Tíminn - 22.02.1989, Blaðsíða 1
I .... ú
KrafaEBum
veiðiheimild
óaðgengileg
• Blaðsíða 3
“---------
Davíðbakkarmeð
sorpstöð í Árbæ
vegna mótmæla
• Blaðsíður 6 og 7
Sætur sigur
á Sviss í
baráttuleik
, • Íþróttasíður 10 og 11
Magnús Guðmundsson að Ijúka við 40 mínútna mynd um veiðar
og grænfriðunga, en óvíst hvort ríkið styrkir gerð myndarinnar:
Afhjúpar svindl græn-
friðunga í nýrri mynd
Senn lítur dagsins Ijós 40 mínútna
löng mynd Magnúsar Guömunds-
sonar um áróðursstríð grænfrið-
unga og ýmsar falsanir sem þeir
hafa beitt til að ná athygli almúgans.
Mjög ógeðfelld atriði getur að líta í
myndinni þar sem grænfriðungar
drepa dýr á hinn hrottalegasta hátt
og heimfæra drápið upp á veiði-
menn.
Grænfriðungar hafa frétt af mynd
Magnusar og halda nú uppi fyrir-
spurnum um hann og feril hans.
Óvíst er hvort íslensk stjórnvöld
muni styrkja gerð þessarar heimild-
armyndar, en það er einmitt peninga-
leysi sem tefur lokafrágang myndar-
innar. • Blaðsíða 5
Magnús Guðmundsson lítur upp frá vinnu sinni í húsnæði ísfilm í gærkvöldi
Tímamynd Pjetur
250 á biðlistum
eftir lottókassa
Lottókassi sem allir vilja nú komast yfir.
Nú hefur lottókössum verið komið
upp um svo að segja ailt iand,
iotróspilurum og tippurum til mikill-
ar ánægju. Hinsvegar er eftirspurn
eftir kössunum mikil og meiri en
hægt hefur verið að anna. Nú eru um
250 aðilar víðsvegar um land á
biðiistum hjá stjórn íslenskrar
getspár, eftir að fá hina eftirsóttu
kassa. Þar er um að ræða sjoppueig-
endur og íþróttafélög að stærstum
hluta. Allsendis er óvíst hversu
mörgum kössum verður dreift til
viðbótar, en kassinn kostar um hálfa
milljón.
• Blaðsíða 2