Tíminn - 05.04.1989, Síða 13
Miðvikudagur 5. apríl 1989
Tíminn 13
ÚTLÖND lllllllllllllll lllllllll iiiii iiiiliiiliilliilllliiliuiiii Hllllllllillllllllllllll^
1 ■ tvi\i\ww i #-inr
Tvær byltingartilraunir á Haiti á tveimur dögum:
AVRIL HELDUR
UNDIRTÖKUNUM
Nú virðist nokkuð ljóst að Prosper
Avril hefur í bili náð tökum á
ástandinu í Haiti, en þar voru gerðar
tvær byltingartilraunir á tveimur
dögum. Þó er andstaða hermanna
svokallaðra Hlébarðahersveita enn
til staðar, en það var einmitt Himm-
ler Rebu yfirforingi þeirra sem stóð
að fyrri byltingartilraun á sunnudag.
Hermenn úr Hlébarðasveitunum
gerðu aðra byltingartilraun á mán-
udag og kröfðust þess að Himmler
yrði leystur úr haldi, annars yrði
höfuðborg landsins Port-au-Prince
lögð í rúst.
Hermenn stjórnarhersins sem
hliðhollir eru Avril áttu í fullu tré við
Hlébarðasveitimar, en í brýnu sló
milli þeirra í gær. Að minnsta kosti
einn maður féll og Hlébarðarnir
virðast hafa dregið sig til herbúða
sinna á ný.
Prosper Avril forseti Haiti hefur
undirtökin á eynni þrátt fyrir tvær
byltingartilraunir Hlébarðasveit-
anna sem eru úrvalsdeildir hersins.
Þrátt fyrir að Avril hafi haft yfir-
höndina í bili er ekki ólíklegt að
Hlébarðarnir geri aðra atlögu á næst-
unni.
Engar handtökur urðu eftir upp-
reisnartilraun Hlébarðanna á mánu-
dag, en á sunnudag var Philipe
Bambi fyrrum foringi í lífverði for-
setans handtekinn ásamt Himmler
Rebu. Þeir eru báðir taldir tengjast
eiturlyfjasmygli til Bandaríkjanna
sem er mikið stundað á Haiti þar
sem stórir hópar Kólumbíumanna á
vegum eiturlyfjabarónanna þar hafa
sest að undanfarin misseri. Avril
hefur einmitt skorið upp herör gegn
eiturlyfjasmyglurum í samvinnu við
stjórnvöld í Bandaríkjunumn sem
styðja Avril með fjárframlögum í
staðinn.
Lestar-
slys á
Ítalíu
Níu manns fórust og sautján
slösuðust þegar lest fór út af sporinu
og ók á lestarstöð í þorpinu San
Severo á Suður-ftalíu á mánudags-
kvöldið. Lestin lagðist saman á
stöðvarhúsið þar sem farmiðasala og
veitingastaður var til húsa. Er þetta
alvarlegasta lestarslys á Ítalíu í rúm-
lega tíu ár.
- Lestin var á eldingarhraða. Ég
gat ekki trúað mínum eigin augum.
Eg byrjaði að hlaupa og greip með
mér tvö börn sem stóðu á lestarpall-
inum og kom þeim frá lestinni, sagði
einn sjónarvottur að slysinu sem
beið eftir lestinni.
Flestir hinna látnu og slösuðu
voru starfsmenn járnbrautanna,
farþegar og fólk er beið eftir lestinni
og urðu undir veggjum byggingar-
innar sem hrundi er lestin ók á hana.
Lestin hefði átt að koma inn á
brautarstöðina á 30 km hraða, en
sjónarvottar telja að lestin hafi verið
á um 100 km hraða er hún fór út af
sporinu.
Eftir frumrannsókn á slysinu er
talið að hemlabúnaður hafi gefið sig
eða að lestarstjórinn hafi fengið
aðsvif. Hann lést í slysinu.
Baskar hefja
vopnaða bar-
áttu að nýju
Skæruliðar Baska sem verið hafa í einhliða vopnahléi
undanfarnar vikur meðan á leynilegum viðræðum við
spænsk stjórnvöld stóð, hafa nú bundið enda á vopnahléð
þar sem stjórnvöld gengu ekki að kröfum þeirra.
Því virðist friðurinn úti í Baska-
landi, en vonir manna höfðu glæðst
þar sem nokkur árangur hafði
náðst í viðræðunum.
Það var hið róttæka baskneska
dagblað Egin sem skýrði frá þessu
í gær, en ETA Frelsissamtök
Baskalands sendi blaðinu yfirlýs-
ingu þessa efnis.
ETA hafði hótað að binda enda
á vopnahléð sem staðið hafði í þrjá
mánuði, ef ríkisstjórnin myndi
ekki gera það opinbert að hún
hefði fallist á viðræður um pólitíska
framtíð, eftir leynifundina í Alsír.
