Tíminn - 16.02.1989, Side 6

Tíminn - 16.02.1989, Side 6
6 Tíminn' Fimmtudagur 16. febrúar 1989 „Múrar einstakra stofnana brotnir niður“: Námsstefna um unglingastarf Nú fyrir helgi var haldin tveggja daga námsstefna um forvarnar og meðferðarstarf fyrir ungiinga. Markmið námsstefnunnar var að hvetja til faglegrar umræðu um þau úrræði sem til eru fyrir unglinga og hvernig megi bæta þau með breyttum vinnuaðferðum, skipulagi og samstarfi aðila. Fyrri daginn fluttu ýmsir aðilar erindi svo sem Árni Guðmundsson æskulýðsfulltrúi Hafnarfjarðar, Ómar H. Kristmundsson þjóðfé- lagsfræðingur, Sólveig Ásgrímsdótt- ir sálfræðingur og fleiri. Seinni dag- inn skiptu ráðstefnugestir sér niður í umræðuhópa. Hóparnir voru marg- víslegir og tók hver þátt í þeirri umræðu sem vakti áhuga viðkom- andi, til dæmis má nefna stjórnun og starfsmannahald, vinnu með hópum unglinga, vinnuaðferðir og fleira. Umræðuhóparnir veltu bæði fyrir sér því sem rætt hafði verið og lögðu einnig mat á ráðstefnuhaldið sjálft með tilliti til innihalds og lram- kvæmdar. „Markmið ráðstefnunnar var að meta árangur af fyrirbyggjandi fé- lags og tómstundastarfi fyrir börn og unglinga sem og meðferðarúrræð- um. Unglingurinn sjálfur var ekki til umræðu, þetta voru faglegarumræð- ur um starfið sem byggt hefur verið upp“ sagði Ólafur Oddsson uppeld- isráðgjafi. í lokin kynntu hóparnir hver fyrir sig niðurstöður sínar. „Megin niður- staða hópanna var að auka þyrfti samvinnu milli einstakra stofnana þannig að hagsmunir skjólstæðing- anna sætu í fyrirrúmi" sagði Ólafur. Hann sagði að fram hefðu komið margar tillögur varðandi mögulegar leiðir til þessa. Sem dæmi má nefna að einstakar stofnanir innan hvers hverfis, svo sem skólar og félagsmið- stöðvar, tækju höndum saman um framkvæmd ákveðinna verkefna. Einnig gætu stofnanir sem starfa á sama grundvelli aukið innbyrðis samvinnu sín á milli. „Þetta hefur verið nokkuð vandamál hingað til en breytist vonandi til batnaðar úr þessu. Miðað við tóninn í umræðun- um tel ég fólk vera almennt mjög ánægt með ráðstefnuna. Múrar sem einangruðu margar þessara stofnana hafa verið brotnir niður og bent á leiðir til lausnar" sagði Ólafur. jkb Röö tónleika á vegum EPTA: Hátíð píanótónlistar Á mánudaginn kemur heldur Þorsteinn Gauti Sijg- urðsson píanótónleika í Is- lensku óperunni ■ Gamla bíói. Þessir tónleikar eru þeir fyrstu í röð píanótónleika sem verða haldnir á næst- unni. Á efnisskrá Þorsteins verða verk eftir Bach, Beethoven, Liszt, Chop- in og Ravel. Tónleikarnir eru á vegum Islandsdeildar EPTA, Evr- ópusantbands píanóleikara. íslands- deildin er sú næst elsta í sambandinu sem nýlega varð tíu ára. „Það var rúmensk kona sem upp- haflega stofnaði sambandið einkan- lega til að rjúfa einangrun píanó- leikara. En þeir vilja oft einangrast heilmikið í sínu námi og starfi. Við vorum fyrsta landið sem sótti um aðild og hefur því alltaf verið gert sérstaklega vel við okkur,“ sagði Halldór Haraldsson formaður sam- bandsins hér á landi. Hann sagði Þorsteinn Gauti Sigurðsson. það vera mjög virkt í sínu starfi, meðal annars væru haldnar ráðstefn- ur árlega og fleira. Flest lönd Vestur Evrópu eru í sambandinu og nú eru Austantjaldslöndin smátt og smátt að byrja að taka-þátt í starfi þess. Píanóleikarar á landinu hafa hing- að til fengið frekar fá tækifæri til að spila opinberlega. Segja má að þarna séu tvær flugur slegnar í einu höggi, píanóleikarar fá tækifæri til að spreyta sig og almenningi er boðið upp á fleiri píanótónleika á styttri tíma en venja er. Á öðrum tónleikunum sem haldn- ir verða í mars kemur Guðmundur Magnússon fram og í apríl munu Ruth Slenczynska og Selma Guð- mundsdóttir spila. „Þessir tónleikar eru einkum mið- aðir við íslenska píanóleikara. En við munum einnig fá hingað erlenda píanóleikara og reyna þannig að stuðla að skiptum á píanóleikurum milli landa. Á þann hátt getur ís- lenskum píanóleikurum gefist tæki- færi til að halda tónlcika þar sem það hefði annars ekki verið mögulegt.