Tíminn - 22.02.1989, Qupperneq 6
6 Tíminn
Miðvikudagur 22. febrúar 1989
Borað eftir jarðsjó
á Borgarsandi:
Borholu
„wisky"
„Menn deila um hvort vatnið sé
eins og wisky áður eða eftir að það
er drukkið," sagði Þórólfur H.
Hafstað í samtali við Tímann.
Það sem um ræðir er grunnvatn
mjög mikið mengað af jarðhita og
jarðvegi. Vatnið kom upp um til-
raunaborholu á Borgarsandi.
Borað var á vegum hitaveitu Sauð-
árkróks til að kanna möguleika á
vinnslu jarðsjávar með tilliti til fisk-
eldis. Forráðamenn fiskeldisfyrir-
tækisins Fornóss höfðu gert sér vonir
um framtíðar staðsetningu starfsem-
innar á Borgarsandi.
Þórólfur sagði að hann gæti
ómögulega mælt með því að meira
yrði borað á þessu svæði. „Það sem
upp kom er engu líkt, gjörsamlega
ólýsanlegt. Ég vinn fyrir ríkisfyrir-
tæki sem ekki hefur úr allt of miklu
að spila og tilraunaboranir eru dýrar
í framkvæmd. Persónulega þætti
mér afskaplega forvitnilegt að at-
huga þetta nánar en sem ábyrgur
vísindamaður get ég ekki ráðlagt
það. Möguleikarnir á að fá upp
betra vatn eru hverfandi litlir á þessu
svæði.“
Hann sagði vatnið vera um þrettán
til fjórtán gráðu heitt og greinilega
farið nokkra leið gegn um sand og
leirlög. jkb
Jón Sigurðsson, iðnaðarráð-
herra, skipar starfshóp vegna
erfiðleika í lagmetisiðnaði:
Meta stöðu
fyrirtækja
í lagmeti
Iðnaðarráðherra, Jón Sigurðsson,
hefur skipað sérstakan starfshóp til
að kanna stöðu lagmetisiðnaðar. Er
starfshópnum einnig ætlað að benda
á leiðir til að bæta markaðsstöðu
lagmetisiðnaðar og fjalla um fjár-
mögnun lagmetisframleiðslunnar.
Hefur iðnaðarráðherra lagt á það
áherslu að starfshópurinn hraði
störfum sem kostur er vegna þeirra
erfiðleika sem komið hafa upp í
iðngreininni.
Starfshópinn skipa þeir Halldór J.
Kristjánsson, deildarstjóri í iðnaðar-
ráðuneytinu, en hann er formaður,
Sveinn Björnsson, sendifulltrúi til-
nefndur af utnríkisráðuneytinu,
Hermann Sveinbjörnsson, aðstoðar-
maður sjávarútvegsráðherra til-
nefndur af sjávarútvegsráðuneytinu,
Davíð Lúðvíksson, deildarstjóri til-
nefndur af af Félagi íslenskra iðnrek-
enda og Eiríkur Valsson, sölustjóri
tilnefndur af Sölusamtökum lagmet-
is. . KB
Séð yfir Hellnahraun þar sem hugsanlegt er að sorppökkunarstöðin rísi. Álverið í baksýn. Tímamynd: Pjetur.
Hafnfirðingar með lóð fyrir sorpböggunarstöð á
Grófiðnaðarsvæði
í Hellnahrauninu
„Inn í umræðu um sorpböggunarstöðina í Hádegismóum
hefur að mínu áliti vantað þá staðreynd að hér er ekki um
mál Reykvíkinga einna að ræða, heldur hefur verið stofnað
byggðasamlag allra sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæð-
inu til að leysa þessi mál í sameiningu,“ sagði Guðmundur
Árni Stefánsson bæjarstjóri Hafnarfjarðar.
Guðmundur Árni sagði að stöð-
in sem fyrirhuguð var í Hádeg-
ismóum væri aðeins hluti af sorp-
máium höfuðborgarsvæðisins.
Hann sagði að Hafnfirðingar og
Garðbæingar og sennilega Kóp-
avogsbúar hefðu þurft að huga aö
einhvcrskonar útstöð eða böggun-
arstöð fyrirsig, hvort sem Árbæjar-
stöðin hefði orðið að veruleika eða
ekki.
Hvort eða hvar slík stöð eða
stöðvar verða byggðar tengist síð-
an því hvar sorpið verður endan-
lega urðað. Þannig verði að skipu-
leggja þessa starfsemi að mestu
sem eina heild.
