Tíminn - 05.04.1989, Page 5
Miðvikudagur 5. apríl 1989
Tíminn 5
Vinsælasta fermingargjöfin í ár viröist vera hljómtækjasamstæða sem kostar á bilinu 30 til um 60 þúsund:
Hillur við að tæmast
í hljómtækjaverslunum
Mikil gróska hefur verið í sölu hljómflutningstækja til
fermingargjafa að undanförnu og hafa innkaupastjórar
verslana sem Tíminn hefur haft tal af þurft að panta inn
aukalega til að geta annað eftirspurn viðskiptavinanna. Þó
svo að ekki hafí verið hægt að fá uppgefnar nákvæmar
sölutölur í öllum tilfellum, þá er Ijóst að hljómflutningstæki
sem keypt hafa verið til fermingargjafa hlaupa á hundruðum,
og verðið er á bOinu um 30 til 60 þúsund krónur.
„Salan á hljómtækjum hefur verið
mjög góð, hreint út sagt ævintýra-
leg,“ sagði Bjarni Hákonarson versl-
unarstjóri hjá Hljómbæ. Hann sagði
að þetta hefði frekar líkst skömmt-
unarskrifstofu heldur en verslun að
undanförnu.
Hann sagði að þeir hefðu verið
með þrjár gerðir samstæða frá Pion-
eer, System 1, System 2 og System
3, og hefði sú ódýrasta verið lang
vinsælust. Hún kostaði 45.931 krónu
á afborgunarverði fyrir utan geisla-
spilara, sem kostar um 18 þúsund
krónur. Bjarni sagði að um 400
samstæður hefðu verið seldar síðasta
einn og hálfan mánuð, og væri mjög
mikið um staðgreiðslu en einnig
væru greiðslukortin vinsæl.
Þá sagði Bjarni að 14“ sjónvörp
væru einnig vinsæl svo og ferðatæki
og útvarpsvekjaraklukkur. „Maður
merkir breytingar ár frá ári. { fyrra
var svolítið meira um að sjónvörpin
væru gefin heldur en í ár, núna er
það fremur hljómflutningstæki,"
sagði Bjarni. Aðspurður sagði hann
að helst virtust það vera foreldrarnir
sem gæfu hljómflutningstækin, en
þó væru þess einnig dæmi að fjöl-
skyldan væri að slá saman.
Bjarni sagðist eiga von á viðbótar-
sendingu af hljómflutningstækjum
með flugi í dag og væri þar um
árgerð 1990 að ræða, og værum við
fyrstir Evrópuþjóða til að flytja inn
þá árgerð. Hann sagði að þegar væri
búið að selja töluvert úr þeirri send-
ingu.
Halldór Laxdal hjá Radíóbúðinni
sagði að Nordmende samstæðan sem
þeir hefðu auglýst á sérstöku ferm-
ingartilboði væri vinsælust og væri
verðið á henni 36 þúsund staðgreitt.
Aðspurður um fjölda samstæða
sem þeir hefðu selt sagði Halldór að
þegar þúsundir væru að fermast, þá
væru tugir samstæða ekki mikið.
„Við höfum selt þetta upp um leið
og það hefur komið og eigum von á
næstu sendingu um 10. apríl,“ sagði
Halldór. Hann sagði að einnig væru
ferðasegulbandstæki vinsæl, úr og
Macintosh tölvur. „Verðið á tölvun-
um var um 90 þúsund krónur, þá á
sérstöku tilboði til skólabarna, en
þær kláruðust bara strax," sagði
Halldór. Ferðatækin eru frá tæpum
5000 krónum upp í 24 þúsund, allt
eftir því hvað er í þeim, en sum
þeirra eru með geislaspilara.
