Tíminn - 29.11.1989, Blaðsíða 4
4 Tíminn
Miðvikudagur 29. nóvember 1989
BONN — Helmut Kohl kansl-
ari Vestur-Þýskalands lagði
fram áætlun um sameiningu
þýsku ríkjanna og bauð Aust-
ur-Þjóðverjum efnahagsað-
stoð til að styrkja lýðræðisþró-
unina í Austur-Þýskalandi.
Umbótasinnar í Austur-Þýska-
landi sögðu að hugmyndir
Kohls væru ávísun á enn
öflugra ríkisvaldi en fyrir væri.
Þá var Edward Kennedy öld-
ungadeildarþingmaður á ferð
um Austur-Berlín, nokkuð sem
bróðir hans John Fitzgerald
missti af þegar hann mælti hin
fleygu oro „lch bin ein Berliner"
hér um árið. Kennedy er hátt-
settasti Bandaríkjamaðurinn
sem kemur til Austur-Þýska-
lands eftir að Berlínarmúrinn
hrundi.
FRÉTTAYFIRLIT
VATÍKANIÐ — Jóhannes
Páll II páfi mun spyrja Mikhaíl
Gorbatsjof forseta Sovétríkj-
anna að því hvort rómversk-
kaþólskir þegnar Sovétríkj-
anna fái fullt frelsi og hvort
stjórnvöld í Moskvu taki upp
varanleg stjórnmálatengsl við
Páfagarð.
SAN SALVADOR -
Stjórnarherinn beitti óspart
herþyrlum í átökum sem brut-
ust út að nýju í verkamanna-
hverfum San Salvador milli
skæruliða Farabundo Marti og
stjórnarhersins.
WASHINGTON - George
Bush forseti Bandaríkjanna
útilokaði að samið yrði um
samdrátt í vígbúnaði á fundi
hans og Mikhaíl Gorbatsjofs
forseta Sovétríkjanna um
næstu helgi.
RÍÓ DE JANEIRÓ -
Kosningabaráttan fyrir síðari
umferð forsetakosninganna i
Brasilíu hófst opinberlega og
Sja báðir forsetaframbjóð-
jrnir áherslu á að ná til
hinna fátæku í landinu, enda
eru fátæklingar fjölmennir í
Brasilfu.
GENF — Bandaríkjamenn er
fúlir og svekktir yfir því hve
skammt Japanar ganga í til-
boði sínu um að létta á
viðskiptahömlum í Japan, en
Japanar vilja áfram hefta innf-
lutning á landbúnaðarvörum til
að vernda innlendan landbún-
að.
RÓM — Fíatverksmiðjurnar
undirrituðu samning við Sovét-
menn um að framleiða Fíat
fyrir Rússa og binda ítalirnir
miklar vonir við sovéska bíla-
markaðinn.
AÐ UTAN
Þessir menn úr hersveitum múslíma í Líbanon hafa að líkindum lagt frá sér bókina og vatnspípuna, sem þeir gátu
notið eftir að vopnahlé komst á, því nú ríkir gífurleg spenna eftir að Michel Aoun fékk reisupassann, sem yfirmaður
stjómarhersins.
Óttast að átök kunni að brjótast út í Líbanon:
Aoun sparkað og
spenna gífurleg
Það stefnir allt í að borgarastyrjöldin blossi upp að nýju í
Líbanon eftir að ný ríkisstjórn landsins rak Michel Aoun úr
embætti yfirmanns stjórnarhersins, en Aoun hefur neitað að
láta mannaforráð sín af hendi. Sýrlendingar hafa sent
gífurlegan liðsauka til landsins og eru sýrlenskir hermenn
gráir fyrir járnum reiðubúnir til átaka við hersveitir kristinna
manna ef þær ákveða að standa að baki Aoun hershöfðingja.
Mikil spenna ríkti í Líbanon eftir
að Albert Mansour varnarmálaráð-
herra landsins tilkynnti að ríkis-
stjórnin hefði ákveðið að reka Aoun
og að hershöfðinginn Emile Lahoud
tæki við yfirstjórn hersins. Lahoud
er kristinn maróníti eins og Aoun.
