Tíminn - 17.08.1989, Síða 4

Tíminn - 17.08.1989, Síða 4
4 Tíminn • Fimmtudagur 17. ágúst 1989 SIMI: 681500 - ARMULA 11 NOTAÐAR DRÁTTARVÉLAR! CASE IH 685 XL 4X4 árg. 1988 International 585XL árg. 1984 CASE 1394 2X4 árg. 1985 IMT 569 4X4 árg. 1985 IMT 567 2X4 árg. 1987 Zetor 5211 árg. 1986 Ford 3600 árg. 1979 MF 550 m/tækjum árg. 1977 Allar ofangreindar vélar eru í góðu lagi og til afgreiðslu strax. Leitið upplýsinga um hagstætt verð og greiðslukjör. VÉLAR OG ÞJONUSTA HF. Járnhálsi 2, Rvík, sími 83266. Rýmingarsala Hankook, kóreskir vörubílahjólbarðar Frábær gæðadekk - Frábært verð. 1100R20 Radial með slöngu frá 18.800 1200R20 Radlal með slöngu frá 22.500 12R22.5 Radlal__frá 17.800 1000X20 NYLON Pneumant 13.800 12R22.5 Radlal Pneumant 15.800 1100X20 Notuð herdekk 3.500 1100X20 Notuð Conti/Dunlop 7.500 Barðinn h.f., Skútuvogi 2 Sími: 30501 og 84844 ÞJÓOARBÓKHLAÐAN Tilboð óskast í loftræstirými og frágang þeirra í húsi Þjóöarbókhlöðunnar við Birkimel. Verkinu skal að fullu lokið fyrir 15. janúar 1990. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Borgartúni 7, Reykjavík, tii og með 25. ágúst 1989 gegn 10.000,- kr. skilatryggingu. Tilboð verða opnuð á sama stað, fimmtudaginn 31. ágúst kl. 11.00. INNKAUPASTOFIMUN RÍKISINS BORGARTUNI 7. 105 REYKJAVIK Aflatölur yfir landið næstum þær sömu og á síðasta ári: Fiskurinn fylgt fólkinu „suður“? Aflí landsmanna, bæði þorskafli og heildarafli, er mjög svipaður og í fyrra, hvort sem Iitið er á s.l. mánuð ellegar tímabOið frá áramótum tU júlfloka, samkvæmt tölum Fiskifé- lagsins. Aftur á móti er mikill munur milli ára þegar litið er til eiustakra útgerðarstaða og iandshluta. Mun meiri afli hefur í ár borist til Suðurlands, Reykjaness og Vesturlands og þá á kostnað hinna landshlutanna. Afli togaranna er heldur minni í ár (6%), afli bátanna aðeins meiri en afli smábáta um 12% meiri en á sama tíma og í fyrra. f júlímánuði var 20% af öllum þorski landað úr smábátum, en rúmlega 10% alls þorskafla frá áramótum. Þorskafli landsmanna var orðinn rúmlega 234 þús.t. í júlílok sem er um 2% (5.500 t.) minna en í fyrra. þar af voru tæplega 28 þús.t. í júlímánuði. Heildaraflinn í júlílok, að loðnu undanskilinni, var um 452 þús. tonn en var um 463 þús. tonn á sama tíma í fyrra. Par við bætast rúmlega 607 þús. tonna.af loðnu sem er nær sami afli og í fyrra. Raunar má segja að allar aflatölur yfir landið séu nær ótrúlega líkar ef undan eru skilin grálúða, rækja og humar. Af grálúðu hafa veiðst 53.400 tonn sem er rúmlega fjórð- ungs aukning milli ára. Rækjuaflinn er nú aftur á móti aðeins 11.900 tonn sem er þriðjungi minna (6.000 t.) en á sama tíma í fyrra. Og humaraflinn var um 1.529 tonn sem er 20% minna en í fyrrasumar. Ýsuveiði er heldur meiri en í fyrra, en af karfa og kola hefur veiðst nokkru minna. Afli, án loðnu, jan./júlí 1989: 1988: Suðurland 61.720 59.520 Reykjanes 117.340 103.460 Vesturland 49.370 47.520 Vestfirðir 55.790 64.700 Norðurland 86.860 99.700 Austfirðir 53.410 62.780 Erlendis_________27.510 25.080 Samtals:________452.005 462.750 Auk þess sem botnfiskurinn hefur sótt „suður“ á árinu hefur miklu stærri hluti loðnunnar einnig komið í hlut staða suðvestanlands í ár heldur en í fyrra. Skipting aflans á milli togara og báta á þessu ári er þannig að loðnu meðtalinni: