Tíminn - 22.02.1989, Side 7
Miðvikudagur 22. febrúar 1989
Tíminn 7
Davíð Oddsson borgarstjóri hverfur frá fyrirhugaðri staðsetningu sorpböggunarstöðvar-
innar við útidyrÁrbæinga. Alfreð Þorsteinsson fulltrúi framsóknarmanna í skipulagsnefnd:
„Heilbrigð skynsemi
varð ofan á að lokum"
„Borgarráð felur fulltrúum borgarinnar í stjórn Sorpeyð-
ingar höfuðborgarsvæðisins b.s. að leggja til að sótt verði um
Ióð fyrir böggunarstöð fyrir sorp í Hellnahrauni í landi
Hafnarfjarðar.
Jafnframt lýsir borgarráð því yfir að tekin verður frá lóð
fyrir móttökustöð fyrir umbúðir og timbur á hagkvæmum
stað í Reykjavík ef hagkvæmt þykir að lokinni athugun að
taka á móti slíku efni sérstaklega.“
Þetta er tillaga frá Davíð Oddssyni og undirtektum borgarráðs er stað-
borgarstjóra sem hann flutti í borg- setningin í Hádegismóum, við
arráði í gær. Tillagan var samþykkt bæjardyr Árbæinga því úr sögunni.
samhljóða og samkvæmt tillögunni „Þetta eru söguleg tíðindi í borg-
inni og í fyrsta sinn sem borgarstjóri
gefur opinberlega eftir. Þetta eru
mikil gleðitíðindi fyrir íbúa hverfis-
ins og við fögnum því að borgarstjóri
tók þessa ákvörðun og að borgarráð
gerði hana að sinni,“ sagði Guðni
Gunnarsson, íbúi í Árbæjarhverfi
og einn talsmanna hverfisbúa gegn
staðsetningu stöðvarinnar í Hádeg-
ismóum.
Alfreð Þorsteinsson fulltrúi fram-
sóknarmanna í skipulagsnefnd og
varaborgarfulltrúi vakti fyrstur at-
hygli á fyrirhugaðri staðsetningu
stöðvarinnar og lýsti efasemdum um
hana. Alfreð hefur síðan barist gegn
staðsetningunni í borgarstjórn.
Alfreð sagði við Tímann í gær:
„Um úrslit þessa máls vil ég segja
það að heilbrigð skynsemi sigraði að
lokum. Það er ekki oft á valdaferli
sínum sem Davíð Oddsson borgar-
stjóri hefur þurft að beygja sig, en í
þessu máli hefur hann gert það.
Það eru fyrst og fremst íbúarnir
sjálfir sem með samtakamætti sínum
eru sigurvegarar í þessu máli og ég
samfagna þeim.“
Sigrún Magnúsdóttir borgarfull-
trúi framsóknarmanna tók þátt í
atkvæðagreiðslunni í borgarráði og
sagði hún í gær að þessi úrslit væru
fyrst og fremst sigur fyrir íbúana í
Árbæjar- og Seláshverfum sem ótt-
uðust nágrenni við stöðina og hefðu
enda liðið fyrir það, hefði eitthvað
farið úrskeiðis við starfrækslu
hennar.
Sigrún sagði að þessi úrslit í mál-
inu staðfestu þá gleðilegu staðreynd,
sem hefði hingað til verið fáum ljós;
að borgarstjórinn í borg Davfðs gæti
skipt um skoðun. -sá
Þórarinn Tyrfingsson yfirlæknir S.Á.Á. tekur við hálfri milljón sem Guðmundur J. Guðmundsson afhenti honum
fyrir hönd stjórnar Dagsbrúnar. Tímamynd: Árni Bjarna
Dagsbrún gefur hálfa millj. til áfengisvarna:
Hátt á þriðja þúsund
lagðir inn hjá S.Á.Á.
Stjóm Dagsbrúnar hefur veitt
hálfa milljón króna til uppbygging-
ar á starfsemi S.Á.Á..
