Tíminn - 09.03.1989, Síða 3
Fimmtúd ag u r ’9’.' ma'rs' ’1 '989
Cf/’ý.r r.
Timinn 3
Var skipulagi í Grafarvogi breytt vegna mótmæla álfa í kletti viö Hlaðhamra?:
Alfarnir tylliástæða
til að forðast kostnað?
í samþykkt Skipulagsnefndar Reykjavíkurborgar sem
borgarráð fjallaði um í gær er lagt til að einn af fjórum
bílskúrum sem fyrirhugað er að byggja við Hlaðhamra í
Grafarvogi verði byggður á lítið eitt öðrum stað en gert er
ráð fyrir í skipulagi.
Ein ástæða þess að lagt er til að mæla með því að leyft verði
að víkja frá skipulaginu í þessu efni er sú að klappir við enda
raðhússins númer 44 við Hlaðhamra hýsi hugsanlega íbúa -
álfa.
„Ég held ekki að þetta sé neitt til
að gera veður útaf, en þarna var
áætlað að byggja fjóra bílskúra og
þess hefur verið óskað að einn
þessara bílskúra yrði færður til vegna
þessara klappa sem þarna eru."
sagði ívar Eysteinsson hjá Borgar-
skipulagi við Tímann.
Ivar sagði að þessi ósk hefði
komið fram, einkum vegna kostnað-
ar við að sprengja klettinn burtu og
vegna hættu á skemmdum á sjálfu
húsinu af völdum sprenginga. Pegar
skipulagsuppdráttur hefði verið
gerður af svæðinu hefði verið stuðst
við kort sem kletturinn hefði ekki
verið sérstaklega merktur inn á.
í bréfi þar sem byggjandi bíl-
geymslunnar fór fram á að fá hana
flutta, hefðu ástæður flutnings verið
tilgreindar og að síðustu tekið fram
að líkast til byggi huldufólk í klettin-
um og væri það svo, væri leiðinlcgt
að vera að hrella þá.
ívar sagði að nærtækast væri að
ætla að farið væri fram á flutninginn
til að losna við dýra vinnu við
sprengingar.
Blm. Tímans kannaði staðhætti
og eins og sjá má á myndinni er þetta
þykk og mikil klöpp og tengist
trúlega svokallaðri Rcykjavíkureld-
stöð sem var virk fyrir tveim til þrcm
milljónum ára, en bcrgmyndanir frá
henni stinga kollinum upp á nokkr-
um stöðum, svo sem á Geldinganesi
og úti í Viðey.
Klöppin er rækilega sorfin af ísald-
arjökli enda líklegast milli tvcggja
og þriggja milljón ára gömul.
Það er því trúlega talsvcrt mál að
sprengja hana til að jafna undir fyrir
bílageymslunni og hætt við að hreyf-
ing kæmi á sjálft raðhúsið og hætta
Þar sem þessi klöpp er, var fyrirhugaö að byggja einn fjögurra bílskúra viö Hlaöhamra 44 í Grafarvogi
Skipulagsnefnd saniþykkti fyrir stuttu að víkja mætti lítillega frá skipulaginu og byggja bílskúrinn annarsstaðar og
spurningin er: Var það gert vegna mótmæla frá álfum sem klöppina byggja, eða vegna kostnaðar?
á að það skcmmdist.
„Þar sem kornið varð ;iuga á
möguleika á að færa bílgeymsluna
þá sáu menn ekki ástæðu til að
hrófla við klöppinni fyrst komist
yrði hjá því ogskipulagsnefnd viröist
samþykk því," sagði einn þeirra
fjögurra manna scm hyggjast byggja
bílageymslur þarna.
Húseigandinn var undrandi á
áhuga blaðamanns á málinu ogsagð-
ist helst vilja að ekki yröi um það
fjallað. Hann sagöi þó að ástæður
breytingarinnar heföu komið l'ram í
erindi til skipulagsnefndar en þær
væru; að dýrt væri að byggja skúrinn
þarna, hætta væri á að íbúðarhúsið
sjállt skemmdist, börn lékju sér
mikið í klöppinni og í Ijórða lagi
væri það svo að l'ólki, sem býr á
nýjum stað, væri ekkéit vel við að
sprengja svona lagað í tætlur.
-sá
Stúlka slasaðist nokkuð er hún
ók bifreið sinni framan á tvo bíla
er voru að koma úr gagnstæðri átt
á Miklubraut seint í gærkvöldi.
Stúlkan fór ölugum megin við
umferðareyju og leikur grunur á
að hún hal'i veriö undir áhrifum
álengis.
Megna bjórlykt lagði úr bílnum
og fannsl þar tóm bjórdós og
plastumbúöir ulan af „sex-
pakka". Lögreglumenn sem
komu á slysstað hristu höfuöið í
hneykslan og einum varð að orði,
„Það er svona fólk scm kemur
óorði á bjórinn."