Togarar: Bátar: Smábátar: SL 14.860 148.450 913 RN 54.060 147.150 5.350 VL 18.340 51.720 5.520 VF 36.210 29.250 2.460 NL 62.700 99.390 4.600 AF 30.000 46.140 9.260 Alls: 237.780 793.450 28.100 Afli smábátanna er að lang mestu leyti (24.160 t.) þorskur og um þriðjungur hans er á Austfjarðabát- um. -HEI Hugsanlega opnast markaður í Mexíkó fyrir íslenska tækniþekkingu og -búnað: Mexíkómenn vilja ræða við níu iðnfyrirtæki „Stjórnvöld í Mexíkó hafa látiö í ljós áhuga á að ræða við níu íslensk fyrirtæki um hugsanlegan langtíma viðskiptasamn- ing. Þessi áhugi tengist því að ríkisstjórn Salinas, forseta Mexíkó hefur gert sjávarútveg og þróun hans að forgangs- verkefni í atvinnumálum,“ segir í fréttatflkynningu frá fjármálaráðuneytinu. Ólafur Ragnar Grímsson fjár- málaráðherra var í Mexíkó fyrir skömmu og átti þar viðræður við Salinas forseta en auk þess við utanríkisráðherra, utanríkisvið- skiptaráðherra og sjávarútvegsráð- herra landsins og voru þeim kynntar iðnaðarvörur og ráðgjafaþjónusta sem íslensk fyrirtæki bjóða til sölu á erlendum mörkuðum. Mexíkómenn sýndu því sérstakan áhuga að fá keyptar vélar og tæki til að frysta og geyma sjávarafurðir, kaupa ráðgjöf við að skipuleggja vinnslukerfi og vörudreifmgu og sölukerfi í og utan Mexíkó og koma á samvinnu við þróun fiskeldis. Ólafur Ragnar Grímsson hefur á undanfömum árum átt ítarlegt sam- starf við stjómvöld í Mexíkó vegna formennsku í þingmannasamtökun- um Parlamentarians Global Action. Tilgangur viðræðnanna við Mex- íkómenn nú var annars vegar að nýta þau kynni og sambönd sem komist hafa á til að reyna að opna nýja útflutningsmöguleika fyrir Is- lendinga, en hins vegar að ræða um nokkur meginverkefni á sviði af- vopnunarmála. -sá Tímamynd: Pjetur NORRÆNIR LAND- UEKNAR Á FUNDI Nýlega var haldinn í Reykjavík árlegur fundur landlækna á Norður- löndunum. Á fundinum voru lagðar fram ársskýrslur landanna og það helsta sem er á döfinni í heilbrigðis- málum. Auk þess fór fram sérstök umræða um siðfræðilega hlið erfða- fræðirannsókna og faglegt eftirlit með þeim. Á meðfylgandi mynd eru land- læknar Norðurlanda. F.v. Torbjöm Mörk frá Noregi, Birgir Ch. Sandell frá Álandseyjum, Matti Ruokola frá Finnlandi, Palle Juul-Jensen frá Danmörku, Ólafur Ólafsson frá ís- landi, Jens Misfeldt frá Grænlandi, Elisabet Thorsteinsson frá Færeyj- um og fyrir aftan stendur Claes örtendahl frá Svíþjóð. SSH Kjarni h.f. kannar nyrðra Hvers kyns skoðanakannanir hafa rutt sér mjög til rúms hérlendis á undanfömum ámm og þykja núorð- ið jafn-óaðskiljanlegur hluti þjóðar- sálarinnar sem gasgrill, video-tæki og farsímar. Fram til þessa hefur þéttbýlið sunnanlands einokað þessa þjóðar- íþrótt, en nú hefur verið gjörð hér bragarbót á, því norðan heiða hefur Kjami h.f. á Akureyri haslað sér völl á þessu sviði og mun njóta fulltingis sérfræðinga í faginu. Kjarni h.f. býður Norðlendingum upp á hvers kyns afbrigði kannana, s.s. landskannanir eða svæðiskann- anir samkv. úrtaki úr Þjóðskrá, sem og kannanir meðai ákveðinna mark- hópa. Einnig hyggjast þeir Kjama- karlar bjóða fram „spumingapakka“ þar sem unnt verður að koma að einföldum spumingum frá fleiri aðil- um. Kjarni er til húsa að Tryggvabraut 1 á Akureyri og sími þjónustunnar er 96-27279. JBG.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.