Tíminn - 03.02.1989, Blaðsíða 16
Guftmundur Bjðmsson, bóndi
Arfcarlæk, Skilmannahreppi
andaðist í Sjúkrahúsi Akraness 27. janúar
sl. 92 ára að aldri eftir sjúkrahúsdvöl í
tæpt ár. Útvör hans verður gerð frá
Akranesskirkju í dag, föstudaginn 3.
febr., og hefst kl. 14:00.
Minningargrein um Guðmund mun
birtast í blaðinu síðar.
Aðalfundur
Kvenfélags Háteigssóknar
Kvenfélag Háteigssóknar heldur aðal-
fund sinn þriðjudaginn 7. febrúar kl.
20:30 í Sjómannaskólanum.
Venjuleg aðalfundarstörf. Að þeim
loknum verða kaffiveitingar.
Árshátíð Húnvetningafélagsins
Árshátíð Húnvetningafélagsins í
Reykjavík verður haldin laugardaginn 4.
febrúar í Glæsibæ. Hefst árshátíðin með
borðhaldi kl. 19:00.
Samkórinn Björk frá Blönduósi kemur
í heimsókn. Hjörtur Már Benediktsson
skemmtir og sitthvað fleira verður til
gamans gert.
Miðasala verður í Húnabúð, Skeifunni
17 á miðviku- og fimmtud. 1. og 2.
febrúar kl. 17:00-20:00 báða dagana.
Upplýsingar í símum 31360 og 19863.
Félag eldri borgara Kópavogi
Fundur um lífeyris- og tryggingamál
aldraðra verður í Félagsheimilinu Kópa-
vogi 2. hæð, laugardaginn 4. febrúar kl.
13:30. Unnur Júlíusdóttir og Hilmar
Björgvinsson flytja inngangsorð og svara
fyrirspurnum.
Stjórnin.
Árshátíð Bolvíkingafélagsins
Árshátíð Bolvíkingafélagsins verður á
Hótel Sögu, Átthagasal, á morgun, laug-
ardaginn 4. febrúar, og hefst kl. 19:30.
Ásgrímssafn
Safn Ásgríms Jónssonar, Bergstaða-
stræti 74 er opið á sunnudögum, þriðju-
dögum, fimmtudögum og laugardögum
kl. 13:30-16:00.
Listasafn Einars Jónssonar
- opnaðá ný
Listasafn Einars Jónssonar er opið alla
laugardaga og sunnudaga kl. 13:30-16:00.
Höggmyndagarðurinn er opinn daglega
frá kl. 11:00- 17:00.
Neskirkja
- Félagsstarf aldraðra
Samverustund er á morgun, laugardag-
inn 4. febrúar kl. 15:00 t' safnaðarheimili
kirkjunnar. Þorramatur. Gestur er Árni
Björnsson þjóðháttafræðingur.
Níels Hafstein og
ívar Valgarðsson sýna
í Nýlistasafninu
Laugardaginn 4. febrúar kl. 16:00 opn-
ar Níels Hafstein sýningu í Nýlistasafninu
á „verkum sem fjalla um listbrögð sem
verður að beita til að öðlast heiður,
auðsæld, ást og orðstír," eins og segir í
fréttatilkynningu.
Á síðasta ári átti Níels Hafstein verk á
tveim veigamiklum sýningum; hin fyrri
var haldin í Ruine der Kúnste í Berlín á
aiþjóðlegri listahátíð undir nafninu:
Berlín, listahöfuðborg Evrópuráðsins.
Hin sýningin var á Listasafni Islands:
Nýlistasafnið 10 ára (sýnishorn eldri
verka safnsins). Sýningunni lýkur 19.
febrúar.
Laugardaginn 4. febrúar kl. 16:00 opn-
ar fvar Valgarðsson sjöundu einkasýn-
ingu sína í Nýlistasafninu. ívar átti á
síðasta ári verk á eftirtöldum sýningum:
Listasafn fslands „Aldarspegill", íslensk
myndlist í eigu safnsins 1900-1987, Seoul,
Suður-Kóreu: The Arts Olympics, sýning
í tengslum við Olympíuleikana, Listasafn
íslands: Fimm ungir listamenn. Sýning-
unni lýkur 19. febrúar.
