Tíminn - 02.06.1989, Síða 16
16 Tíminn
Föstudagur 2. júní 1989
DAGBÓK llllllillllllllllllllllllillllllllllllillllllllllllllllllllillllllll
Breyttur opnunartími á
Listasafni Einars Jónssonar
Opnun Listasafns Einars Jónssonar
hefur breyst yfir í sumartíma. Frá 1. júní
er safnið opið alla daga kl. 13:30-16,
nema mánudaga.
Höggmyndagarðurinn eropinn allt árið
kl. 11-17.
Gardslöttuvélin
wm smi iDtf
Rafeindakveikja tryggir örugga gangsetningu
Hún slær út fyrir kanta og upp að vegg.
Fyrirferðarlítil, létt og meðfærileg.
3.5 HP sjálfsmurð tvígengisvél.
Auðveldar hæðarstillingar.
Þú slærð betur með
SÍMI: 681500 - ÁRMÚLA 11
ÓKEYPIS
hönnun auglýsingar þegar þú auglýsir í
TÍMANUM
AUGLÝSINGASÍMI 680001
Ferðafélag íslands
2.—l.juni: Helgarferð til Þórsmerkur.
Gist í Skagfjörðsskála/Langadal. Göngu-
ferðir með fararstjóra um Mörkina.
Brottför kl. 20 föstudag. Upplýsingar og
farmiðasala á skrifstofu F.í., Oldugötu 3.
Dagsferðir sunnudaginn 4. júní:
Ki. 10 Dyrafjöll-Marardalur-Kolviðar-
hóU (nýi vegurinn).
Ekið að Nesjavöllum og gendið þaðan
um Dyraveg. Rútan tekur hópinn á
Nesjavallavegi. Verð kr. 1000.-
Kl. 13 Húsmúli-Engidalur-Draugatjörn.
Ekið að Kolviðarhóli og gengið þaðan.
Verð kr. 800,-
Brottför frá Umferðarmiðstöðinni, aust-
anmegin. Farmiðar við bíl.
Miðvikudaginn 7. júní kl. 20: Kvöldferð
í Heiðmörk. { þessari ferð verður hugað
að gróðri í reit Ferðafélagsins í Heið-
mörk. Ókeypis ferð.
Frá Rauða Krossi íslands:
Mannúð og menning
- sumarnámskeið ffyrir börn
1 sumar mun ungmennahreyfing RKÍ
halda sumarnámskeið fyrir 8 til 10 ára
börn. Hér er um nýjung að ræða, en
Rauði Kross lslands rak um skeið sumar-
búðir fyrir böm. Með námskeiðum þess-
um vill Rauði Krossinn bjóða bömum
upp á fræðslu um ýmis mannúðarmá! s.s.
þróunarhjálp, friðarmál, mannleg sam-
skipti, umhverfismál, skyndihjálp og
slysavarnir. Inn f dagskrána er fléttað
leikrænni tjáningu, myndlist, tónlist og
farið verður í vettvangsferðir. Tvö nám-
skeið verða haldin í Reykjavík og eitt í
Hafnarfirði, Mosfellsbæ og á Akureyri.
Hvert námskeið stendur í tvær vikur og
er 8 tíma á dag.
Nánari upplýsingar eru gefnar á skrif-
stofu RKÍ í síma 91-26722
Sænsk stórhljómsveit
í Norræna húsinu
Sænsk stórhljómsveit frá Karlstad,
Skaare Big Band, heldur tónleika í Nor-
ræna húsinu á sunnudag, 4. júnf kl. 18. í
hljómsveitinni em 20 manns og á efnis-
skránni em þekkt jasslög. Stjómandi
hljómsveitarinnar er Per Berggren. Skaa-
re Big Band hefur haldið tónleika á
hinum Norðurlöndunum í tengslum við
vinabæjarmót og er hljómsveitin stödd
hér á landi vegna vinabæjarmóts á
Blönduósi, en Karlstad er vinabær
Blönduóss. Þar verða tónleikar laugar-
daginn 3. júní.
Lúðrasveitin frá Skaare leikur á
Blönduósi á laugardag og á Lækjartorgi
kl.15 á sunnudag, ef veður leyfir.
Kristinn Nicolai í Gallerí Borg
Kristinn Nicolai sýnir olíuverk í Gallerí
Borg, Pósthússtræti 9. Þetta er seinni
sýningarhelgi. Sýningin er opin alla virka
daga frá kl. 10-18 og um helgar frá kl.
