Tíminn - 09.03.1989, Page 2
2 Tíminn
-r,,ni f
;>:$}mmíMqlag u r 9r mars ,1939
Skipstjórans saknaö af Sæborgu SH sem fórst út af Rifi í fyrrakvöld:
Víðtæk leit í
allan gærdag
Nanna VE 294 sem sökk um 5 mílur út af Vík í Mýrdal í fyrrakvöld. Myndin
er tckin áöur cn Nanna fór í endurbyggingu til Portúgals. Nanna kom úr
endurbyggingu skömniu fyrir jól. Tímaniynd Jún Björnsson
sem fórst Út undan Rifi í fyrrakvöld. Tímamynd Jón Björnsson
Leitin aö skipstjóranum á Sæ-
borgu SH 377 sem saknað er eftir að
báturinn sökk skammt NV af Rifi í
fyrrakvöld, var haldið áfram strax í
birtingu í gærmorgun.
Eins og Tíminn greindi frá í gær
var sjö af átta manna áhöfn Sæborg-
ar bjargað um borð í Ólal' Bjarnason
SH137, skömmu eftir að mönnunum
tókst að komast í gúmmíbát. Bátar
sem voru á leið í land á sama tíina
og Sæborg fórst, leituðu á svæðinu
fram yfir miðnætti í fyrrakvöld, án
árangurs.
Skipulögð leit hófst síðan í
snemrna í gærmorgun og gengu fé-
lagar úr björgunarsveitunum Sæ-
björgu frá Ólafsvík og Björgu frá
Hellissandi fjörur, allt út að Önd-
veröarnesi. Á fjórða tímanum fóru
leitarmcnn aftur af stað á vélslcðum
út á Öndverðarnes og var ætlunin að
fara fjörur til baka. Auk björgunar-
sveitanna, voru bátar frá Snæfclls-
nesi við leit franr eftir degi.
Þá kom Ægir, skip Landhelgis-
gæslunnar á leitarsvæðið snemma í
gærmorgun og var á svæðinu fram
eftir degi, auk þcss sem TF-SYN
Fokker vél gæslunnar leitaði einnig
á svæðinu.
Björn Erlingur Jónsson skipstjóri
á Ólafi Bjarnasyni SH 137, sem kom
áhöfn Sæborgar til hjálpar sagði í
samtali við Tímann að þeir hefðu
heyrt neyðarkall frá Sæborgu klukk-
an rúmlega átta og tekið stefnuna
strax á þá staðarákvörðun sem gefin
var upp. Fjöldi báta var þá á landleið
á þessum slóðum og stefndu þcir
allir á staðinn til leitar.
Björn Erlingur sagði þá liafa séö
síðan neyðarblys seni skotið var upp
frá gúmmíbátnum. Þeir hefðu síðan
keyrt bátinn upp að gúmmíbátnum
og tekið mennina um borð og farið
með þá til Ólafsvíkur.
Leiðinda veður var á þessum slóð-
um þegar Sæborgin sökk og undir
miðnætti var veðrið orðið snarvit-
laust, að sögn Björns Erlings.
-ABÓ
Leit aö mönnum:
Fundust í
gærmorgun
Slysavarnasveitin á Siglufirði
var snemma í gærmorgun kölluð
Stjórn SR á öndveröum meiði varöandi deilu VS og Flugleiöa:
„Fremur með
lslendingum“
út til leitar að fjórum mönnum
sem farið höfðu á jeppa frá
Siglufirði í fyrrakvöld.
Farið var að leita mannanna
þegar ekkert hafði til þeirra
spurst í gærmorgun og fundust
þeir á tíunda tímanum. Þeir
höfðu þá fest bílinn, rétt norðan
við Mánárskriður og sofið í hon-
um um nóttina. I gærmorgun
lögðu þeir fótgangandi af stað til
byggða þegar veðrið gekk niður.
