Tíminn - 03.02.1989, Qupperneq 12
12 Tíminnj
FRÉTTAYFIRLIT
WASHINGTON - Varnar- j
málanefnd öldungadeildar
bandaríska þingslns frestaði
atkvæðagreioslu um það hvort
John Tower, sem George
Bush forseti hefur valið sem
varnarmálaráðherra, sé hæfur
í starfið. Atkvæðagreiðslunni i
var frestað er nýjar upplýsingar
komu fram um hegðan Tow-
ers.
PEKING - Kína og Sovét-j
ríkin héldu fyrsta fund utanrík- j
isráðherra ríkjanna í 30 ár. i
Þeir ræddu vandamál þau erj
skapast í Kampútseu þegarj
herlið Víetnama yfirgefurj
landið. 1
MOSKVA - Viktor Kulikov
sem verið hefur yfirhershöfö-
ingi Varsjárbandalagsins frá
því árið 1971 var látinn fjúka í
nýjustu hreinsunum Gorba-
tsjovs innan Rauða hersins.
Hershöfðinginn Pyotr Lushev
mun taka við stöou hans, en
Lushev hefur gegnt stöðu
fyrsta aðstoðarvarnarmálaráð-
herra Sovétríkjanna.
HEBRON - Herskáir land-
nemar af gyðingaættum vör-
uðu Moshe Aren utanríkisráð-
herra Israels við að kalla herlið
ísraela heim frá hernumdu
svæðunum á Vesturbakkanum
og í Gaza. Sögðu landnemarn-
ir að Palestínumenn myndu
fremja fjöldamorð á gyðingum
sem þar búa ef herinn færi.
Landnemarnir segjast aldrei
munu yfirgefa hernumdu
svæðin á Vesturbakkanum. I
Kaíró sagðist Hosni Mubarak
forseti Eayptalands vera að
missa truna á að gyðingar
væru reiðubúnir að lifa í friði
með nágrönnum sínum.
CARACAS - Carlos An-
dres Perez sór embættiseið
sinn sem forseti Venesúela og
hét hann að vinna með Banda-
ríkjunum að því að létta á1
skuldabyrði ríkja Rómönsku
Ameríku, við að endurreisa
lýðræði á Panama og koma á
friði í Mið-Ameríku.
ISLAMABAD - Afganska'
ríkisstjórnin sakaði Pakistana
um ao hafa sniðgengið neyð-!
:arkall afganskrar vöruflutn-!
ingavélar og skotið hana niðui
með þeim afleiðingum að níu
manna áhöfn flugvélarinnar
fórst. Pakistanskir embættis-
menn höfðu áður sagt að afg-
önsk flugvél hafi brotlent á
fimmtudagskvöld nærri borg-
inni Bannu í Pakistan eftir að
hafa villst inn yfir landamærin.
Föstudagur 3. febrúar 1989
llllllllHlll ÚTLÖND .......... ^' .. .. .. ....... .................... ..'
Afganskir skæruliðar nota síðustu tækifærin til að hefna sín á sovéska hernum:
verða fyrir árásum
Afganskir skæruliðar gerðu á mið-
vikudaginn eldflaugaárás á sovéska
herflutningalest sem var á leið frá
Kabúl til Sovétríkjanna í samr’æmi
við samning um brottflutning sov-
éskra hermanna frá Afganistan. Frá
þessu var skýrt í Moskvuútvarpinu í
gær:
- Samkvæmt talsmanni innanrík-
isráðuneytisins í Kabúl varð her-
flutningalest fyrir árásum á miðviku-
daginn aðeins í nokkurra kílómetra
fjarlægð frá borginni.