Ákvörðun þessi var tekin á
tveggja klukkustunda fundi ríkis-
stjórnar sunnítamúslímans Selim
Hoss, en forseti landsins, hinn
kristni Elias Hrawi stýrði fundinum.
Hann var kjörinn forseti landsins
eftir að Rene Muawad forseti var
myrtur í sprengjutilræði í síðustu
viku.
Michel Aoun hefur neitað að láta
af stjórn hersins enda viðurkennir
hann ekki hina nýju ríkisstjórn.
Andstaða Aouns við Hrawi, hinn
nýja forseta er enn meiri en við
Muawad, enda er Hrawi mun hand-
gengnari Sýrlendingum en hinn
gengni Muawad.
Talið er næsta víst að meginhluti
kristinna hermanna muni fylgja
Aoun að málum, enda er Áoun
mjög vinsæll meðal almennra her-
manna, þó Lahoud, nýi yfirmaður
hersins njóti virðingar meðal hinna
háttsettari manna innan hersins.
Það eru ekki einungis Sýrlending-
ar sem hafa vígbúist af miklum krafti
vegna viðbúnaðsins í Líbanon eftir
að Aoun var vikið frá. Vopnaðar
sveitir Drúza undir stjórn Walids
Jumblatts og hersveitir Amalliða
undir stjórn Nabih Berris eru nú í
viðbragðsstöðu ef til átaka kemur.
Þá má geta nærri að hersveitir krist-
inna manna halda vöku sinni á
þessum tvísýnu tímum.
Óttinn við ný átök hefur orðið til
þess að götur Beirútborgar hafa
tæmst bæði í hverfum kristinna
manna og múslíma. Þá hefur fólk
flúið borgina í hundraðatali. Skólum
var lokað og börnum sumstaðar
fyrirskipað að halda sig heima fram
yfir helgi.
Tillögur Gorbatsjofs
á leiðtogafundinum
á Möltu:
Sameiginleg efna-
hagsaðstoð veitt
þróunarlöndunum
Mikhaíl Gorbatsjof forseti Sovét-
ríkjanna mun leggja það til við
George Bush Bandaríkjaforseta að
stórveldin taki höndum saman og
beiti öllum þeim ráðum sem tiltæk
eru til að leysa hinn gífurlega efna-
hagsvanda sem þróunarlöndin eiga
við að stríða. Jafnhliða muni stór-
veldin loka einhverjum af herstöðv-
um sínum í ríkjum þriðja heimsins.
Þetta kom fram í viðtali sem ítalskt
dagblað átti við Eduard Shevardn-
adze utanríkisráðherra Sovétríkj-
anna.
Shevardnadze sagði að leiðtoga-
fundur Gorbatsjofs og Bush sem
haldinn verður í herskipum við
Möltu á laugardag og sunnudag gæti
orðið til þess að flýta mjög fyrir
undirritun samnings risaveldanna
um helmings fækkun langdrægra
kjarnaflauga. Þó væri ekki að vænta
þess að leiðtogarnir undirrituðu slík-
an samning við strendur Möltu um
helgina.
Shevardnadze sagði að ef næðist
samkomulag um að draga úr hernað-
arútgjöldum vegna samninga um
samdrátt í vígbúnaði skapaðist svig-
rúm til að veita þriðjaheimsríkjum
myndarlega efnahagsaðstoð.
Bardagarnir
í San Salvador:
Ráðgjafi for-
setansmyrtur
Einn helsti ráðgjafi Alfredos
Cristianis forseta E1 Salvador var
myrtur fyrir utan hamborgarastað í
San Salvador í gær á sama tíma og
bardagar brutust út að nýju milli
skæruliða og stjórnarhersins í verka-
mannahverfum borgarinnar.
Tveir vopnaðir menn réðust að
Jose Francisco Guerrero og skutu
hann fimm skotum í brjóstið og óku
síðan á brott í hendingskasti. Guerr-
ero lést á sjúkrahúsi skömmu síðar.
Er þetta talið mikið áfall fyrir Crist-
iani forseta.
