Fréttablaðið - 26.02.2009, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 26.02.2009, Blaðsíða 1
Sími: 512 5000MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI DÓMSMÁL Tveir íslenskir karl- menn um fimmtugt hafa verið ákærðir af ríkissaksóknara fyrir að hafa staðið saman að innflutn- ingi á rúmlega 1,8 lítrum af kóka- íni í vökvaformi frá Hondúras hingað til lands. Efnin hafi þeir ætlað til sölu. Að beiðni annars mannsins sendi ónafngreindur maður fíkni- efnin með hraðsendingafyrirtæk- inu FedEx til Íslands á heimilis- fang hins mannsins. Fíkniefnin fundust fyrst við leit lögreglunnar á Miami í Banda- ríkjunum hinn 18. september. Þau voru send lögregluyfirvöld- um á Íslandi þar sem þeim var skipt út fyrir gerviefni. Sending- in var síðan afhent manninum sem hún var stíluð á undir eftir- liti lögreglu 21. september. Hann afhenti vitorðsmanni sínum efnin. Sá síðarnefndi hugðist koma þeim í duftform og afhenda til sölu- dreifingar. Báðir mennirnir stóðu í þeirri trú að sendingin innihéldi fíkniefni. Þá er annar mannanna einnig ákærður fyrir að hafa verið tek- inn í fjögur skipti með talsvert magn af mismunandi fíkniefnum í fórum sínum, einkum þó kókaín. - jss FIMMTUDAGUR 26. febrúar 2009 — 50. tölublað — 9. árgangur VEÐRIÐ Í DAG LILJA GUNNARSDÓTTIR Á yfir fjörutíu pör af flottum sokkabuxum • tíska • heimili Í MIÐJU BLAÐSINS Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447 SKÓR geta verið hin mesta heimilisprýði. Skódella virðist nokkuð algeng og fyrir fólk sem á samlit skópör í stöflum getur verið ráð að raða þeim smekklega í tröppu eða í forstofugang. Um leið skapast frekari not fyrir pörin sem annars rykfalla inni í skáp. „Ég er svo heppin að vinna í heild-sölu sem selur sokkabuxur þannig að ég get auðveldlega nálgast þær. Hins vegar er galli á gjöf Njarðar þar sem að nú á ég ekkert nema sokkabuxur,“ segir Lilja Gunnars-dóttir og brosir en hún segist lík-lega eiga yfir fjörutíu pör af sokka-buxum. „Ég freistast yfirleitt til að verða mér úti um þær ýja ð að svörtum fötum en annars klæð-ist ég líka oft jarðlitum þar sem ég er rauðhærð. Fötin mín eru oftast einlit og einföld,“ útskýrir hún. Stígvélin fékk hún í Focus í Kringlunni fyrir tveimur árum og endast þau vel. „Í fyrsta lagi eru þau mjög þægileg en auk þhalda þ é legt og er pilsið í miklu uppáhaldi, enda þörf á góðu pilsi þegar maður á svona stóran lager af sokkabux-um,“ segir Lilja kímin og nefnir að fötin sín þurfi að vera þægi-leg og kvenleg. „Jakkann fékk égsíðan í Zöru en h Dökkt og dömulegtAuðvelt er að brydda upp á nýjungum í klæðaburði með mismunandi sokkabuxum og segist Lilja Gunn- arsdóttir eiga ógrynnin öll af þeim, enda hæg heimatökin þar sem hún vinnur í heildverslun. Lilja er forfallinn sokkabuxnaaðdáandi og klæðist hér köflóttum sokkabuxum. Annars lýsir hún fatastíl sínum sem svörtum og kvenlegum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI telpurS onuK r Lágmúla 9 • 108 Reykjavík • Sími 581 3730 • Bréfasími 581 3732jsb@jsb.is • www.jsb.is E F L IR a lm a n n a te n g s l / H N O T S K Ó G U R g ra f í s k h ö n n u n Komdu á rétta sporið í ræktinni!l Tveggja vikna námskeið í tækjasal með persónulegri leiðsögn og aðhaldi l Tilvalið að mæta með vinkonunum – hámark 5 í hópl Leiðbeiningar um mataræðil Mæling og vigtun í byrjun og enda námskeiðsTímar alla virka daga nema föstudaga7:15-8:15, 12:00-13:00 og 17:00-18:00Laugardagar: 10:30 og 11:30 Innritun stendur yfir í síma 581 3730 Staðurinn - Ræktin Velkomin í okkar hóp! Stutt og strangt S&S stutt ogstrangt FERMINGAR Skreytingar, veisluföng og föt á fermingarbörn Sérblað um fermingar FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG fermingarFIMMTUDAGUR 26. FEBRÚAR 2009 Áttræð myndasöguhetja Borgarbókasafn Reykjavíkur og Myndlistaskólinn í Reykjavík efna til samkeppni í tilefni af 80 ára afmæli Tinna. TÍMAMÓT 22 STEFÁN GUNNARSSON Botnlanginn afhentur í fyrsta sinn í kvöld Verðlauna verstu auglýsingar ársins FÓLK 30 Klífur Hvannadalshnjúk Sveppi fer á hæsta tind landsins ásamt Haraldi Ólafssyni pólfara. FÓLK 38 FÓLK „Þetta verður rosa spenn- andi verkefni af því að við ætlum að skoða Banda- ríkin eins og eng- inn hefur séð þau áður,“ segir Ingólf- ur Júlíusson ljós- myndari. Hann verður þátttakandi í nýjum ferðaþætti sem verður tekinn upp í Bandaríkjunum á næstunni. Um einn prufuþátt verður að ræða þar sem Ingólfur