Spánska ríkisstjórnin hefur úti-
lokað allar pólitískar samningavið-
ræður um framtíð Baskalands og
að eina lausnin væri að ETA léti af
vopnaðri baráttu sinni fyrir sjálf-
stæði Baskalands. Þess í stað eigi
samtökin að vinna að málinu á
vettvangi almennra stjórnmála.
ETA hefur staðið í baráttu sinni
í 21 ár og hafa um það bil 600
manns legið í valnum eftir átök
skæruliða þeirra og spánsku lög-
reglunnar.
Gorbatsjov og Kastró funda á Kúbu:
Innsigla sam-
vinnu ríkjanna
Kúbumenn og Sovétmenn innsigluðu þrjátíu ára samvinnu
sína þegar Mikhaíl Gorbatsjov og Fidel Kastró undirrituðu
nýjan samning um vináttu og samvinnu. Með þessu vilja þeir
sýna umheiminum að ekki hafi siegið á vináttuna þrátt fyrir
að ríkin hafi að undanförnu farið sitt hvora leiðina til að leysa
efnahagsleg og félagsleg vandamál sín í anda sósíalisma, eins
og það heitir.
Gorbatsjov ávarpaði þjóðþing
Kúbu í gærkveldi og var gert ráð
fyrir að hann legði áherslu á aukinn
áhuga Sovétríkjanna til að hafa áhrif
á málefni Rómönsku Ameríku sem
Bandaríkjamenn með Monroekenn-
inguna að leiðarljósi hafa litið á sem
einskonar bakgarð sinn þar sem
önnur stórveldi hafa ekkert að gera
með puttana.
Á fyrsta fundi þjóðarleiðtoganna
ræddu þeir vandamál Rómönsku
Ameríku. Sagði talsmaður Sovét-
stjórnarinnar að þeir hafi verið sam-
mála um að vaxtagreiðslur og af-
borganir af 420 milljarða dollara
skuld ríkja álfunnar við stóru iðnrík-
in jafngilti ráni. Kastró gekk svo
langt að krefjast þess að skuldirnar
verði afskrifaðar, en talsmaður
Sovétmanna varaðist að ræða slík
mál.
Mikhaíl Gorbatsjov hefur áður
boðist til þess að skuldbreyta lánum
Sovétríkjanna til fátækustu ríkja
heimsins svo greiðslubyrðin dreifist
á allt að 100 ár.
Árnesingar
Jón Helgason,
alþingismaöur
Guöni Ágústsson,
alþingismaður
Unnur Stefánsdóttir,
varaþingmaöur
Árlegur stjórnmálafundur og viötalstími þingmanna Framsóknar-
flokksins verður haldinn að Aratungu föstudaginn 7. apríl kl. 21.00.
Allir velkomnir.
Fundarboðendur.
Sunnlendingar!
VorfagnaðurframsóknarfélagannaíÁmessýsluverður
19. apríl n.k. í Hótel Selfoss.
Heiðursgestir verða Guðmundur Bjarnason,
heilbrigðisráðherra og frú.
Litli Sam skemmtir með söng og Ómar Ragnarsson
kitlar hláturtaugamar.
Hljómsveitin Upplyfting leikur fyrir dansi langt fram
á sumar.
Húsið opnað kl. 20.00.
Borðhald hefst kl. 21.00 stundvíslega.
Nánari upplýsingar og miðapantanir í símum:
31139 Guðfmna
33763 Halla
21170 Sigrún
21048 Gísli
34636 Sturla
Kópavogur
Steingrímur
Hermannsson
Almennur stjórnmálafundur með Steingrími Hermannssyni
forsætisráðherra verður haldinn i Félagsheimili Kópavogs
fimmtudaginn 13. apríl n.k.
Flokksstarfið
Skúli Sigurgrímsson
Skrifstofan að Hamraborg 5 er opin þriðjudaga og miðvik-
udaga kl. 9-12 s. 41590.
Alltaf heitt á könnunni.
Opið hús alla miðvikudaga kl. 17.-19.
Skúli Sigurgrímsson bæjarfulltrúi er til viðtals alla miðviku-
daga kl. 17.30-19.00.
Einnig eftir nánara samkomulagi.
Vinnuhópar eru að fara í gang um hina ýmsu þætti
bæjarmála.
Komið, látið skrá ykkur í hóþana og takið þátt í stefnumótun
og starfi flokksins.
Framsóknarfélögin í Kópavogi.
Reykjanes
Skrifstofa Kjördæmissambandsins að Hamraborg 5, Kópavogi er
opin á mánudögum og miðvikudögum kl. 17 til 19. Sími 43222.
K.F.R.