Tíminn - 05.04.1989, Síða 3
Miðvikudagur 5. apríl 1989
Tíminn 3
Steingrímur Hermannsson vissi ekki um umfang væntanlegra heræfinga varnarliðsins fyrr en fyrir
nokkrum dögum. Utanríkisráðherra fékk allar upplýsingar fyrir hálfu ári:
Jón Baldvin settur inn
í málið fyrir hálfu ári
Steingrímur Hermannsson segir að hann hafi ekki vitað um
umfang væntalegra heræfínga varnarliðsins á Keflavíkurflug-
velli og hversu margir hermenn tækju þátt í þeim, þar til fyrir
fáeinum dögum. Hann fullyrðir auk þess að samkvæmt
upplýsingum er hann hafí í höndum muni Jóni Baldvini
Hannibalssyni utanríkisráðherra hafa verið gerð ítarleg grein
fyrir væntanlegum æfíngum hersins hér á landi í júní, strax í
október á síðasta ári.
Steingrímur kvaðst vera búinn að
fá ítarlega skýrslu um þessi mál og
þar sem til dæmis kemur fram að Jón
Baldvin hefði tvisvar farið á upplýs-
ingafundi um málefni varnarliðsins.
í fyrra skiptið 25. október í Norfolk
í Bandaríkjunum. Steingrímur sagði
ennfremur að Jón Baldvin hefði
fengið ítarlegar upplýsingar um
æfingarnar, er hann heimsótti varn-
arliðið á Keflavíkurflugvelli 27. des-
ember á síðasta ári. Frá þeim fund-
um eru ekki til neinar skriflegar
skýrslur.
Steingrímur sagði að svo virtist
sem varnarliðið gengi út frá því sem
vísu að það gæti sjálft ákveðið
umfang sitt og æfingar. Að vísu
kæmi fram í þeim skýrslum er hann
hefði fengið, að í október 1986 hefði
skrifstofustj óri V arnarmáladeildar
farið á fund til Bandaríkjanna, þar
sem honum var gerð ítarleg grein
fyrir æfingunum. Engin skrifleg
skýrsla mun vera til frá því heldur.
„Jón Baldvin mun hafa skýrt frá því
við umræður á mánudaginn að hún
væri til,“ sagði Steingrímur, „en
Þorsteinn Ingason kannast ekki við
það.“
„Það var fyrst á upplýsingafundi í
Keflavík í ágúst 1987, þar sem farið
Steingrímur Hcrmannson forsætis-
ráðherra segir Jón Baldvin Hanni-
balsson hafa vitað um umfang æfinga
Bandaríkjahers hér á landi, strax í
október á síðasta ári.
Jón Baldvin fór á fund í Norfolk í
október og þá að hafa fengið ítarleg-
ar upplýsingar um æfingarnar.
var yfir alla starfsemi varnarliðsins,
sem ég fékk fyrst að vita af tilvist
þessa varaliðs. Þar var mér tjáð að
það héldi hér æfingar annað hvert
ár. Ég minnist þess ekki að Banda-
ríkjamenn hafi getið þess þar að þeir
hefðu í hyggju að auka umfang
þessara æfinga eins og síðar hefur
komið fram. Þorsteinn Ingvason hjá
Varnarmáladeild hefur staðfest það
að hann ræddi þetta aldrei við mig,
ekki þá tíð sem ég var utanríkisráð-
herra,“ sagði Steingrímur Her-
mannsson forsætisráðherra. Stein-
grímur tók fram að á þeim tíma
hefði hann samt átt reglulega fundi
um varnarmálin.
Forsætisráðherra kvaðst ekki vilja
segja til um hvort þetta væri hand-
vömm hjá Varnarmálaskrifstofunni.
Formleg tilkynning um fundinn
kæmi ekki fram fyrr en 30 ágúst s.l.
og staðfest væri að þá hefði ekki
náðst í sig. - ÁG
Akranesbær í vandræðum með kaldavatnskerfið:
Taliðaðum1/3
vatnsins týnist
Svo virðist sem kaldavatnslögnin
sem sér Akranesbæ fyrir vatni, skili
ekki út á réttum stöðum öllu því
vatni sem í hana fer. Daníel Árnason
bæjartæknifræðingur á Akranesi
sagði í samtali við Tímann að rennsl-
ið ætti að vera um 70 til 90 lítrar á
sekúndu, en svo virtist sem einn
þriðji skili sér ekki út á réttum
stöðum.
„Við höfum ekki skýringar á því
hvert einn þriðji af vatninu fer, aðra
en þá að þetta fari bara í leka,“ sagði
Daníel. Hann sagði að annaðhvort
væri hreinlega um lekar lagnir að
ræða eða að sírennsli ýmiskonar ætti
hér hlut að máli. Sem dæmi nefndi
hann að svo gæti verið að fólk léti
vatnið renna hjá sér til að verja
lagnirnar frostskemmdum, eða
hugsanlega á verkstæðum eða í litl-
um iðnfyrirtækjum þar sem slöng-
unni væri stungið niður í niðurfallið
og ekkert hugsað um hana fyrr en
henni væri lyft upp til að fá vatn í
fötu eða eitthvað slíkt. „Ég á von á
því að einhver hluti skýringarinnar á
þessu felist í trassaskap húseig-
enda,“ sagði Daníel.