Aðspurður hvort fólk keypti
næstu samstæðu við ef t.d. ofan-
greind Nordmende samstæða væri
í gær voru vinsælustu hljómtækjasamstæðurnar til fermingargjafa hjá Hljómbæ uppseldar, eins og myndin ber með
sér, en von var á nýrri sendingu með flugi síðdegis í gær eða í dag. Tíniamynd Pjetur
uppseld sagði hann svo ekki vera
heldur væru kaupin gerð og fólkið
fengi samstæðurnar afhentar þegar
næsta sending kæmi. Sem og í
Hljómbæ eru það einkum foreldr-
arnir og jafnvel einhverjir fleiri að-
standendur sem virðast gefa hljóm-
tækin, en afinn og amman útvarps-
vekjarana.
Um greiðslufyrirkomulag sagði
Halldór að einkum væri um greiðslu-
kort að ræða, en einnig þónokkuð
um staðgreiðslu.
Hjá Japis fengust þær upplýsingar
að mjög góð sala hefði verið í
hljómtækjum hjá þeim. „Allt þetta
magn sem við höfðum ætlað okkur
til að selja er á góðri leið með að
verða búið og að hluta til búið, en
ný sending er á leiðinni í vikunni,“
sagði Hallgrímur Halldórsson versl-
unarstjóri. Aðspurður sagði hann
fjöldi samstæðanna sem seldar hefðu
verið hlypi á hundruðum.
Hallgrímur sagði að einkum tveir
verðflokkar á hljómtækjasamstæð-
um væru vinsælastir, annarsvegar
Samsungtæki sem kostuðu á bilinu
30 til 35 þúsund krónur og síðan
hljómtæki frá Tecniks á um 60
þúsund. Hann sagði að ferðatæki á
um 10 þúsund krónur væru einnig
vinsæl, en ekki í eins ríkum mæli og
samstæðurnar.
Aðspurður hverjir væru kaupend-
urnir, sagði Hallgrímur að það skipt-
ist sennilega til helminga foreldrar
og síðan að einhverjir tækju sig
saman, þá einkum þegar dýrari sam-
stæðan væri keypt. Hann sagði að í
raun væri ótrúlega mikið af hljóm-
tækjunum staðgreitt, líklega um
helmingur, og hinn helmingurinn
greiddur með greiðslukortum.
-ABÓ
Staða samningamála heldur bág. Lítið gengur hjá ASÍ og VSÍ og biðstaða
hjá BSRB. Verkfall BHMR hefst á miðnætti. Indriði H. Þorláksson:
„Tími til kominn
að sjá kröfurnar“
„Ég held fund með samninga-
nefndum rikisins og BHMR í dag
eins og mér er skylt þegar verkfall
er að skella á. Ég mun æskja
vitneskju um hvernig hefur miðað
í viðræðum deiluaðila. Ég býst við
að sjá kröfur BHMR sem -ég hef
ekki enn séð, en hljóta að hafa
mótast í viðræðum aðila,“ sagði
Guðlaugur Þorvaldsson ríkissátta-
semjarí í gær.
Lítið miðaði í gær í viðræðum
ASÍ og VSÍ og var sagt að menn
væru í raun í sörhu sporum og fyrir
páska. Fátt virðist nú geta komið
í veg fyrir að verkfall 11 félaga
innan BHMR skelli á á morgun en
að sögn Indriða H. Þorlákssonar
hafa engar viðræður farið fram um
nokkurra daga skeið. Hann sagðist
enn engar kröfur hafa séð utan
almennt orðaðra yfirlýsinga
BHMR í febrúarmánuði s.l. um
hærri laun sem yrðu í samræmi við
markaðslaun.
Indriði sagði að í þessum yfirlýs-
ingum hefðu BHMR menn lagt út
af töxtum stéttarfélags verkfræð-
inga og látið svo að það væri
minniháttar tæknilegt vandamál að
setja t.d. bókasafnsfræðing á verk-
fræðingstaxta.
Indriði sagði að það væri fyrir-
sláttur af forystu BHMR að halda
því fram að viðræður hefðu hafist
seint vegna þess að launanefnd
ríkisins hafi verið umboðslaus
framan af.
