Tíminn - 09.03.1989, Blaðsíða 15

Tíminn - 09.03.1989, Blaðsíða 15
Fimmtudagur 9. mars 1989 Tíminn 15 Félag leikstjóra, hvað er nú það? Undanfarna daga hafa birst í fjöl- miðlum skrautlegar lýsingar eins helsta leikara þjóðarinnar á félags- skap leikstjóra á íslandi. Leikarinn, sem hefur verið virkur félagi í Félagi leikstjóra á íslandi (F.L.f.), og einn af stofnendum þess, hefur nú sagt sig úr því. Hann hefur upplýst alþjóð um að félagið sé samtrygging hinna getulausu og vanhæfu, að það sé druslufélag, að það berjist fyrir af- námi tjáningarfrelsis í austantjalds- anda. Og almenningur hefur mátt skilja af orðum hans að félagsskapur þessi ráði einhverju um það hverjir fái atvinnu við leikstjórn og hverjir ekki. Auðvitað veit þessi fyrrverandi félagsmaður betur, en þ&r sem hann hefur kosið að draga upp brenglaða mynd af heilu stéttarfélagi til þess að réttlæta ummæli sín um samstarfs- niann og leikstjóra, er rétt að eftir- farandi komi fram. 1. Félag leikstjóra á íslandi er félag allra starfandi leikstjóra. í lögum þess segir m.a.: ,,-Tilgangur félagsins er að gæta hagsmuna leik- stjóra - listrænt sem fjárhagslega. - Fað er samningsaðili gagnvart leikhúsum, hljóðvarpi og sjónvarpi. - Það kemur fram fyrir hönd félaga sinna í öllum hagsmunamálum þeirra. - Til þess að verða félagi þarf leikstjóri að hafa stýrt 2 leiksýning- um í atvinnuleikhúsi eða með hlið- stæðum leikhópum, sem hlotið hafa viðurkenningu stjórnar F.L.Í. Sama máli gegnir um sviðsetningar í sjón- varpi. Stjórnin hefur heimild til að láta 4 uppfærslur í hljóðvarpi gilda sem 1 á sviði, sömuleiðis að líta á 4 sviðsetningar með áhugamönnum sem jafngildi einnar með atvinnu- mönnum." Þessar reglur settu stofn- endur félagsins fyrir 17 árum og menn hafa ætíð talið að ekki væri hægt að leggja neitt annað mat á umsækjendur. 2. Eftirtaldir leikstjórar, 18 talsins, mættu á síðasta aðalfund og kusu félaginu nýja stjórn og vara- stjórn: Árni Ibsen, Ásdís Skúladótt- ir, Bríet Héðinsdóttir, Brynja Bene- diktsdóttir, Hailmar Sigurðsson, Helga Bachmann, Helgi Skúlason, Hörður Torfason, Inga Bjarnason, Jón Viðar Jónsson, Jónas Jónasson, Kristján Jónsson, Klemenz Jónsson, María Kristjánsdóttir, Sigríður Þor- valdsdóttir, Sveinn Einarsson, Þór- hallur Sigurðsson og Þórhildur Þor- leifsdóttir. Formaður var kosin Mar- ía Kristjánsdóttir með 16 atkvæðum, ritari Þórhallur Sigurðsson með 14 atkvæðum og gjaldkeri Inga Bjarna- son með 15 atkvæðum. f varastjórn voru kosin: Ásdís Skúladóttir, Árni Ibsen og Brfet Héðinsdóttir. Þá var Helga Bachmann kjörin í stjórn Menningarsjóðs F.L.Í. og Helgi Skúlason var kosinn fulltrúi félagsins í Leiklistarráði. 3. Langmestur starfstími stjórnar fer í samninga um kaup og kjör, enda er jafnan samið til skamms tíma í senn, eða eins til tveggja ára. Ráðningar leikstjóra til ein- stakra verkefna í leikhúsunum eru alfarið á hendi leikhússtjóra og/eða leikhúsráða. Félag leikstjóra kemur þar hvergi nærri, eins og borgar- stjórinn í Reykjavík hélt fram í Morgunblaðinu á dögunum, þegar hann bar yfirlýsingu félagsins um orð leikarans saman við dauðadóm Khomeinis yfir breskum rithöfundi. Eitt er óvenjulegt við ráðningu Ingu Bjarnason til Leikfélags Akureyrar. Þegar hún er ráðin til starfa er þegar búið að ráða 3 af 4 leikurum verksins, og er ráðning hennar með fullri vitund og samþykki Helga Skúlasonar og Helgu Bachmann. Það er ekki oft að leikarar atvinnu- leikhúsanna geta valið sér leikstjóra, en Ijóst er að ekki er við F.L.