Tíminn - 02.06.1989, Side 6
6 Tíminn
Föstudagur 2. júní 1989
Nýir jarðsímastrengir, svokallaðir Ijósleiðarar, lagðir um allt land:
Enginn getur hlerað
nemaPósturogsími
Þegar lagningu nýrrar tegundar jarðsímastrengja verður
lokið, kemur enginn til með að geta hlerað símtöl nema
viðkomandi sé staddur innan símstöðva Pósts og síma.
Strengirnir sem um ræðir eru svokallaðir ljósleiðarar og
verður hraði gagnaflutnings eftir þeim mun meiri en hingað
til hefur verið hægt að bjóða upp á.
„Hér eftir verður hvergi hægt að
komast inn á strenginn og hlera
símtöl, vegna fjölda rása sem sendar
eru eftir ljósleiðaranum. Hvorki á
milli þéttbýlissvæða eða milli sím-
stöðva í til dæmis Reykjavík. Það
verður eftir sem áður hægt að fara
inn á rásirnar símstöðvarmegin. En
fyrir utan húsnæði Pósts og síma,
það er að segja fyrir utan símstöðv-
amar verður ekki hægt að komast
inn á símtöl og hlera þau. Um þau
svæði gengur enginn nema starfs-
menn stofnunarinnar," sagði Páll
Jónsson verkfræðingur hjá Pósti og
síma í samtali við Tímann.
í kynningarriti stofnunarinnar
segir að ljósleiðaranum, sem er ný
tegund jarðsímastrengja, hafi verið
líkt við breiðan veg sem geti flutt því
sem næst óendanlega marga bíla.
Lagning strengjanna hófst fyrir
þremur árum og í framtíðinni er
ljósleiðaranum ætlað að flytja öll
hugsanleg fjarskipti, símagögn, boð,
viðvaranir, sjónvarp, útvarp og
fleira heim til notenda, á meiri hraða
en hingað til hefur verið hægt að
bjóða upp á. Bjartasta spáin gerir
ráð fyrir að ljósleiðarinn verði kom-
inn hringinn í kringum landið á
ámnum 1994-5.
Ljósleiðarinn opnar möguleika á
hreinu stafrænu sambandi sem teng-
ist beint við nýju stafrænu símstöðv-
amar og við það minnka einnig
truflanir. jkb
Aðalfundur
Sambandsins
Aðalfundur Sambands íslenskra
samvinnufélaga verður haldinn dag-
ana 5. og ó.júní í Sambandshúsinu
Kirkjusandi, fundarsal á 5.hæð. Fyr-
ir fundinn verður nýja Sambands-
húsið tekið formlega í notkun og
mun Eysteinn Jónsson, fyrrum
stjórnarformaður Sambandsins og
heiðursfélagi Samvinnuhreyfingar-
innar, gera það með nokkrum
orðum.
Að fundarsetningu og kosningu
starfsmanna fundarins lokinni mun
Ólafur Sverrisson, formaður
stjórnar, flytja skýrslu sína og þá
mun Guðjón B. Ólafsson, forstjóri,
flytja sína skýrslu. Umræður verða
að því loknu um skýrslurnar.
Aðalmál fundarins verður rekstur
Sambandsins og afkoma, en að þessu
sinni hefur ekki verið valið sérmál til
umfjöllunar eins og stundum áður.
Setning Reynis í stöðu skóla-
stjóra Olduselsskóla á vegum
menntamálaráðuneytis:
Valgerður
kærir til
Jafnrétt-
isráðs
Samkvæmt heimildum Tímans
hyggst Valgerður Selma Guðna-
dóttir kæra setningu Reynis Dan-
íels Gunnarssonar í skólastjóra-
embætti Ölduselsskóla til Jafn-
réttisráðs.
Sem kunnugt er skipaði
menntamálaráðherra Reyni í
starfið þrátt fyrir stuðning meiri-
hluta fræðsluráðs við Valgerði.
En meirihluti kennara og foreldra
auk annarra starfsmanna skólans
hafa lýst yfir stuðningi við Reyni,
auk stuðnings minnihluta
fræðsluráðs við hann.
Samkvæmt heimildum verður
kæran byggð á þeim forsendum
að Valgerður hafi meiri menntun
og meiri starfsreynslu í stjórnun-
arstörfum en Reynir. Auk þess
sem vísað verður til yfirlýstrar
stefnu menntamálaráðuneytisins
varðandi það sem kallað hefur
verið jákvæð kynjamismunun.
jkb
F.v. Bidda systir (Birna Torfadóttir), Lilla Hegga (Helga Jóna Ásbjarnardóttir) og Jórunn Jónsdóttir, móðir Helgu.
Tímamynd: Pjetur
Félag áhugamanna um bókmenntir efnir til málþings á morgun:
Þing um Þórberg
Á morgun laugardag verður efnt
til málþings um Þórberg Þórðarson
og verk hans, í tilefni aldarafmælis
skáldsins. Þingið er haldið að frum-
kvæði Félags áhugamanna um bók-
menntir sem einnig hefur látið gera
veggskjöld til minningar um
Þórberg. Skjöldurinn var afhjúpað-
ur ■ gær á Hringbraut 45 þar sem
Þórbergur og eiginkona hans voru
lengi til heimilis.
