Tíminn - 27.07.1989, Page 3
Fimmtudagur 27. júlí 1989
Tíminn 3
Ný lög í Bandaríkjunum í lok ágúst sem minnka kröfur
til rannsókna á nýjum alnæmislyfjum stórlega:
Lítið rannsökuð
lyf á markaðinn
Haraldur Briem sérfræðingur í faraldssjúkdómum.
Bandarískir læknar eru margir
hverjir mjög áhyggjufullir vegna
þeirrar stefnu stjórnvalda þar í landi,
að leyfa notkun alnæmislyfja sem
ekki hafa veríð rannsökuð og prófuð
að sama marki og önnur lyf. Einnig
stendur til að lækka þær kröfur sem
gerðar eru til sönnunar á virkni
nýrra lyfja.
Haraldur Briem, sérfræðingur í
faraldssjúkdómum, segir að alnæmi
sé það sérstaks eðlis að það þurfi
ekki að þýða að eftirlit með öðrum
lyfjum verði eitthvað verra, þótt
slakað sé á kröfunum til alnæmis-
lyfja.
Samkvæmt heimildum frá Reuter
fréttastofunni er fjöldi alnæmislyfja
á tilraunastigi orðinn gífurlegur, vit-
að sé um 67 ný lyf miðað við 35 fyrir
tveimur árum. Svartamarkaðsbrask
með lyfin er alvarlegt vandamál í
Bandaríkjunum, en flest fórnarlömb
alnæmis er ungt fólk sem er tilbúið
til að hætta öllu fyrir von um heil-
brigði.
Miklar vonir eru bundnar við sum
þessara lyfja, og fá þau líklega
hraðferð f kerfinu eftir að nýju
reglurnar hafa verið samþykktar.
Þannig getúr lyf sem þykir hafa
jákvæð áhrif á nokkra sjúklinga í
fyrstu tilraunum, komist út á mark-
aðinn sem viðurkennt alnæmislyf.
Haraldur Briem, sérfræðingur í
faraldssjúkdómum, er einn þeirra
lækna sem sinna alnæmissjúklingum
hér á landi. Hann sagði í samtali við
Tímann að vissulega væri um við-
horfsbreytingu varðandi tilraunir á
sjúklingum að ræða, en hann sagðist
ekki gera ráð fyrir því að sú við-
horfsbreyting næði til íslands. „Að
vísu var AZT-lyfið, sem er það lyf
sem notað er í dag, tekið til notkunar
hér á íslandi um leið og í Bandaríkj-
unum, en þar var það leyft um leið
og sýnt þótti að það gerði gagn, svo
að vissu leyti má segja að kröfumar
hafi lækkað á íslandi um leið. Það
þótti ekki stætt á öðru en að leyfa
notkun þess hér úr því að vitað var
að það hafði gagnleg áhrif,“ sagði
Haraldur. Hann sagði að mjög vel
væri fylgst með sjúklingum sem fá
lyfið og áhrif þess rannsökuð eftir
fremsta megni, én það væri mjög
óvenjulegt með lýf sem komin væm
á markaðinn.
Haraldur sa^m að gífurlegur
þrýstingur væri dfctjórnvöld í Banda-
ríkjunum að brjgðast skjótt við, og
yfirvöld væri^flbun til að teygja sig
eins langt og M^pæri, því lífið væri
kapphlaup vi3j|fmann hjá flestum
sjúkiingunum. Hann taldi mjög
ósennilegt að þessi tilraunastarfsemi
kæmi til með að tíðkast við meðferð
sjúkiinga sem em dauðvona vegna
annarra sjúkdþma, eins og krabba-
meini, því þetta væri ekki sambæri-
legt við neitt annað. „Til skamms
tíma var ekki upp á nein lyf að
bjóða. Nú hafa komið fram lyf sem
vitað er að stöðva sjúkdóminn í
einstökum tilfellum, og það er ekki
hægt annað en að gefa fóiki þessi
Iyf,“ sagði Haraldur. Hann sagði þó
að ljóst væri að engin lyf yrðu tekin
upp á íslandi nema að virkni þeirra
væri betri en AZT.
Af nýju lyfjunum em mestar vonir
bundnar við svokallað DDI, en gert
er ráð fyrir að það komi á markaðinn
um leið og nýju reglumar í Banda-
ríkjunum hafa verið samþykktar. í
tilraunum hafa alls 26 alnæmissjúkl-
ingar hlotið tímabundinn bata af því
og spáð er að það muni taka við af
AZT sem það lyf sem aðallega er
notað gegn alnæmi.
—
í ofninn eða pottinn. Kjötið er sérstaklega
snyrt og sneitt. Aukafita og einstakir hlutar
skrokksins sem nýtast þér illa - eins og
huppurinn, kloffitan, bringubitinn og bana-
kringlan - eru fjarlægðir. Kjötið er selt í
glærum pokum sem auðvelda þér að kanna
innihaldið og velja það í samræmi við
smekk.
Banakringla
Huppur og
Bringubiti """ kloffila.
Einstakir hlutar skrokksins, sem nýtasl þér ílla, eru fjarltegðir.
6 kg á aðeins 2.190 kr.
Verðið á „lambakjöti á lágmarksverði“
er samræmt þannig að sama verð gildir í öll-
um verslunum. Verð á lambakjöti í 1.
flokki er aðeins 365 kr/kg og í úrvals-
flokki 383 kr/kg.
SAMSTARFSHÓPUR
UM SÖLU LAMBAKJÖTS
Þú getur búlð til
marga spennantii
rétti úr lambakjöti.
Nýjasta og fituminnsta
. lambakjötið
Nú býðst þér sérstaklega valið
afbragðslambakjöt úr úrvalsflokki
og 1. flokki á stórlækkuðu verði.
Kjötið er selt í sérmerktum pokum
og í hverjum poka er hryggur, læri,
rif og frampartur.
Það fer ekki milli mála
hvað þú kaupir
Þú getur fengið allt kjötið í sneiðum eða
lærið í heilu lagi, tilbúið á griilið, pönnuna,
Stórfelld vcrðlækkun
á besta lambakjötinu