Tíminn - 13.12.1989, Page 4
4 Tíminn
Miðvikudagur 13. desember 1989
FRÉTTAYFIRUT
VARSJÁ — Lech Walesa
leiötoai Samstöðu fór þess á
leit ao ríkisstjórn landsins þar
sem Samstaða er í meirihluta
fái aukin völd til að endurskipu-
leggja efnahagslíf landsins.
DZAOUDZI — Hvítir mála-
liðar sem hafa setið við völd á
Comoros eyjum hafa krafist
þess að fá tryggt hæli í Frakk-
landi ef þeir leggja niður völdin.
KAÍRÓ — Muammar Gadd-
afí leiðtogi Líbýu sem nú hýsir
fyrrum fjandmanna sinn Hosni
Mubarak forseta Egyptalands,
sagði að Arabaríkin þyrftu ekki
að skiptast á sendiherrum, svo
náin væru samskipti þeirra.
Heimsókn Mubaraks var mjög
óvænt og dvelur hann með
Gaddafí í Bedúínatjaldi
leiðtogans í bænum Sirte.
WASHINGTON — Banda-
ríkjastjórn hefur aefið í skyn að
möguleiki sé á áð Bandaríkja-
menn selji Kínverjum þrjá fjar-
skiptahnetti sem kyrrsettir voru
þegar George Bush Banda-
ríkjaforseti setti vopnasölu-
bann á Kína í kjölfar blóðbaðs-
ins á Torgi hins himneska
friðar.
SOFIA — Rúmlega 14 þús-
und Búlgarar héldu á logandi
kertum a útifundi nærri höfuð-
stöðvum kommúnistaflokksins
til að þrýsta á hraðari lýðræði-
súrbætur í landinu. Mótmælaj
fundurinn sem er sá fjórði á
tveimur dögum var haldinn
þrátt fyrir að Petar Mladenov
leiðtogi kommúnistaflokksins
hafi deginum áður lofað frjáls-
um kosningum, viðræðum við
stjórnarandstöðuhópa og að
kommúnistar muni láta af ein-
ræði sínu.
BELGRAD - Hópur serbn-
eskra menntamanna segist
hafa myndað stjórnmálaflokk
sem sé fyrsti stjórnarandstöðu-
flokkurinn í Serblu, stærsta
lýðveldi Júgóslavíu.
útlónd HHHIIHIlI''iJ'rlillilllllllHIIHHHHii.i.ii', 'J1HHHIHHHIiilll!iI];l;ii;:llll!IIIHHHHHIIII:i.ilii.iiiS]1 lillllllllllllllHHHHIIIIi!.l;i.l;l:l::.............................IIIIIH...........................lll......
Víetnamskt flóttafólk tekur land í Hong Kong. Nú hafa bresk stjórnvöld og yfirvöld í Hong Kong hafið
nauðungarflutninga á þessu fólki aftur til Víetnams.
Fyrstu hópar víetnamskraflóttamanna sendir frá Hong Kong til Víetnams:
Flóttamannahjálp SÞ
fordæmir Breta fyrir
nauðungarflutningana
Flóttamannahjálp Sameinuðu þjóðanna for-
dæmdi bresk stjórnvöld harðlega í gær eftir að
fyrstu hóparnir af víetnömsku flóttafólki sem leitað
hafa hælis í Hong Kong voru sendir nauðugir til
Víetnams.
Telur yfirmaður flóttamanna-
hjálparinnar að nauðungarflutning-
amir væm ekki einasta ómannúðleg-
ir með afbrigðum, heldur væm að-
farirnar til þess fallnar að koma í veg
fyrir að bátafólkið sem flúið hefur til
Hong Kong fáist nokkurn tíma til að
snúa heim af fúsum og frjálsum
vilja.
