Tíminn - 15.08.1989, Side 16

Tíminn - 15.08.1989, Side 16
AUGLÝSINGASÍMAR: 680001 —686300 ■ ——■ i « RÍKISsRlP NÚTÍMA FLUTNINGAR Holnarhúsinu v/Tryggvagötu, S 28822 L “O&0#- SAMVtNNUBANKI ISLANDS HF. ÁTTHAGAFÉLÖG, FYRIRTÆKI OG EINSTAKLINGAR ■ PÓSTFAX TÍMANS 687691 Heimsmarkaösverö loðnuafuröa, einkanlega lýsis í lágmarki. Jón Reynir Magnússon framkvæmdastjóri: Óáran virðist þurfa til svo verðið mjakist upp „Það lítur ekki sérlega vel út með verð á Ioðnuafurðum; lýsi og mjöli, þessa stundina að minnsta kosti, og verð á lýsi er nú í mjög miklum öldudal en heldur skár stendur til með mjölverðið þótt það sé mun lægra en það var í fyrra,“ sagði Jón Reynir Magnússon framkvæmdastjóri Síldar- verksmiðja ríkisins. eins og það er kallað og síðan búið til smjörlíki og bökunarfeiti og annað af því tagi. í fyrra fengust fyrir lýsi yfir 470 dollarar fyrir tonnið en hið háa verð þá stafaði einkum af miklum þurrkum í BNA og því brást upp- skera þar á soyabaunum og sól- blómum en úr þeim jurtum er unnin olía. Að sögn Jóns Reynis er Jón Reynir sagði að verð sem nú fæst fyrir mjölið sé nokkuð nærri meðalverði undanfarinna ára. Hann sagði að hið lága lýsisverð stafaði einkum af því að mikið framboð væri á heimsmarkaði á jurtaolíum af ýmsu tagi og einnig af lýsi til dæmis frá S-Ameríku. Lýsi og jurtaolía er að mestu notað í matvælaiðnaði og er hert alls ekki útlit fyrir uppskerubrest að þessu sinni og því ekki sennilegt að verð á lýsi hækki svo neinu nemi í bráð, en nú fást fyrir hvert tonn lýsis aðeins 165 dollarar. „Það þarf helst að vera einhver óáran ein- hvers staðar úti í heimi svo verð hækki á þessum vörum,“ sagði Jón Reynir. Varðandi mjölið sagði Jón Reynir að veiðar Suður-Ameríku- manna hefðu gengið mjög vel og framleiðsla þeirra á mjöli því auk- ist allverulega frá því sem var. En það væru aðrar blikur á lofti í sambandi við verð á mjölinu. „Markaður fyrir mjöl í Austur- löndum fjær var orðinn allveruleg- ur þannig að það hafði áhrif á framboð á mjöli hér í Evrópu. Nú . hefur þessi markaður dalað, meðal annars vegna ástandsins í Kína en Kínverjar voru orðnir stórir kaup- endur mjöls. Nú er allt í óvissu með framhald þeirra viðskipta," sagði Jón Reynir. Eitt íslenskt loðnuveiðiskip er nú farið til veiða en það er Hilmir SU 171. Jóhann Antoníusson út- gerðarmaður Hilmis sagði í gær að skipið væri komið á miðin norður af Horni en þar væru fyrir nokkur færeysk skip. Stormur væri búinn að vera á miðunum undanfarna daga og því ekkert veiðst. Nokkur óvissa hefur verið um hvaða verð loðnubræðslurnar mundu greiða fyrir loðnuna í ljósi óvissu og lágs heimsmarkaðsverðs á lýsi og mjöli. Pá hefur sú loðna sem Norðmenn og Færeyingar hafa verið að veiða að undanförnu ekki þótt góð vegna átu sem í henni er sögð vera. Verksmiðjurnar á Þórshöfn og í Krossanesi við Eyjafjörð auglýstu um helgina að þær greiddu 4 þús- und kr. fyrir tonnið af loðnu og taldi Jóhann Antoníusson það við- unandi verð. -sá Borað fyrir vegriði Margir sem leið áttu um Ártúns- brekku ráku upp stór augu þegar þeir sáu þennan mikla jarðbor að bora holu í Ártúnsbrekkunni miðri og þótti sem þarna væri nú varla staðurinn til að vera að bora eftir vatni. Með bornum er þó ekki verið að leita eftir heitu eða köldu vatni og enn síður olíu á þessum