Tíminn - 17.08.1989, Side 4
4 Tíminn •
Fimmtudagur 17. ágúst 1989
SIMI: 681500 - ARMULA 11
NOTAÐAR
DRÁTTARVÉLAR!
CASE IH 685 XL 4X4 árg. 1988
International 585XL árg. 1984
CASE 1394 2X4 árg. 1985
IMT 569 4X4 árg. 1985
IMT 567 2X4 árg. 1987
Zetor 5211 árg. 1986
Ford 3600 árg. 1979
MF 550 m/tækjum árg. 1977
Allar ofangreindar vélar eru í góðu lagi og
til afgreiðslu strax.
Leitið upplýsinga um hagstætt verð og
greiðslukjör.
VÉLAR OG ÞJONUSTA HF.
Járnhálsi 2, Rvík, sími 83266.
Rýmingarsala
Hankook, kóreskir
vörubílahjólbarðar
Frábær gæðadekk - Frábært verð.
1100R20 Radial með slöngu frá 18.800
1200R20 Radlal með slöngu frá 22.500
12R22.5 Radlal__frá 17.800
1000X20 NYLON Pneumant 13.800
12R22.5 Radlal Pneumant 15.800
1100X20 Notuð herdekk 3.500
1100X20 Notuð Conti/Dunlop 7.500
Barðinn h.f., Skútuvogi 2
Sími: 30501 og 84844
ÞJÓOARBÓKHLAÐAN
Tilboð óskast í loftræstirými og frágang þeirra í húsi Þjóöarbókhlöðunnar við Birkimel.
Verkinu skal að fullu lokið fyrir 15. janúar 1990.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Borgartúni 7, Reykjavík, tii og með 25. ágúst
1989 gegn 10.000,- kr. skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á sama stað, fimmtudaginn 31. ágúst kl. 11.00.
INNKAUPASTOFIMUN RÍKISINS
BORGARTUNI 7. 105 REYKJAVIK
Aflatölur yfir landið næstum þær sömu og á síðasta ári:
Fiskurinn fylgt
fólkinu „suður“?
Aflí landsmanna, bæði þorskafli og heildarafli, er mjög
svipaður og í fyrra, hvort sem Iitið er á s.l. mánuð ellegar
tímabOið frá áramótum tU júlfloka, samkvæmt tölum Fiskifé-
lagsins. Aftur á móti er mikill munur milli ára þegar litið er
til eiustakra útgerðarstaða og iandshluta. Mun meiri afli hefur
í ár borist til Suðurlands, Reykjaness og Vesturlands og þá á
kostnað hinna landshlutanna.
Afli togaranna er heldur minni í
ár (6%), afli bátanna aðeins meiri en
afli smábáta um 12% meiri en á
sama tíma og í fyrra. f júlímánuði
var 20% af öllum þorski landað úr
smábátum, en rúmlega 10% alls
þorskafla frá áramótum.
Þorskafli landsmanna var orðinn
rúmlega 234 þús.t. í júlílok sem er
um 2% (5.500 t.) minna en í fyrra.
þar af voru tæplega 28 þús.t. í
júlímánuði. Heildaraflinn í júlílok,
að loðnu undanskilinni, var um 452
þús. tonn en var um 463 þús. tonn á
sama tíma í fyrra. Par við bætast
rúmlega 607 þús. tonna.af loðnu sem
er nær sami afli og í fyrra.
Raunar má segja að allar aflatölur
yfir landið séu nær ótrúlega líkar ef
undan eru skilin grálúða, rækja og
humar. Af grálúðu hafa veiðst
53.400 tonn sem er rúmlega fjórð-
ungs aukning milli ára. Rækjuaflinn
er nú aftur á móti aðeins 11.900 tonn
sem er þriðjungi minna (6.000 t.) en
á sama tíma í fyrra. Og humaraflinn
var um 1.529 tonn sem er 20%
minna en í fyrrasumar. Ýsuveiði er
heldur meiri en í fyrra, en af karfa
og kola hefur veiðst nokkru minna.
Afli, án loðnu, jan./júlí
1989: 1988:
Suðurland 61.720 59.520
Reykjanes 117.340 103.460
Vesturland 49.370 47.520
Vestfirðir 55.790 64.700
Norðurland 86.860 99.700
Austfirðir 53.410 62.780
Erlendis_________27.510 25.080
Samtals:________452.005 462.750
Auk þess sem botnfiskurinn hefur
sótt „suður“ á árinu hefur miklu
stærri hluti loðnunnar einnig komið
í hlut staða suðvestanlands í ár
heldur en í fyrra.
