Tíminn - 13.12.1989, Side 20
AUGLYSINGASIMAR: 680001 — 686300
RÍKISSKIP
NÚTÍMA FLUTNINGAR
Halnarhúsinu v/Trvggvagötu,
S 28822
SAMVINNUBANKINN
í BYGGÐUM LANDSINS
1 S
NORÐ- AUSTURLAND á f \
PÓSTFAX
TÍMANS
687691
DAGAR TIL JOLA
Tíniimi
MIÐVIKUDAGUR 13. DESEMBER 1989
Ráöherrafundir EB og EFTA samþykktu að hefja formlegar viðræður um
evrópska efnahagssvæðið. Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra:
Leiðtogar Evrópubandalagsríkjanna sam-
þykktu og staðfestu á fundi sínum í Strassborg
aÍL Evrópubandalagið gengi til samninga við
EFTAríkin um stofnun evrópsks efnahagssvæð-
is og lýstu sig reiðubúna til að staðfesta það á
sameiginlegum fundi utanríkisráðherra beggja
aðila sem haldinn verður 19. desember.
/ .
„Af EFTA hálfu hefur orðið
sama niðurstaða hér í Genf. Það
liggur því fyrir að efasemdum um
framhaldið hefur verið eytt. Hér
eftir má slá því föstu að formlegir
fundir muni byrja einhverntíma á
fyrri hluta árs 1990 og af beggja
hálfu er því lýst yfir að menn
stefni að því að útlínur samnings
liggi fyrir um mitt ár. Viðræðum
verði síðan lokið fyrir árslok 1990
þannig að hið sameiginlega evr-
ópska efnahagssvæði geti komið
til framkvæmda á sama tíma og
Evrópubandalagið lýkur sínum
sajnrunaferli fyrir árslok 1992,“
sagði Jón Baldvin Hannibalsson
utanríkisráðherra í gær.
Utanríkisráðherra sagði að
þessi niðurstaða staðfesti að þær
tímaáætlanir sem settar hefðu ver-
ið í upphafi könnunarviðræðna
EFTA og EB í lok apríl hefðu
staðist eins og stafur á bók.
Hann sagði að annað meginum-
ræðuefni fundarins hefðu verið
atburðir í A-Evrópu og um það
efni hefði verið samin sérstök
ályktun þar sem fram kæmi
ánægja með og stuðningur við
þróun mála í átt til pólitísks lýð-
ræðis, markaðskerfis í efnahags-
málum, réttarríkis og viðurkenn-
ingu á mannréttindum í ríkjum
A-Evrópu.
Utanríkisráðherra sagði að ný-
næmi væri að ráðherrar EFTA
gerðu póiitískar ályktanir af þessu
tagi en stuðningur við A-Evrópu-
ríki fælist í þrennu: í fyrsta lagi
væri um að ræða tvíhliða samskipti
ríkjanna. í annan stað væri um að
ræða samskipti EFTAríkjanna
sem heildar við einstök ríki A-
Evrópu, svo sem Júgóslavíu og
Ungverjaland.
A fundinum hefði verið endan-
lega staðfest áætlun um að stofna
sérstakan iðnþróunarsjóð fyrir
Júgóslavíu að upphæð 100 millj-
Jón Baldvin Hannibalsson,
utanríkisráðherra.
ónir dala. Hvað varðaði Ung-
verjaland þá hefði verið tekið
jákvætt í tillögur sem Ungverjar
hafa lagt fyrir EFTA um sameigin-
lega yfirlýsingu EFTA og Ung-
verjalands sem kveður á um nán-
ara formlegt samstarf nefnda sem
hver um sig kanni sérstök svið í
samskiptum Ungverja og EFTA-
landanna með það að framtíðar-
markmiði að geta stefnt að frí-
verslunarsamningi milli EFTA og
Ungverjalands.
Utanríkisráðherra lætur af for-
mennsku í ráðherranefnd EFTA-
ríkjanna nú um áramótin og við
taka Svíar. Utanríkisráðherra
sagði að á fundinum í gær hefði
verið annar tónn í Svíum en var
þegar íslendingar tóku við foryst-
unni. Hann sagðist ekki í annan
tíma hafa orðið að sitja undir jafn
miklum lofræðum þeirra og raun-
ar annarra vegna frammistöðu
íslendinga í viðræðunum
Á myndinni má sjá aðalspenninn í nýju aðveitustöðinni í Hafnarfirði.