Þeim varð ekki meint af útiver-
unni, enda voru þeir mjög vel
búnir, en gátu hins vegar ekki
látið vita af sér þar sem hvorki
talstöð né farsími var í bílnum.
-ABÓ
í kvöld halda Verkalýðsfélag
Borgarness og Neytendafélag Borg-
arfjarðar fund að Hótel Borgarnesi.
Rætt verður hvort samvinnuhreyf-
ingin sé betri kostur fyrir neytendur
en aðrir sem völ er á. Að loknum
framsöguræðum verða frjálsar um-
ræður og fyrirspurnir.
Frummælendur verða Guðjón B.
„Þaö væri í hróplegu ósamræmi
við þá baráttu sem við höfum staðið
í gagnvart útlendum leiguskipum ef
við tækjum aðra afstöðu," sagði
starfsinaður Sjómannafélags
Reykjavíkur við Tímann, en félagið
hefur tekið þveröfuga afstöðu við
önnur félög innan ASÍ og BSRB
gagnvart málaferlum Fluglciða gcgn
Verslunarmannafélagi Suðurnesja.
Flugleiðir hafa sem kunnugt er
stefnt Verslunarmannafélaginu til að
Ólafsson frá Sambandi íslenskra
samvinnufélaga, Guðmundur J.
Guðmundsson formaður Verka-
mannasambands íslands, Jónína
Þorgrímsdóttir húsmóðir Ytri-
Tungu Staðarsveit og Vilhjálmur
Egilsson framkvæmdastjóri Versl-
unarráðs íslands. Fundurinn sem er
öllum opinn hefst klukkan hálf níu.
fá úr því skorið hverjir starfsmanna
og stjórnenda Flugleiða máttu (og
væntanlega mega framvegis) ganga í
störf félagsmanna í farþegaaf-
greiðslu á Keflavíkurflugvelli meðan
á verkfalli hinna síðarnefndu stóð.
i yfirlýsingu sem stjórn og trúnað-
armannaráð Sjómannafélags
Reykjavíkur sendi frá sér fyrir
skömmu segir að félagið hafi um
.alllangt skeið deilt hart á hversu títt
það sé að kaupskipaútgerðir taki
erlend skip með áhöfnum á leigu um
lengri eða skemmri tíma.
Þetta stefni atvinnuöryggi ís-
lenskra farmanna í hættu enda sé
útlendingum á þennan hátt veittar
takmarkaíítlar heimildir til starfa
hérlendis. Sama máli hljóti að gegna
um þá sem að íslensku flugi starfi og
gegnir um farmenn og því sé Sjó-
mannafélaginu ómögulegt að taka
undir með hluta íslenskrar launþega-
hreyfingar hvað varðar loftflutninga
með íslenska launþega til sumarleyf-
isdvalar á erlenda grund.
í yfirlýsingunni segir að hörmuð
sé deila VS og Flugleiða og gera
verði enn eina tilraun til sátta áður
en málið verður dómtekið. -sá
Samvinnuhreyfingin
besti kosturinn?
Rafmagnsleysið í Vestmannaeyjum:
Viðgerðum átti
að Ijúka í nótt
Rafmagnslaust varð í Vest-
mannaeyjum um miðjan dag í
fyrradag vegna bilana í vararaf-
streng, en eins og kunnugt er fór
aðairafstrengurinn í sundur um
miðjan janúar s.l. Ráðgert var að
viðgerðum á vararafstrengnum
yrði lokið fyrir miðnætti í gær-
kvöldi.
Atvinnulffið gekk að mestu leyti
sinn vanagang þrátt fyrir rafmagns-
leysið, en frystihúsin og önnur
fiskvinnslufyrirtæki hafa fengið
rafmagn frá díselstöðvum. íbúðar-
hús hafa litla sem engáorku fengið
en eftir lokun frystihúsanna í gær
átti að skammta rafmagn í flest
íbúðarhverfin.
