Tíminn - 27.07.1989, Qupperneq 18
18 Tíminn
Fimmtudagur 27. júlí 1989
lllllll ÍÞRÓTTIR llllllllllBlllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll
Knattspyrna 2.flokkur karla:
Markmaður nær lamast þegar
mark fauk í bakið á honum
Það fór betur en á horfðist þegar
mark fauk niður í vonsku veðri á
laugardaginn í Kópavoginum. At-
vikið átti sér stað í leik Völsunga frá
Húsavík og ÍK Kópavogi.
Leikurinn var nýbyrjaður þegar
annað markið skyndiíega féll niður
og beint á Pál Kristjánsson mar-
kvörð Völsunga. Páll var fluttur
með skyndi á Borgarspítalann þar
sem hugað var að meiðslum hans.
Þrír hryggjarliðir brákuðust og telst
það vera mesta mildi, því ekki mátti
miklu muna að verr færi og Páll
hreinlega lamaðist. Meiðsli Páls eru
slæm og verður hann örugglega ekk-
ert meira með í knattspyrnunni í
sumar, hann var rúmfastur á Borgar-
spítalanum fram á þriðjudag en þá
fékk hann að fara og dvelst nú í
heimahúsi hér í Reykjavík.
Leiknum var hætt þegar atvikið
gerðist og var það vegna þess að
dómari leiksins var einnig vallar-
starfsmaður vallarins. Þetta einstaka
óhapp er alveg furðulegt og er alveg
ótrúlegt að mörk skuli ekki vera fest
betur niður en það að þau losni í smá
roki. Einnig má bæta því við að
leikurinn byrjaði klukkutíma of
seint. Er það furðulega framkoma
við lið sem er komið langt að, alla
leið frá Húsavík, og fyrsta sem bíður
þeirra er seinkun á leiknum sem þeir
áttu að spila.
Leikur liðanna fór ekki fram á
aðalleikvelli ÍK liðsins heldur á vara-
velli félagsins. KHG
Fatlaöir:
Robin Hood
- Haukur Gunnarsson sigrar í 100 metra hlaupi
%
•'"x' r
Haukur Gunnarsson
Nú um þessar mundir fara
fram svokallaðir Robin Hood
leikar fyrir spastíska íþrótta-
menn. Haukur Gunnarsson
íþróttamaðurinn snjalli tekur þátt
í leikunum. Keppir Haukur í 100,
200 og 400 metra hlaupi.
100 metratþlaupinu er lokið og
sigraði Haukur þar glæsilega en
hann var aðeins sjónarmun á
undan Kóreubúanum sem var í
öðru sæti. Tími þeirra reyndist
vera nákvæmlega hinn sami 13
sekúndur sléttar. í þriðja sæti var
franskur keppandi sem hljóp á
13,3 sekúndum. í undanrásunum
hljóp Haukur á tímanum 12,9
sekúndum. KHG
MARGT SMÁTT
London. Norður-írski landslið-
smaðurinn Norman Whiteside er á
förum frá Manchester United. Hann
gerði samning við enska knatt-
spyrnuklúbbinn Everton á þriðju-
daginn, en Everton borgaði 1,2
milljónir dollara fyrir kappann en
það samsvarar um 70 milljónum
íslenskra króna. Whiteside sem spil-
aði aðeins 17 ára gamall á heims-
meistarkeppninni á Spáni er annar
leikmaðurinn á tveimur dögum sem
yfirgefur Manchester United liðið.
En Paul McGrath skrifaði undir
samning hjá Aston Villa á mánudag-
inn. Whiteside gat mjög lítið leikið
með síðasta vetur vegna meiðsla.
Hannover. v-Þýska knatt-
spyrnufélagið Hannover sem leikur
í 2.deildinni v-þýsku gerði í gær
tveggja ára samning við landsliðs-
mann fráTúnis. Leikmaðurinn heitir
Nabil Maaloul og er 26 ára gamall
og hefur leikið 62 landsleiki fyrir
Túnis. Ekki fékkst gefið upp hvert
kaupverðið var.