Sovéskir og afganskir hershöfð-
ingjar fyrirskipuðu öflugar stór-
skotaliðsárásir á svæðinu kringum
Salang göngin norður af Kabúl í
síðustu viku, en skæruliðar höfðu
náð þjóðveginum til Sovétríkjanna
á sitt vald á þeim slóðum. Þá náðu
þeir að opna þjóðveginn á ný og hafa
Sovétmenn síðan verið iðnir við að
flytja vopn og vistir landleiðina til
Kabúl. Fyrr í vikunni sendu þeir
meðal annars 360 sovéskar eldflaug-
ar til afganska stjórnarhersins í Kab-
úl sem á framundan blóðuga baráttu
við sveitir skæruliða.
Hinir 20 þúsund sovésku hermenn
sem halda landleiðina til Sovétríkj-
anna næstu daga eiga ekki aðeins
von á ónæði frá skæruliðum heidur
einnig veðrinu, en undanfarið hefur
verið mjög kalt á þessum slóðum,
stanslaus bylur ríkt og snjó kyngt
niður. Þá hafa snjóskriður víða fallið
á þjóðveginn og hindrað för her-
Afganskur skæruliði við veggmynd af Najibullah forseta Afganistans, en skæruiiðar vilja hann og stjórn hans feiga.
Skæruliðar notuðu tækifærið þegar sovéskir hermenn héldu heim á leið og gerðu á þá eldflaugaárás.
mannanna.
Bandaríkjamenn fordæmdu eld-
flaugasendingar Sovétmanna og
hafa heitið því að styðja við bakið á
skæruliðum af fullum krafti á meðan
á vopnaflutningum Sovétmanna
stendur. Þá hafa Bandaríkjamenn
einnig fordæmt loftárásir Sovét-
manna á stöðvar kringum þjóðveg-
inn til Sovétríkjanna, en fjöldi þorpa
hefur verið lagður í rúst í loftárásun-
um undanfarna daga. Hins vegar
hafa Sovétmenn lýst því yfir að
loftárásum verði hætt um leið og
síðasti sovéski hermaðurinn yfirgef-
ur Afganistan, en það verður í
síðasta lagi 15. febrúar nema veður-
guðirnir grípi þar inn í.
Hermenn á heimleið
Skæruliðar í El Salvador ánægðir með
jákvæðar undirtektir Bandaríkjastjórnar:
Hætta árásum
á bandaríska
embættismenn
Vinstri sinnaðir skæruliðar í E1
Salvador hafa lýst því yfir að þeir
muni láta af öllum árásum á banda-
ríska embættismenn og borgara í
landinu, en þeir hafa hingað til verið
skotmörk skæruliða í borgarastyrj-
öldinni sem þar ríkir. Hins vegar
verði áfram gerðar árásir á banda-
ríska hernaðarráðgjafa og hermenn
í herstöðvum E1 Salvadorhers og á
vígvöllum.
Ástæða þessarar stefnubreytingar
segja skæruliðar að séu jákvæð við- .
brögð Bandaríkjastjórnar við friðar-
tilboði því sem skæruliðar lögðu
fram í síðustu viku.
Yfirlýsing þessa efnis var lesin í
útvarpsstöðvum skæruliða, en þeir
hafa stóra hluta E1 Salvador á valdi
sínu. Hún er gefin aðeins tveimur
dögum áður en Dan Quayle varafor-
seti Bandaríkjanna kemur til E1
Salvador, en Bandaríkjamenn
styrkja ekkert annað ríki í Róm- >
önsku Ameríku eins myndarlega
hernaðarlega og efnahagslega og E1
Salvador.
Bandarísk stjórnvöld hafa lagt
mjög að stjómvöldum í E1 Salvador
að ganga að friðartillögum skæruliða
svo ganga megi úr skugga um að
hugur fylgi máli.
Friðartilboð skæruliða fólst í því
að bardögum verði hætt og forseta-
kosningum sem fram eiga að fara í
næsta mánuði verði frestað til
haustsins. Þá muni Farabundo Marti
þjóðfrelsisfylkingin taka þátt í kosn-
ingunum og hvetja stuðningsmenn
sína til að kjósa.
