Tíminn - 06.01.1989, Side 6
6 Tíminn
Föstudagur 6. janúar 1989
Hjá Bifreiðaskoðun íslands eru uppi áform um að byggja
fímmtán skoðunarstöðvar, sem staðsettar yrðu út um allt
land. I þeim öllum verða tæki til að prófa hemla-, stýris- og
Ijósabúnað auk bílagryfju eða lyftu. Að sögn Jóns Baldurs
Þorbjörnssonar hjá Bifreiðaskoðun íslands verða þar sams
konar tæki og þegar eru í færanlegu skoðunarstöðinni, sem
greint hefur frá í Tímanum.
„f fyllingu tímans verða stöðvarn-
ar einnig búnar tækjum til mengun-
armælinga útblásturs bifreiða,“ bætti
Jón við.
Á flestum þeim stöðum sem fyrir-
hugað er að byggja skoðunarstöðvar
á eru nú þegar fastir skoðunarmenn
og sumstaðar ákveðið húsnæði til
þessara nota.
„Ætlunin er ekki endilega að
byggja nýtt húsnæði út um allt land,
heldur leigja. Við munum að sjálf-
sögðu nýta það húsnæði sem fyrir
er,“ sagði Jón.
f Reykjavík, Keflavík, á Akureyri
og á Selfossi er öruggt að þessar
stöðvar verða settar upp. Einnig á
Akranesi, í Borgarnesi, á ísafirði,
Blönduósi, Sauðárkróki, Húsavík,
Egilsstöðum, Hvolsvelli og í Vest-
mannaeyjum. Annaðhvort verður
sett upp stöð á Eskifirði eða Reyðar-
firði ogef til vill á Höfn í Hornafirði.
Þessu fylgir vitaskuld mikill kostn-
aður þannig að ekki má búast við að
fyrstu föstu skoðunarstöðvarnar
verði teknar í notkun fyrr en í
byrjun næsta árs.
Færanlega skoðunarstöðin tekur
ekki til við að þjónusta landsbyggð-
armenn fyrr en á komandi sumri.
Þangað til verður hún notuð við
skoðun á bifreiðum í Reykjavík.
Ekki er byrjað að nota tækjabún-
að hennar enn sem komið er og
verður beðið með það fram í næstu
viku. Næstkomandi mánudag kemur
hönnuður hennar hingað til lands frá
Þýskalandi. Hann mun hafa yfirum-
sjón með skoðuninni til að byrja
með, eða þar til starfsmenn Bifreiða-
skoðunarinnar hafa lært að nota
tækin. jkb
Veiðileyfi
hækkuð í
verðstöðvun
Stangaveiðifélag íslands sendi
nýlega frá sér verðskrá fyrir komandi
veiðisumar. Var þar nær undantekn-
ingarlaust um allverulega hækkun
verðs að ræða frá því sem verið
hefur.
Tímanum lék forvitni á að vita
hvort þetta væri eðlilegt í ríkjandi
verðstöðvun.
„í þessu tilfelli er verið að selja
þjónustu það er að segja þessi veiði-
leyfi, fyrir næsta sumar. Þá verður
verðstöðvunin afstaðin þannig að ég
geri ekki ráð fyrir að við munum
hafa neitt við þetta að athuga,“ sagði
Guðmundur Sigurðsson viðskiptaf-
ræðingur hjá Verðlagsráði.
Hann sagði að venjan væri líklega
sú að gefa verðskrána út á þessum
tíma, en þó hefði verið eðlilegra að
Stangaveiðifélagið biði með það
eitthvað lengur.
Guðmundur nefndi einnig að
verðlagsráð liti nokkuð öðrum aug-
um hluti eins og þessa sem hækka
aðeins einu sinni á ári. jkb
Blaðamannafélag íslands sendir utanríkisráðherra áskorun:
Nær 40 blaða-
menn verið
fangelsaðir
Blaðamannafélag íslands hefur
sent utanríkisráðherra, Jóni Bald-
vini Hannibalssyni áskorun um að
þrýsta alvarlega á við ísraelsk stjórn-
völd að ólögmætum handtökum
blaða- og fréttamanna verði þegar
hætt. Jafnframt verði öllum þeini
palestínsku blaða- og fréttamönnum
semenneru í haldi þegar veitt frelsi.
Tildrög þessarar áskorunar eru
þau að á síðustu mánuðum hafa
ísraelsk stjórnvöld handtekið og
fangelsað nær 40 palestínska blaða-
og fréttamenn, sem starfað hafa við
fréttaöflun á hernumdu svæðunum á
Vesturbakkanum og Gasasvæðinu.
Þessir menn hafa þurft að sitja í
fangelsum, flestir mánuðum saman,
og í dagsitja yfir20slfkir í fangelsum
í ísrael. Þær fangelsanir hafa í nær
öllunt tilfellum verið án dóms og
laga og hafa verið fordæmdar af
Alþjóða blaðamannasambandinu
auk annarra samtaka sem láta sig
mannréttindi varða.
Blaðamannafélag Islands segir
það skyldu stjórnvalda að beita sér
fyrir og standa vörð um frelsi fjöl-
niiðla til upplýsingaöflunar og frétta-
miðlunar, ekki einungis hérlendis
heldur og hvarvetna í heiminum.