Gerðar voru mælingar um jólin
síðustu og um páskana, þegar fisk-
vinnsluhúsin voru ekki í gangi, til að
athuga vatnsmálin betur. „Það bend-
ir allt til þess að um það bil einn
þriðji af vatninu fari ekki alveg út á
réttum stöðurn," sagði Daníel. Hann
sagði að rennslið til bæjarins væri
um 70 til 90 lítrar á sekúndu og ef
talað væri um 90 lítra á sekúndu, þá
væru það um 30 sekúndulítrar sem
hyrfu.
„Við höfum verið að leita að
orsökunum, en það hefur ekki farið
fram nein markviss leit. Við höfum
fyrst og fremst verið að taka þá leka
sem við höfum orðið varir við og
gert við þá. En það hefur ekki verið
lagður þungi á það að uppræta alla
þessa leka,“ sagði Daníel.
íbúar í nágrenni vinnsluhúsanna
neðst á Skaganum hafa átt í erfið-
leikum með kalda vatnið, þar sem
þrýstingsfall verður þegar vinnslu-
fyrirtækin eru í gangi.
Daníel sagði að öll vatnsmál
Skagamanna væru til umfjöllunar og
sagðist hann vonast til að tekið yrði
á vandamálinu mjög fljótlega.
-ABÓ
Ófiðraðurvorboði
Lögreglan í Reykjavík hefur tekið mótorhjólin í notkun að nýju, eftir
snjómikinn vetur í höfuðborginni. Gárungamir segja að hér sé „vorboðinn
Ijúfi“ á ferðinni, rétt eins og þegar lóan kemur, enda eru hjólin ekki í
notkun þegar snjór og hálka er yfir vetrartímann. Ef svo heldur fram sem
horfir, með veðrið má búast við að fleiri lögregluþjónar verði farnir að
spóka sig um á mótorhjólunum áður en langt um líður, ökumönnum og
gangandi vegfarendum til halds og trausts. -ABÓ/Tímamynd Pjetur
Holiday Inn hótelið í Reykjavík.
Aöeins nokkrar vikur til stefnu í sölumálum
Hótels Holiday Inn í Reykjavík:
Fjórir skoða
Holiday Inn
Fjórir aðilar eru nú í myndinni
sem hugsanlegir kaupendur að Hótel
Holiday Inn í Reykjavík og er einn
þeirra íslenskur. Unnið er að því að
fullkanna tilboð og samningsgrund-
völi við þessa aðila og er stefnt að
því að þeim athugunum verði lokið
innan fárra vikna.
Jón Ragnarsson, veitingamaður í
Reykjavík, er eins og er eini innlendi
aðilinn sem hefur sýnt hótelinu al-
varlegan áhuga síðustu vikur, en
enn er ekki fram komið ákveðið
kauptilboð frá honum. Fyrir utan
Trusthouse Fort í Englandi, er nú
unnið að því að skoða hugmyndir
tveggja aðila í Kaupmannahöfn.
Annar þessara aðila hefur sýnt því
áhuga að kaupa hótelið, en hinn vill
ræða frekar möguleika á fjármögnun
hótelkaupanna og gera það kleift að
verulegur hluti skuidanna verði
leystur út.
Ekki liggur enn fyrir hvert kaup-
verðið á hótelinu verður, en nokkrar
tölur liggja fyrir til viðmiðunar.
Byggingarverð húsanna er áætlað
um 800 milljónir króna, en ekki er
gert ráð fyrir því að nokkur aðili vilji
kaupa það á svo háu verði. Skuldir
Hótels Holiday Inn nema hins vegar
um 600 milljónum króna og er nú
reynt að selja hótelið fyrir megnið af
þeirri upphæð. Samkvæmt heimild-
um Tímans, er um þriðjungur þess-
ara skulda, um 200 milljónir króna,
áfallnir dráttarvextir og hækka þeir
um milljónir í mánuði hverjum.
Tilboð Trusthouse Fort nemur
um 360 milljónum króna en það
þykir of lágt söluverð. Hefur Tíminn
fregnað að tilboði þeirra yrði líkast
til tekið ef tekst að fá það hækkað
eitth vað upp fyrir 400 milljóna króna
markið og er það þá líklegt söluverð.
Eins og áður segir hefur Jón Ragn-
arsson, veitingamaður, áhuga á því
að kaupa Holiday Inn, en væntanlegt
tilboð frá honum mun vera háð því
að viðunandi sala takist á Hótel
Valhöll á Þingvöllum og hefur verið
sagt frá þeim þreifingum fyrr í
Tímanum. KB