Frá því í nóvember hafa skærulið-
ar gert árásir á embættismenn
bandaríska sendiráðsins og hinnar
bandarísku Alþjóðlegu þróunar-
stofnunar sem fylgt hafa efnahagsað-
stoð Bandaríkjastjórnar eftir. Telja
skæruliðar að þessir aðilar leiki lykil-
hlutverk í hernaðaraðgerðum
stjórnarhersins gegn skæruliðum.
Skæruiiðar hafa á undanförnum
vikum gert handsprengjuárásir á hús
bandarískra sendiráðsmanna og eld-
flaugaárásir á byggingar Alþjóðlegu
þróunarstofnunarinnar. Þá sprakk
öflug sprengja sem komið hafði
verið fyrir í bíl utan við næturklúbb
sem er vinsæll af bandarískum send-
iráðsmönnum og hermönnum.
CBS sjónvarpsstööin telur sig hafa sannað hverjir grönduðu
Pan Am farþegaþotunni yfir Skotlandi í desember:
Segja Palestínumenn
hafa grandað þotunni
Bandarísk sjónvarpsstöð telur
sig hafa sannanir fyrir því að öfga-
full skæruliðasamtök Palestínu-
manna hafi grandað bandarísku
farþegaþotunni sem fórst yfir
Skotlandi í desembermánuði og að
Líbýumenn og Sýrlendingar hafi
einnig tengst verknaðinum.
Fréttastofa CBS sjónvarpsstöðv-
arinnar skýrði frá því í fyrrinótt að
heimildamenn innan „alþjóðlegu
hryðjuverkahreyfingarinnar" stað-
hæfi að Ahmed Jibril leiðtogi
„Þjóðfylkingar fyrir frelsun Pales-
tínu - Aðalráð" hafi skipulagt
tilræðið með stuðningi Líbýu-
manna og Sýrlendinga.
Talsmaður Jibrils hefur hins veg-
ar vísað þessum fréttum á bug:
- Ég segi ykkur að við gerðum
þetta ekki og við áttum enga aðild
að verknaðinum. Við stundum
ekki hryðjuverk og fordæmum
slíkt athæfí, sagði Omar Shehabi
talsmaður skæruliðasamtakanna.
Samkvæmt fréttum CBS vann
Jibril, sem hefur aðalstöðvar sfnar
í Sýrlandi, verk þetta fyrir Mu-
ammar Gaddafi leiðtoga Líbýu og
átti að granda bandarískri farþega-
þotu til að hefna árásar Banda-
ríkjamanna á Líbýu árið 1986.
Samkvæmt heimildum CBS var
loka ákvörðun um að granda Pan
Am þotunni tekin eftir að Yasser
Arafat leiðtogi Frelsissamtaka Pal-
estínu hafði rutt úr vegi hindrunum
fyrir friðarviðræðum í málefnum
Palestínumanna.
Sjónvarpsstöðin sagði að Gad-
dafi hefði vonað að með tilræðinu
yrði komið í veg fyrir að Banda-
ríkjamenn ræddu við PLO um
friðarsamkomulag í Miðaustur-
löndum.
Japanskir næturklúbbaeigendur leita fanga í S-Kóreu:
Keyptu 50 stúlkur
Japanskir næturklúbbaeigendur
eru farnir að leita fangá út fyrir
landsteinana að stúlkum til að koma
fram í næturklúbbum sínum. Fyrir
stuttu voru tveir Kóreumenn hand-
teknir í Seoul fyrir að hafa selt
japönskum næturklúbbaeigendur
fimmtíu kóreskar stúlkur til þeirra
nota sem næturklúbbaeigendurnir
sjálfir kjósa.
Chung Su-i 34 ára gömul fram-
kvæmdastjóri hefðbundinnar tón-
listastofnunar í Tongdaemun-gu og
Shin Jung-tae 49 ára Kóreumaður
búsettur á Filippseyjum útveguðu
nauðsynleg skjöl til að senda rúm-
lega fimmtíu stúlkur innan við tví-
tugt til Japans.
Skötuhjúin fengu 100 þúsund yen
fyrir hverja stúlku.
Korean Herald