Tíminn - 09.03.1989, Side 4
4 Tíminn'
Fimmtudagur 9. mars 1989
Seðlabanka þykir athyglivert hversu verðbólgu-
spár almennings reynast oft nærri lagi:
VERDB0LGU0TT1
STÓRAUKISTÁ
STUTTUM TÍMA
Verðbólguótti jókst veru-
lega meðal íslendinga á tíma-
bilinu frá nóvember til janúar
s. l., samkvæmt könnun Hag-
vangs á spám almennings um
verðbólgu næstu 12 mánuði
eftir að spurt er. Þannig spáði
t. d. yfir helmingur þjóðar-
innar (53%) í nóvember s.I.
að verðbólga næstu 12 mán-
uðina yrði undir 20%. En
aðeins tveim mánuðum síðar
var það aðeins fjórðungur
(27%) sem reiknaði með
minna en 20% verðbólgu
næstu 12 mánuði.
Hagvangur hcfur undanfarin fjög-
ur ár ööru hvcrju gcrt úrtakskönnun
lyrir Seðlabankann á skoðun al-
mennings á verðbólguhorfum hvcrju
sinni. Um 800 manns cru spurðir:
Hvcr telur þú að verðbólgan veröi
næstu 12 mánuði? Svörin eru flokk-
uð í hópa, þá scm spá t.d. 5-10% og
síðan 10-15% og svo framvegis.
„Meðaltalsspá" er reiknað mcðaltal
allra svara hverju sinni. Sú spá
hækkaði úr 22,1% upp í 26,3% á
aðeins tvcggja mánaða tímabili milli
nóvember og janúar. Varla hafa
gengisfellingar síðan dregið úr al-
mennum verðbólguótta.
Seðlabankamönnum þykir at-
hyglivcrt hversu verðbölguspár al-
Eftir er að veiða
rúm 200 þúsund tonn
af loðnukvótanum:
Loðnu-
veiði að
glæðast
Loðnuveiðar eru nú að glæðast
eftir litla vciði aö undanförnu og
tilkynntu 15 bátar um 10.600
tonn af loðnu í fyrrakvöld og
fram undir morgun. f gær var
mikill stormur á miðunum vestan
við Hornafjörð, cn líkur voru á
að veðrið gengi niður mcð kvöld-
inu.
Loðnuna fcngu bátarnir um 10
mílur austan Hrollaugseyja og
eru sjómenn bjartsýnir á að takist
að veiða upp í kvótann, en tals-
vcrt af loðnu virðist nú vera að
ganga upp að suðausturströnd-
inni.
Heildaraflinn á loðnuvertíð-
inni er nú orðinn 718 þúsund
tonn og á því eftir að veiða um
210 þúsund tonn.
Nokkrir loðnubátar hafa lokið
við að vciða kvótann sinn, eða
eiga lítið eftir. Skarösvíkin hefur
t.a.m. lokið að veiðtt upp í kvót-
ann sem hún fékk úthlutað og
loðnubátarnir Örn, Albert, Jón
Finnsson, Víkurbcrgið, Jón
Kjartansson og Guðrún Þorkels-
dóttir eiga lítið cftir. - ABÓ
Hververðurverðbólgan
næstu 12 mánuði?
Svörí Svör í
nóv. 1988 jan.1989
Minnien5% 4,1% 0,2%
5-9,9 10,0% 3,3%
10-14,9 21,9% 11,4%
15-19,9 17,4% 12,5%
20-29,9 25,1% 43,2%
30-39,9 12,1% 20,9%
40-49,9 4,8% 5,3%
50-59,9 2,7% 1,9%
Meiri en 60% 1,9% 1,4%
Alls 100,0% 100,0%
Vegið meðaltal 22,1% .26,3%
Um sjöundi hver maður var svo bjartsýnn í nóvember s.l. að verðbólga yrði
undir 10% næsta árið en aðeins örfáir þegar koniið var fram í janúar. Meira
en þriðjungur þjóðarinnar taldi að hún yrði a.m.k. undir 15% en langt innan
við helmingur þeirra var enn svo bjartsýnn í janúar. Aðeins um fjórði hver
maður spáði þá orðið innan við 20% verðbólgu, hátt í helmingurinn spáði
orðið 20-30% verðbólgu og fjórðungurinn að hún yrði 30-40% ef ekki ennþá
Nýlega var tekinn í notkun minigolfsalur að Ármúla 20 í Reykjavík.
Tímamynd: Pjetur
MINIGOLF
mennings hafa rcynst nærri lagi þessi
fjögur ár, mcö fáeinum undantckn-.
ingum. Ljóst sc að svör fólks séu alls
ekki út í hött, heldur þvert á móti
byggð á yfirvegun. Niðurstaða
hverrar könnunar hljóti því að gcfa
stcrka vísbendingu um viðhorf al-
mennings hvcrju sinni.
„Þetta viðhorf hcfur að líkindum
áhrif á ýmsar ákvarðanir manna og
hcfur af þcirri ástæðu nokkra þýð-
ingu, burt séð frá því hvort spáin
rcynist góð eða ekki," segir í Hagtíð-
indum Scðlabanka. -HKI
Nýlega var opnaður minigolfsal-
ur að Ármúla 20 og er það eini
minigolfsalurinn í Reykjavík.
Sólarlandafarar hafa vafalaust
flestir kynnst þessari íþrótt en
áhugamenn hafa ekki haft mörg
tækifæri til að stunda íþróttina hér
heima. Margir muna þó vafalaust
eftir minigolfinu sem Valbjörn
Þorláksson rak á sumrin á Skóla-
vörðuholtinu en því var lokað fyrir
nokkrum árum.