Erla B. Axelsdóttir sýnir
í F.Í.M.-salnum
Laugardaginn 4. febrúar opnar Erla B.
Axelsdóttir myndlistarsýningu í F.f.M,-
salnum, Garðastræti 6 í Reykjavík.
Erla stundaði nám við Myndlistarskól-
ann í Reykjavík 1975 til 1982 og við
listadeild Skidmore-háskóla, Saratoga
Springs.
Þetta er sjötta einkasýning Erlu, en
síðast sýndi hún á Kjarvalsstöðum 1986.
Hún átti jafnframt myndir á sýningunni
„Reykiavík í myndlist“ það sama ár.
f F.Í.M. salnum sýnir Erla málverk og
pastelmyndir sem unnar eru á s.l. þrem
árum.
Sýning Erlu stendur frá 4. febrúar til
21. febrúar og verður opin virka daga kl.
13:00-18:00 og um helgar kl. 14:00-18:00.
Síminn er 25060.
GLETTUR
- Get ég fengiö hjólið lánað í kvöld?
li irsJj'S.ctV
Föstudagur 3. febrúar 1989
ÚTVARP/SJÓNVARP
lllllllll
illlllllllllllli
0
Rás I
FM 92,4/93,5
Föstudagur
3. febrúar
6.45 Veðurfregnir. Bæn, séra Irma Sjöfn Óskars-
dóttir flytur.
7.00 Fréttir.
7.03 í morgunsárið með Ingveldi Ólafsdóttur.
Fréttayfirlit kl. 7.30 og 8.30, fréttir kl. 8.00 og
veðurfregnir kl. 8.15. Lesið úr forustugreinum
dagblaöanna að loknu fréttayfirliti kl. 8.30.
Tilkynningar laust fyrir kl. 7.30, 8.00, 8.30 og
9.00.
9.00 Fréttir.
9.03 Litli barnatíminn. Guðni Kolbeinsson les
sögu sína, „Mömmustrákur (9). (Einnig útvarp-
að um kvöldið kl. 20.00).
9.20 Morgunleikfimi. Umsjón: Halldóra Bjöms-
dóttir.
9.30 Kviksjá - Sænskar nútímabókmenntir.
Umsjón: Þorgeir Ólafsson. (Endurtekinn þáttur
frá þriðjudagskvöldi).
10.00 Fréttir. Tilkynningar.
10.10 Veðurfregnir.
10.30 Maðurinn á bak við bæjarfulltrúann.
Umsjón: Jóhann Hauksson.
11.00 Fréttir.
11.03 Samhljómur. Umsjón: Anna Ingólfsdóttir.
(Einnig útvarpað að loknum fréttum á miðnætti
nk. miðvikudag).
11.55 Dagskrá.
12.00 Fréttayfirlit. Tilkynningar.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Veðurfregnir. Tilkynningar.
13.05 í dagsins önn - Skólavarðan. Umsjón:
Ásgeir Friðgeirsson.
13.35 Miðdegissagan: „Blóðbrúðkaup“ eftir
Yann Queffeléc. Þórarinn Eyfjörð les þýðingu
Guðrúnar Finnbogdóttur. (7)
14.00 Fréttir. Tilkynningar.
14.05 Ljúflingsiög. Svanhildur Jakobsdóttir
kynnir. (Einnig útvarpað aðfaranótt miðvikudags
að loknum fréttum kl. 2.00).
15.00 Fréttir.
15.03 Samantekt - Evrópubúinn. Umsjón: Páll
Heiðar Jónsson. (Síðari þáttur endurtekinn frá
miðvikudagskvöldi).
16.00 Fréttir.
16.03 Dagbókin Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Simatími barnaútvarpsins. Umsjón: Kristín
Helgadóttir.