Guðmundur Árni sagði að ekk-
ert væri inn á hans borð komið sem
kalla mætti endanlegt skipulag
þessara mála og því væri ekki liægt
að segja að búið væri sérstaklega
að ætla Árbæjarstöðinni nýjan stað
í landi Hafnarfjarðar.
Það væri hins vegar gerlegt að
koma slíkum stóriðnaði fyrir á
iðnaðarsvæði sem sérstaklega er
ætlað fyrir ýmsan grófan iðnað.
„Hins vegar er þetta að verulegu
leyti óathugaður kostur og við
viljum ekkert binda niður eitt né
neitt áður en ítarlegar athuganir og
rannsóknir hafa verið gerðar. Við
höfum fylgst ítarlega með því sem
gerst hefur í ntálinu annars staðar
og það er ljóst að hér er um
sameiginiegan vanda allra sveitar-
félaganna að ræða og við viljum
leggja okkur fram um að lausn á
honum finnist," sagði Guðmundur
Árni Stefánsson bæjarstjóri í Hafn-
arfirði.
Iðnaðarsvæði það sem Hafnfirð-
ingar hafa skipulagt fyrir þungan
og grófan iðnað er svokallað
Hellnahraunssvæði og þar sem tal-
ið er hugsanlegt að sorpböggunar-
stöð rísi er t grennd við lóð Stálfé-
lagsins skammt frá malbikunarstöð
sem þarna er þegar risin.
Staðsetningin þykir að mörgu
leyti heppileg verði endanlegur
urðunarstaður sorpsins í Krísuvík.
Þangað verður hins vegar talsvert
löng leið með sorpið frá Reykjavík
og Mosfellsbæ en því lengri leið
sem flytja þarf sorpið laust, þeim
mun dýrari verður sorphirðingin.
{ þessu sambandi er talað um að
flutningskostnaður að sorpböggun-
arstöð sé fimmfalt hærri en út úr
stöðinni. -sá
Stjórn Samtaka fiskvinnslustöðva:
MOTNUELA STOFNUN
HLUTABRÉFASJÓÐS
Meðferð þing-
manna hörmuð
Formenn Norðurlandadeilda Funduf formannanna var hald-
Alþjóðaþingmannasambandsins jnn j Osló fyrir skömntu. Bréfin
hafa sent sex ríkjum bréf þar sem Voru send ríkisstjórnum Kólomb-
hörmuð er meðferð á nokkrum íu, Hondúras, Malasíu, Indónesíu,
fýrrverandi þingmönnum, sem Chile og Guineu-Bissau fyrir milli-
hafa verið fangelsaðir án dóms, göngu nálægustu sendiráða þeirra.
horftð eða drepnir. jkb
Samtök fiskvinnslustöðva sam-
þykkti á fundi sínum á mánudag
ályktun þar sem harðlega er mót-
mælt stofnun Hlutabréfasjóðs
Byggðastofnunar.
1 ályktuninni segir að sjóðstofnun-
in geti leitt til mismununar fyrirtækj a
og virðist einungis eiga að tryggja
kröfur skuldareigenda í fyrirtækjum
sem eru komin í þrot. Stjórnin
ítrekar að almennar aðgerðir sem
breyti langvarandi taprekstri fisk-
vinnslunnar í hagnað, sé eina leiðin
út úr vandanum.
Þá kemur einnig fram í ályktun-
inni að meðal ráðstafana núverandi
ríkisstjórnar við upphaf starfstíma
síns, var ákvörðun um að verðbætur
skyldu greiddar á frystar sjávaraf-
urðir til skamms tíma og Verðjöfn-
unarsjóði heimiluð lántaka að upp-
hæð 800 milljónir króna með ríkis-
ábyrgð til að standa undir þessum
greiðslum.
í ályktuninni segir að þessi bráða-
birgðaleið hafi verið farin í stað þess
að taka á vandanum með almennum
efnahagsaðgerðum sem tryggt hefðu
rekstrarafkomu fiskvinnslunnar. Þá
segir ennfremur að engar líkur séu á
að verðjöfnunarsjóður eða fisk-
vinnslan muni geta greitt þetta lán af
tekjum sínum og að í umfjöllun
ráðamanna, m.a. sjávarútvegsráð-
herra, hafi ætíð verið gert ráð fyrir
að það félli á ríkissjóð.
Þvf mótmælir stjórn Samtaka fisk-
vinnslustöðva að stjórnvöld skuli
ekki breyta texta bráðabirgðalag-
anna nú, þegar verið er að afgreiða
þau á Alþingi. Bent er á að gera
þurfi ráð fyrir endurgreiðslu ríkis-
sjóðs á láninu og að þar séu tekin af
öll tvímæli, segir í ályktuninni.
-ABÓ