Stúlkiin var flutt á slysavarðs-
stol'u, en meiðsli hcnnar reyndust
ekki alvarleg. Hún hafði uppi
munnsöfnuö lögrcgluna, þegar
tekist hafði að ná henni út úr
bílnum, sem valt eftir árckstur-
inn. Tvo af þrentur bílum varð að
fjarlægja með kranabtl.
Tveir menngrófust undir snjóflóöi í Óshlíð í gærmorgunog sá þriðji slapp mjög naumlega:
Froskmenn og um sjötíu
björgunarmenn við leit
Mikil leit var gerö í gærdag að
tveim mönnum á þrítugsaldri eftir
að snjóflóð féll á þá á miðjum
Óshlíöarvegi innan til við Krossinn,
um hálf átta í gærmorgun. Um 70
manns úr þrem björgunarsveitum
frá Isafirði og einni frá Bolungarvík
tóku þátt í leitinni. Þá kom þyrla
Landhelgisgæslunnar TF-SIF til ísa-
fjarðar klukkan 13.20 með tvo sér-
þjáifaða lcitarhunda og var farið
með þá strax á vettvang.
„Við ætluðum að reyna að fara
yfir flóðið. Bílstjórinn fór út og
hleypti úr dekkjunum og ók aðeins
upp á skriðuna, en varð fljótlega
fastur, eftir að við höfðum komist
eina eða tvær bíllengdir. Þegar bíll-
inn varð fastur ætlaði hann út og
kraka frá með skóflu, en í því kom
annar bíll aðvífandi. í honum var
einn senr vinnur hér innfrá og var á
jeppa líka. Ég sat eftir inní bílnum
og sá að þeir gengu af stað út á flóðið
til þess að kanna aðstæður. Það var
það síðasta scnt ég sá til þeirra,"
sagði Jónmundur Kjartansson yfir-
lögregluþjónn frá ísafirði, en hann
var ásamt öðrunt mannanna sem
skriðan hreif með sér, í jeppa á leið
til vinnu á ísafirði. Mennirnir þrír
eru allir búsettir á Bolungarvík.
Jónmundur sagði að þegar þeir
hefðu komið að flóðinu hafi það
ekki verið ljótt að sjá, frekar flatt og
nokkuð breitt. Þeir voru á sérútbún-
um jeppa tii fjallaferða og ökumað-
urinn nrjög vanur að aka við slíkar
aðstæður.
Jónmundur sagði að sorta vitlaust
veður hefði verið um þetta leyti og
mikill skafrenningur. „Égtókekkert
eftir því þegar flóðið kom, það hefur
sennilega komið og hrifið þá með sér
framaf, því þegar mér fór að leiðast
biðin, fórég út að leita. Éggerði mér
þá ekki grein fyrir því að það hefði
komið annað flóð, því mér fannst
svo lítil ábót, enda hefur það farið
allt framaf. Ég var á brölti þarna um
svæðið og ekki fyrr en nokkru seinna
að hefillinn kom, en bílstjóri hans
hafði ekki orðið var við neina menn
hinum megin. Þá vissi ég að það
hafði komið flóð," sagði Jónmund-
ur.
Hann sagði að það hefði verið um
hálf átta sem þeir voru á skriðunni
því um korter yfir átta hafi hann
kallað á hjálp í gegn um loftskeyta-
stöðina úr bílnum sem þcir voru á og
var fastur í skriðunni.
Segja má að Jónmundur hafi
naumlega sloppið, því fyrra flóðið
féll rétt framan við bílinn sem hann
sat í og stðar þcgar hann var á
leiðinni frá heflinum aö jeppanum,
til að kalla á aðstoö, féll annað
snjóflóð skammt frá. „Ég heyrði
mikinn gný í flóöi scm var að falla.
Taldi það vcra að koma yfir mig, en
flóðiö fór einhvcrstaðar fyrir ofan og
aftan mig,“ sagði Jónmundur.
Björgunarsveitir frá ísafirði og
Bolungarvík lcituðu í allan gærdag
og kom þyrla Landhclgisgæslunnar
með tvo sérþjálfaða lcitarhunda
vestur til leitar. Eftir aö lcitað hafði
verið gaumgæfilega var grafið tneð
skóflum í gegn um alll flóðið frá vegi
og niöur í flæöamál og með vinnuvél-
um þar sem því varð við komiö, án
árangurs. Auk þess sem froskmenn
voru fengnir til að leita í sjónum þar
sent skriðan léll í sjó fram.
Eins og áður sagði var al'taka
veður á þessum slóðum snemma t
gærmorgun, cn um níuleytiö var
veðrið orðiö nokkuö skaplegt og
bjart, þannig að aðstæöur til leitar
voru sæmilegar.
Leitað var fram í myrkur. Þá var
ætlunin að meta stööuna og halda
leit síðan áfram í dag. -ABÓ
Bjórlykt
úr bílnum