Tíminn - 13.06.1989, Blaðsíða 14
14 Tíminn
Þriðjudagur 13. júní 1989
lllllllimillllllllllllllll DAGBÓK
FREYR - Búnaðarblað
9. tbl. 85. árg.
Ritstjórnargreinin nefnist Auka-Bún-
aðarþing, og er þar sagt frá störfum
þingsins 18. og 19. apríl sl.
Greinar eru um „Rúllubaggatækni" á
vegum Bútæknideildar Rala og Bænda-
skólans á Hvanneyri, og sömuleiðis skrif-
ar Grétar Einarsson um rúllubindivélar.
Eiríkur Loftsson, rannsóknarmaður
við Bútæknideild Rala skrifar um
kostnað, fjárfestingu og samanburð á
heyverkunaraðferðum.
Ingólfur Davíðsson grasafræðingur
segir frá gamalli fjárborg á Markeyri.
Sagt er frá fyrirhuguðum hátíðarhöldum
vegna aldarafmælis Bændaskólans á
Hvanneyri.
Ýmsar fleiri greinar um búnaðarmál
eru í blaðinu, en útgefendur eru Búnaðar-
félag íslands og Stéttarsamband bænda.
SímnblaDiD
1. tbl. 1989
Símablaðið, 1. tbl. 84. árg.
Kjarasamningar við óvenjulegar að-
stæður nefnist forustugrein blaðsins eftir
formann F.f.S, Ragnhildi Guðmunds-
dóttur. Þá er ársskýrsla framkvæmda-
stjórnar F.f.S. \
Birtar eru fundargerðir og ályktanir
félagsins, sagt frá vinnunni vlð síðustu
kjarasamninga og eins frá félagsfréttum.
Svo sem framkvæmdum við sumarbústaði
félagsins o.fl. Reiknistofa Pósts og síma
er kynnt í blaðinu. Sagt er frá afhjúpun
listaverks í Gufunesi til minningar um
húsráðendur fjarskiptastöðvarinnar í
Gufunesi árin 1942-1950, þau Ingólf
Matthíasson stöðvarstjóra og konu hans
Unni Sigríði Einarsdóttur, gefið af niðj-
um þeirra. Þá eru minningargreinar í
blaðinu um látna félaga. Forsíðumynd er
frá 1. maí-göngunni í vor.
Ritstjóri er Helgi Hallsson.
Aðvörun frá
Rafmagnseftirliti ríkisins:
HÁSPENNA - LÍFSHÆTTA!
Rafmagnseftirlit ríkisins sendir frá sér
eftirfarandi viðvörun:
* Óhöppum og tjónum af völdum
háspennu fer fjölgandi. Flest slík óhöpp
verða fyrir vangá eða hugsunarleysi.
* ÖKUMENN:
Hafið gát á háspennulínum ef þið eruð
með hátt loftnet eða með háfermi á
bílnum. Reisið ekki bílpall upp í línur,
eins og mörg dæmi eru um við vegagerð
og aðrar framkvæmdir.
* GRÖFU- OG KRANASTJÓRAR:
Fylgist vandlega með öllum hreyfingum
tækjanna og farið með sérstakri gát, ef
þið eruð að störfum í nánd við háspennu-
línur.
Ef ökutæki eða vinnuvél snertir há-
spennulínu er sjálfsagt að rcyna strax að
komast undan Ifnunni og meta sfðan
aðstæður áður en reynt er að komast út
úr ökutækinu. Ef sýn þykir að spenna
liggi á tækinu, er öruggast að hreyfa sig
hvergi fýrr en tryggt er að spenna sé ekki
lengur á línunum.
Ef eldur kemur upp í tækinu kann að
vera eina björgunarvonin að stökkva út.
Ef tækið snertir enn háspennulínu verður
að varast að snerta samtímis tækið og
jörðu.
* STJÓRNENDUR FLUGDREKA:
Leikið ykkur ekki í nágrenni við há-
spennulínur. Nylonlína getur leitt há-
spennt rafmagn í röku veðri. Sleppið
línunni, ef flækja við raflínur er fyrirsjá-
anleg.
* IÐKENDUR FALLHLÍFAR-
STÖKKS:
Metið aðstæður, vinda og veður, áður
en lagt er til stökks þar sem háspennulínur
geta verið í sviflínu.
L:> lNABLAÐIÐ
1
HellbriQdísmá!
1/1989
Sumarleyf isferðir F.í. í júní
24.-29. júní (6 dagar); Vestfirðir
Ekið til Þingeyrar í Dýrafirði og gist
þar í þrjár nætur. Farnar skoðunarferðir,
m.a. gengið milli Dýrafjarðar og Arnar-
fjarðar um Svalvoga. Gist tvær nætur í
Breiðuvík og m.a. farið á Látrabjarg.
Fararstjóri: Sigurður Kristinsson.
28. júni-1. júlí (4 dagar): Ferð um
Breiðafjarðareyjar. Siglt með Hafrúnu
um eyjar vestan Stykkishólms, í mynni
Hvammsfjarðar og til Vestureyja. Árbók
Ferðafélagsins 1989 fjallar um Breiða-
fjarðareyjar. Fararstjóri: Árni
Björnsson.
