Tíminn - 02.06.1989, Blaðsíða 3

Tíminn - 02.06.1989, Blaðsíða 3
Föstudagur 2. júní 1989 Tíminn 3 Alþýðubandalagsfélagið í Reykjavík að gliðna í sundur: Alþýðubandalagsfélögum að fjölga með skiptingu Flest bendir nú til að um helgina verði stofnað nýtt Alþýðubandalagsfélag í Reykjavík. Hópur fólks sem stundum hefur verið kölluð Iýðræðiskynslóðin í Alþýðubandalaginu og telur sinn hlut hafa verið fyrir borð borinn á aðalfundinum í fyrradag, ætlar að hittast um helgina og einn þeirra sagði Tímanum að ætlunin væri að ræða saman og kanna grundvöllinn, hugsanlega stofna nýtt félag. Alþýðubandalagsfélagið hefði um nokkurt skeið verið steindautt, skuldum vafið félag og greinilegt að þeir sem undirtökin hafa þar vilji hafa hlutina þannig áfram og best sé þá bara að leyfa þeim það. Ólafur Ragnar Grímsson formað- ur Alþýðubandalagsins sagðist í gær alls ekki vilja túlka þessa atburði á þann veg að um klofning væri að ræða í flokknum. Hins vegar væri ljóst að einhverjir erfiðleikar væru í félaginu og hefðu löngum verið. Engin ástæða væri hins vegar til að tengja það einhverjum klofningi. I samtali við Tímann í gær deildi Stefanía Traustadóttir formaður AJ- þýðubandalagsfélags Reykjavíkur ekki þessari skoðun með Ólafi. „Ég gæti best trúað að þetta hafi alltaf verið ætlunin. Vinnubrögðin í uppstillingarnefndinni benda vissu- lega til þess að ætlunin hafi verið að kljúfa félagið. Þegar ég nú sé hverjir það eru sem nafngreindir hafa verið í fjölmiðlum í sambandi við málið síðustu tvo dagana þá kemur í ljós að þeir tilheyra hópi sem hittist reglulega og lét meðal annars hafa við sig viðtal í Alþýðublaðinu f vetur um hugmyndir, sem unnar voru í samvinnu við einstaklinga úr Al- þýðuflokknum um nýjan flokk. Þetta fólk hefur talað fyrir stofnun nýs flokks og að Alþýðubandalagið yrði lagt niður en hefur engan hljómgrunn fengið fyrir þessum skoðunum innan félagsins. Það starfa vissulega fleiri en eitt Alþýðubandalagsfélag í sumum kjördæmum, enda er gert ráð fyrir því í lögum flokksins, en þetta hefur vissulega önnur formerki. Ég útiloka því ekki að hér gæti orðið klofning- ur,“ sagði Stefanía Traustadóttir formaður Alþýðubandalagsfélags Reykjavíkur. -sá Ragna Bergmann annar varaforseti ASÍ og Ragnhildur Guðmundsdóttir annar varaformaður BSRB. Stóríundur BSRB og ASÍ á Lækjartorgi í gærdag. Ásmundur og Ögmundur átelja stjórnvöld og segja: Verðhækkanir ekki nógsamlega heftar Um fimmtán þúsund manns voru á fundi BSRB og ASÍ á Lækjartorgi í gær þar sem mótmælt var veröhækk- unum á vörum og þjónustu. Þá var haldinn sams konar fundur á Stakkagerðistúni í Vestmannaeyjum. Til hans boöuðu Starfsmannafélag Vestmannaeyjabæjar og Verkalýðsfélagið Snót og sóttu fundinn hátt í tvö hundruð manns að sögn Vestmannaeyjalögreglunn- ar. Ögmundur Jónasson og Ásmund- ur Stefánsson voru ræðumenn á fundinum á Lækjartorgi og ræddi Ögmundur um að ríkisstjómin hefði gengið á bak orða sinna og samninga gagnvart launþegum og sagði meðal annars: „Við lýsum vanþóknun á gerðum ríkisstjómarinnar síðustu daga og það má hún vita, ríkisstjómin, að okkur er alvara. Við munum fylgjast með kaupmáttarþróun og við vömm við því að gengið verði á okkar hlut.