Tíminn - 03.08.1989, Síða 17
Fimmtudagur 3. ágúst 1989
Tíminn 17
GLETTUR
- Nýi yfirmaðurinn þinn er mikið
prúðmenni. En ef hann reynist
það ekki og fer að haga sér
ósæmilega láttu mig vita. Hann
er nefnilega eiginmaður minn.
- Loksins höfum við úr einhverju að velja í kosningun-
um. Það eru tvær konur í kjöri.
- Varst þú eitthvað að fitla við
kaktusinn minn - er það ekki?
- Ef hann minnist eitthvað á gluggann skaltu verða
aldeilis hissa.
- Ég get viðurkennt að maturinn er
mikið kryddaður, en þetta eru ýkjur.
Hvað gerirfólk
áfertugsaldri?
Patricia Wcttig er ein stjarnanna í bandarísku sjónvarpsþátt-
unum Á fertugsaldri. Hún gefur einfalda lýsingu á Iifsmynstri
fólks á þessum aldri.
Ríkissjónvarpið sýnir nú á
laugardagskvöldum banda-
ríska myndafiokkinn Á fer-
tugsaldri og gefst áhorfend-
um þar kostur á að fylgjast
með nokkrum hjónum á þeim
aldri sem hafa þekkst frá
skólaárunum. Þau höfðu átt
sína drauma og þrár, sem
virðast eiga erfitt uppdráttar
þegar fullorðinsaldrinum er
náð og hversdagslífið hefur
náð yfirhöndinni.
Sjálfsagt líta íslenskir jafn-
aldrar misjöfnum augum á
þessar lýsingar og eiga jafnvel
erfitt með að setja sig í spor
þessa vonsvikna fólks og
finnst lífsbaráttan kannski
felast í einhverju öðru en því
sem gerir Bandaríkjamönn-
um á fertugsaldri lífið súrt.
Lýsing Patriciu Wettig,
einnar stjörnu þáttanna, á
því sem fyllir líf fólks á fert-
ugsaldri er einföld. Hún
segir: Hvað er fólk á fertugs-
aldri að gera? Við borðum,
við tölum, við eigum ástar-
leiki. Og við tölum um að
borða og fara í ástarleiki og
við tölum.“ Er þetta raun-
j sönn lýsing á lífi íslendinga á
þessum aldri?
Clint Eastwood skítugur
- skítugri - skítugastur?
Bamsmóðir Clints er Rox-
anne Tunis, 59 ára gömul
kona sem býr í Denver með
dóttur þeirra og syni hennar.
Nú virðist Sondra aftur hafa
tekið gleði sína og sést oft í
félagsskap Bobbys Shriver,
systursonar Kennedybræðra
i
Sondra Locke eys nú skít yflr Clint Eastwood sem bráðum má kalla „skítuga Clint“.
Nú er í uppsiglingii í Holl-
ywood gómsætt mál fyrir þá
sem fylgjast vilja með ógöng-
um kvikmyndastjarnanna.
Clint Eastwood hefur nú yfir-
gefið Sondru Locke eftir 13
ára sambúð og hefur hún
fullan hug á því að ganga
endanlega frá honum vegna
stífni hans í fjármálum við
skilnaðinn að því sagt er.
Það þótti mikið fréttaefni
fyrir 13 árum þegar Clint
yfirgaf konu sína, Maggie,
sem hann hafði verið giftur í
31 ár, og hóf sambúð með
Söndru Locke. Skilnaðurinn
við Maggie komst þó ekki í
fréttimar vegna þess að hún
væri svo illskeytt. Hins vegar
bregður svo við nú, þegar
sagan hefur endurtekið sig
með Sondru og Clint yfirgefið
hana vegna annarrar konú,
að það eru eldglæringar á
lofti.
Sondra gerði nefnilega
ákveðnar fjárkröfur við
skilnaðinn, en færði sig svo
upp á skaftið og hækkaði
kröfurnar upp úr öllu valdi,
að því er Clint fannst, þegar
hann hikaði við. Hann stakk
þá við fótum og gaf þá yfirlýs-
ingu að hún skyldi sko hreint
ekkert fá af peningunum
hans, hann hefði sjálfur unnið
fyrir þeim hörðum höndum.
Þá upphófst skítkastið fyrir
alvöru.
Sondra hefur nú látið þá
frétt leka út að Clint sé ekki
allur þar sem hann sé séður í
kvennamálunum. Hann hafi
eignast lausateiksbarn á með-
an hann var giftur Maggie og
sé m.a.s. orðinn afi. Hins
vegar hafi hann neytt Sondru
til að láta eyða fóstri tvisvar
og heimtað að hún yrði gerð
■ ófrjó.
Og það er látið að því
liggja að hann eigi fleiri
leyndarmál í fortíðinni sem
hann kæri sig ekkert um að
komist upp á yfirborðið. En
eitthvað hefur honum orðið
iaus tungan í sambúðinni við
Sondru því að sagt er að hann
skjálfi nú á beinunum af ótta
við fleiri uppljóstranir úr
þeim herbúðum.