Staðreyndin væri sú að þeirra
kröfur væru dagsettar í febrúar og
fyrsti fundur með þeim var haldinn
í lok febrúar og síðan reglulega.
„Hins vegar hafa þeir alveg litið
fram hjá því að þeir eru ekki einir
i heiminum. Mál voru að þróast á
þessum tíma og augljóst þá að
engin forsenda var til að ganga á
undan og ganga frá málum við einn
lítinn hóp í þjóðfélaginu.“
Indriði sagði að dregið hefði
verið frá fyrirfram greiddum laun-
um frá upphafsdegi boðaðs
verkfalls. Hins vegar hefðu eftirá-
greidd laun, svo sem yfirvinna
verið greidd. Þannig hefðu útborg-
uð laun til þeirra sem boðað hafa
verkfall numið rúmlega fimmtíu
þúsund krónum.
-En er ein ástæða stífni BHMR
nú sú, að síðast hafi ekki verið
gengið frá samningum heldur gerð-
ar bókanir og viljayfirlýsingar sem
ríkið hafi lítið gert með síðan?
„Nei, það er ekki skýringin.
Þessu var að vísu að nokkru svo
háttað í samningum við HÍK, en
þau mál hafa ekki komið til um-
ræðu eða umfjöllunar þannig að á
þessu hefur ekki strandaö," sagði
Indriði.
Hann sagði ennfremur að allt
benti til að verkfall skylli á á
morgun og ef BHMR legði fram
ákveðnar kröfur á fundinum í dag
þá mætti segja að bctur væri seint
en aldrei.
í kjaradeilu BSRB voru samn-
ingaviðræður í fyrradag og í gær
voru viðræður við einstök félög og
verður þeim fram haldið I dag.
Kennarar innan BHMR hafa
talið að þeir væru verr launaðir en
kennarar innan BSRB þrátt fyrir
að bornir væru saman menn með
nákvæmlega sömu menntun og
svipað starf. -Er þetta svo?
„Já, það kom í samningunum í
fyrra þegar ekki náðist samkomu-
lag við HÍK, þá var gengið frá
ákveðnum hlutum við KÍ sem
leiddu til þess að í vissum tilvikum
þá raðast. HÍK kennari verr í
launaflokka en KÍ kennari. Það er
hins vegar búið að Iýsa því yfir við
HÍK að þetta sé atriði sem menn
séu reiðubúnir að leiðrétta í þeim
samningum sem gerðir verða,“
sagði Indriði H. Þorláksson. -sá
Hótel Örk í Hveragerði.
Skiptafundur um Hótel Örk:
Kröfuskrá
lögé fram
Á Selfossi var haldinn í gær skipta-
fundur í gjaldþrotamáli einkafirm-
ans Hótel Arkar og var þar lögð
fram kröfuskrá. Á þessum fundi var
einnig skipt um skiptastjóra og tók
Guðný Höskuldsdóttir, hrl., við
stöðunni og voru lagðar fram sér-
stakar tryggingar fyrir launum henn-
ar ef eignir þrotabúsins hrykkju ekki
til.
Samkvæmt heimilum Tímans voru
kröfuhafar hátt í tvö hundruð talsins
og nam kröfuskráin í heild sinni um
256 milljónum króna. Lögmaður
Hótels Arkar, Pétur Þór Sigurðsson,
mótmælti fjölda krafna og fékk hann
frest til 24. þessa mánaðar til að
rökstyðja mótmælin.
Stærstu kröfuhafar eru Fram-
kvæmdarsjóður íslands, sem nú er
eigandi hótelsins, með um 50 milljón
króna kröfu, Landsbankinn með um
25 milljóna króna kröfu og Búnaðar-
bankinn með skuldakröfu er nemur
um 20 milljónum króna.
Að sögn Sigurðar Sigurjónssonar,
skiptaráðanda hjá sýslumanninum á
Selfossi, var samþykkt að ákveða
ekki á þessum fundi hvenær næsti
skiptafundur verður, en boða til
hans sérstaklega síðar. KB