og tveir þáttastjórnendur skoða landið frá nýstárlegu sjónarhorni. Í þættin- um mun Ingólfur tjá sig um það sem fyrir augu ber ásamt stjórn- endunum. Einnig ætlar hann að festa mannlífið á filmu. Ef þátturinn fær mikla athygli verða fleiri slík- ir gerðir og þeir sýndir um gjör- völl Bandaríkin og hugsanlega víðar. -fb/ sjá síðu 38 Ingólfur Júlíusson ljósmyndari: Í bandarískum ferðaþætti INGÓLFUR JÚLÍUSSON ÚRKOMULOFT NÁLGAST Í dag verður lengst af hæg austlæg átt, en 8-15 m/s sunnan og vestan til í kvöld. Stöku él með ströndum en snjókoma eða slydda fyrir sunnan og vestan síðdegis og í kvöld. VEÐUR 4 -1 -5 -6 7 -2 FJÖR Á ÖSKUDEGI Miðborgin fylltist í gær af kátum börnum í grímubúningum sem héldu öskudaginn hátíðlegan. Öskudagur er upphafsdagur lönguföstu og er hann alltaf haldinn á miðvikudegi í sjöundu viku fyrir páska. Dagurinn er sérlega mikilvægur í kaþólskri trú þar sem hann er dagur iðrunar fyrir drýgðar syndir auk föstunnar. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Rætur hrunsins Danir hafa breytt stjórnar- skrá sinni til að draga úr valdi ráðherra og auka stjórnskipulegt vald þingsins, segir Þorvaldur Gylfason. Í DAG 20 Tveir íslenskir karlmenn um fimmtugt ákærðir fyrir fíkniefnainnflutning: Fljótandi kókaín frá Hondúras KÓKAÍN Koma áttti kókaínvökvanum í duftform og selja. EFNAHAGSMÁL Breska fjármála- eftirlitið vill ekki tjá sig um orð Davíðs Oddssonar seðlabanka- stjóra, um að miklir fjármagns- flutningar úr dótturfélagi Kaup- þings hefðu valdið því að bresk stjórnvöld settu hryðjuverkalög á Landsbankann í Bretlandi. Það eina sem fjölmiðlafull- trúi eftirlitsins staðfestir er að ástæða þess að gripið hafi verið til aðgerða gegn Singer & Fried- lander, dótturfélagi Kaupþings, hafi verið sú að félagið hafi ekki átt nægilegt fé til að halda áfram rekstri. Fyrrum forstjóri Kaupthing Singer & Friedlander, Ármann Þorvaldsson, neitar því að óeðli- legir fjármagnsflutningar hafi verið úr félaginu á þessum tíma og tiltekur sérstaklega upphæðir þær sem Davíð Oddsson hafði á hraðbergi. - kóþ Breska fjármálaeftirlitið: Segir bankann hafa skort fé Ensku liðin unnu Liverpool og Chelsea unnu bæði góða sigra í 16-liða úrslitum Meistaradeild- arinnar í gær. ÍÞRÓTTIR 34 STJÓRNMÁL Frumvarp um stjórn- skipulagsbreytingar á Seðlabanka Íslands var afgreitt úr viðskipta- nefnd í gær. Það verður því tekið til þriðju umræðu í dag og líklega afgreitt sem lög síðdegis. Seðlabankastjóri verður settur til bráðabirgða um leið og lögin taka gildi. Heimildir Fréttablaðs- ins herma að búið sé að ganga frá bráðabirgðaráðningunni. „Það segir í bráðabirgðaákvæðinu eftir breytingu að tvær grein- ar í starfsmannalögunum gildi ekki um þessa bráðabirgðaskip- un,“ sagði Álfheiður Ingadóttir, formaður viðskiptanefndar eftir nefndarfundinn í gær. „Annars vegar að það þarf ekki að aug- lýsa og þar sem verið er að setja mann í þetta starf, en ekki skipa, þá er ekkert sem mælir gegn því að hann sé útlendingur.“ Heimild- ir Fréttablaðsins herma að sú leið hafi verið valin að leita út fyrir landsteinana eftir manni til að gegna starfinu tímabundið en það hefur ekki fengist staðfest. Samþykkt var breytingartil- laga sem felur það í sér að pen- ingastefnunefnd fær það verkefni að gefa út viðvörun meti hún það svo að hætta steðji að efnahags- kerfinu. „Ef markmiðið með frumvarp- inu hefur verið að koma seðla- bankastjórum frá þá hefur verið farin mikil fjallabaksleið,“ segir Birgir Ármannsson, fulltrúi Sjálf- stæðisflokksins í viðskiptanefnd. Hann segir ennfremur að vinnu- brögð fulltrúa stjórnarflokkanna hafi einkennst af taugaveiklun og líklega hafi það stafað af því að sendinefnd Alþjóðagjaldeyris- sjóðsins sé að koma í dag og allt kapp sé lagt á að koma núver- andi bankastjórum frá af þeim sökum. „Síðan hefur verið sagt að þetta sé gert til að eyða óvissu en það er ekki rétt,“ bætir hann við. „Því nú verður bráðabirgðabankastjóri settur í stafið en það geta liðið vikur og mánuðir uns nýir seðla- bankastjórar taka við til að sinna starfinu til famtíðar.“ - jse Nýr Seðlabankastjóri tekur til starfa í dag Nýtt Seðlabankafrumvarp var afgreitt úr viðskiptanefnd í gærkvöldi. Gengið hefur verið frá því hver tekur við stjórninni til bráðabirgða. Hann verður settur í starfið þegar lögin taka gildi. Heimildir blaðsins herma að hann sé útlenskur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.