Golf. Opna BÚFISKS-mótið,
verður haldið á Strandarvelli, laug-
ardaginn 29.júlí næstkomandi og
hefst kl. 8.00. Veitt verða 13glæsileg
verðlaun sem eru veiðileyfi og dvöl
í veiðihúsum við Rangárnar. Leikn-
ar verða 18 holur, með og án forgjaf-
ar. Skráning fer fram í golfskála
föstudaginn 28.júlí frá kl. 13.00-
22.00 í síma 98-78208.
Knattspyrna 2.deild:
Fjórir leikir í 2.deild
- Leik ÍBV og Víöis var frestað
Einherji-IR (2-2)
Einherji og ÍR skildu jöfn á
Vopnafjarðarvelli á þriðjudaginn
var. Hallgrímur Guðmundsson
gerði fyrsta mark leiksins í fyrri
hálfleik fyrir heimamenn. Og
stuttu síðar bætti Kristján Dav-
íðsson öðru marki við fyrir Ein-
herja. ÍR-ingar náðu að minnka
muninn fyrir seinni hálfleik er
Hlynur Elíasson skoraði úr víta-
spyrnu. Það var síðan Tryggvi
Gunnarsson sem jafnaði leikinn
á 57. mínútu og þar við sat (2-2)
á Vopnafirði.
Selfoss-Völsungur (2-1)
Selfyssingar unnu sanngjarnan
sigurá Völsungum (2-1) áSelfossi
í gær. Fyrri hálfleikur var fjörug-
ur en það var þó ekki fyrr en á
45. mínútu að Inga Birni Alberts-
syni tókst að skora fyrir Selfyss-
inga. Kristján Olgeirsson jafnaði
leikinn í seinni hálfleik og það
var síðan Ólafur Ólafsson sem
gerði út um leikinn er hann
skoraði úr vítaspyrnu. Selfyssing-
ar styrkja stóðu sína stöðugt í
2.deildinni og virðast vera til alls
líklegir.
Tindastóll-Stjaman (0-1)
Stjörnunni, efsta liðinu í
2.deild, fataðist ekki flugið þegar
þeir heimsóttu Sauðkrækinga í
gærkvöldi. Þeir sigruðu í leiknum
(1-0). Gífurleg barátta var í leikn-
um og ætluðu bæði lið greinilega
að sigra. Ekkert mark var skorað
í fyrri hálfleik en í þeim síðari
skoraði Heimir Erlingsson sigur-
mark Stjörnunnar. Sauðkræking-
ar sóttu mjög í seinni hálfleik en
tókst ekki að skora mark.
Leiftur-UBK (1-1)
Breiðabliksmenn brugðu sér
út á land í gærkvöldi og spiluðu
við Leiftursmenn. Leikurinn var
jafn og spennandi og verður jafn-
tefli (1-1) að teljast sanngjörn
úrslit. Það var Garðar Jónsson
sem kom heimamönnum yfir (1-0).
En Breiðabliksmanninum, Jóni
Þóri Jónssyni, tókst að jafna
leikinn áður en leiktíminn var
úti. Breiðabliksmenn voru síðan
meira með knöttinn undir lok
leiksins en þeim tókst ekki knýja
fram sigur. KHG
Margt smátt
Florence. ítalska l.deildar
félagið Fiorentina hefur keypt til sín
argentínskan landsliðsmann Osgar
Dertycia. Fiorentina var með auga-
stað á öðrum argentínskum lands-
liðsmanni Ramon Diaz en ekkert
varð úr. Þess vegna snéru þeir sér
næst að Dertycia og gerðu þriggja
ára samning við hann. Ekki fékkst
gefið upp hvert kaupverðið var.
stendur aðeins tU 4. ágúst