Lögreglumenn klæddir hjálmum
sóttu fimmtíu og einn ólöglegan
flóttamann frá Víetnam í öryggis-
fangelsi í Hong Kong snemma í
gærmorgun og fluttu fólkið grátandi
til flugvallarins í þessari bresku ný-
lendu, en þar beið þess flugvél sem
flutti fólkið til Víetnams að nýju.
Yfirmaður flóttamannahjálpar
Sameinuðu þjóðanna í Hong Kong,
Robert Van Leeuwen, sagðist hafa
ítrekað reynt að fá upplýsingar frá
stjórnvöldum um þessa nauðungar-
flutninga, en ekkert orðið ágengt.
Flóttamannahjálpin hefur á
undanfömum vikum reynt að fá
víetnamskt flóttafólk sem lagt hefur
líf sitt í hættu til að flýja á lélegum
bátum frá Víetnam til Hong Kong,
til þess að flytja sjálfviljugt heim á
ný. Víetnömsk stjómvöld hafa heit-
ið því að fólkið muni ekki verða fyrir
neinum óþægindum þótt það snúi
aftur.
Fimmtíu og sjöþúsund víetnamsk-
ir flóttamenn em nú í Hong Kong,
en yfirvöld viðurkenna ekki nema
þrettán þúsund þeirra sem eiginlega
flóttamenn. Em hinir einungis taldir
hafa flúið fátækt, en ekki stjómar-
farið sem slíkt. Hefur vera þessa
fólks valdið yfirvöldum í Hong Kong
töluverðum erfiðleikum að undan-
förnu, þar sem hreinlega er ekki
pláss fyrir það.
Breska stjómin sem ákvað nauð-
ungarflutningana í samráði við yfir-
völd Hong Kong hefur verið mjög
harðlega gagnrýnd af ríkjum víðs
vegar um heiminn. Þrátt fyrir það
ítrekaði Margaret Thatcher forsætis-
ráðherra Breta að nauðungarflutn-
ingarnir myndu fara fram eftir áætl-
un.
Farabundo
Marti haf na
vopnahléi
Skæruiiðar Farabundo Marti
þjóðfrelsisfylkingarinnar í E1 Salva-
dor höfnuðu áskorun forseta Mið-
Ameríkuríkja um að hætta nú þegar
árásum á sveitir stjórnarhersins í
landinu og hefja friðarviðræður.
Áskomn þessi var samþykkt á
stormasömum fundi forsetanna
fimm sem nær því fór út um þúfur
þegar Jose Azcona forseti Hondúras
yfirgaf leiðtogafundinn eftir hörð
orðaskipti við Daníel Ortega forseta
Níkaragva. Azcona kom hins vegar
aftur inn á fundinn og undirritaði
sameiginlega áskorun forsetanna
fimm.
I yfirlýsingunni vom ekki einungis
skæmliðar Farabundo Marti hvattir
til að hætta hernaði sínum og ganga
að samningaborðinu, heldur vom
Kontraliðar sem berjast gegn ríkis-
stjóm Sandínista í Níkaragva hvattir
til hins sama og að taka þess í stað
þátt í kosningunum sem fram eiga
fara í landinu 24. febrúar.
Forsetakjör-
inu frestað
Tékkneska þingið frestaði í
gær kjöri nýs forseta landsins, en
til stóð að velja eftirmann Gust-
avs Husaks sem sagði af sér
embætti um helgina að kröfu
Borgaralegs vettvangs. Búist
hafði verið við að Vaclav Havel
einn helsti leiðtogi Borgaralegs
vettvangs yrði kjörinn forseti, en
atkvæðagreiðslu var frestað eftir
að þingflokksformaður kommún-
ista lagði til að forsetinn yrði
kjörinn í þjóðaratkvæðagreiðslu.
Samkvæmt stjómarskrá Tékkó-
slóvakíu á þingið að kjósa forseta
og það fyrir 24. desember, en
Anton Blazej þingflokksformað-
ur kommúnista, sem hafa 242
þingmenn af 350, lagði til að
stjómarskránni yrði breytt á þann
veg að þjóðin veldi forsetann
beint.