17.00 Fréttir.
17.03 Tónlist á síðdegi - Haydn, Dvorak, Bern-
stein og Brahms - Fritz Wunderlich syngur
þjóðlög frá Skotlandi og Wales í raddsetningu
Josephs Haydn. - „Scherzo capriccioso“ op.66
eftir Antonin Dvorak. Cleveland-hljómsveitin
leikur; Christoph von Dohnanyi stjómar. -
Divertimento fyrir hljómsveit eftir Leonard Bern-
stein. Sinfóníuhljómsveit Útvarpsins í Bæjara-
landi leikur; höfundur stjórnar.
18.00 Fréttir.
18.03 Þingmál. Umsjón: Atli Rúnar Halldórsson.
(Einnig útvarpað næsta morgun kl. 9.45).
Tónlist. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir.
19.00 Kvöldfréttir
19.30 Tilkynningar.
19.32 Kviksjá Þáttur um menningarmál. Umsjón:
Friðrik Rafnsson og Halldóra Friðjónsdóttir.
20.00 Litli barnatíminn. „Mömmustrákur", höf-
undurinn Guðni Kolbeinsson les. (9) (Endurtek-
inn frá morgni).
20.15 Sinfónía fyrir blásturshljóðfæri eftir Ric-
hard Strauss. Hollenska blásarasveitin leikur;
Edo de Waart stjórnar.
21.00 Kvöldvaka. a. Þjóðhættir og þjóðtrú. Þórður
Tómasson í Skógum les úr bók sinni, sem hann
skráði eftir Sigurði Þórðarsyni frá Brunnhól og
kynnir hljóðritun með frásögn Sigurðar. b.
María Markan syngur íslensk lög. c. Þáttur af
Rifs-Jóku Helga K. Einarsdóttir les seinni hluta
frásögu Benjamíns Sigvaldasonar. Umsjón:
Gunnar Stéfánsson.
22.00 Fréttir. Dagskra morgundagsins.
22.15 Veðurfregnir.
22.20 Lestur Passíusálma. Guðrún Ægisdóttir les
11. sálm.
22.30 Danslög
23.00 í kvöldkyrru. Þáttur í umsjá Jónasar Jónas-
sonar.
24.00 Fréttir.
00.10 Tónlistarmaður vikunnar - Jónas ingim-
undarson. Umsjón: Hanna G. Sigurðardóttir.
(Endurtekinn þáttur frá þriðjudegi)
01.00 Veðurfregnir.
Næturútvarp á samtengdum rásum til
morguns.
á
FM 91,1
01.10 Vökulögin. Lög af ýmsu tagi í næturútvarpi
til morguns. Fréttir kl. 2.00 og 4.00 og sagðar
fréttir af veðri, færð og flugsamgöngum kl. 5.00
og 6.00. Veðurfregnir frá Veðurstofu kl. 4.30.
7.03 Morgunútvarpið.
9.03 Stúikan sem bræðir íshjörtun, Eva Asrún
kl. 9. Morgunsyrpa Evu Ásrúnar Albertsdóttur
með afmæliskveðjum kl. 10.30.
11.03 Stefnumót. Jóhönna Harðardóttir tekur fyrir
það sem neytendur varðar á hvassan og
gamansaman hátt.
12.00 Fréttayfirlit. Auglýsingar.
12.15 Heimsblöðin
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Umhverfis landið á áttatíu. Margrét Blöndal
og Gestur Einar Jónasson leika þrautreynda
gullaldarlónlist og gefa gaum að smáblómum í
mannlífsreitnum. (Frá Akureyri)
14.00 Á milli mála. óskar Páll Sveinsson leikur
nýja og f ína tónlist. - Útkíkkið kl. 14.14. - Arthúr
Björgvin talar frá Bæheimi.
16.03 Dagskrá. Dægurmálaútvarp fyrir þá sem
vilja vita og vera með. Stefán Jón Hafstein,
Ævar Kjartansson op Sigríður Einarsdóttir -
Kaffispjáll upp úr kl. 16.00' hlustendaþjónustan
kl. 16.45 - lllugi Jökulsson spjallar við bændur
á sjötta tímanum
19.00 Kvöldfréttir.
19.32 Áfram ísland. Dægurlög með íslenskum
flytjendum.