Skipting aflans á milli togara og
báta á þessu ári er þannig að loðnu
meðtalinni:
Togarar: Bátar: Smábátar:
SL 14.860 148.450 913
RN 54.060 147.150 5.350
VL 18.340 51.720 5.520
VF 36.210 29.250 2.460
NL 62.700 99.390 4.600
AF 30.000 46.140 9.260
Alls: 237.780 793.450 28.100
Afli smábátanna er að lang mestu
leyti (24.160 t.) þorskur og um
þriðjungur hans er á Austfjarðabát-
um. -HEI
Hugsanlega opnast markaður í Mexíkó fyrir íslenska tækniþekkingu og -búnað:
Mexíkómenn vilja ræða
við níu iðnfyrirtæki
„Stjórnvöld í Mexíkó hafa látiö í ljós áhuga á að ræða við
níu íslensk fyrirtæki um hugsanlegan langtíma viðskiptasamn-
ing. Þessi áhugi tengist því að ríkisstjórn Salinas, forseta
Mexíkó hefur gert sjávarútveg og þróun hans að forgangs-
verkefni í atvinnumálum,“ segir í fréttatflkynningu frá
fjármálaráðuneytinu.
Ólafur Ragnar Grímsson fjár-
málaráðherra var í Mexíkó fyrir
skömmu og átti þar viðræður við
Salinas forseta en auk þess við
utanríkisráðherra, utanríkisvið-
skiptaráðherra og sjávarútvegsráð-
herra landsins og voru þeim kynntar
iðnaðarvörur og ráðgjafaþjónusta
sem íslensk fyrirtæki bjóða til sölu á
erlendum mörkuðum.
Mexíkómenn sýndu því sérstakan
áhuga að fá keyptar vélar og tæki til
að frysta og geyma sjávarafurðir,
kaupa ráðgjöf við að skipuleggja
vinnslukerfi og vörudreifmgu og
sölukerfi í og utan Mexíkó og koma
á samvinnu við þróun fiskeldis.
Ólafur Ragnar Grímsson hefur á
undanfömum árum átt ítarlegt sam-
starf við stjómvöld í Mexíkó vegna
formennsku í þingmannasamtökun-
um Parlamentarians Global Action.
Tilgangur viðræðnanna við Mex-
íkómenn nú var annars vegar að
nýta þau kynni og sambönd sem
komist hafa á til að reyna að opna
nýja útflutningsmöguleika fyrir Is-
lendinga, en hins vegar að ræða um
nokkur meginverkefni á sviði af-
vopnunarmála. -sá
Tímamynd: Pjetur
NORRÆNIR LAND-
UEKNAR Á FUNDI
Nýlega var haldinn í Reykjavík
árlegur fundur landlækna á Norður-
löndunum. Á fundinum voru lagðar
fram ársskýrslur landanna og það
helsta sem er á döfinni í heilbrigðis-
málum. Auk þess fór fram sérstök
umræða um siðfræðilega hlið erfða-
fræðirannsókna og faglegt eftirlit
með þeim.
Á meðfylgandi mynd eru land-
læknar Norðurlanda. F.v. Torbjöm
Mörk frá Noregi, Birgir Ch. Sandell
frá Álandseyjum, Matti Ruokola frá
Finnlandi, Palle Juul-Jensen frá
Danmörku, Ólafur Ólafsson frá ís-
landi, Jens Misfeldt frá Grænlandi,
Elisabet Thorsteinsson frá Færeyj-
um og fyrir aftan stendur Claes
örtendahl frá Svíþjóð. SSH
Kjarni h.f.
kannar
nyrðra
Hvers kyns skoðanakannanir hafa
rutt sér mjög til rúms hérlendis á
undanfömum ámm og þykja núorð-
ið jafn-óaðskiljanlegur hluti þjóðar-
sálarinnar sem gasgrill, video-tæki
og farsímar.
Fram til þessa hefur þéttbýlið
sunnanlands einokað þessa þjóðar-
íþrótt, en nú hefur verið gjörð hér
bragarbót á, því norðan heiða hefur
Kjami h.f. á Akureyri haslað sér
völl á þessu sviði og mun njóta
fulltingis sérfræðinga í faginu.
Kjarni h.f. býður Norðlendingum
upp á hvers kyns afbrigði kannana,
s.s. landskannanir eða svæðiskann-
anir samkv. úrtaki úr Þjóðskrá, sem
og kannanir meðai ákveðinna mark-
hópa. Einnig hyggjast þeir Kjama-
karlar bjóða fram „spumingapakka“
þar sem unnt verður að koma að
einföldum spumingum frá fleiri aðil-
um.
Kjarni er til húsa að Tryggvabraut
1 á Akureyri og sími þjónustunnar
er 96-27279. JBG.