Bilunin í strengnum varð um 1(W
metra austur af aðveitustöðinni og
viðgerðin tiltölulega auðveld þar
sem hún cr uppi á landi. Vegna
óveðurs komust viðgerðarmenn
ekki til eyja fyrren um fjögurlcytið
í gærdag og áætluöu þeir að við-
gerðin tæki á bilinu sex til átta
tíma.
Sem fyrr segir hefur nýi sæ-
strengurinn til Vestmannaeyja vcr-
ið bilaður frá því f janúar, en vegna
veðurs var ekki hægt að hefja leit
að biiuninni fyrr en í síðustu viku,
en hún hefur enn ekki borið árang-
ur. m.a. vegna þess að strengurinn
er að mestu leyti hulinn sandi.
Örlygur Jónasson, hjá rafmagns-
veitunni á Hvolsvelli, sagði í sam-
tali við Tfmann að vegna þess hve
viðgerðin væri kostnaðarsöm og
veður ótrygg yrði ekki hafist handa
fy'rr en í vor. „Það þýðir varla að
stefna hingað mannskap og búnaði
fyrr en í vor þegar veður eru orðin
tryggari þar sem viðgerðin tekur
fimm til átta daga. Svona útgcrð
kostar nokkrar milljónir á dag.
Bara kostnaðurinn við að fá kapal-
skip hingað til lands frá Danmörku
kostar um tutttugu miiljónir, en
samkvæmt þeim tilboðum sem við
höfum fengið verður heildarkostn-
aður við viðgerðina aö minnsta
kosti 30 milljónir."
Strengurinn er ekki einungis slit-
inn miðja vegu milli iands og eyja
heldurer hann einnigilla farinn við
landtakið í Vestmannaeyjum
vegna ofsaveðra sem hafa geisað í
vetur. SSH
Hellisheiði loks rudd í dag?
Heiðin lokuð
á fimmtu viku
Byrjað var að ryðja Hellisheiðina
í gær en ekki var vitað hvort verkinu
yrði lokið fyrr en í dag.
Heiðin hefur nú samfleytt verið
ófær á fimmtu viku. Það er lengsta
tímabil sem hún hefur verið lokuð í
einu, að því er vegagerðarmenn
muna.
„Það eru mörg ár síðan hún hefur
verið ófær einhvern langan tíma í
einu. 1983 var hún lokuð í 20 daga
og árið 1984 í tvær vikur, en aldrei
áður þetta lengi,“ sagði Ólafur
Torfason vegaeftirlitsmaður hjá
Vegagerð ríkisins í samtali við
Tímann.
Ástæða þess að ekki hefur verið
rutt á heiðinni þetta lengi er að sögn
Ólafs einkum fjárskortur. „Það hef-
ur fallið svo mikill snjór þarna að við
höfum alveg látið það vera að moka.
Það hefði auðvitað verið hægt ryðja
cn spurningin snýst um kostnað við
moksturinn. Það hefði orðið að eyða
allt of miklum peningum í þetta ef
við hefðum farið að reyna að halda
henni opinni allan tímann,” sagði
Ólafur.
Um miðjan dagígærvarmokstur-
inn langt kominn. Þá var búið að
ryðja alla leið niður að Kömbunum
en þar var smá kafli eftir. Ólafur
taldi þó ekki víst að þeir myndu
klára að ryðja fyrr en í dag.
Þetta ástand hefur eðlilega valdið
fólki sem hefur átt leið þarna um
nokkrum óþægindum. Til að komast
frá Reykjavík til Hveragerðis hefur
þurft að keyra töluvert lengri leið en
ella hefði verið. „Fólk hefur orðið
að fara um Þrengslin og austurúr, og
annaðhvort um Ölfusveginn eða um
Óseyrarbrú og þaðan upp á Selfoss,“
sagði Ólafur.
Byrjað var að ryðja Hellisheiðina í gær en hún hefur nú verið ófær hátt á
fimmtu viku, en búist er við að hún opnist í dag. Svona var umhorfs fyrir
ofan Sandskeið í gærkvöldi. Tímamynd Pjetur