Að sögn eigendanna hefur að-
sóknin verið nokkuð góð og hefur
fólk á öllum aldri sýnt þessu fram-
taki áhuga. Mögulciki er fyrir hópa
að panta fasta tíma í minigolfið,
einnig hafa nokkur fyrirtæki fengið
aðstöðuna á leigu fyrir einkasam-
kvæmi.
Hringurinn í minigolfinu er 18
holur og kostar ein umferð 250
krónur. Eigendur minigolfsins eru
þeir Ægir Jóhanncsson og Hlynur
Jóhannesson. SSH
Fundur forystumanna BSRB og ASÍ:
Samráð í kröfugerð um
félagslegar úrbætur
Forystumenn BSRB og ASÍ hafa rætt um hugsanlega
samvinnu í þeim málum sem lúta að ríkinu í kröfugerð
samtakanna í væntanlegum kjarasamningum. Engin endanleg
ákvörðun var tekin á fundi þessara aðila á þriðjudag en innan
beggja samtakanna er vilji til að bæta kaupmáttinn með
ýmsum félagslegum úrbótum auk Iaunahækkana.
Ögmundur Jónassonsagði í viðtali að þar hefði samninganefndin farið
Við Tímann að innan BSRB væri
einhugur um að reyna að knýja fram
ýmsar félagslegar úrbætur auk
launahækkana, því launahækkanir
dygðu einfaldlcga ckki þeim sem
búa við hvað lökust kjör. Ögmundur
sagði að í þessu sambandi hefði til
dæmis verið rætt um skattabreyting-
ar, barnabætur og jafnvel húsaleigu-
styrki. Ögmundur sagði jafnframt:
„Við í BSRB viljum að sjálfsögðu
launahækkanir og kaupmáttartrygg-
ingu en við viljum skoða ýmsar
aðrar leiðir að auki.“
Ögmundur vildi ekki fullyrða að
beinlínis yrði um samflot að ræða
milli BSRB og ASÍ í kröfugerðinni
en örugglega yrði samráð þar á milli,
og BSRB vildi hafa sem bcst sam-
starf við öll samtök launafólks hvað
þessar félagslegu lausnir varðaði.
Aðspurður sagði Ögmundur að á
fundinum hefði ekki verið rætt sér-
staklega um þau efnisatriði viðræðna
um launamál og kjarasamninga sem
samninganefnd ríkisins sendi frá sér
nýlega. Ögmundur sagðist líta svo á
nijög svo almennum orðum um hvað
ríkið vildi ræða.
Varðandi kaupmáttartrygginguna
sagði Ögmundur: „Við viljum að
sjálfsögðu auka kaupniáttinn. Þetta
tal um að halda óbreyttum kaup-
mætti er gjörsamlega út í hött. Trúir
því nokkur maður í alvöru, ef við
tökum lægstu launin í BSRB sem
eru innan við 40 þúsund krónur á
ntánuði, að þetta nægi til lífsviður-
væris? Það ber vott um fullkomið
óraunsæi ef menn ímynda sér að það
sé hægt að halda fólki á slíkum
smánarlaunum. Hinsvegar hefur
ríkisstjórnin sagt að hún sé til við-
ræðna um að finna leiðir til að jafna
tekjuskiptinguna í landinu og efla
kaupmátt lægstu launa. Hinsvegar á
eftir að skilgreina hvað menn eiga
við þegarþeirtala um lægstu laun.“
SSH
Samvinnulífeyrissjóðurinn:
Vextir lækka, lán hækka
Stjórn Samvinnulííeyrissjóðsins
samþykkti nýlega að hætta við að
láta vcxti á lánum til sjóðfélaga
fylgja meðalvöxtum bankanna,
sem þá voru 8,1% á verðtryggðum
lánum. Ákveðið var að vextir á
lánum til sjóðfélaga vcrði 7% auk
verðtryggingar (svipað og Lífeyris-
sjóður vcrslunarmanna hafði áður
ákveðið til sinna fclaga) og breytast
ekki nema sjóðsstjórn taki nýja
ákvörðun þar um. Þessi vaxtalækk-
un gildir bæði urn ný og eldri lán.
Hin nýjákveðna vaxtaprósenta er
því svipuð og ýmsir spá að vextir
verði ef nýtt húsbréfakerfi kæmi til
framkvæmda.
Sjóðsstjórn ákvað jafnframt að
hækka hámarkslán til sjóðfélaga
sinna úr 500.000 í 800.000 kr.
Lánstíminn cr 15 ár.
Vaxtalækkun úr 8.1% niður í
7% lækkar t.d. vaxtagreiðslu af
hámarksláni um 8.800 krónur á
ári, auk verðbóta afþeirri upphæð.
Fyrsta árs afborgun og vextir af
nýju hámarksláni með 7% vöxtum
verður 109.330 krónur auk verð-
bóta - eða alls t.d. um 138 þús. kr.
á ári ef 26,3% verðbólguspá „al-
mennings" verður að veruleika.
„Sjóðsstjórnin vildi með þessari
vaxtalækkun koma til móts við
óskir sjóðfélaga og stjórnvalda um
að lækka vaxtastigið,“ svaraði
Margeir Pétursson framkvæmda-
stjóri Samvinnulífeyrissjóðsins.
Hann sagði eftirspurn eftir líf-
eyrissjóðslánum hafa vaxið á ný
eftir því sem biðlistar hafa lcngst
hjá Húsnæðisstofnun. -HE