Tíminn - 05.04.1989, Page 4
4 Tíminn
Miðvikudagur 5. apríl 1989
Aðalfundur
Arnarflugs hf.
Aðalfundur Arnarflugs hf. fyrir árið 1988 verður haldinn að
Hótel Sögu v/Hagatorg í Reykjavík, Skála á 2. hæð í
nýbyggingu, miðvikudaginn 12. apríl 1989 kl. 17.00.
Dagskrá:
1. Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins sl. starfsár.
2. Rekstrar- og efnahagsreikningur félagsins fyrir liðið starfs-
ár ásamt endurskoðunarskýrslu endurskoðenda félagsins
fyrir liðið starfsár ásamt endurskoðunarskýrslu endurskoð-
enda lagðir fram til staðfestingar.
3. Ákvörðun um meðferð hagnaðar eða taps félagsins á
reikningsárinu.
4. Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna og endurskoðenda
fyrir liðið starfsár.
5. Tillögur til breytinga á samþykktum félagsins sem hér
segir:
a) Breyting á 4. gr., sem heimili stjórn félagsins að hækka
hlutafé félagsins um allt að kr. 315.000.000.
b) Breyting á 20. og 22. gr., sem mæli fyrir um fjölgun
stjórnarmanna úr sjö í níu og að undirskrift meirihluta
stjórnarmanna skuldbindi félagið.
6. Kosning stjórnar.
7. Kosning tveggja endurskoðenda.
8. Önnur mál.
Stjórn Arnarflugs hf.
Laust embætti er
forseti íslands veitir
Embætti héraðsdýralæknis í Skógaumdæmi er
laust til umsóknar. Laun samkvæmt hinu almenna
launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri
störf skulu sendar landbúnaðarráðuneytinu, Rauð-
arárstíg 25, 150 Reykjavík, fyrir 1. júní 1989.
Embættið veitist frá 1. ágúst 1989.
Landbúnaðarráðuneytið,
3. apríl 1989.
Ferðastyrkur til rithöfundar
Ráðgert er að af fjárveitingu til norræns samstarfs í fjárlögum 1989
verði varið 75 þús. kr. til að styrkja rithöfund til dvalar á Norðurlöndum.
Umsóknir um styrk þennan skulu hafa borist menntamálaráðuneytinu,
Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík, fyrir 1. maí n.k.
Umsóknum skal fylgja greinargerð um hvernig umsækjandi hyggst
verja styrknum.
Menntamálaráðuneytið,
30. mars 1989.
r uv/ivivou ■ Mnr
Suðurland Guðmundur Bjarnason
Almennur fundur með Guðmundi Bjarnasyni, heilbrigðisráðherra, um
opinbera manneldis- og neyslustefnu verður haldinn í Hótel Selfoss
þriðjudagskvöldið 11. apríl kl. 21.
Allir velkomnir.
Félag framsóknarkvenna í Árnessýslu.
Garðyrkjufélagi Islands var nýlega færð umtalsverð upphæð að gjöf til minningar um Einar Vernharðsson. Á
myndinni er stjórn félagsins ásamt aðstandendum gjafarinnar.
Garðyrkjufélag íslands í nýtt húsnæði:
220 þúsund kr.
minningargjöf
Garðyrkjufélag íslands
hefur tekið I notkun nýtt
húsnæði undir starfsemi sína.
Síðastliðinn föstudag var
nýtt félagsheimili tekið form-
lega í notkun að Frakkastíg
9. í húsnæðinu verða skrif-
stofur félagsins, bókasafn og
góð fundaaðstaða fyrir fé-
lagsmenn.
Húsið var byggt skömmu eftir
aldamót en félagið lét gera það allt
upp áður en flutt var inn. „Félags-
menn lögðu í því skyni á sig mikla
sjálfboðavinnu og ýmis fyrirtæki
styrktu okkur. Eins og til dæmis
Málning hf. sem gaf okkur alla
utanliússmálningu og Kaupfélag
Árnesinga sem veitti okkur mun
meiri afslátt af húsgögnum en venju-
lega er gert. Félagið var áður til húsa
í lítilli íbúð að Amtmannsstíg sem
rúmaði starfsemina engan veginn
lengur," sagði Sigríður Hjartardóttir
formaður Garðyrkjufélagsins í sam-
tali við Tímann.
Um leið og aðstaðan nýja var
tekin í notkun var greint frá minn-
ingargjöf að upphæð 220 þúsund
krónur til félagsins. Sigríður Vern-
harðsdóttir skýrði frá gjöfinni fyrir
hönd systkina sinna. En gjöfin var til
minningar um Einar Vernharðsson
sem var félagsmaður og vann mikið
fyrir Garðyrkjufélagið. „Stjórn fé-
lagsins ákvað að verja fénu til að búa
Húseign Garðyrkjufélags íslands að
notkun fyrir skömmu.
bókasafnið húsgögnum og gera það
sem best úr garði,“ sagði Sigríður.
Garðyrkjufélag íslands er lands-
félagsskapur og eru félagar bæði úr
röðum áhuga- og fagmanna í
garðrækt. Fjöldi félaga er um fimm
þúsund manns og nítján deiklir hafa
verið stofnaðar víðsvegar um landið.
Frakkastíg 9 sem tekin var formlega í
Félagið er liðlega hundrað ára gam-
alt en það var stofnað árið 1895. Öll
starfsemi þess er kostuð með félags-
gjöldum eða lögð fram sem sjálf-
boðavinna. Á vegum Garðyrkjufé-
lagsins er gefið út ársrit, fréttabréf
sex sinnum á ári, rekin er pöntunar-
þjónusta og fleira. jkb
Samningur á milli
útgáfufyrirtækja
Utgáfufyrirtækin Gramm h.f. og Smekkleysa s.m. hafa
gert samning við Steina h.f. um að sjá um alla heildsöludreif-
ingu á þeim hljómplötum, snældum og geisladiskum sem tvö
fyrrnefndu fyrirtækin gefa út eða flytja inn. Samkvæmt
samningnum verður unnið að því að ná sem mestri hag-
kvæmni í markaðssetningu útgáfanna og innflutningi fyrir-
tækjanna.
I fréttatilkynningu frá samnings-
aðilunum er sérstaklega tekið fram
að Steinar h.f. muni engin afskipti
hafa af útgáfulegum ákvörðunum
Grammsins og Smekkleysu og muni
samningurinn væntanlega styrkja
þessa og aðra þætti fyrirtækjanna
þar sem betri tími muni gefast til að
sinna þeim eftir en áður.
Á sama stað kemur einnig fram að
hagræðing sú sem skapast við að láta
Steina h.f. sjá um þennan þátt í
rekstri fyrirtækjanna sé veruleg þar
sem mjög kostnaðarsamt hefur
reynst að halda uppi sölu- og inn-
heimtukerfi.
Þess má geta að Steinar h.f. hafa
lagt aukna áherslu á að sérhæfa sig
sem öflugur dreifingaraðili á hljóm-
plötum fyrir aðra útgefendur. í þess-
um tilgangi hefur fyrirtækið fjárfest
í dýrum tölvu- og hugbúnaði.
SSH