Þetta er þriðja málþingið sem
haldið er á vegum félagsins. Aðrir
aðstandendur þingsins eru bókaút-
gáfa Máls og menningar og Styrktar-
sjóður Þórbergs Þórðarsonar og
Margrétar Jónsdóttur. Sjóðurinn var
stofnaður fyrir hluta arfs þeirra
hjóna sem rann til háskólans og er '
ætlað að kosta bókaútgáfu. Þegar
hefur verið gefin út samheitaorð-
abók og verið er að vinna að stóru
verkefni um íslenska stílsögu.
Níu fyrirlesarar flytja erindi á
málþinginu og má þar meðal annars
nefna erindi Sigfúsar Daðasonar um
Sveiflur og jafnvægisleit, Pétur
Gunnarsson talar um Þórberg og
skáldsöguna, Sigurður Þór Guðjóns-
son fjallar um hvort Þórbergur hafi
verið ofviti í alvörunni og fleira.
Jafnframt verður sýnd kvikmynd
um Þórberg eftir Ósvald Knudsen,
Leikfélag Homafjarðar sýnir atriði
úr Sálminum um blómið í leikgerð
Jóns Hjartarsonar og í lok málþings-
ins verður efnt til pallborðsum-
ræðna.
„Félag áhugamanna um bók-
menntir var stofnað í apríl 1986 og
skráðir félagar eru nú rúmlega fjögur
hundruð talsins. Markmið okkar er
að efla bókmenntaumræðu með al-
mennum fundum og fyrirlestrum. Á
okkar vegum hafa þegar verið haldn-
ir meira en þrjátíu fyrirlestrar um
bókmenntir auk þess sem efnt hefur
verið til málþinga um Halldór Lax-
ness og Málfríði Einarsdóttur" sagði
Torfi Tulinius í samtali við Tímann.
Þingið verður haldið í Súlnasal
Hótel Sögu og hefst klukkan tíu.
Málþingið er öllum opið en mælst er
til að þátttakendur skrái sig fyrir-
fram. Þátttökugjald verður fimmtán
hundruð krónur fyrir allan daginn
og er hádegisverður og kaffiveitingar
innifalið í verðinu. Fyrir félagsmenn
er verðið þrettán hundruð krónur.
jkb
Vestfirðingar:
Fundurum
skerðingu
fiskkvóta
Laugardaginn 3.júní kl. 16:00
verður haldinn almennur fundur
í Alþýðuhúsinu á ísafirði vegna
skerðingar á fiskkvóta á Vest-
fjörðum.
Á fundinum stendur til að
mótmæla skerðingu á aflakvóta
til fiskiskipa á Vestfjörðum. Þá
verður einnig rætt um áhrif kvóta-
kerfisins og aflasamdrátt í fjórð-
ungnum á undanförnum árum,
hagsmuni Vestfirðinga nú og
jafnræði milli landshluta.
Öll vestfirsk verkalýðs- og
sjómannafélög eru meðal fundar-
boðenda auk Útvegsmannafélags
Vestfjarða. Fjórir þingmenn
Vestfirðinga hafa tilkynnt komu
sína og fulltrúi sjávarútvegsráð-
herra verður á fundinum.
í fréttatilkynningu vegna fund-
arins segir: „Fundurinn er víð-
tækustu almennu mótmæli við
kvótaskerðingunni hingað til.
Grálúðuskerðingin í ár fyllti mæl-
inn og ekki verður beðið lengur í
varnarstöðu heldur hafin sókn
gegn lífskjarahruni og fólksflótta
í kjölfar þess.“ -gs
Klór hefur verið blandað í
sjóblöndu þar sem humar
hefur verið geymdur:
Klórinn
skaðar
humar
í fréttabréfi Sjávarafurðadeildar
sambandsins segir að á síðustu vertíð
hafi verið nokkur brögð að því að
sjómenn á Höfn í Hornafirði og
víðar hafi blandað klór í sjóblöndu
sem humar hafi verið geymdur í um
borð. Hafi það verið gert í þeirri trú
að klórinn kæmi í veg fyrir sorta-
myndun í humrinum.
En klórinn gerir ekkert gagn í
þessu tilviki og hefur skaðleg áhrif á
humarinn ef eitthvað er. Yfirmats-
maður Ríkismats á Austfjörðum,
Anton Helgason, hefur vegna þessa
dreift ljósriti um skaðleg áhrif klórs-
ins til allra verkstjóra Kaupfélags
Austur-Skaftfellinga sem ætla að
dreifa því út í bátana.
Gróðurvemdarsamtök hafa áhyggjur vegna hestaferða um hálendið:
„Forðist lengri
óbyggðaferðir“
Landgræðsla ríkisins, Náttúru-
verndarráð og Skógrækt ríkisins be-
ina þeim tilmælum til hestamanna
að þeir skipuleggi ferðalög sem mest
um byggðir og jaðar hálendis. Að
þeir nýti gististaði í byggð og forðist
lengri óbyggðaferðir, með verndun
gróðurs í huga.
Ferðalög á hestum um hálendið
hafa aukist mjög á undanförnum
árum. í tilmælum félagsins segir
að aukinni umferð hestahópa um
Iandið fylgi aukið álag á reiðleiðum
og áningarstöðum. í ár er ljóst að
snjóa Ieysir seint og vaxtartími gróð-
urs verður stuttur. Félögin benda á
að gróður á hálendi er viðkvæmur
fyrir álagi af völdum hestaferða,
bæði vegna beitar og umferðar.
Jafnframt lýsa þau yfir áhyggjum
sínum vegna ástands gróðurs á ýms-
um leiðum þar sem umferð hesta-
hópa hefur verið mikil, svo sem
Fjallabaksleiðum og við Kjalveg.
jkb