Tillaga þessi er túlkuð sem
tilraun kommúnista til að fresta
forsetakjörinu, en næsta víst var
talið að Havel yrði kjörinn, en
hann nýtur gífurlegs stuðnings
meðal almennings.
James Baker utanríkisráöherra Bandaríkjanna í övæntri heimsókn til Hans Modrows
forsætisráðherra Austur-Þýskalands:
Bandaríkin stydja heilshugar
umbætur í Austur-Þýskalandi!
James Baker utanríkisráðherra Bandaríkjanna hélt í gær
ræðu í Vestur-Berlín þar sem hann hvatti til myndunar nýrrar
Evrópu þar sem samstarf ríkja álfunnar yrði í fyrirrúmi.
Utanríkisráðherrann lét ekki standa við orðin tóm heldur hélt
ásamt föruneyti til Austur-Þýskalands til Potsdam og ræddi
stundarlangt við Hans Modrow forsætisráðherra Austur-
Þýskalands.
James Baker lýsti stuðningi
Bandaríkjanna við umbótastefnu
ríkisstjórnar Hans Modrows í Aust-
ur-Þýskalandi, á fundi þeirra félaga.
-Við ræddum nokkuð lengi um
mikilvægi þess að umbætumar héldu
áfram á friðsamlegan og stöðugan
hátt. Það umfram allt annað sýnir
þau pólitísku skilaboð sem við vild-
um koma áleiðis hér í dag.
Við viljum láta fólkið í Austur-
Þýskalandi vita um stuðning okkar
við þær umbætur sem fram fara í
þessu landi, sagði James Baker við
fréttamenn eftir fundinn með
Modrow.
Baker sagðist hafa tjáð Modrow
að hann væri einstaklega ánægður
með hringborðsumræðurnar sem
Modrow hefur haldið með stjórnar-
andstöðuhópum, en þær umræður
hafa leitt til þess að frjálsar kosning-
ar voru ákveðnar í Austur-Þýska-
landi í maímánuði.
Heimildarmenn í föruneyti
Bakers, sem ekki vildu láta nafna
sinna getið, sögðu að Modrow hafi
fullvissað Baker um að ákvörðuninni
um kosningar og efnahagsumbætur
yrði ekki hnikað. Þá hafi Baker
einnig lofað Modrow að Bandaríkja-
menn væru reiðubúnir að veita Aust-
ur-Þjóðverjum aðstoð við að rétta
við efnahag landsins.
Ekki var rætt um sameiningu
þýsku ríkjanna.
-Þetta er fullnægjandi, viðræður
eru hafnar. Ég geri ráð fyrir að
þessar viðræður munu leiða til sam-
vinnu, sagði Modrow eftir fundinn.
Hinum óvænta fundi ku hafa verið
komið á eftir að Richard Barkley
sendiherra Bandaríkjanna í Austur-
Þýskalandi hafði lagt mjög hart að
bandarískum stjómvöldum að sýna
stuðning sinn við umbótastefnuna í
Austur-Þýskalandi í verki. Ogstyðja
þannig við bak umbótasinna sem
eiga við ýmsa erfiðleika að glíma.
James Baker er fyrsti utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna sem ræðir
við leiðtoga Austur-Þýskalands á
austur-þýskri storð.
Annars hóf Baker daginn í gær
með morgunverðarfundi með Helm-
ut Kohl kanslara Vestur-Þýskalands,
en Kohl hafði gert Bandaríkjamönn-
um og öðrum vestrænum ríkjum
þann grikk að leggja fram áætlun í
tíu liðum sem miðaðist að samein-
ingu þýsku ríkjanna, án þess að
ráðfæra sig við bandamenn sína í
vestri. Það hefur farið fyrir brjóstið
á ýmsum, svo sem Frökkum og
jafnvel Bandaríkjamönnum.
Janies Baker, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna.