Tíminn - 05.04.1989, Side 13

Tíminn - 05.04.1989, Side 13
Miðvikudagur 5. apríl 1989 Tíminn 13 ÚTLÖND lllllllllllllll lllllllll iiiii iiiiliiiliilliilllliiliuiiii Hllllllllillllllllllllll^ 1 ■ tvi\i\ww i #-inr Tvær byltingartilraunir á Haiti á tveimur dögum: AVRIL HELDUR UNDIRTÖKUNUM Nú virðist nokkuð ljóst að Prosper Avril hefur í bili náð tökum á ástandinu í Haiti, en þar voru gerðar tvær byltingartilraunir á tveimur dögum. Þó er andstaða hermanna svokallaðra Hlébarðahersveita enn til staðar, en það var einmitt Himm- ler Rebu yfirforingi þeirra sem stóð að fyrri byltingartilraun á sunnudag. Hermenn úr Hlébarðasveitunum gerðu aðra byltingartilraun á mán- udag og kröfðust þess að Himmler yrði leystur úr haldi, annars yrði höfuðborg landsins Port-au-Prince lögð í rúst. Hermenn stjórnarhersins sem hliðhollir eru Avril áttu í fullu tré við Hlébarðasveitimar, en í brýnu sló milli þeirra í gær. Að minnsta kosti einn maður féll og Hlébarðarnir virðast hafa dregið sig til herbúða sinna á ný. Prosper Avril forseti Haiti hefur undirtökin á eynni þrátt fyrir tvær byltingartilraunir Hlébarðasveit- anna sem eru úrvalsdeildir hersins. Þrátt fyrir að Avril hafi haft yfir- höndina í bili er ekki ólíklegt að Hlébarðarnir geri aðra atlögu á næst- unni. Engar handtökur urðu eftir upp- reisnartilraun Hlébarðanna á mánu- dag, en á sunnudag var Philipe Bambi fyrrum foringi í lífverði for- setans handtekinn ásamt Himmler Rebu. Þeir eru báðir taldir tengjast eiturlyfjasmygli til Bandaríkjanna sem er mikið stundað á Haiti þar sem stórir hópar Kólumbíumanna á vegum eiturlyfjabarónanna þar hafa sest að undanfarin misseri. Avril hefur einmitt skorið upp herör gegn eiturlyfjasmyglurum í samvinnu við stjórnvöld í Bandaríkjunumn sem styðja Avril með fjárframlögum í staðinn. Lestar- slys á Ítalíu Níu manns fórust og sautján slösuðust þegar lest fór út af sporinu og ók á lestarstöð í þorpinu San Severo á Suður-ftalíu á mánudags- kvöldið. Lestin lagðist saman á stöðvarhúsið þar sem farmiðasala og veitingastaður var til húsa. Er þetta alvarlegasta lestarslys á Ítalíu í rúm- lega tíu ár. - Lestin var á eldingarhraða. Ég gat ekki trúað mínum eigin augum. Eg byrjaði að hlaupa og greip með mér tvö börn sem stóðu á lestarpall- inum og kom þeim frá lestinni, sagði einn sjónarvottur að slysinu sem beið eftir lestinni. Flestir hinna látnu og slösuðu voru starfsmenn járnbrautanna, farþegar og fólk er beið eftir lestinni og urðu undir veggjum byggingar- innar sem hrundi er lestin ók á hana. Lestin hefði átt að koma inn á brautarstöðina á 30 km hraða, en sjónarvottar telja að lestin hafi verið á um 100 km hraða er hún fór út af sporinu. Eftir frumrannsókn á slysinu er talið að hemlabúnaður hafi gefið sig eða að lestarstjórinn hafi fengið aðsvif. Hann lést í slysinu. Baskar hefja vopnaða bar- áttu að nýju Skæruliðar Baska sem verið hafa í einhliða vopnahléi undanfarnar vikur meðan á leynilegum viðræðum við spænsk stjórnvöld stóð, hafa nú bundið enda á vopnahléð þar sem stjórnvöld gengu ekki að kröfum þeirra. Því virðist friðurinn úti í Baska- landi, en vonir manna höfðu glæðst þar sem nokkur árangur hafði náðst í viðræðunum. Það var hið róttæka baskneska dagblað Egin sem skýrði frá þessu í gær, en ETA Frelsissamtök Baskalands sendi blaðinu yfirlýs- ingu þessa efnis. ETA hafði hótað að binda enda á vopnahléð sem staðið hafði í þrjá mánuði, ef ríkisstjórnin myndi ekki gera það opinbert að hún hefði fallist á viðræður um pólitíska framtíð, eftir leynifundina í Alsír. Spánska ríkisstjórnin hefur úti- lokað allar pólitískar samningavið- ræður um framtíð Baskalands og að eina lausnin væri að ETA léti af vopnaðri baráttu sinni fyrir sjálf- stæði Baskalands. Þess í stað eigi samtökin að vinna að málinu á vettvangi almennra stjórnmála. ETA hefur staðið í baráttu sinni í 21 ár og hafa um það bil 600 manns legið í valnum eftir átök skæruliða þeirra og spánsku lög- reglunnar. Gorbatsjov og Kastró funda á Kúbu: Innsigla sam- vinnu ríkjanna Kúbumenn og Sovétmenn innsigluðu þrjátíu ára samvinnu sína þegar Mikhaíl Gorbatsjov og Fidel Kastró undirrituðu nýjan samning um vináttu og samvinnu. Með þessu vilja þeir sýna umheiminum að ekki hafi siegið á vináttuna þrátt fyrir að ríkin hafi að undanförnu farið sitt hvora leiðina til að leysa efnahagsleg og félagsleg vandamál sín í anda sósíalisma, eins og það heitir. Gorbatsjov ávarpaði þjóðþing Kúbu í gærkveldi og var gert ráð fyrir að hann legði áherslu á aukinn áhuga Sovétríkjanna til að hafa áhrif á málefni Rómönsku Ameríku sem Bandaríkjamenn með Monroekenn- inguna að leiðarljósi hafa litið á sem einskonar bakgarð sinn þar sem önnur stórveldi hafa ekkert að gera með puttana. Á fyrsta fundi þjóðarleiðtoganna ræddu þeir vandamál Rómönsku Ameríku. Sagði talsmaður Sovét- stjórnarinnar að þeir hafi verið sam- mála um að vaxtagreiðslur og af- borganir af 420 milljarða dollara skuld ríkja álfunnar við stóru iðnrík- in jafngilti ráni. Kastró gekk svo langt að krefjast þess að skuldirnar verði afskrifaðar, en talsmaður Sovétmanna varaðist að ræða slík mál. Mikhaíl Gorbatsjov hefur áður boðist til þess að skuldbreyta lánum Sovétríkjanna til fátækustu ríkja heimsins svo greiðslubyrðin dreifist á allt að 100 ár. Árnesingar Jón Helgason, alþingismaöur Guöni Ágústsson, alþingismaður Unnur Stefánsdóttir, varaþingmaöur Árlegur stjórnmálafundur og viötalstími þingmanna Framsóknar- flokksins verður haldinn að Aratungu föstudaginn 7. apríl kl. 21.00. Allir velkomnir. Fundarboðendur. Sunnlendingar! VorfagnaðurframsóknarfélagannaíÁmessýsluverður 19. apríl n.k. í Hótel Selfoss. Heiðursgestir verða Guðmundur Bjarnason, heilbrigðisráðherra og frú. Litli Sam skemmtir með söng og Ómar Ragnarsson kitlar hláturtaugamar. Hljómsveitin Upplyfting leikur fyrir dansi langt fram á sumar. Húsið opnað kl. 20.00. Borðhald hefst kl. 21.00 stundvíslega. Nánari upplýsingar og miðapantanir í símum: 31139 Guðfmna 33763 Halla 21170 Sigrún 21048 Gísli 34636 Sturla Kópavogur Steingrímur Hermannsson Almennur stjórnmálafundur með Steingrími Hermannssyni forsætisráðherra verður haldinn i Félagsheimili Kópavogs fimmtudaginn 13. apríl n.k. Flokksstarfið Skúli Sigurgrímsson Skrifstofan að Hamraborg 5 er opin þriðjudaga og miðvik- udaga kl. 9-12 s. 41590. Alltaf heitt á könnunni. Opið hús alla miðvikudaga kl. 17.-19. Skúli Sigurgrímsson bæjarfulltrúi er til viðtals alla miðviku- daga kl. 17.30-19.00. Einnig eftir nánara samkomulagi. Vinnuhópar eru að fara í gang um hina ýmsu þætti bæjarmála. Komið, látið skrá ykkur í hóþana og takið þátt í stefnumótun og starfi flokksins. Framsóknarfélögin í Kópavogi. Reykjanes Skrifstofa Kjördæmissambandsins að Hamraborg 5, Kópavogi er opin á mánudögum og miðvikudögum kl. 17 til 19. Sími 43222. K.F.R.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.