Tíminn - 27.07.1989, Síða 2
• « r «
2 Tíminri;
C RP | «in! ro
Fimmtudagur 27. júlí 1989
Hvalatalningarskipin koma inn og taka olíu og vistir.
Hvalur 8 og Hvalur 9 bætast í hópinn:
Talningin gengur
samkvæmt áætlun
Hafrannsóknarskipið Barðinn
hélt úr höfn í Reykjavík í gærkveldi,
eftir um sólarhrings landlegu. Ámi
Friðriksson var aftur væntanlegur til
hafnar í gærkvöld eða nótt, en
hafrannsóknarskipin tvö hafa verið
við talningar á hvölum suður af
landinu, undanfarnar vikur. Ámi
mun aftur sigla út í kvöld og
honum Hvalur 8 og Hvalur 9, en |
munu taka þátt í seinni áfanga
hvalatalningarinnar, sem á að Ijúka
um miðjan næsta mánuð.
Að sögn Jóhanns Sigurjónssonar
leiðangursstjóra á Árna Friðrikssyni
hefur talningin gengið samkvæmt
áætlun, þrátt fyrir frekar óhagstætt
veður. Leiðangursmenn hafa séð þó
nokkuð af hval, en talið er of
snemmt að draga neinar áætlanir út
frá því, enn sem komið er. „Þetta
hefur verið mjög í takt við það sem
við bjuggumst við og ekkert sem
komið hefur okkur sérstaklega á
óvart,“ sagði Jóhann í gær.
Ámi og Barðinn hafa verið við
talningar djúpt suður af landinu og
allt suður að Hvarfi. Svæðið sem
talið var á í þessum áfanga er sunnan
við 60. gráðu og allt suður að 50.
gráðu norðlægrar breiddar og á bil-
inu 18. gráðu vestlægrar lengdar og
vestur á 42.
Hafrannsóknarskipin tvö munu
halda áfram talningu á svipuðum við Austur-Grænland, en Hvalur 8
slóðum, en Hvalur 9 kemur til með verður grunnt suður og suðaustur af
að telja djúpt vestur af landinu og landinu. - ÁG
Barðinn í Reykjavíkurhöfn í gær.
Tlmamynd: Aml BJama
Hafísinn:
Fer líklega inn
á siglingaleiðir
Samkvæmt hafískönnunarflugi
Landhelgisgæslunnar, sem farið
var á þriðjudaginn, hefur hafísinn
færst norður borið saman við
könnunarflug sl. föstudag. Suð-
austan- og austanátt hefur ríkt á
þessu svæði og hefur því ísinn
þokast fjær landi.
Að sögn Þórs Jakobssonar hjá
Veðurstofunni má búast við norð-
austanátt fram á föstudag og vest-
anátt um helgina. Þvf em miklar
líkur á því að ísinn færist nær
siglingaleiðum fyrir Hornbjarg.
Miðað við flugið á föstudag hafði
jaðarinn gisnað talsvert og mikið
var af lænum í honum. Frá Dohm-
banka lá jaðarinn f norðaustur átt
og var í fjarlægð frá Iandi sem hér
segir: 55 sjómílur norðvestur af
Barða, 35 sjómílur norðaustur af
Homi, 29 sjómílur norðaustur af
Geirólfsgnúp og 39 sjómflur norð-
ur af Skagatá. GS
Fólskuleg líkamsárás ekki kærð:
Ráðist á mann
í Kópavoginum
Tveir menn réðust á 25 ára
gamlan mann á þriðjudagskvöld
fyrir utan heimili hans að Alfhóls-
vegi í Kópavogi. Árásarmennimir
munu hafa sparkað í manninn
hvað eftir annað, eftir að hafa
barið hann niður. Atburðurinn átti
sér stað um klukkan níu.
Maðurinn komst inn til föður
síns, þar sem hann býr, og hringdi
hann á sjúkrabíl um miðnættið.
