Tíminn - 03.02.1989, Blaðsíða 13

Tíminn - 03.02.1989, Blaðsíða 13
Föstudagur 3. febrúar 1989 Tíminn 13 lllllllill ÚTLÖND llllllllillllllllllllllllllllllllllllll Fyrsti kvenráðherra Sviss varð að segja af sér vegna hneykslismáls „Hverjir eru fjendur Elisa- beth Kopp, svo gáfaðrar og elskulegrar konu,“ stóð í les- andabréfi í „Schweizer IUus- trierten“ í desemberlok, tveim vikum eftir að tilkynnt hafði verið um afsögn dóms- málaráðherra Sviss Elisabeth Kopp. Svarið fylgdi með þó að það lægi í augum uppi: „Auðvitað allir heimskir karlmenn!“ Og aUir þessir heimsku karlmenn eru auk þess blaða- menn ef marka má háværan almannaróm. Þar er því hald- ið fram að þeir hafi með lævísri herferð í fjölmiðlum þvingað fyrstu og einu kon- una í svissnesku ríkisstjórn- inni til að draga sig í hlé - og það vegna smámuna vUdu margir svissneskir kjósendur meina. Stutt en örlagaríkt símtal Verjendur dómsmálaráðherrans benda á að símtal 27. október sl., þar sem dómsmálaráðherrann ráð- lagði manni sínum, Hans W. Kopp lögmanni, að segja sig úr stjóm fjármálafyrirtækisins Shakarchi Trading hf. hafi „í mesta lagi varað í 2 mínútur“. Og það er þetta símtal sem dregur allan dilkinn á eftir sér. Almannarómur segir ástæðuna til viðvörunar hennar alls ekki hafa verið upplýsingar um starfsemi fyrr- nefnds fyrirtækis sem hún hafi fengið vegna starfs síns, en fyrirtækið Shak- archi Trading hf. er grunað um að vera flækt í stærsta mál um „þvott“ á eiturlyfjapeningum sem enn hefur komið í dagsljósið, „Libanon Conn- ection". Auk þess áttu einungis „kviksögur" að hafa gefið tilefni til alls þessa gauragangs, að því er dómsmálaráðherrann sagði þegar hún bar í bætifláka fyrir sjálfa sig tveim dögum áður en hún sagði af sér. Svissneska fíkniefna- lögreglan finnur spor Nú er komið í ljós að dómsmála- ráðherrann sagði ósatt. Sannleikur- inn er sá að dómsmálaráðherrann hafði í þessu stutta símtali hvatt mann sinn til að hafa án tafar samband við samstarfskonu sína og fara fram á ítarlegar upplýsingar um starfsemi fyrirtækisins. Samstarfs- konan var hins vegar ófær um að gefa Hans W. Kopp tæmandi upplýs- ingar - ekki vegna „kviksagna" held- ur vegna aðgerða fíkniefnalögregl- unnar í Sviss. Að þessu öllu komst Hans Hung- erbuhler, fremsti lögmaður Basel- kantónu, sem skipaður var sérstakur saksóknari. Ríkislögmanni, sem málið heyrði undir, þótti hendur sínar bundnar. Blaðið „Neue Zurcher Zeitung" lét í ljós þá skoðun að bara það að rannsóknin færi fram væri meirihátt- ar áfall. Hungerbúhler lét nefnilega að því liggja að „knýjandi grunur“ lægi á að brotið hefði verið gegn embættisleyndarmálum, sem ekki er beint litið blíðum augum í Sviss frekar en víða annars staðar heldur liggur þar við allt að þriggja ára fangelsi. Það fór því svo daginn eftir Hans og Elisabeth Kopp eiga nú ■ vök að veijast. Elisabeth, fyrsti og eini kvenráðherra Sviss, varð að segja af sér embætti vegna aðdrótt- ana um að hafa aðstoðað mann sinn í vafasömum málum í krafti þekking- ar sem fylgdi embætti hennar. að Hungerbúhler hafði tjáð sig að dómsmálaráðherrann sagði snarlega af sér. Óvirðulegur endir á glæstum fferli konu Þar með lauk á óvirðulegan hátt framaferli sem varla hefði getað verið glæsilegri. Elisabeth Kopp, 52 ára, upprunnin úr háborgaralegu umhverfi og dóttir stjómarmanns í landsbanka Sviss, hafði alla þá kosti til að bera sem stjómmálamenn virða hjá samstarfskonu en stendur líka ótti af, þ.e. góða greind, sjálf- saga, viljastyrk og hæfileikann til að koma sínum málum fram. Það var strax rétt áður en þessi framagjama kona var í þann veginn að taka sæti í ríkisstjórninni að hún mætti einhverjum mótbyr. Andstæð- ingar úr hennar eigin flokki lögðu í ófrægingarherferð gegn henni - með sögur um mann hennar að vopni. Sérstaka undrun vöktu frásagnir af meintri tilhneigingu Kopps lög- manns til að tukta ritaradömurnar sínar til með því að veita þeim lfkamlega refsingu. Eiginmaðurinn tortryggður Háborgaralegir skoðanabræður Kopps lögmanns í pólitík höfðu hálfgerðan ímugust á honum. Þeim þótti hann koma of víða við og berast of mikið á. Hann stýrði um- ræðuþáttum í sjónvarpi, hann var í forsæti sérfræðinganefndar um fjöl- miðla á vegum stjórnvalda og að aðalstarfi er hann iögmaður sem sérhæfir sig í viðskiptamálum. Skrif- stofan hans er með virðulegt heimil- isfang. Þegar kona hans var valin í ríkisstjórnina 1984 sagði Kopp að vísu af sér öllum pólitískum embætt- um, en hann hélt áfram hinum fjölmörgu forstjóraembættum. Kopp-hjónin hafa varið sig með þeirri röksemd að þau séu fullkom- lega fær um að halda aðskildu einka- lífi og atvinnu. Nú standa þeir með pálmann í höndunum sem draga þá röksemd í efa. í aukakosningum 1. febrúar býður flokkur frú Kopp, Frjálshuga demókrataflokkurinn, enga konu fram. En máli Kopp-hjónanna er síður en svo lokið. Dómari á eftirlaunum rannsakar ákærur á lögmanninn um að vera hliðhollur brotum gegn eit- urlyfjalögum. Nú er rætt um að setja á laggirnar rannsóknamefnd á veg- um þingsins. Ekki síðar en í mars ætlar þingið að létta af þinghelgi dómsmálaráðherrans fyrrverandi og 22. febrúar hefjast í Bellinzona fyrstu réttarhöldin vegna „Libanon- Connection". j Hvað hefur aðalsakbom- ingurinn fram að færa? Vænst er yfirlýsinga frá aðalsak- bomingnum Haci Mirza, tyrknesk- um eiturlyfja- og vopnasala, um þróun fjármálafyrirtækisins Shak- archi - og þar með nýrra uppljóstr- ana um mál Kopp-hjónanna. Dagblaðið „Húrryet“ í Istanbui birti í desember sl. þá yfirlýsingu Mirzas að hann hafi kynnst Hans og Elisabeth Kopp í kvöldverðarboði. Á þeim tíma þótti öllum svissnesk- um fjölmiðlum sú yfirlýsing fjar- stæðukennd. MAZDA 626 GLX 4ra dyra Sjálfskiptur, árg. 85, rafmagn í rúðum, vökvastýri/veltistýri, centrallæsingar, ný snjódekk, dráttarkúla. Ekinn 55 þús., í toppstandi. Aðeins bein sala eða skuldabréf. Upplýsingar í síma 685582. S-TAtoy /zw % ooo ^ MM Allsherjaratkvæðagreiðsla Ákveðið hefur verið að viðhafa allsherjaratkvæðagreiðslu við kjör stjórnar og trúnaðarmannaráðs starfsárið 1989 til 1990. Tillögum ber að skila til skrifstofu FSV, Ingólfsstræti 5, fyrir kl. 12 föstudaginn 10. febrúar 1989. Kjörstjórn. BLIKKFORM ______Smiðiuveai 52-Sími 71234 Öll almenn blikksmíðavinna, vatnskassavið- gerðir, bensíntankaviðgerðir, sílsalistar á alla bíla, (ryðfrítt stál), og einnig nælonhúðaðir í öllum litum. Póstsendum um allt land (Ekið niður með Landvélum). tá tmP>um\ Við í Prentsmiðjunni Eddu hönnum, setjum og prentum allar gerðir eyðublaða fyrir tölvuvinnslu PRENTSMIÐJAN Smiðjuvegi 3, 200 Kópavogur. Sími 45000 BILALEIGA með útibú allt í kringum landið, gera þér mögulegt aö leigja bíl á einum stað og skila honum á öðrum. Reykjavík 91-31615/31815 Akureyri 96-21715/23515 Pöntum bila erlendis^ interRent Bílaleiga Akureyrar

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.