“ Boðið er upp á áskrift að tónleika- röðinni. Ef vel tekst til er á döfinni að gera þetta að árlegum viðburði. „Við teljum áskriftina vera grund- völl þess að vel takist til, því að vart er að treysta á lausasölu miða við | tónleika" sagði Halldór. jkb Málstaöur íslendinga í hvalamálinu kynntur: „Modern lceland“ með staðreyndir málsins f nýútkomnu tölublaði tímaritsins Modern Iceland er að finna á ensku ítarlega kynningu á viðhorfum fs- lendinga til hvalveiða. Greinilegt er að tilfinnanlegur skortur hefur verið á efni af þessu tagi því inn- og útflytjendur hafa sýnt þessu blaði mikinn áhuga og vilja koma því á framfæri við viðskiptamenn sína er- lendis. Útgefandi tímaritsins hyggst einnig senda eintak af blaðinu til yfir 400 aðila sem tengjast hinum ýmsu umhverfisverndarsamtökum. Efni blaðsins ætti einnig að höfða til erlendra fjölmiðla sem vilja kynna málstað fslendinga. Tölublaðið ber heitið: „Getting the Facts Straight" og í því er lögð megináhersla á tvær staðreyndir, eins og segir í kynningarbréfi frá útgefanda. í fyrstalagi, aðíslending- ar eru fagmenn en ekki fúskarar í öllu sem viðkemur nýtingu auðlinda sjávar og verndun þessara auðlinda. f öðru lagi er greint frá vísindaáætlun íslendinga og helstu niðurstöðum hennar til þessa. Meðal greinarhöfunda eru nokkr- ir af viðurkenndustu vísindamönn- um íslands á sviði sjávarlíffræði. Má þar nefna Jakob Jakobsson, for- stjóra Hafrannsóknarstofnunar og forseta Alþjóða hafrannsóknaráðs- ins, Hjálmar Vilhjálmsson, Jóhann Sigurjónsson og dr. Gunnar Stefáns- son, tölfræðing hjá Hafrannsókna- stofnun. Það er útgáfufyrirtækið Forskot s.f. sem gefur út Modern Iceland en ritstjóri þess er Magnús Ólafsson. í samtali við Tímann sagði Magnús að á þessari tæpu viku sem liðin er síðan tölublaðið kom út hefðu menn sýnt því ótrúlegan áhuga, enda væri Ijóst að inn- og útflytjendur hefðu hingað til ekki haft aðgang að efni þar sem málstaður íslendinga væri kynntur á enskri tungu. Taka má sem dæmi að nú þegar hafa yfir tvöþúsund eintök verið send til Þýskalands. Mesta dreifingin á tímaritinu er í gegnum gjafaáskriftir sem fyrirtæki hér heima senda viðskiptavinum sín- um erlendis. Magnús hyggst þó koma málstaðnum víðar á framfæri og þá til þeirra hópa sem skiptir hvað mestu máli fyrir íslendinga að fræðist um afstöðu okkar í náttúru- verndarmálum. Magnús ætlar að senda ýmsum aðilum sem tengjast erlendum umhverfisverndarsamtök- um tölublaðið, og hefur hann tekið saman nafnalista með yfir 400 aðil- um sem fá blaðið sent í lok þessarar viku. Með blaðinu verður bréf þar sem menn eru meðal annars beðnir að velta því fyrir sér hvort ekki séu tvær hliðar á öllum málum, eins og Magnús orðaði það. Aðspurður sagðist Magnús ekki hafa sótt um styrk til að koma blaðinu til þessara aðila, þetta væri bara „prívatframtak" því hann teldi að þetta fólk væri mikilvægasti við- tökuhópurinn. SSH Olíubað gatnamálastjóra við Þórðarhöfða í Reykjavík. Timamynd:Ámí Bjama Flughál dekk valda erfiðleikum og hættu. Tíminn og gatnamálastjóri hvetja bílstjóratil varúðar og til að: Hreinsa dekkin með terpentínu „Við erum með útbúnað og aðstöðu í bækistöðvunum okkar, þar sem fólk getur þvegið dekkin á bílum sínum,‘ sagði Ingi Ú. Magnússon gatnamálastjóri. Færið á götunum er þannig nú í umhleypingunum að bráðnauðsyn- legt er að gripfleti bíldekkja sé haldið hreinum. Undir snjónum á götunum hefur mjög víða myndast klaki og á honum spóla bílar og umferðartappar myndast í brekkunt. Selta, olíuúrgangur og óhrein- indi af götunum setjast á slitflöt dekkjanna og við það verða þau flughál og jafnvel bestu vetrardekk missa allt grip. Þessi óhreinindi þarf því að þvo af dekkjunum en þau fara auðveld- lega af með terpentínu. Gatna- málastjóri gekkst fyrir nokkru fyrir því að koma upp aðstöðu þar sem menn gætu ekið í gegnum rennur með terpentínu í og hefur það gefist prýðilega. Þeir staðir þar sem þessi kostur gefst eru við hverfastöðvar gatna- málastjóra en þær eru við Sigtún, við Njarðargötu, við Jafnarsel og við Þórðarhöfða. -sá

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.