Tékkóslóvakía:
Adamec vill for-
ræði kommúnista
fyrir kattarnef
Ladislav Adamec forsætisráð-
herra Tékkóslóvakíu vill koma for-
ræði kommúnistaflokksins í land-
inu fyrir kattarnef og ætlar að taka
nýja ráðherra utan kommúnista-
flokksins inn í ríkisstjórn sína.
Þetta kom fram í viðræðum Ada-
mecs og forystumanna Borgaralegs
vettvangs, breiðfylkingar stjórnar-
andstæðinga í Tékkóslóvakíu í
gær.
Yfirlýsing þessi er rökrétt fram-
hald þeirrar þróunar sem orðið
hefur í Tékkóslóvakíu undanfarna
daga þar sem harðiínumennirnir í
forystu kommúnistaflokksins hafa
sagt af sér á sama tíma og lands-
menn hafa í milljónatali krafist
lýðræðisumbóta.
Ekki var alveg ljóst í gærkveldi
hvort Adamec væri einungis að
lýsa yfir eigin vilja eða hvort hinn
nýi flokksleiðtogi Karel Urbanek
stendur einnig að baki ákvörðun-
inni, en Urbanek tók við Milos
Jakes sem leiðtogi kommúnista-
flokksins er harðlínumennirnar
sögðu af sér á föstudag. Hins vegar
er vitað að djúpur ágreiningur ríkir
innan kommúnistaflokksins um
hve langt skuli ganga til móts við
kröfur almennings um umbætur.
Hins vegar er ljóst að Urbanic
hefur viðurkennt að nauðsynlegt
sé fyrir kommúnistaflokkinn að
ræða við forvígismenn Borgaralegs
vettvangs um umbætur í stjórnmál-
um Tékkóslóvakíu í anda umbóta-
stefnu.
Adamec forsætisráðherra lofaði
forvígismönnum Borgaralegs vett-
vangs í gær að ný samsteypustjórn
yrði mynduð í síðasta lagi 3. des-
ember og að í þeirri stjórn yrðu
ráðherrar utan kommúnistaflokks-
ins.
Tveir þriðju hlutar tékkneska
þingsins verða að samþykkja til-
lögu Adamecs um að afnema grein
þá er kveður á um forræði komm-
únistaflokksins úr stjórnarskrá
Tékkóslóvakíu.
Azerar fá stjórn
Nagorno-Karabakh
Hætt er við að blóðið renni í
vandræðahéraðinu Nagorno-Kar-
abakh á næstunni ef tekið er mið af
þeim kynþáttaátökum að undan-
förnu, sem kostað hafa mörg
mannslíf. Æðsta ráð Sovétríkjanna
ákvað í gær að breyta stöðu héraðs-
ins í þá átt að færa það aftur undir
stjórn sovétlýðveldisins Azerbaijan,
en yfirstjórn héraðsins var færð und-
ir sérstaka beina stjórn yfirvalda í
Moskvu eftir blóðbaðið fyrir tveimur
árum.
Mikill meirihluti Æðsta ráðsins
var fylgjandi því að færa yfirstjórn
héraðsins undan nefnd þeirri sem
ríkisstjórn Sovétríkjanna skipaði til
að taka við stjórn héraðsins og færa
hana undir sérstaka héraðsnefnd
sem að mestu leyti er skipuð Azer-
um. Yfirgáfu fulltrúar Armena fund
Æðsta ráðsins þegar ljóst var hvert
stefndi og tóku þeir ekki þátt í
atkvæðagreiðslunni.
1 Nagorno-Karabakh er mikill
meirihluti íbúa af armensku bergi
brotinn, enda tilheyrði héraðið
Armeníu allt þar til það var innlimað
í Azerbaijan árið 1023 og hafa
Azerar farið með yfirstjórn mála
síðan þá. Azerar eru múslímar en
Armenar eru kristnir og er viður-
kennt að héraðið hafi orðið mjög
útundan í allri efnahagsuppbyggingu
í Azerbaijan. Hafa héraðsbúar kraf-
ist þess að sameinast Armeníu.
Um fimmþúsund hermenn innan-
ríkisráðuneytisins eru staðsettir í
Nagorno-Karabakh til að halda þar
uppi röð og reglu og koma í veg fyrir
kynþáttaátök.