“ Ásmundur Stefánsson vitnaði í bréf forsætisráðherra til forystu ASÍ um það leyti sem samningar ASÍ og VSI vom undirritaðir þann 1. maí s.l. en þar segir að ríkisstjómin muni spoma við verðhækkunum eins og frekast væri kostur á næstu misser- um. Ásmundur sagði í ræðu sinni að hið gagnstæða væri að gerast. Ríkis- stjómin hefði síður en svo spornað við verðhækkunum síðustu daga. Þess hefði hvorki hann sjálfur né aðrir séð hin minnstu merki. „Ég segi þessvegna,“ sagði Ás- mundur síðan, „ríkisstjórnarflokk- arnir hafa bmgðist og það er hart, það er sárt og það er auðvitað sárast fyrir okkur sem kusum þá sem flokka jafnréttis og félagshyggju." Á fundinn á Lækjartorgi bámst fjölmörg skeyti frá verkalýðs- og stjómmálafélögum og samtökum um allt land, meðal annars frá Al- þýðubandalagsfélaginu á Neskaup- stað, Verkamannafélaginu Hlíf í Hafnarfirði, Starfsmannafélagi Ak- ureyrarbæjar, Verkalýðsfélaginu Jökli á Höfn, Verkalýðsfélaginu Þór á Selfossi og Starfsmannafélagi Ak- ureyrarbæjar. Þá samþykkti stjóm og trúnaðar- mannaráð Verkamannafélagsins Dagsbrúnar í gær ályktun þar sem mótmælt er harðlega þeim stórfelldu verðhækkunum sem nú ganga yfir. Síðan segir: Ríkisstjórnin hefur nú með alvarlegum hætti bmgðist því trausti sem til hennar var borið vegna yfirlýsinga ráðherra við síð- ustu samningagerð um að hamla gegn verðhækkunum. Fundurinn varar ríkisstjórnina al- varlega við þessum vinnubrögðum og krefst þess að hún afturkalli þær hækkanir sem sannanlega em ekki vegna erlendra verðhækkana. Verði ríkisstjórnin ekki við þess- ari kröfu verður hún að taka af- leiðingum þeirrar synjunar sem hún í dag gerir sér greinilega ekki grein fyrir hverjar verða.“ - En hverjar verða afleiðingamar fyrir ríkisstjórnina? Guðmundur J. Guðmundsson formaður Dagsbrún- ar: „Hún dæmir sig til dauða. Auð- vitað er með öllu vonlaust fyrir eitt land að berjast gegn olíuhækkunum á alþjóðlegum markaði en hún hefði getað afsalað sér einhverjum af þeim álögum sem renna í ríkissjóð af sölu olíu og bensíns, t.d. hefði verið hægt að taka snjómðningsgjaldið inn á ríkissjóð. Það sem gert var er hins vegar það glómlausasta sem hægt var að gera í stöðunni, að ætla sér að láta ríkissjóð græða á hækkuðu innkaupsverði olíu og bensíns og ég óttast um líf stjórnarinnar ef hún ekki hættir við þetta og ef hún ekki jafnframt finnur leiðir til að stórlækka verð landbún- aðarafurða, t.d með því að hætta að greiða dilkakjöt niður ofaní útlend- inga.“ -sá I sumar geta tónlistarunnendur lagt leið sína í Listasafn Sigurjóns Ólafs- sonar, en þar verða haldnir tónleikar ÖU þriðjudagskvöld. Tímamynd: Ámi Bjama Listasafn Sigurjóns Ólafs- sonar eykur starfsemina: Tónleikar vikulega í sumar verður Listasafn Sigurjóns Ólafssonar á Laugarnesi opið frá átta til tíu á kvöldin, mánudaga, þriðjudaga og fimmtudaga. Auk þess sem safnið er opið allar helgar frá tvö til fimm samkvæmt venju. Hvert þriðjudagskvöld verða síðan haldnir tónleikar. Yfirlitssýning á verkum Sigurjóns mun standa óbreytt fram til fyrsta ágúst. Aðalsalursafnsins, sem rúmar um hundrað manns í sæti hefur reynst hinn ákjósanlegasti tónleika- saíur og kaup hafa verið fest á flygli. Því verður sú nýbreytni tekin upp að öll þriðjudagskvöld verða haldnir tónleikar. Fyirhuguð efnisskrá spannar allt frá Bach vínarklassík og síðrómantík til nútímatónlistar og jass. Fyrstu tónleikarnir verða haldnir þann sjötta þessa mánaðar. Þar munu þeir Gunnar Kvaran og Gísli Magnússon flytja verk fyrir selló og píanó. Á efnisskrá eru lög eftir Couperin, sónata eftir Ludwig van Beethoven, íslensk þjóðlög eftir Hafliða Hallgrímsson, Svanurinn eftir Saint-Saens og Rondo eftir Boccherini. Aðrir tónlistarmenn sem fyrirhug- að er að haldi tónleika í safninu í sumar eru píanóleikararnir Anna Guðný Guðmundsdóttir, Jónas Ingi- mundarson, David Tutt og Halldór Haraldsson, söngkonurnar Sigríður Gröndal og Signý Sæmundsdóttir, flautuleikararnir Martial Nardeau og Guðrún S. Birgisdóttir, Hlíf Sig- urjónsdóttir fiðluleikari og Maarten van der Valk og félagar sem halda jasstónleika þann 27. næstkomandi. jkb Jafn hæfilegur hraðl sparar bensín og minnkar slysahættu. Ekki rétt? UMFERDAR RAÐ

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.