Í. að sakast í þessu máli. 4. Það er alrangt að Félag leikstjóra hefði getað blandað sér fyrr í deil- urnar á Akureyri, vegna þess að ekki var leitað til félagsins fyrr en leikstjórinn, Inga Bjarnason, til- kynnti formanni þann 9. febrúar sl. (viku fyrir frumsýningu) að ágrein- ingur hefði komið upp. Formaður F.L.Í: óskaði þegar eftir skýrslu frá L.A. og var sú beiðni ítrekuð viku síðar. Engin skýrsla kom frá L.A. fyrr en eftir að ummæli Helga Skúla- sonar um leikstjórnina birtust í fjöl- miðlum. 5. I Morgunblaðinu 25.2 segir Helgi að fjöldi fólks innan leikara- stéttarinnar telji „að viðbrögð mín hafi ekki verið deginum of fljót við því ástandi, sem leikarar hafa orðið að búa við í sívaxandi mæli varðandi Leikstjórafélagið, en margir með vangetu hafa flotið innan þess í kjölfar samtryggingar hinna óhæfu.“ Þetta er athyglisverð söguskoðun, sem aldrei kom fram meðan Helgi var virkur félagi í F.L.f. Og verður hún vitaskuld rannsökuð nánar á næstunni. í fljótu bragði virðist þetta „ástand“ vera eftirfarandi: Undan- farin tvö leikár hafa eftirtaldir ís- lenskir leikstjórar stjórnað sýning- um atvinnuleikhúsanna tveggja í Reykjavík: Andrés Sigurvinsson, Benedikt Árnason, Bríet Héðins- dóttir, Brynja Benediktsdóttir, Gísli Halldórsson, Guðjón P. Pedersen, Helga Bachmann, Pétur Einarsson, Sveinn Einarsson, Stefán Baldurs- son, Gísli Alfreðsson, Þórhallur Sig- urðsson, Þórhildur Þorleifsdóttir, Þórunn Sigurðardóttir, Kjartan Ragnarsson, Karl Ágúst Úlfsson, LárusÝmir Óskarsson, ÁsdísSkúla- dóttir. Leikhúsfólk hefur haft af því veru- legar áhyggjur hve erfitt það hefur reynst yngri leikstjórum að komast inn í starf atvinnuleikhúsanna, þann- ig að eðlileg endurnýjun ætti sér stað í leikstjórahópnum. Þó hafa ýmis teikn verið á lofti um að þetta sé að breytast. Félag leikstjóra á íslandi fagnar þeirri þróun, en lítur jafn- framt svo á að stóryrði eldri lista- manna um hæfni hinna yngri, og stóryrði um stéttarfélög leiklistar- fólks verði leiklistinni aldrci til fram- dráttar. Virðingarfyllst, Stjórn og varastjórn F.L.Í. María Kristjánsdóttir Þórhallur Sigurðsson Ásdís Skúladóttir Árni Ibsen Bríet Héðinsdóttir. lllllllllllllll SAMVINNUMÁL lllllllllllllllllllllllllllllll Bankabréf Sam- vinnubankans Verðbréfaviðskipti Samvinnu- bankans eru nú í fyrsta sinn að gefa út svo kölluð bankabréf. Segir frá þessu í nýútkomnu fréttabréfi bank- ans um verðbréfaviðskipti. Hér er um að ræða 1. flokk 1989 af bréfum sem nefnast Bankabréf Samvinnu- bankans. Stærð þessa fyrsta flokks er 300 miljónir, og bréfin eru gefin út á þrenns konar nafnverði, fimm- tíu þúsund, tvö hundruð þúsund og ein miljón króna. Bankabréfin eru verðtryggð en vaxtalaus. Þau eiga að færa kaup- endum sínum 9% vexti umfram hækkun lánskjaravísitölu. Kemur raunávöxtun bréfanna því öll fram í afföllum frá nafnverði þeirra við sölu. Bréfin eru öll með einn gjald- daga, en hægt er að velja þar um níu mismunandi dagsetningar á tímabil- inu frá 25. janúar 1991 til 25. janúar 1994. Gjalddagar bréfanria ár hvert eru 