Tíminn - 27.07.1989, Side 11
10 Tíminn
Fimmtudagur 27. júlí 1989
Fimmtudagur 27. júlí 1989
Tíminn 11
Hundruð tonna viðbótarframleiðsla
af nautgripa og hrossakjöti í haust:
Kjötfjöll
leið inn
yfirfullan
markað
Útlit er fyrir að í haust myndist hér ný
„kjötfjöll“, m.a. af nautakjöti og hrossa-
kjöti, sem bætast við á þegar yfirfullan
kjötmarkað. M.a. voru kálfar í fyrrahaust
um 40% fleiri en undanfarin ár, sem
þýðir um 500-600 tonna viðbót af nauta-
kjöti í ár. Sú viðbót ein þýðir hátt í 10 kg
aukalega á hverja fjölskyldu. Þá má
búast við nokkur þúsund fleiri folöldum
til slátrunar en undanfarin ár. Allt útlit er
því fyrir að yfirstandandi „slagur“ kjöt-
framleiðenda um hylli neytenda - með
tilboðum og útsölum - sé aðeins byrjunin
á enn harðari samkeppni um “kúnnann"
í haust og vetur.
Kjúklingaframleiðendur hafa nú kynnt
þátttöku sína í keppninni með 20.000
kjúklingum sem selja skal á sérstöku
afsláttarverði og hefst sú sala í dag.
Yfirlýstur tilgangur Alifuglasölunnar sf.,
sem er sölufyrirtæki fjögurra stórra kjúkl-
ingaframleiðenda, með þessu afsláttartil-
boði er m.a. að keppa við „Lambakjöt á
lágmarksverði“ og svínakjöt sem nú er
sums staðar boðið á lægra verði en fyrir
ári.
Eftir Heiði Helgadóttur
Alifuglasalan segir að kjúklingafram-
leiðslan hafi átt undir högg að sækja, ekki
hvað síst vegna „niðurgreiðslna á ýmsum
öðrum kjötvörum sem skert hafa sam-
keppnisstöðuna verulega. Því er neysla
hér á landi enn talsvert minni en í
nágrannalöndum okkar“. Hugmyndin er
sem sagt að laga þessa markaðshlutdeild.
En ýmislegt bendir þó til að róður
kjúklingaframleiðenda gæti orðið þyngri
en ætla mætti.
vitum líka að við eigum mikið af hrossa-
kjöti gangandi úti í haga. Og þar sem
fóðurframleiðsla er í lágmarki í sumar
má búast við að töluverðu af því verði
slátrað í haust.“ Gísli sagði að þegar á s.l.
ári hafi verið giskað á að viðbótin af
nautakjöti geti numið 500-600 tonnum,
sem komi á markað eftir mitt þetta ár. í
júní hafi slátrun t.d. aukist um þriðjung
miðað við sama tíma í fyrra og búist sé
við að aukningin verði enn meiri í júlí,
ágúst og september.
Um 40% fjölgun kálfa
Á sama tíma má lesa í Hagtíðindum að
kúabændur hafi í fyrra fjölgað kálfum
sínum um rúmlega 5.000 gripi í fyrra, eða
í kringum 40% frá árinu áður. Fram-
kvæmdastjóri Framleiðsluráðs landbún-
aðarins, Gísli Karlsson, var spurður hvort
ekki blasi því við nautakjötsfjall þegar
líður á haustið til viðbótar við öll hin
„fjöllin“?
„Jú, við sjáum fram á það að það komi
mikið af nautakjöti á markaðinn. Við
Þúsundum fleiri folöld
Auk þess sem hrossum hefur að undan-
förnu fjölgað um þúsundir árlega, sagði
Gísli flest benda til að verð á heyi muni
nú tvöfaldast á milli ára. Það þýði að
hrossum muni tæpast verða fjölgað í
haust, sem aftur leiði þá til þess að
nokkur þúsund fleiri folöld komi þá til
slátrunar í haust heldur en undanfarin
haust. Að ekki sé nú talað um ef hátt verð
og skortur á heyi leiðir til að menn
• beinlínis fækki í hrossastóðum sínum.
Gísli segir bændur enga tryggingu hafa
fyrir að losna við allt þetta nautakjöt og
hrossakjöt - né á neinu ákveðnu verði.
Þessi umframframleiðsla sé öll á þeirra
eigin ábyrgð ekkert síður en hjá kjúkl-
inga- og svínabændum.
,,Gróði“ misskilningur?
Þýðir þetta þá ekki að neytendur mega
hlakka til - horfa fram á haust og vetur
með „kjötstríði“ og þar með að hver
hópur framleiðenda bjóði niður verð
fyrir öðrum?
Hvað varðar „gróða“ neytenda af
„kjötstríði" segir Gísli það útbreiddan
misskilning að þetta lága verð sé eintóm-
ur gróði - og að það geri svo sem ekkert
til þótt einn og einn verði gjaldþrota. Þeir
gjaldi ekki með öðru en eignum sínum.
