Tíminn - 27.07.1989, Blaðsíða 20
AUGLÝSINGASÍMAR: :680001 - 686300
-
RlKISSÍóP NÚTÍMA FLUTNINGAK Halnarhúsinu v/Tryggvagölu. S 28822 w § ÚgMtr SAMVINNUSANKI ISLANDS HF, et*o,B,LASr0 ÞRðSTUR 68 50 60 VANIR MENN < PÓSTFAX TÍMANS 687691
©
Tíiiiinii
FIMMTUDAGUR 27. JÚLÍ1989
■m
■B
■■
Sýsluvegi lokaö viö Haffjaröará, en vegurinn sföan opnaöur
eftir aö heimamenn kvörtuðu til Vegagerðarinnar:
Keðjur á veginn við um-
deildasta vatn landsins
Sýsluvegi upp að Höfða, innsta bænum við Haffjarðará,
var lokað í vikunni. Lokunin var frekar óheppileg því
starfsmaður sá er lokaði veginum vinnur hjá eigendum
hluta árinnar og jarða við hana, sem hrepparnir sem áin
rennur um eiga í miklum deilum við. Einn eigendanna
sagði í samtali við Tímann að lokunin hefði verið á
misskilningi byggð og eftir að vegagerðin hafði haft afskipti
af málinu var vegurinn opnaður aftur.
Haffjarðará, sem er einhver einn núverandi eigenda, var þarna
um misskilning að ræða sem síðan
var leiðréttur. Hann sagði starfs-
manninn hafa lokað röngum vegi.
En segja má að lokunin hafi að
einhverju leyti verið viðbót við
miklar deilur sem staðið hafa lengi.
Forsaga deilnanna er sú að fyrir
nokkrum árum seldi dánarbú
Thors Thors tveimur erfingjum
hlut þriðja erfingja sem lést. Þar er
um að ræða þrjár jarðir sem liggja
að ánni og fjórða part árinnar.
Viðkomandi seldu Óttari ásamt
fleirum, aftur umræddar jarðir og
árhlutann. Samkvæmt lögum áttu
hrepparnir forkaupsrétt að þessum
jörðum og hluta árinnar af dánar-
búinu.
Sýslumaður neitaði að þinglýsa
kaupum erfingjanna á grundvelli
þess að þau væru ólögleg þar sem
hreppunum hefði ekkí verið gefinn
kostur á að eignast jarðirnar.
Hreppunum var að vísu boðinn
allur pakkinn til kaups, það er að
segja allar jarðir meðfram ánni og
áin sjálf á 118 milljónir króna sem
áttu að greiðast á nokkrum mánuð-
besta veiðiá landsins, var upphaf-
lega í eigu Thorsættarinnar. Erf-
ingjar réðu sér lögfræðing, sem
síðustu árin hefur haft ána á leigu.
Miklar deilur hafa risið milli ábú-
enda á jörðum meðfram ánni ög
Iandeigenda sem hafa viljað koma
jörðunum í eyði, samkvæmt heim-
ildum Tímans að vestan, meðal
annars af ótta við veiðiþjófnað.
Sem dæmi er nefnt að einn ábú-
enda var fyrir fjórum árum borinn
út.
Sýsluvegi sem liggur upp að
Höfða, efstu jörð við ána, lokaði
síðan starfsmaður eigenda með
keðjum og merkti hann sem einka-
veg fyrr í vikunni. Eins og áður
sagði hefur vegagerðin haft sitt-
hvað við þetta að athuga. „Þetta er
sýsluvegur byggður fyrir almanna-
fé og því er ekki leyfilegt að loka
honurn," sagði Björn Jónsson hér-
aðsstjóri vegagerðar ríkisins á ÓI-
afsvík. Hann ræddi við viðkomandi
aðila sem opnaði veginn aftur.
Að sögn Óttars Yngvasonar
hæstaréttarlögfræðings, sem er
Sýsluvegurinn upp að Höfða, sem lokað var fyrir misskilning. Lokunin var illa séð af heimamönnum.
Timamynd: M.G.
um.
