Tíminn - 15.08.1989, Page 1
íslenska landsliðið í handknattleikað hefja undirbúningfyrirTékkóslóvakíu:
íslenska landsliöiö sem færði heim gull frá Frakklandi. Tuttugu milljónir kostar að senda þá í A-keppnina.
Reynum við gullið
fyrir 20 milljónir
íslenska landsliðið í handbolta hefur senn
strangan undirbúning fyrir A-keppnina í Tékkó-
slóvakíu. Þar er keppt um eftirsóttasta titil í
handknattleik, sjálfan heimsmeistaratitilinn. En
það kostar peninga að halda úti landsliði á
heimsmælikvarða. Jón Hjaltalín Magnússon
formaður HSÍ telur kostnað við undirbúning og
þátttöku vera um tuttugu milljónir. Þessir pen-
ingar eru ekki til og verður að afla sem fyrst.
Eftir frækilega frammistöðu í Frakklandi þar
sem ísland hampaði gulli í B-keppninni er
viðbúið að þjóðin láti fé af hendi rakna, en Jón
Hjaltalín hefur bent á að hundrað krónur á mann
er allt sem þarf. • Bladsíða 3
FORGANGSVERKEFNI
KÓKAÍN
Afrakstur húsleitar. Kókaínskammtar tilbúnir til dreifingar.
Fíkniefnadeild lögreglunnar í
Reykjavík beinir nú kröftum sínum
að rannsókn á síauknu smygli á
kókaíni til landsins. Arnar Jensson
yfirmaður deildarinnar segir gífur-
lega aukningu vera á því magni
sem hans menn hafa lagt hald á í
ár, samanborið við síðustu ár. For-
gangsverkefni deildarinnar hefur
verið ákveðið, kókaín.
• OPNAN