Gjaldþrotin innheimt seinna
„Gjaldþrotin eru yfirleitt mun stærri
eins og við þekkjum og þá má velta því
fyrir sér hvert mismunurinn er sóttur.
Sem neytandi er ég skíthræddur um það
að þann mismun verði ég að borga í
gegnum annað hvort hærra vöruverð
síðar, ellegar í gegnum hærri vexti ef ég
þarf að fá lán, því bankastofnanirnar
verða líka að lifa. Ég er afar vantrúaður
á að þær milljónir, kanhskl' hundruð
milljóna, sem tapast í gjaldþroti bara
týnist þannig að enginn þurfi að ná í þær
aftur. Ég er því hræddur um að þessi
gjaldþrot komi fram á mér seinna og þá
meira en sem því nemur sem ég gfræði á
að fá nokkrum sinnum ódýr.a steik,“
sagði Gísli.
Óhlmju sóun á verðmaetum
„Þessari frjálsu samkeppni fylgir alveg
óhemjfi sóun á verðmætum. Bændur, fáir
og smjiir, taka þarna ákvarðanir hver í
sínu lagi - yfirleitt þegar verð er tiltölu-
lega gott vegna þess að ekki er um
offramboð að ræða. Svo enda þeir í
offramleiðslu og verðfalli þegar allt er
loks komið í fullan gang. Það eru þannig
sveiflur sem eru þekkt fyrirbrigði bæði
frá þessari og síðustu öld sem menn eru
að reyna að forðast með því að setja efri
mörk á framleiðslu, víða um heim.“
Lambakjöt á lágmarksverði hefur heldur
betur kallað á viðbrögð frá öðrum
kjötframleiðendum og hálfgerður
kjötslagur stendur nú yfir og gylliboðin
streyma til neytenda. Utlit er fyrir að
þettá gæti verið byrjunin á enn stærra
máli, því í haust stefnir í mikið
viðbótarmagn af nauta- og hrossakjöti á
markaðinn. Tímamynd Ámi Bjama
Tóku ekki mark á góðum ráðum
Kálfum settum á vetur fjölgaði úr
rúmlega 13 þús. árin 1986-87 upp í 18.200
síðasta haust, eða rösklega 5 þús. Fjölgun
geldneyta og kálfa samanlagt (34.500)
var hins vegar í kringum 3.000 gripir.
Gísli var spurður hverju þessi mikla
fjölgun í fyrra sæti.
- Það verður að fara a.m.k. hálft annað
ár eða svo aftur í tímann. í nóvember
1987 var hætt að greiða sérstök verðlaun
út á ungkálfaslátrun, sem hafði verið gert
til þess að laga markaðsstöðu, jafnframt
því sem fé var lagt í að fjarlægja gamlar
birgðir af nautakjöti. Bændum var þá
jafnframt bent á það að sníða sér stakk
eftir vexti. En þeir fóru bara ekkert eftir
þessu, sagði Gísli. Þar við bætist að
fjöldatölur Hagtíðinda munu heldur í
lægri kantinum, því eitthvað taldi Gísli
hafa „fundist“ af ungneytum við talningu
landbúnaðarráðuneytisins s.l. vetur.
1986
1987
1988
2.740
3.350
3.450
Svínum hefur fjölgað um meira en
fjórðung síðustu tvö árin og um 120% á
áratugnum.
Og fjölgun hrossa:
1980
1985
1986
1987
1988
Geldnaut:
11.600
18.800
19.400
18.500
16.300
Kálfar:
10.700=
13.800 =
13.000 =
13.100 =
18.200 =
Alls:
22.300
32.600
32.400
31.600
34.500
1980
1985
1986
1987
1988
52.300
54.100
56.400
59.200
63.500
Til marks um aukningu nautakjöts-
framleiðslu á þessum áratug má benda á
að kýr voru s.l. haust um 1.500 færri
heldur en árið 1980. Geldneytum og
kálfum hefur á sama tíma fjölgað um
55% og eru nú orðið hátt í helmingur
allra nautgripa í landinu.
Fjölgun svína á sama árabili:
1980
1985
1.550
2.580
Hrossum fjölgaði sem sjá má nokkuð
á 5. þús. á s.l. ári. Fjölgi menn ekki
hrossum í haust getur það þýtt samsvar-
andi fjölgun folaldaskrokka í frystihúsum
landsins nú í haust umfram s.l. haust.
Þótt sauðfé hafi fækkað mjög síðustu
árin, er nú til dágott „fjall“ af dilkakjöti
og ljóst virðist að landsmenn verða að
torga miklu kjöti eigi að koma í veg fyrir
fleiri og myndarlegri kjötfjöll í frystihús-
um landsins á næstu mánuðum og misser-
um. - HEI