Tíminn - 23.03.1989, Síða 16

Tíminn - 23.03.1989, Síða 16
16 Tíminn Fimmtudagur 23. mars 1989 Sannleikur getur verið afstætt hugtak Það er margt sem maður lærir á að búa í landi innflytjenda. Eitt af því er afstæði sannleikans. Fólk hefur komið frá mörgum löndum með jafn margar myndir og minningar í huganum. Sumir hafa yfirgefið ættjörð sína með blendnum tilfinning- um sárrar reynslu og vonbrigða, jafnvel álösun um þjóðarsvik á bakinu. Aðrir hafa flúið af einni og annarri ástæðu og svo mætti lengi telja. Ástæður fyrir flutningi eru margar og margvíslegar og oft breytilegar eftir tímum og tíðaranda. Börn hafa verið tekin með í þessum flutningum og þau hafa sínar minningar allt eftir því á hvaða aldri þau fluttu. Þeir sem hafa kannski hálfpartinn þurft að flýja land sitt vegna erfiðra aðstæðna, en þó með trega í hjarta og dulda heimþrá, eiga það til að vilja aðeins sjá og viðurkenna fréttir frá gantla ættlandinu sem koma heim og saman við minninguna og þá mynd sem það vill halda á lofti. Til dæmis eru margir Italir og Grikkir, sem halda mjög mikilli tryggð við siði og lífsviðhorf sem voru ríkjandi í heimalandinu þegar þeir voru þar t.d. upp úr árunum 1950 og neita að trúa að framþróun hafi orðið og breytingar á hugsunar- hætti síðan þeir komu þangað síðast. Þeir fá oft mjög litlar eða engar fréttir frá ættjörðinni og neita því að trúa neinu því sem hrundið gæti draumsýninni sem þeir halda dauða- haldi í. Það er eins og að innra með þeim búi hræðsla við að missa fót- festuna í lífinu ef þeir sæju að lífið í ættlandinu hafi tekið verulegum stakkaskiptum síðan þeir fóru. Þetta fólk getur brugðist illa við ef sann- leikur dagsins í dag er borinn á borð fyrir það að því forspurðu. Það getur jafnvel neitað að trúa því að það sé satt vegna þess að þannig var það ekki þegar þau voru í hinu ástkæra föðurlandi. Eða að það var kannski hluti af sannleik sem þau sáu aldrei. Svo það var ekki þeirra sannleikur. Þetta fólk er oft mjög hörundsárt fyrir hönd beggja landanna. Þar kemur til gylling heimalandsins og þakklæti til hins nýja lands fyrir að hýsa sig og gefa sér tækifæri. Fyrir manneskju sem flutti búferl- um sem táningur og átti sér ekki aðra mynd og minningu um gamla landið en þá sem tengist áhyggjuleysi bernskunnar, getur verið erfitt að setja sig í spor jafnaldra sinna sem héldu áfram að lifa í landinu. Þessi börn hafa aldrei kynnst viðhorfum og hugsunarhætti þeim sem býr með þjóðinni og ekki heldur þeirri þróun sem verður í gegnum tíðina. Þó svo að einstaka blað sé lesið og bók segir það frekar lítið um hið daglega hversdagslega líf sem lifað er. Til dæmis kemst hröð þróun, sem verður á hugsunarhætti þjóðar, ald- rei alveg til skila í gegnum dagblöð. Dagblöð endurvarpa ekki öllum þáttum mannlegs lífs þó að við getum fræðst um eitt og annað af síðum þeirra. Þessir unglingar alast því upp út frá forsendum og hugsun- arhætti hins nýja lands án þéss að hugleiða það svo ntikið hvernig hlut- irnir eru í hinu gamla landi, eða geta gert sér grein fyrir þeim mikla mis- mun sem kann að vera á háttum og viðhorfum milli hinna tveggja landa. Þeir eru þó oft mikið frekar opnir fyrir því að fræðast um hvernig hlutirnir eru í raun og veru og minna viðkvæmir fyrir slæmum freftum en eldri kynslóðir. Enda eiga þeir ekki sömu hagsmuna að gæta, hafa ekki samskonar tilfinningu fyrir þessu og kannski foreldrarnir. Þegar fólk aftur á móti flytur seinna á æviskeiðinu án þess að um neinskonar flótta eða blendnar til- finningar sé að ræða leiðir það ósjálfrátt til annarrar lífssýnar en hjá hinum tveim hópunum. Þetta fólk er í aðstöðu til að horfa jafnt í báðar áttir án þess að eiga tilfinn- ingalegra hagsmuna að gæta í að viðhalda sérstakri ímynd. En hvað sem því líður hver