Óttar og aðrir þeir sem höfðu
síðan keypt af erfingjum kærðu því
næst úrskurð sýslumanns fyrir
hæstarétti. En þeir hafa ekki fengið
sinni eign þinglýst þar sem enn
stendur á fyrri þinglýsingunni.
Hæstiréttur staðfesti aftur á móti
úrskurð sýslumannsins, að ekki
hefði verið löglegt að þinglýsa. Nú
logar því allt í málaferlum milli
nefndra kaupenda og hreppanna,
sem vilja ganga inn í fyrri söluna,
til erfingjanna.
En málið er töluvert flóknara og
ýmis hliðarmálaferli því tengd.
Einn angi deilunnar stendur á milli
ábúanda einnar jarðarinnar og eig-
enda. Ábúandinn falaðist eftir
jörðinni og þar sem hann hefur
forkaupsrétt var honum boðin hún
á sex milljónir króna. Hann vildi
ekki kaupa jörðina á því verði og
var hún því seld Óttari og öðrum
sem að kaupunum stóðu með
honum. Ábúandinn studdist við
lagaákvæði og fékk jörðina metna
og hún var metin niður í ríflega
tvær milljónir króna. Ábúandinn
vill kaupa á því verði og stendur nú
í málaferlum við þá sem síðast
keyptu. Þeir telja matið ekki
löglegt, segja það brot á stjórnar-
skránni og vilja ekki selja ábúanda
jörðina á þriðjungi þess verðs sem
þeir greiddu erfingjum fyrir hana.
En þeir hafa ekki fengið sinni eign
þinglýst ennþá.
Þessi mál eru öll meira og minna
til umfjöllunar í dómskerfinu og
ekki hægt að vænta þess að úr þeim
greiðist fyrr en einhverjir úrskurðir
fást. Óttar vildi benda á að öll
málaferlin og deilurnar væru af
hálfu eigenda varnir. jkb
Sjóflugvél bandaríska flugmannsins Thomas Casey var hífð upp úr Nauthólsvíkinni með krana um hádegisbilið í
gær. Flugvélin var fyrst tekin á flot með sérstökum búnaði og síðan dregin á hvolfi með bát að flugbrautarenda
Reykjavíkurflugvallar. Þar var hún hlfð upp og mun hún verða þar, þar til annað verður ákveðið. GS/Tínuunynd: Pj*tnr
Drukknir popptónlistarmenn
hegða sér ekki í samræmi við reglur FÍH:
Skulu vera reglu-
samir og kurteisir
,.Ég tel þessa áskorun ósköp í frétt Tímans á föstudag kemur
eðlilega. Þeir sem taka að sér verk fram að yfirmenn ungmennasam-
eiga að vinna það edrú,“ sagði taka hafa orðið varir við þó nokkur
Björn Árnason, formaður Félags dæmi þess að skemmtikraftar hafi
tslenskra hljóðfæraieikara, að- verið undir áhrifum óhóflegrar
spurður um áskorun, þá sem HSK áfengisneyslu á dansleikjum. Þá,
sendi frá sér og Tíminn greindi frá til dæmis, hafi þeir ekki getað
á föstudag, þess spilað óstuddir. Um þetta segir
efnis að samkomuhaldarar greiði Björn: „Ég held að þetta hljóti að
tónlistarmönnum eða öðrum verá einstakt dæmi. Ég heyri mjög
skemmtikröftum, sem neyta áfeng- sjaldan rætt um þetta og þetta
is á samkomum, ekki laun. kemur yfirleitt aldrei upp á borð
Að sögn Bjöms hefur FÍH gert hjá okkur. - Við eiguni auðvitað
samning við Samband veitinga- og mjög erfitt mcð að stjóma drykkju
gistihúsa þar sem kveðið er á urn popptónlistarmanna eða annarra
að viðkomandi aðili sé snyrtilegur listamanna. Ég undirstrika hins
til fara, sýni reglusemi og gæti vegar að hver og einn sem tekur að
kurteisi í hvlvetna. Á mörgum sér starf, í hvaða stétt sem er, á að
samkomum gildir þessi samningur sinna þvi af samviskusemi,“ sagði
hins vegar ekki, t.d. á dansleikjum Bjöm.
ungmennasamtaka úti á landi. GS