Tíminn - 06.01.1989, Page 1
Biskup lætur
afembætti
1. júlí n.k.
• Blaðsíða 3
Fækkun fólks
I dreifbýli
að stöðvast?
• Blaðsíða 7
Gjaldþrotkaup-
manna hagstærð
I landbúnaði
• Baksíða
Ríkisstjórnin hyggst koma í veg fyrir að efnahagsaðgerðir bitni á
þeim lægst launuðu og forsætisráðherra hefur þegar lagt grund-
völl að samráði við Mundana í forystu launþegasamtakanna:
Óformlega rætt
við ASÍ og BSRB
Steingrímur Hermannsson for-
saetisráöherra.
Tímamynd: Árni Bjarna
Efnahagsráðstafana er að vænta frá ríkisstjórn
Steingríms Hermannssonar á næstunni og mun
aðaláherslan verða lögð á að skapa sjávarútveginum
rekstrargrundvöll. Jafnframt almennum aðgerðum
eru uppi áform um að koma til hjálpar þeim
fyrirtækjum sem eru mjög illa stödd en eru þó
burðarásar í sínu byggðarlagi. Grundvallaráhersla
er jafnframt lögð á að milda áhrif slíkra ráðstafana á
hag þeirra sem búa við verstu kjörin í þjóðfélaginu
og í því skyni hefur Steingrímur Hermannsson
þegar rætt við þá Ásmund hjá ASÍ og Ögmund hjá
BSRB um hvernig samráði við launþegahreyfinguna
yrði best háttað. Biadsída 5
Brandveggur
brást alveg
Ljóst er orðið að ýmsir gallar voru í brunavörnum
í byggingunni við Réttarháls sem nú er brunnin til
kaldra kola. Eldvarnarveggur sem hólfa átti húsið
niður brást t.d. gjörsamlega vegna þess að á hann
hafði verið gert gat og hann náði ekki upp úr
loftklæðningunni. Byggingin var í mikilvægum
atriðum frábrugðin samþykktum teikningum hvað
eldvarnir varðar. * BSaðsíða 2
Etdvarnarveggur, eöa það sem eftir er af honum, ertil vinstri á myndinni. Hann brann
og Steinullin lak niöur. Tímamynd: Árni Bjarna