flutti og hvenær þá sér fólk hluti mismun- andi augum. Mikið af því er bundið uppeldi okkar, aðstæðum og lífsvið- horfi. Svo eru það auðvitað hin þekktu sannindi að fjarlægðin gerir fjöllin blá og mennina mikla. Þá getur verið erfitt að hlusta á að hirðusemi hafi farið aftur í gamla landinu eða að þar ólgi allt í spillingu og óáran. Þó ég hafi ekki verið nema í rúmt ár í burtu finn ég strax og sé sum þeirra atriða sem áður eru nefnd. Til dæmis man ég hvernig flestir sjón- varpsþulir og fréttamenn litu út og þannig voru þeir geymdir fyrir mín- um hugskotssjónum eins og frystir. Þegar ég svo fæ spólur frá íslandi með fréttaþáttum og öðru efni sé ég mér til mikillar undrunar (og von- Dingó f búri. Skyldu dýrin ein- hvern tíma finna til einmana- kenndar? brigða) að Helgi Pétursson er búinn að fá nokkur grá hár í vangann og að hinn síungi Ómar Ragnarsson er orðinn ráðsettur miðaldra maður. Eins hlýtur til dæmis Áströlum og öðrum að bregðg við að sjá að þeirra þekktustu skemmtikraftar og stjórn- málamenn eru búnir að missa æskuljómann og orðnir gamlir þegar Fólk af ýmsum „sannleikssjónar- miftum" saman á skólabekk. Þessi mismunandi sannleiks- sjónarmið koma vel fram í um- ræðum slíkra hópa. (Höf. önnur frá vinsti fremst). þeir líta þá augum eftir fimm, tíu, tuttugu ár. Það er eiginlega fyndið að hugsa til þess að manni bregði, því auðvit- að myndu þessar breytingar hafa átt sér stað þó ég væri í landinu, en þá myndi ég hafa séð þróunina stig fyrir stig og hárin grána eitt af öðru án þess að hugsa neitt sérstaklega um það, orðið samdauna þróuninni sem annarri þróun í þjóðfélaginu. Maður getur ekki ætlað sér þá dul að halda að maður hafi mátt til að halda öllu fólki jafn ungu og þjóðfé- laginu í sama formi og þegar maður fór. Einhvern veginn er það þó svo að margir halda það án þess að hugsa rökrétt út í hlutina. Þetta er einskonar tilfinningaleg íhaldssemi. Kannski að það sé verkefni fyrir sál- og félagsfræðinga að rannsaka í framtíðinni. Kostirnir við gallana og gallarnir við kostina Þetta minnir næstum á bækurnar um hana Pollýönnu. Óneitanlega finnur manneskja sem orðin er rótgróin í háttum íslendinga margt skrýtið í fari nýrrar þjóðar sem flutt er tii. Svo samgróinn getur maður verið því að gera hlutina á íslenskan hátt að maður finnur sjálfan sig stundum mótmæla innra með sér þegar ýmsir framandi siðir herja að manni úr öllum áttum. Þegar ekki er hægt að gera neitt eins og maður var vanur. Manneskja sem hefur verið vön því að eiga alltaf aðgang að fjölda manns sér til andlegrar uppbótar er lengi að venjast því að svo sé ekki í hinu nýja landi. Hún misskil- ur brosin sem henni eru send af ná- grönnum á förnum vegi og er viss um að svo blítt bros þýði að um nánari kynni muni verða að ræða og að þessar tvær manneskjur muni geta miðlað hvor annarri af anda- gift sinni og skemmtilegheitum. En þetta er bara barnalegt viðhorf íslendings sem ekki er vanur því að fá blíð bros frá ókunnugu fólki nema það sýni þá um leið áhuga fyrir frekari kynnum. Eins og ég sé íslenska þjóð í samanburði við Ástrala þá brosa þeir ekki svo mikið til þín í fyrstu en ef þeir fá áhuga fyrir þér geta þeir verið fljótir að taka þig inn að hjarta og sýnt mikla höfðingslund. Áströlum er hins vegar mjög annt um einkalíf sitt og varast mjög að taka nýtt fólk inn á sig. Þeim er hins vegar eðlislægt að brosa í sólinni og segja góðan daginn eða „G“day mate hwarejúgóing“ sem ætlast er til að svarað sé í sömu mynt en ekki því að við förum að rekja raunir okkar \ eða segja sögur. Það reynist margt athyglisvert á bak við þessi fáu atriði sem þarna eru nefnd og með tímanum lærir maður að sjá kostina við gallana og gallana við kostina.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.