Meðferðir vegna áfengissýki og
annarrar vímuefnaneyslu eru gíf-
urlega kostnaðarsamar fyrir þjóð-
félagið. Má það einkum rekja til
fjölda þeirra sem eiga við þetta
vandamál að stríða, en samtals
voru 2845 manns lagðir inn á
stofnanir S.Á.Á. á síðasta ári. Þar
af voru um það bil sjö hundruð
manns sem leituðu sér meðferðar í
fyrsta skipti. Um eitt hundrað
þessara eru nítján ára eða yngri.
Þar af um helmingur innritaður í
fyrsta skipti.
Tryggingastofnun ríkisins greið-
ir rekstrarkostnað þessara stofnana
með svonefndum daggjöldum.
Meðal daggjöld á einstakling eru
þrjú þúsund krónur á dag. Heildar-
kostnaður við fulla áfengismeðferð
er því um 120 þúsund krónur.
Nýlega var gerð athugun á veg-
um félagsmálastofnunar Kópa-
vogs. Miðað við hana er næsta víst
að bróðurpartur fyrirgreiðslu fé-
lagsmálastofnana og barnavernd-
arnefndar megi rekja til ofneyslu
áfengis eða annarra vímugjafa.
Fangelsislæknar telja að um 80%
fanga séu haldnir áfengissýki. Um
helming af innlögnum á geðdeild-
um má kenna neyslu vímugjafa.
Lögregluþjónar á íslandi rekja ræt-
ur stórs hluta verkefna sinna til
hins sama og svo mætti lengi telja.
Það fólk sem á í hvað mestum
vanda með að umgangast áfengi er
á aldrinum 15-40 ára. Samkvæmt
niðurstöðum skýrslna má segja um
30% líkur á því að karlmenn verði
áfengissjúklingar fyrir sjötugt og
10% líkur á því sama með konur.
Stjórn Dagsbrúnar hefur því
skorað á önnur verkalýðsfélög,
ríkisstjórn og sveitarfélög að veita
meira fé til fyrirbyggjandi aðgerða
í áfengis- og vímuefnamálum.
jkb
Siglufjörður:
Mesta snjó-
flóðahættan
liðin hjá
í gær var talið að mesta snjóflóða-
hættan væri liðin hjá á Siglufirði en
í fyrradag fluttu fjölskyldur úr tíu
húsum að tilmælum almannavarnar-
nefndar, og í fyrrinótt voru bæjar-
starfsmenn á vakt. Ekki var þó talið
ráðlegt að þessar fjölskyldur flyttu
strax aftur heim.
Engin snjóflóð hafa fallið mjög
nærri bænum en í fyrrinótt féllu sex
stór snjóflóð veginn til Siglufjarðar.
Vegurinn var ruddur í gærmorgun
°8 fók sjð og hálfan tíma að ryðja
veginn frá bænum að Strákagöngum.
Vegurinn hafði þá verið lokaður frá
því á sunnudag.
f gær var spáð norðanátt en sam-
kvæmt fyrri reynslu Siglfirðinga
verður snjóflóðahættan mest í vest-
anátt því þá skefur upp á fjai-
Isbrúnirnar og hengjur myndast síð-
an geta fallið. ssjj
Listasalurinn Nýhöfn:
Málverkasýning
Bjargar Örvar
Næstkomandi laugardag, 25 febr-
úar, opnar Björg Örvar málverka-
sýningu í Listasalnum Nýhöfn í
Hafnarstræti.
Á sýningunni verða fjórtán olíu-
málverk máluð á síðastliðnu og
þessu ári. Hér er um að ræða samsett
verk, þ.e. að tveir myndrammar eru
festir saman. Að sögn Bjargar er
erfitt að segja til um í hvað myndefn-
ið er sótt. „Ég get eiginlega ekkert
um það sagt og því kaus ég að mála
það,“ sagði hún. Þetta er sjötta
einkasýning Bjargar en hún hefur
einnig tekið þátt í samsýningum
bæði hér heima og erlendis.
Björg er fædd í Reykjavík árið
1953. Hún stundaði nám við Mynd-
lista- og handíðaskóla íslands frá
1975-83 ogsíðan við listadeild Kali-
forníuháskóla í Davis 1981—’83.
Sýningin er sölusýning og henni
lýkur 15. mars. jkb
Olíumálverk án titils, eftir Björgu
Örvar.