Meiðsl hans vom ekki alvarleg og
í gær útskrifaðist hann af Landspít-
alanum. Hann mun ekki ætla að
kæra árásina. GS
pkkl ^
Laugardagur kl.13:25
30. LEIKVIKA- 29. júlí 1989 II! m 2
Leikur 1 Bayern M. - Niirnberg
Leikur 2 St. Pauli - W. Bremen
Leikur 3 Leverkusen - Dortmund
Leikur 4 Kaiserslautern- Gladbach
Leikur 5 B. Uerdinqen - Homburg
Leikur 6 Stuttqart - Karlsruher
Leikur 7 Bochum - Köln
Leikur 8 Frankfurt - Waldhof M.
Leikur 9 Dusseldorf - H.S.V.
Leikur 10 Ikast - Bröndby Uanm'
Leikur 11 Brönshöi -A.G.F.Uanm
Leikur 12 Tromsö - BrannNor
Símsvari hjá getraunum er 91-84590 og -84464. LUKKULÍNAN s. 991002
Ath. lokun sölukerfis! !
Bifreiðar og landbúnaðarvélar halda upp á 35 ára afmæli sitt:
Gísli Guðmundsson, forstjóri Bifreiða og landbúnaðarvéla, situr fyrir endanum á borðinu, við hlið hans er Vladimir
V. Kadannikov, þá Yuri Kudinow, verslunarfulltrúi Sovétríkjanna á íslandi, og loks Eugeni N. Liousinski, forstjóri
Auto Export. Tfmamynd: Pétur
Von á 5 dyra Lada
Bifreiðar og landbúnaðarvélar
eiga 35 ára afmæli um þessar
mundir. í því tUefni komu fyrirsvars-
menn Lada-bflanna saman með for-
stjóra fyrirtækisins, Gísla Guð-
mundssyni, og kynntu hvað væri á
döfinni í rússneskri bflaframleiðslu.
Fyrirtækið var stofnað 1954. Sov-
éska fyrirtækið Auto Export hefur
séð um allan útflutning birfreiða í
Sovétríkjunum hingað til, en nú
stendur til að breyta því þannig að
hver verksmiðja má semja beint við
kaupendur og fær þann gjaldeyri
sem hún aflar með sölu sinni. Sov-
éskir ráðamenn vona að það muni
gera verksmiðjunum kleift að auka
þekkingu sína og. tækni, en so.véskir
bílar eru komnir talsvert á eftir í
þróun, miðað við evrópska og
bándaríska Bíla.
Lada- framleiðir 730.000 bíla á ári
og eru þeir fluttir út til 85 landa.
Gísli Guðmundsson sagði að bif-
reiðamarkaðurinn væri harður og
tegundir breyttust mun örar en áður
gerðist. Nú þarf að breyta bílum á
fimm ára fresti til að sala haldist
stöðug, áður varð þessi sveifla á sjö
ára fresti.
Nú er unnið að smíði mikillar
tæknimiðstöðvar í Sovétríkjunum
þar sem stendur til að þróa og
framleiða nýjar tegundir bíla.
Kostnaðurinn við hana er um tveir
milljarðar bandaríkjadala, og áætlað
er að hún muni veita um 9.500
manns vinnu.
Sovétmenn ætla að tvöfalda bíla-
framleiðsluna fyrir 1995 og á dag-
skránni er að framleiða stærri og
dýrari bíla en nú er gert. Meðal
annars er áætlað að framleiða fimm
dyra Ladabifreiðar og yngja þær upp
í útliti. Pétur/LDH
Gítartónleikar
1 kvöld klukkan sex halda Símon spænskra og suður-amerískra
H. ívarsson og Hinrik D. Bjama- þjóðlaga.
son gítartónleika að Kjarvalsstöð- Báðir hafa lokið kennaraprófi í
um, í austursal. gítarleik. Símon lauk auk þess
Á efnisskránni eru meðal annars einleikaraprófi og Hinrik fullnað-
verk frá endurreisnartímanum, arprófi. Sömuleiðis hafa þeir báðir
verk eftir Robinsön og Dowland, sótt margvísleg námskeið í gítar-
Vivaldi, Torroba og Sor, auk leik. jkb