20.30 Vinsældalisti Rásar 2. Stefán Hilmarsson
kynnir tíu vinsælustu lögin. (Einnig útvarpað á
sunnudag kl. 15.00).
21.30 FRÆÐSLUVARP: Lærum þýsku. Þýsku-
kennsla fyrir byrjendur á vegum Fjarkennslu-
nefndar og Bréfaskólans. (Fimmti þáttur endur-
tekinn frá mánudagskvöldi).
22.07 Snúningur. Stefán Hilmarsson ber kveðjur
milli hlustenda og leikur óskalög.
02.05 Rokk og nýbylgja. Skúli Helgason kynnir.
(Endurtekinn þáttur frá mánudagskvöldi).
03.00 Vökuiögin. Lög af ýmsu tagi í næturútvarpi
til morguns. Fréttir kl. 4.00 og sagðar fréttir af
veðri, færð og flugsamgöngum kl. 5.00 og 6.00.
Veðurfregnir frá Veðurstofu kl. 4.30.
Fréttir kl. 2.00, 4.00, 7.00, 7.30, 8.00, 8.30,
9.00, 10.00, 11.00, 12.00,12.20,14.00,15.00,
16.00,17.00,18.00,19.00, 22.00 og 24.00.
SVÆÐISÚTVARP Á RÁS 2
8.07- 8.30 Svæðisútvarp Norðurlands
18.03-19.00 Svæðisútvarp Norðurlands
18.03-19.00 Svæðisútvarp Austurlands
SJÓNVARPIÐ
Föstudagur
3. febrúar
18.00 Gosi (6). (Pinocchio). Teiknimyndaflokkur
um ævintýri Gosa. Leikraddir örn Árnason
Þýðandi Jóhanna Þráinsdóttir.
18.25 Líf í nýju Ijósi (25). (II était une fois.. la vie)
Franskur teiknimyndaflokkur um mannslíkam-
ann, eftir Albert Barrilié.
18.50 Táknmálsfréttir.
18.55 Austurbæingar (Eastenders) Fjórtandi
þáttur. Breskur myndaflokkur í léttum dúr.
Þýðandi Kristmann Eiðsson.
19.25 Búrabyggð (Fraggle Rock) Breskur teikni-
myndaflokkur úr smiðju Jim Hensons. Þýðandi
Guðni Kolbeinsson.
19.54 Ævintýri Tinna. Ferðin til tunglsins (11).
20.00 Fréttir og veður.
20.35 Spurningakeppni framhaldsskólanna.
Undanfamar vikur hefur staðið yfir á Rás tvö hin
árlega spurningakeppni framhaldsskólanna.
tuttugu og fimm skólar hafa tekið þátt í keppninni
og eru nú átta eftir sem munu keppa þar til einn
stendur eftir sem sigurvegari. Stjórnandi Vern-
harður Linnet. Dómari Páll Lýðsson.
21.10 Derrick. Þýskursakamálamyndaflokkurmeð
Derrick lögregluforingja. Þýðandi Kristrún Þórð-
ardóttir.
22.10 Vetrartískan. Nýr þýskur þáttur um vetrar-
tískuna í ár.
22.40 Nornaseiður. (Witches Brew) Bandarísk
bíómynd frá 1980. Leikstjórar Richard Shorr og
Herbert L. Strock. Aðalhlutverk Richard Benj-
amin, Teri Garrog Lana Tumer. Þrjár konursem
hafa áhuga á svartagaldri og nornaskap ákveða
að nota hæfileika sína í þessum efnum til að
hafa áhrif á starfsferil eiginmanna sinna. Þýð-
andi Óskar Ingimarsson.
00.20 Útvarpsfréttir i dagskrárlok.
'jmr
Föstudagur
3. febrúar
15.45 Santa Barbara. Bandarískur framhalds-
myndaflokkur.
16.30 Spenser. Spenser for Hire. Spennumynd
um einkaspæjarann snjalla, Spenser, sem hér
er á slóð hættulegra vopnasala sem einskis
svífast. Aðalhlutverk: Robert Urich, Barbara
Stock og Avery Brooks. Leikstjóri: Lee H.