Tímamynd Árni Bjarna
, , r *sesss?»s ~w—-é r~
wm rr Jtó * œi jff 'Émmam íi / iHII
Hafnarfjörður:
Ný aðveitustöð
Rafveita Hafnarfjarðar hefur tek-
ið í notkun nýja aðveitustöð. Raf-
magnið til nýju s öðvarinnar kemur
frá aðveitustöð 1 andsvirkjunar við
Hamranes. Spen lan á aðflutnings-
línunni er 132 þú lund volt og eykst
orkuflutningsgeta til bæjarins marg-
falt miðað við flu! ningsgetu Hafnar-
fjarðarlínunnar fr.i Elliðaánum, sem
verður innan skamms lögð niður.
Um leið og ;.ðveitustöðin var
tekin í notkun var spenna á há-
spennudreifikerfinu í bænum hækk-
uð úr 6000 voltum í 11000 volt. Við
þetta eykst flutningsgeta kerfisins
um 83%, spennufall og orkutap
lækkar verulega og rekstraröryggi
eykst.
í gær voru 85 ár liðin síðan
Jóhannes Reykdal trésmíðameistari
tók í notkun rafstöð við Hamars-
kotslæk, þar sem trésmíðaverkstæð-
ið Dvergur er í dag. Hann notaði
rafmagnið fyrir trésmíðaverkstæði
sitt, sem var vélvætt og einnig leiddi
hann rafmagn í hús sitt að Brekku-
götu 2. í framhaldi af því fengu 15
önnur hús rafmagn frá stöðinni.
Þetta var fyrsta almenningsrafveita
á landinu og þar með upphafið að
rafvæðingu landsins. -EÓ
Stærsta strandeldisstöð landsins
Lindalax hf. í Vatnleysustrandar-
hreppi var tckið til gjaldþrota-
skipta í gær. Skuldir fyrirtækisins
eru um einn milljarður króna, en
ekki er að fullu ljóst hversu miklar
eignir Lindalax á upp í skuldirnar.
Fyrirtækið fékk greiðslustöðvun
í september og átti greiðslustöðv-
unartíminn að renna út 27. des-
ember. Tímann átti að nota til að
endurskipuleggja reksturinn og fá
inn nýtt hlutafé, sem ekki tókst.
Skuldimar eru um 1 milljarður og
eru veðkröfur þar af um 750 millj-
ónir og almennar ótryggðar kröfur
um 210 miiljónir. Stærstu veð-
kröfuhafar eru Iðnaðarbankinn og
Den Norskc Kreditbank.
f fyrirtækinu eiga íslendingar
rúman mcirihluta, en Norðmenn
eiga afganginn. Bústjórar hafa ver-
ið skipaðir.
-ABÓ
Sinfónían ferðast
Dagana 12.-15. desember fara fé-
lagar úr Sinfóníuhljómsveit íslands í
sínar árlegu heimsóknir á sjúkrahús
og stofnanir í Reykjavík og ná-
grenni, og verður dagskrá sem hér
segir:
13. desember
kl. 10.00 Hrafnista
í Reykjavík
Vífilsstaðir
geðdcild
Hvítabandið
Tjaldanes
kl. 10.30 Reykjalundur
kl. 11.00 Vífilsstaðir
kl. 11.15 Hlíðarbær
Droplaugast.
Skálatún
kl. 13.00 Landspítali
Dalbraut
Tréblásaraveit
Strengjasveit
Málmblásarasveit
Tréblásarasveit
Strengjasveit
Málmblásarasveit
Tréblásarasveit
14. desember
kl. 10.00 Kleppur Málmblásarasveit
Seljahlíð Tréblásarasveit
Sólvangur —
kl. 10.15 Borgarspítali Stréngjasveit
kl. 11.00 St.Jósefsp. Tréblásarasveit
kl. 11.15 HátúnlO Strengjasveit
Sunnuhlíð . —
Grensásdeild Tréblásarasveit
Kópavogshæli Málmblásarasveit
kl. 13.00 Vogur Tréblásarasveit
Hrafnista,
í Hafnarfirðir Tréblásarasveit
Hátún 12 Strengjasveit
15. desember kl. 11.00 Elliheimilið
Grund Málmblásarasveit
Á efnisskrá eru lög sem tengjast
jólunum.