25. janúar og 25. júlí. Eftir að Kr.SO.OUO VEREŒRYGGT SKULEABRÉF $ SAMVINNUBANK) tSLANOS HF. , FlKUinlU MÚSUND kronur bréfin hafa gjaldfallið bera þau al- menna sparisjóðsvexti þar til greiðslu fyrir þau er vitjað. Þar sem þessi nýju bankabréf hafa aðeins einn gjalddaga er talið að fjárfesting í þeim eigi eftir að nýtast kaupendum betur en ef gjalddagar væru fleiri. Þurfa eigendur þeirra þá einungis að huga að endurfjárfest- ingu í lok lánstímans, og hafa þeir þá alla fjárhæðina til ráðstöfunar, í stað þess að annars þyrftu þeir að huga oftar að endurfjárfestingu og þá með lægri fjárhæð en ella í höndunum hverju sinni. Er talið að í slíkum tilvikum gæti endurfjárfest- ing orðið erfiðari, ef fjárhæðin er ekki nægjanlega há til þess að duga til að fjárfesta aftur í góðum verð- bréfum. Þá tekur bankinn að sér að sjá um varðveislu og innheimtu bankabréfanna án sérstaks endur- gjalds. -esig Al 4l r M. Hf.l - J - unnoii i Mnr Jón Helgason Guðni Ágústsson Unnur Stefónsdóttir alþingism. alþingismaður varaþingmaður Árnesingar Árlegir stjómmálafundir og viðtalstímar þingmanna Framsökt flokksins verða á eftirtöldum stöðum: 1. Félagsheimili Boðans, Hveragerði, miðvikudaginn 8. mars 20.30. 2. Þingborg, Hraungerðishreppi, fimmtudaginn 9. mars kl. 21.0 Vesturland - Formannafundur Fundur formanna framsóknarfélaganna á Vesturiandi verður haldinn í Hótel Borgarnesi laugardaginn 11. mars n.k. kl. 13.00. Guðmundur Ragnheiður Sigurður Guðmundur Bjarnason heilbrigðisráðherra, Ragnheiður Sveinbjörns- dóttir og Sigurður Geirdal koma á fundinn. Sjá nánar í fundarboði til félaganna. Kjördæmissambandið. Suðurland FUF í Árnessýsiu og Félag framsóknarkvenna í Árnessýslu áformar að halda félags- málanámskeið í lok mars og í apríl. Um er að ræða byrjenda- og framhaldsnámskeið. Námskeiðin eru öllum opin sem áhuga hafa. Þátttaka tilkynnist sem fyrst til formanna félaganna. Sigurðar Eyþórssonar í síma 34691 og Ólafíu Ingólfsdóttur í síma 63388. FUF og FFÁ. Norðurland vestra Stjórn kjördæmasambands framsóknarmanna, stjórnir framsóknar- félaga, blaðstjórn Einherja og fulltrúar í verkalýðsráði eru boðuð til fundar í Framsóknarhúsinu á Sauðárkróki laugardaginn 18. mars n.k. Fundurinn hefst kl. 14.00. Alþingismennirnir Páll Pétursson og Stefán Guðmundsson mæta á fundinn. Stjórn K.F.N.V. Vestur-Húnvetningar Árshátíð Framsóknarfélagsins verður í Vertshúsinu, Hvammstanga, ' föstudaginn 10. mars og hefst með borðhaldi kl. 21.00. Stjórnin. Fjölmiðlanámskeið SUF Fyrsta fjölmiðlanámskeið SUF og kjördæmissambandanna hefst laugardaginn 11. mars kl. 10 í Nóatúni 21, Reykjavík. Framkvæmdastjórn SUF SUF í Viðey Miðstjórnarfundur Sambands ungra framsóknarmanna verður hald- inn laugardaginn 18. mars í Viðeyjarstofu. Dagskrá og sérmál futidarins auglýst síðar. Framkvæmdastjórn SUF Kópavogur Skrifstofan í Hamraborg 5 er opin þriðjudaga og miðvikudaga kl. 9-13. Sími 41590. Heitt á könnunni. Opið hús alla miðvikudaga kl.17-19. Félagsmenn eru hvattir til að líta inn og taka með sér gesti. Eflum flokksstarfið. Framsóknarfélögin í Kópavogi. Reykjanes Skrifstofa Kjördæmissambandsins að Hamraborg 5, Kópavogi er opin á mánudögum og miðvikudögum kl. 17 til 19. Simi 43222. K.F.R.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.