Tíminn - 27.07.1989, Blaðsíða 4
4 Tíminn
Fimmtudagur 27. júlí 1989
DEUTZ-MHR
tromlumúgavélar
Eigum fyrirliggjandi takmarkaðar birgðir af þessum vinsælu
DEUTZ-FAHR tromlumúgavélum á ótrúlega hagstæðu verði.
Vinnslubreidd 3,5 m. Hafið samband við sölumenn okkar sem
allra fyrst í Ármúla 11, eða hringið í síma 681500.
Laus staða
Staða skógræktarstjóra er laus til umsóknar.
Staðan veitist frá 1. janúar 1990.
Samkvæmt lögum nr. 3, 6. mars 1955 um
skógrækt skal umsækjandi hafa leyst af hendi próf
frá skógræktarháskóla á Norðurlöndum eða við
annan skóla jafnstæðan.
Vakin er athygli á að samkvæmt lögum nr. 58, 25.
maí 1989 um breytingu á lögum nr. 3, 6. mars
1955 skulu aðalstöðvar Skógræktar ríkisins vera
á Fljótsdalshéraði.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun og
fyrri störf, sendist landbúnaðarráðuneytinu fyrir 1.
september n.k.
Landbúnaðarráðuneytið, 25. júií 1989
Auglýsing um styrki úr
Minningarsjóði
Helgu Jónsdóttur og Sigurliða Kristjánssonar
Stjórn Minningarsjóðs Helgu Jónsdóttir og Sigur-
liða Kristjánssonar, kaupmanns, auglýsir hér með
eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum. Styrkirnir
eru ætlaðir nemendum í verkfræði- og raunvís-
indanámi.
Umsóknareyðublöð fást á aðalskrifstofu Háskóla
íslands og ber jafnframt að skila umsóknum
þangað. Umsóknarfrestur er til 8. september n.k.
og er fyrirhugað að tilkynna úthlutun fyrir septem-
berlok. Lágmarksupphæð hvers styrks mun vænt-
anlega nema kr. 250 þúsund.
Hey óskast
Hestamannafélagið Fákur Reykjavík óskar eftir að
kaupa hey. Afhendist súgþurrkað og vélbundið úr
hlöðu í september-nóvember. Þeir sem hafa
áhuga sendi upplýsingartil skrifstofu Fáks Víðivöll-
um, 110 Reykjavík.
Hestamannafélagið Fákur.
Frá steypuvinnu í Kolbeinsey. Varðskipið Óðinn liggur við eyna og er steypan hrærð um borð. Þyrlan Qytur steypu
yfír á eyna og eins og sjá má á innfelldu myndinni er nú að komast mynd á þyrlupabinn þar. Tímamyndir Tómas Heigason
Stefán Guðmundsson hefur barist lengi fyrir verndun Kolbeinseyjar:
Fagnar þessu átaki
suðurs og svipað á breidd og um
fimm metrar á hæð.
í svari samgönguráðherra Matt-
híasar Á. Mathiesen kemur fram að
miðað við allar mælingar var gert
ráð fyrir að eyjan gæti horfið algjör-
lega um miðja næstu öld, væri ekkert
gert því til vamar.
„Ég fagna því mjög að þessi
barátta mín er loksins farin að bera
árangur. Það sem vakað hefur fyrir
mér er að styrkja eyjuna og þar með
stöðu okkar íslendinga til að geta
talið hana sem einn okkar grunnlínu-
punkta sem fiskveiðilögságan er
miðuð við. Jafnframt því að þama
verði settir upp radarvarar til öryggis
fyrir sjófarendur. Ég hef einnig
minnst á að athugandi væri að þarna
yrði komið upp veðurathugunar-
tækjum, sem yrði til mikils hagræðis
fyrir sjómenn og fleírisagði Stefán
í samtali við Tímann.
Hann sagðist vona að í kjölfar
þessa framkvæmda opnuðust augu
manna fyrir því hve mikilvægt það
væri íslendingum að viðhalda Kol-
beinsey. „Ég mun halda áfram og
vona að róðurinn léttist nú eitthvað.
Að vísu ber að geta þess að málið
hefur alltaf hlotið mjög góðar undir-
tektir á Alþingi en framkvæmdir
hafa dregist á meðan eyjan hefur
sífellt brotnað meira niður,“ sagði
Stefán. jkb
Stefán Guðmundsson al-
þingismaður hefur um nok-
kurra ára skeið barist fyrir
þeim framkvæmdum sem nú
eru hafnar í Kolbeinsey.
Hann reið á vaðið með því að
bera fram þingsályktunartil-
lögu fyrir nokkrum árum þar
sem lagt var til að Alþingi
fæli ríkisstjóminni að sjá svo
um að sjómerki yrðu sett upp
á eynni. Jafnframt að athug-
anir yrðu hafnar á því h vernig
mætti tryggja að eyjan stæð-
ist heljaröfl stórviðris og ísa.
Hann sagðist í samtali við
Tímann fagna framkvæmd-
unum mjög og hyggst ekki
láta deigan síga í baráttunni
fyrir vemdun eyjarinnar.
Tillaga Stefáns var samþykkt en
lítið gert í málinu. Hann lét málið þó
ekki niður falla og ýtti á eftir því
með fyrirspurnum í tvígang. í síðari
fyrirspurninni benti Stefán á að í
elstu mælingum sem hann hefði
undir höndum, af ummáli eyjarinn-
ar, hefði hún verið 753 metrar frá
norðri til suðurs, 113 metrar frá
Stefán Guðmundsson alþingismað-
ur.
austri til vesturs og 113 metrar á
hæð. Þær mælingar eru frá árinu
1580. í nýjustu mælingum hefði
aftur á móti komið í ljós að eyjan
hefði minnkað umtalsvert, væri orð-
in tæpir fjörutíu metrar frá norðri til
AUGLÝSING
UMINNLAUSNARVERÐ
VERÐTRYGGÐRA
SPARISKÍRTEINA RÍKISSJÓÐS
FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ* ÁKR. 100,00
1984-1. fl. 01.08.89-01.02.90 1 kr. 394,98
‘Innlausnarverð er höfuðstóll, vextir, vaxtavextir og verðbót.
Innlausn spariskírteinaríkissjóðsferfram í afgreiðslu
Seðlabanka íslands, Kalkofnsvegi 1, og liggja þar jafnframtframmi
nánari upplýsingar um skírteinin.
Reykjavík, júlí 1989
SEÐLABANKIÍSLANDS