- ánta
Megn óánægja með
umfjöllun sjónvarpsins
Sýslunefnd Austur-Húnavatns-
sýslu vill lýsa megnri óánægju með
umfjöllun sjónvarpsins varðandi
náttúru- og gróðurverndarmál, í
þáttum sem nýlega voru sýndir.
Telur nefndin að stjórnendur
sumra þáttanna lýsi um of skoðunum
sínum og byggi þættina upp á hlut-
drægan hátt. Jafnframt vill sýslu-
nefndin vekja athygli á að hún hefur
haft forgöngu um aukna gróður-
vernd og bætta meðferð landsins á
undanförnum árum, ásamt sveitar-
félögum í Austur- Húnavatnssýslu.
Þess er vænst, að ríkissjónvarpið
fjalli um jafn viðkvæm mál og nátt-
úru- og gróðurverndarmál á sann-
gjarnan og hlutlausan hátt, án allra
fordóma um stéttir, menn eða mál-
efni.
Halldór Björnsson varaformaður Dagsbrúnar t.h. og Víglundur Þorsteinsson formaður Félags íslenskra
iðnrekenda afhcnda einum þátttakanda matvælanámskeiðsins
viðurkenningarskjöl sín.
Starfsnámskeiðí
matvælaiðnaði
í lok desember síðastliðins var
haldið starfsnámskeið fyrir al-
menna starfsmenn í matvælaiðnaði
á vegum Félags íslenskra iðnrek-
enda og Iðju félags verksmiðju-
fólks.
Um 350 starfsmenn frá um 30
fyrirtækjum sóttu þessi námskeið
hér á höfuðborgarsvæðinu auk
annarra 70 á Akureyri.
í móttöku Jóns Sigurðssonar
iðnaðaráðherra voru þátttakend-
um í Reykjavík og fulltrúum fyrir-
tækjanna, afhent sérstök viður-
kenningarskjöl að námskeiðinu
loknu. Kom þar fram ánægja allra
aðila með þennan fyrsta vísi að
fagmenntun starfsmanna í mat-
vælaiðnaði.
Námskeiðin halda áfram í
Reykjavík á þessu ári og verða auk
þess haldin víðar um landið. Sér-
stök námskeið hefjast í janúar fyrir
verkstjóra innan matvælaiðnaðar-
ins.
Rétt til að sækja þessi námskeið
eiga allir félagar í Landsambandi
iðnverkafólks og Verkamanna-
sambandi íslands. jkb
Samvinnubankinn á Akranesi:
25 ARA AFMÆLI
25 ára afmæli útibús Samvinnubankans á Akranesi var
haldið hátíðlegt þann 3. jan. sl. Þann dag fyrir 25 árum opnaði
Samvinnubankinn útibú að Suðurgötu 36, Akranesi. Þetta
var fyrsta útibú banka í Vesturlandskjördæmi. Starfsmenn
voru þrír.
Fyrsti útibússtjóri var Sveinn
Guðmundsson fyrrv. kaupfélags-
stjóri, en hann lét af störfum 31. okt.
1981. Starfsemi og umsvif útibúsins
hafa aukist jafnt og þétt. í sept. 1967
flutti bankinn í húsið Brú að Kirkju-
braut 24, en í feb. 1983 flutti hann í
glæsilegt eigið nýreist hús að Kirkju-
braut 28, ásamt umboði Samvinnu-
trygginga sem frá upphafi hefur deilt
húsnæði með útibúinu. í dag er
útibúið á Akranesi stærsta útibú Sam-
vinnubankans yfir allt landið. Nú-
verandi útibússtjóri er Örnólfur Þor-
leifsson, en skrifstofustjóri er Þröst-
ur Stefánsson.
í stuttu spjalli við þá félaga yfir
afmæliskaffi sögðu þcir að nú næði
þjónusta bankans yfir allar tegundir
starfsgreina til lands og sjávar. Við-
skipti við einstaklinga hefðu þó veg-
ið þyngst á metum. Reynt væri að
sýna mannlega þáttinn í þjónustu.
Velgengni bankans hefði byggst á
mjög hæfu og viðmótsþýðu starfs-
fólki sem ávallt legði sig fram við að
leysa hvers manns vanda. Þetta
hefðu viðskiptavinir bankans ávallt
metið að verðleikum. Slíkt hefði átt
stærstan þátt í vexti og viðgangi
útibúsins ásamt gagnkvæmu trausti,
sem ávallt hefði verið markmið Sam-
vinnubankans. Þeir kváðust þakklát-
ir þeim mikla og sívaxandi fjölda
einstaklinga og fyrirtækja sem nú
teldust til viðskiptavina bankans,
margir jafnvel frá upphafi.
Starfsfólk útibúsins telur nú 18
manns auk tveggja sem starfa fyrir
Samvinnutryggingar í afgreiðslu
bankans. í árslok 1987 voru heildar-
innlán útibúsins á Akranesi 9,1% af
heildarinnlánunt Samvinnubanka fs-
lands Vf, sem hefur 20 afgreiðslustaði
um allt landið. S.L.P.
Samvinnubankinn á Akranesi.
Tímamynd: S.L.P