Katzin. Framleiðandi: John Wilder. Þýðandi:
Björn Baldursson. Wamer 1985. Sýningartími
90 mín. Lokasýning.
18.25 Pepsí popp. Tónlistarþáttur þar sem sýnd
verða nýjustu myndböndin, fluttar ferskar fréttir
úr tónlistarheiminum, viðtöl, getraunir, leikir og
alls kyns uppákomur. Þátturinn er unninn í
samvinnu við Sanitas hf. sem kostar gerð hans.
Umsjón: Helgi Rúnar Óskarsson. Kynnar Haf-
steinn Hafsteinsson og Nadia K. Banine. Dag-
skrárgerð: Hilmar Oddsson. Stöð 2.
19.1919:19. Frétta- og fréttaskýringaþáttur ásamt
umfjöllun um þau málefni sem ofarlega eru á
baugi.
20.30 í helgan stein. Coming of Age. Léttur
gamanmyndaflokkur um fullorðin hjón sem
setjast í helgan stein. Aðalhlutverk: Paul Doo-
ley, Phyllis Newman og Alan Young. Þýðandi:
Ásthildur Sveinsdóttir.
21.00 Ohara. Bandarískur lögregluþáttur. Aðal-
hlutverk: Pat Morita, Kevin Conroy, Jack Wall-
ace, Catherine Keener og Richard Yniguez.
21.50 Merki Zorro. The Mark of Zorro. Goðsögnin
Zorro hefur verið mikið eftirlæti kvikmyndagerð-
armanna í gegnum tíðina. Árið 1920 kom fyrsta
myndin um þennan grímuklædda kappa á
markaðinn með Douglas Fairbanks í aðalhlut-
verki. Myndin, sem vitanlega var þögul, þótti
marka tímamót með frækilegum skylmingaat-
riðum aðalleikaranna, sem voru með þeim betri
sem þá höfðu sést á hvíta tjaldinu. Tuttugu
árum síðar kom önnur útgáfa af Zorro út með
stórieikaranum Tyrone Power í aðalhlutverki.
Árið 1974 var svo þriðja myndin um þennan
hugrakka svein leyst úr læðingi og jafnframt sú
sem sýnd verður í kvöld. Aðalhlutverk: Frank
Langella, Ricardo Montalban, Gilbert Roland og
Yvonne de Cario. Leikstjóri: Don McDugall.
20th Century Fox 1974. Sýningartími 80 mín.
Aukasýning 18. mars.
23.10 Eilíf æska. Forever Young. Kvikmyndafram-
leiðandinn David Puttnam er enginn aukvisi í
sínu fagi. Eftir hann liggja meðal annars mynd-
imar The Killing Fields, The Mission og Chariots
of Fire en fyrir þá síðast nefndu hlaut hann
Óskarsverðlaunin. Mynd hans í kvöld segir frá
ungum einhleypum presti og meðhjálpara hans,
tólf ára föðurlausum snáða, sem eru mjög
hændir hvor að öðrum. Móðir drengsins vekur
sérstakar kenndir hjá prestinum sem hann getur
ekki leyst úr læðingi starfs síns vegna. Aðalhlut-
verk: James Aubrey, Nicholas Gecks og Alec
McCowen. Leikstjóri: David Drury. Þýðandi:
Tryggvi Þórhallsson. Coldcrest 1984. Sýningar-
tími 80 mín. Aukasýning 17. mars.
00.30 Nótt óttans. Night of the Grizzly. Búgarðs-
eigandi nokkur og kona hans eiga undir högg
að sækja í heimabyggð sinni. Fyrrverandi
lögreglustjóri og fangi er hann dæmdi á emb-
ættistíma sínum láta ekki sitt eftir liggja við að
reyna að klekkja á þeim. Þegar óboðinn vágest-
ur knýr dyra vandast tilveran. Aðalhlutverk:
Glint Walker, Martha Hyer og Keenan Wynn.
Leikstjóri: Joseph Pevney. Framleiðandi: Burt
Dunne. Paramount 1966. Sýningartími 100
mín.
02.10 Dagskrárlok.