Ath.: Breytt dagsetning frá prentaðri
áætlun 1989.
Upplýsingar um ferðirnar og farmiða-
sala er á skrifstofunni, Öldugötu 3.
Ferðafélag tslands
Hallgrímskirkja:
Starf aldraðra
Fyrirhuguð er ferð í Skorradal á
morgun, miðvikudaginn 14. júní. Lagt
verður af stað frá kirkjunni kl. 10:00.
Hafa skal með sér nesti.
Þátttaka tilkynnist Dómhildi í síma
kirkjunnar 10745 ogí kvöld í síma 39965.
Aðvörun frá
Rafmagnseftirliti ríkisins:
Raflost
Við heyrum stundum varað við
því að snerta samtímis tvö rafmagns-
tæki, eða til dæmis að snerta raf-
magnstæki með annarri hendi og
vask eða krana með hinni.
Öðru hverju heyrast fregnir um að
fólk hafi fengið raflost með þessum
hætti.
Ástæðan er sú að öryggisbúnaður-
inn í rafmagnstöflunni vinnur ekki,
eins og hann á að gera.
Rafmagnseftirlit ríkisins hvetur
húsráðendur til að láta löggiltan raf-
verktaka líta á rafkerfið hjá sér, ef
nokkur vafi er í huga þeirra um að-
öryggi í sambandi við rafmagn sé
otægilega tryggt.
Hollusta í hafragraut
Bakverkur
Sjúkdómanöfn fyrir tvö hundruð árum
I\vðuc>|>ol
Geryigangráðir í hjarta
Norskur áhugamanaleikhópur
sýnir leikritið Hagbarð og Signý
14.júní n.k. eru væntanlegir til landsins
250 Norðmenn, sem koma í þeim tilgangi
að sýna okkur leikrit byggt á sögunni um
Hagbarð og Signýju. Hópurinn sem kallar
sig Steigen sagaspill, samanstendur af
norskum áhugaleikurum, hljóðfæra-
leikurum, kór og einsöngvurum og sýn-
ingin er hin viðamesta í alla staði. Hug-
myndin er að sýna á Miklatúni þ. 18.júní
en að auki hyggst hópurinn skreyta mið-
borg Reykjavíkur á þjóðhátíðardaginn
17. júní.
Læknablaðið-júní ’89
- Fréttabréf lækna
Fremst í þessu blaði er grein sem
nefnist „Saga úr klíníkinni". Þar er rakin
saga um mistök lækna við meðferð sjúkl-
ings sem kom slasaður á slysadeild Borg-
arspítalans og lést þar eftir nokkurra daga
legu. Talsmaður landlæknisembættisins
segir að frásögnin sé unnin úr sjúkra-
skrám og skýrslum lækna og birt til að
vekja lækna til umhugsunar um mál af
líku tagi.
Þá segir frá því, að Læknafélag íslands
°g Læknafélag Reykjavíkur auki nú eign-
arhluta sinn i Domus Medica og verði
viðbótarhúsnæðið nýtt í þágu félagsins.
Margar faglegar fréttir eru í blaðinu og
auglýsingar um ný lyf, tímarit og ýmiss
konar upplýsingar fyrir lækna. Tilkynn-
ingar um fundi og ráðstefnur í sumar og
margt fleira.
Ritstjóri Læknablaðsins er Birna Þórð-
ardóttir.
Heilbrigðismál
— 1. tbl. 37. árg.
Leiðari í þessu blaði nefnist „Hvíld og
heilsa“ og er skrifaður af Jónasi Hall-
grímssyni prófessor. Meðal efnis í blaðinu
er grein um minnkandi reykingar hér á
landi, en þær hafa minnkað um fjórðung
á einum áratug. Þá skrifar Gísli Einarsson
grein um bakverk og einnig eru heilræði
fyrir bakveika.
Minnst er 40 ára afmælis Krabbameins-
samtakanna og fréttir eru frá félaginu.
Davíð Gíslason skrifar greinina „Fæðu-
óþol“. Neyðarbíllinn er nauðsynlegur
allan sólarhringinn, nefnist grein Friðriks
Sigurbergssonar, Árni Kristinsson skrifar
um gervigangráði,
Hollusta í hafragraut nefnist grein eftir
Laufeyju Steingrímsdóttur og Stefán
Aðalsteinsson skrifar: Matarhefð og
manneldisstefna.
Fleiri greinar eru í blaðinu, svo sem um
félagslegar aðstæður og heilbrigðisþjón-
ustu barna, Æfingar fyrir alla, Sjúkdóma-
nöfn fyrir tvö hundruð árum o.fl. Ritstjóri
er Jónas Ragnarsson, en útgefandi
Krabbameinsfélag íslands.
Afmæli
Karólína Kolbeinsdóttir, Glaðheimum
10, Reykjavík er 80 ára í dag, þriðjudag-
inn 13. júní.
Karólína tekur á móti gestum föstudag-
inn 16. júní eftir kl. 16:00 á heimili sínu.
PÓSTFAX TÍMANS