stað enda þótt meginstarf þessa tækis sé að öllu jöfnu að bora eftir vatni. f Ártúnsbrekkunni er sem sagt verið að bora holur en í þær á að koma fyrir undirstöðum vegriðs sem skilja á að umferð til gagnstæðra átta. Þegar vegriðinu hefur verið komið fyrir má vænta þess að stór- lega dragi úr slysum og árekstrum á þessum vegarkafla se^i allt of tíðir hafa verið undanfarin ar. —Sa, Tímamynd; Árni Bjarna Aurskriður féllu á Seyðisfjörð aðfaranótt laugardags: Tjónið minna en talið var Flest bendir til þess að tjón vegna aurskriðanna sem féllu á Seyðisfirði aðfaranótt laugardagsins sé minna en talið var í fyrstu. Fulltrúar Við- lagatryggingar íslands komu tii Seyðisfjarðar síðdegis í gær tU að meta tjónið og ættu niðurstöður athugunar þeirra að liggja fyrir í dag. Þrettán aurskriður, þar af fjórar mjög stórar, féllu úr fjallinu Stranda- tindi á ysta hluta bæjarins aðfaranótt laugardags í kjölfar úrhellisrigning- ar. Engin slys urðu á mönnum en tuttugu fjölskyldur yfirgáfu heimili sín um nóttina, auk þess var ein verbúð rýmd. Var fólkinu leyft að flytja heim aftur á sunnudeginum. Á þessu sama svæði eru einnig bæjar- skrifstofurnar og mörg helstu at- vinnufyrirtæki bæjarins. Fiskvinnslan Norðursíld kom ein- na verst út úr hamförunum og lengi var óttast að saltfiskbirgðir að verð- mæti 12-15 milljónir króna hefðu eyðilagst er hluti stærstu skriðunnar féll á skemmu fyrirtækisins. Nú hef- ur komið í Ijós að saltfiskurinn er óskemmdur en vatn flæddi undir palla sem saltfiskinum er staflað á. Athafnasvæði Norðursíldar svo og Síldarverksmiðju ríkisins eru illa farin og voru þau þakin stórgrýti, aur og sandi. Lítil röskun varð þó á atvinnustarfseminni. Langflest íbúðarhúsin sluppu svo til alveg við tjón en miklar skemmdir urðu á lóðum margra húsanna. Verulegt tjón varð á einu íbúðarhúsi við Hafnargötu er mikill aur flæddi inn í kjallara þess. Brjóta varð gat á útvegg hússins svo hægt væri að moka þar út. Hreinsunarstarf hófst af fullum krafti á sunnudaginn þegar unnið var að því að forða fyrirtækjum frá frekara tjóni. Eggert Lárusson bæjarverkstjóri sagði í samtali við Tímann í gær að hreinsunarstarfið gengi mjög vel en mikið væri eftir enn og ómögulegt að segja til um hvenær hreinsuninni verði lokið. Eggert sagði að aurskriður hefðu fallið áður á flestum stöðunum en ekkert í líkingu við þær skriður sem féllu á laugardaginn, enda hefðu vatnavextir, til dæmis í Fjarðaránni, verið slíkir að menn myndu ekki eftir öðru eins. Heita vatnið fór af nokkrum hluta bæjarins og hefur viðgerð ekki farið fram. Eggert sagði að sennilega hefði leiðsla farið í sundur en enn lægi ekki ljóst fyrir hvar skemmdin væri nákvæmlega. SSH Lokaslagurinn um toppsætin? f dag kemur saman til síns fyrsta fundar bankaráð hins nýja íslands- banka en fundinum hefur ítrekað verið frestað vegna óeiningar um verkaskiptingu í æðstu stjórn bankans. Morgunblaðið greindi frá því á laugardag að samkomulag hefði orðið með formönnum bankaráða Iðnaðarbanka, Verslunarbanka og Alþýðubanka um að Valur Valsson verði formaður bankastjórnar, jafnframt verði hann bankastjóri án sérsviðs. Ásmundur Stefánsson verði formaður bankaráðs fyrsta árið en Gísli V. Einarsson taki síðan við af honum. -sá

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.