. 19.25 Búrabyggð (4) (Fraggle Rock) Breskur teiknimyndaflokkur úr smiðju Jim Hensons. Þýðandi Guðni Kolbeinsson. 20.00 Fréttir og veður. 20.35 Lottó. 20.45 Nonni. Lokaþáttur. Þýskur framhaldsmynd- aflokkur byggður á sögum Jóns Sveinssonar. Nonni er leikinn af Garðari Thor Cortes og Manna leikur Einar örn Einarsson. Leikstjóri Ágúst Guðmundsson. 21.35 Handknattleikur. ísland - Danmörk. Bein útsending frá síðari hálfleik í Laugardalshöll. 22.10 Þjófaástir. (Love Among Thieves). Banda- rísk sjónvarpsmynd frá 1987. Leikstjóri Roger Young. Aðalhlutverk Audrey Hepburn og Robert Wagner. í myndinni segir frá ævintýrum hefðar- konu nokkurrar í óbyggðum eftir bíræfið dem- antarán. Þýðandi Gunnar Þorsteinsson. 23.40 Söngelski spæjarinn (6) (The Singing De- tective) Breskur myndaflokkur. Aðalhlutverk Michael Gambon. Þýðandi Gauti Kristmanns- son. Atriði í myndinni eru ekki við hæfi barna. 01.00 Útvarpsfréttir í dagskrárlok. srm Föstudagur 30. desember 16.35 Rútan rosalega. Hver stórmyndin á fætur annarri er tætt niður og skrumskæld á meinhæð- inn hátt. Aðalhlutverk: Joseph Bologna, Stock- ard Channing, John Beck, Jose Ferrer, Larry Hagman og Sally Kellerman. Leikstjóri: James Frawley. Framleiðendur: Fred Freeman og Lawrence J. Cohen. Þýðandi Úlfar Sigmunds- son. Paramount 1976. Sýningartími 85 mín. 18.00 Snæfinnur snjókarl. Teiknimynd. Þýðandi: Ragnar Hólm Ragnarsson. 18.25 Pepsí popp. Annáll ársins. Þátturinn er unninn í samvinnu við Sanitas hf. sem kostar gerð hans. Kynnar Hafsteinn Hafsteinsson og Nadia K. Banine. Umsjón: Helgi Rúnar Óskars- son. Dagskrárgerð: Hilmar Oddsson. Stöð 2. 19.19 19:19. Frétta- og fréttaskýringaþáttur ásamt umfjöllun um þau málefni sem ofarlega eru á baugi. 20.30 Alfred Hitchcock. Stuttir sakamálaþættir sem gerðir eru í anda þessa meistara hrollvekj- unnar. Þýðandi: Pálmi Jóhannesson. Sýningar- tími 30 mín. Universal 1986. 21.00 Napóleón og Jósefína. Lokaþáttur. Aðal- hlutverk: Jacqueline Bisset, Armand Assante, Stephanie Beacham, Anthony Higgins og Ant- hony Perkins. Leikstjóri: Richard T. Heffron. Framleiðendur: David L. Wolper og Bernard Sofronski. Warner 1987. 22.30 Stjörnuvíg IV. Star Trek IV. Petta er fjórða myndin í röð um hina framtakssömu áhöfn vísindamannanna sem ætlar að þessu sinni að ferðast aftur til tuttugustu aldarinnar og koma „Jörð framtíðarinnar" til bjargar. Aðalhlutverk: William Shatner, Leonard Nimoy og DeForest Kelley. Leikstjóri: Leonard Nimoy. Framleið- andi: Jack T. Collis. Paramount 1986. Sýningar- tími 115 mín. 00.30 Fráskilin. Separate Tables. Mynd þessi byggir á leikriti í tveimur sjálfstæðum þáttum sem var frumsýnt árið 1954 í Bretlandi og sló öll aðsóknarmet. Baksviðið er sóðalegt hótel fyrir langdvalargesti í Bournemouth í Englandi árið 1954. Aðalhlutverk: Julie Christie, Alan Bates og Claire Bloom. Leikstjóri: John Schlesinger. Framleiðandi: Mort Abrahams. Þýðandi: Björn Baldursson. MGM/UA 1983. Sýningartími 115 mín. 02.25 Dagskráriok. _ UTVARP Mjölnisholti 14, 3. h. Opið virka daga 15.00-19.00 Sími 623610

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.