14-18. Henni lýkur 6. júní.
1 kjallaranum í Pósthússtræti er ávallt
mikið úrval af vatnslita-, pastel- og
olíumyndum, auk þess sem þar er alltaf
upphengi á myndum gömlu meistaranna,
m.a. Kjarval, Ásgrímur Jónsson, Jóhann
Briem, Gunnlaugur Blöndal o.fl.
Handavinnusýning og sala
á Hrafnistu í Reykjavík
Sjómannadaginn 4. júní verður sala og
sýning á handavinnu vistfólks frá kl.
13:30 til 17 og rennur ágóðinn til velferð-
armála vistfólksins.
Grafík-Gallerí Borg
1 Grafík-Gallerí Borg, Austurstræti
10, er úrval grafíkverka eftir hina ýmsu
listamenn, einnig olíuverk eftir ýmsa
núlifandi höfunda. Grafík-Gallerí Borg
er opið á venjulegum verslunartíma.
BILALEIGA
meö utibu allt í knngum
landiö, gera þer mögulegt
aö leigja bíl á einum staö
og skila honum á öörum.
Reykjavík
91-31615/31815
Akureyri -
96-21715/23515
Pöiitum bíla erlendi?
interRent
Bilaleiga Akureyrar
Sýning á Ijósmyndum af Jó-
hannesi Páli II páfa í Ijós-
myndasafni Reykjavíkurborgar
1 tilefni af heimsókn Jóhannesar Páls II
páfa hingað til lands heldur Ljósmynda-
safn Reykjavíkurborgar, Borgartúni 1,
sýningu á ljósmyndum af páfanum, sem
pólski ljósmyndarinn Adam Bujak hefur
tekið.
Adam Bujak hefur hlotið mörg verð-
laun fyrir fjölmargar ljósmyndabækur og
myndraðir af einstökum viðfangsefnum.
Á sýningunni eru 73 Ijósmyndir og
verður hún opin almenningi frá 28. maí
til 18. júní n.k. Sýningin er opin alla
dagana frá kl. 11-19.
Pólski kvikmyndaleikstjórinn Andrzej
Wajda skrifar m.a. þetta um sýninguna:
„Ljósmyndir þessar af Jóhannesi Páli
páfa II sem ég hef verið að skoða af
mikilli athygli eru af þeim manni sem
hvað mest er ljósmyndaður í heiminum
nú á tímum. Við sjáum Jóhannes Pál þar
sem hann ber krossinn á Colosseum,
gengur leið fyrstu píslarvottanna, kyssir
jörðina við upphaf páfaheimsóknar, ræðir
við börn eða sjúklinga. Allt sem hann
aðhefst mótast af einlægri sannfæringu
um það að hvert atvik eigi sér nákvæm-
lega þennan stað og stund. Sú ímynd
sannleikans sem við virðum fyrir okkur í
þessum myndum hlýtur að mótast af
tveimur máttugum öflum:
- Vitund um hver ég er
- Skýrri vissu um á hvaða leið ég er.
Sjálfstraust, snilli eða ytri áhrif geta
ekki framkallað slíkan svip sem endurnýj-
ar sig sífellt í hvert sinn sem hann kemst
í samband við aðra manneskju. Þetta er
skýringin á því hvers vegna andlitssvipur
Jóhannesar Páls II er svo lifandi og um
leið svo friðsæll. Fólk um allan heim lítur
á þetta andlit sem tákn, ekki einungis um
leiðtoga kristinna manna, heldur miklu
fremur um mann sem er vitni sannleikans,
boðberi takmarksins, andlit mannsins."
Garðsláttur
Tökum að okkur að slá garða.
Kantklippum og fjarlægjum heyið.
Komum, skoðum og gerum verðtilboð.
Afsláttur ef samir er fyrir sumarið.
Upplýsingar í síma 41224 kl. 10-12 eða á kvöldin.
Geymið auglýsinguna.
Til sölu
DUKS baggatína frá Boða 5 ára.
FARENDLÖSE sláttuvél 4 ára v.br. 1,60 m.
FRANSGÁRD heyþyrla lyftutengd 2 ára v. br. 5,20
m.
Þeir sem hafa áhuga gefi upp nafn og símanúmer
hjá auglýsingadeild Tímans, sími 680001.
Við í Prentsmiðjunni Eddu
hönnum, setjum og prentum
allar gerðir eyðublaða fyrir tölvuvinnslu.
Smiðjuvegi 3, 200 Kópavogur. Sími 45000