Fréttablaðið - 26.02.2009, Blaðsíða 2
2 26. febrúar 2009 FIMMTUDAGUR
Össur, fær ekki fólkið hland
fyrir hjartað?
„Nei, því nú getur það létt á sér
með góðri samvisku.“
Myndum af íslenskum útrásarvíkingum
verður komið fyrir í hlandskálum
karlaklósettsins á tónleika- og skemmti-
staðnum Sódómu Reykjavík, sem
verður opnaður í miðbænum 6. mars
næstkomandi. Össur Hafþórsson er einn
af eigendum staðarins.
FÓLK „Þegar ég fann flöskuskeyt-
ið kom yfir mig þessi eftirminni-
lega barnslega tilfinning. Mér
leið hreinlega eins og ég yngdist
um fjörutíu ár,“ segir Guðríður
Þorvaldsdóttir, sem gekk fram á
flöskuskeyti frá Grænlandi í fjör-
unni á Garðskaga, milli vitans og
Ásgarðalands, síðasta sunnudag.
Guðríður segist hafa fundið á
sér að hún ætti að fara niður að
sjó í göngu um leið og hún opnaði
augun um morguninn. „Sólin skein
í um það bil hálftíma eða klukku-
tíma, einmitt meðan við vorum
að labba í fjörunni. Það er líka
skemmtilegt að segja frá því að
stuttu eftir að skeytið fannst hitti
ég ungan dreng, Gunnar, sem var
á göngu með móður sinni. Móðir
Gunnars hljóðaði upp þegar hún sá
flöskuskeytið og sagði að Gunnar
hefði rétt í því verið að tala um
hve gaman væri nú ef þau fyndu
flöskuskeyti. Ég sagði honum þá að
það væri hægt að óska sér svo heitt
að skeytið kæmi til manns. Hann
var mjög undrandi og ánægður
með það,“ segir Guðríður.
Skeytið er langt, dagsett í ágúst
á síðasta ári og merkt símanúmeri
og veffangi. „Ég hef ekki hringt
enn, en ég sendi tölvupóst án þess
að fá svar. Við skiljum auðvitað
ekki grænlensku og vitum því ekki
hvað stendur í bréfinu, en gaman
væri ef einhver gæti hjálpað við að
ráða í bréfið,“ segir Guðríður Þor-
valdsdóttir. - kg
Guðríði Þorvaldsdóttur leið eins og barni þegar hún fann skeyti við Garðskaga:
Fann flöskuskeyti frá Grænlandi
SKEYTI Í FLÖSKU Guðríður skilur ekki
grænlensku og veit því ekki hvert
umfjöllunarefni skeytisins er.
EFNAHAGSMÁL Indriði H. Þorláks-
son, fyrrverandi ríkisskattstjóri,
vildi skrifa kafla um erlend eigna-
tengsl og skattaskjól í skýrslu sem
gerð var fyrir fjármálaráðuneytið
um íslenska skattkerfið og afhent
var ráðuneytinu í september í
fyrra. Aðrir nefndarmenn lögðust
hins vegar gegn því að slíkur kafli
yrði í skýrslunni og höfðu betur.
Skýrslan, sem ber heitið Íslenska
skattkerfið: Samkeppnishæfni og
skilvirkni, er afrakstur nefndar
sem skipuð var í febrúar 2006 af
fjármálaráðherra til að fara yfir
skattkerfið „til að varpa ljósi á
hvaða þættir
það væru sem
gera það sam-
keppnishæft og
skilvirkt“, eins
og segir í skýrsl-
unni sjálfri.
„Já já, ég get
ekki neitað því
að ég lagði til að
það yrði kafli í
skýrslunni um
þessi mál, það er
að segja þessi erlendu eignatengsl
sem hefðu vaxið svona mikið hér-
lendis og aðkomu þessara skatta-
paradísa að þessum málum,“ segir
Indriði. Hann var búinn að vinna
kaflann, sem byggðist á lengri
úttekt hans á málinu á grundvelli
upplýsinga frá Seðlabankanum og
Kauphöll Íslands.
„En eins og gengur þá er svona
skýrsla niðurstaða samkomulags
um hvað þar á að vera og hvað
ekki og ég hygg að einhverjir hafi
talið að þetta væri efni sem félli
kannski ekki beint undir erindis-
bréf nefndarinnar. Það var komið
fram mikið efni og menn þurftu
að velja og hafna hvað færi inn í
skýrsluna og í hvaða formi og það
náttúrlega réðst af ýmsum sjónar-
miðum,“ segir Indriði.
Ólafur Darri Andrason, hag-
fræðingur ASÍ og einn nefndar-
manna, segist hafa tekið undir
tillögu Indriða í nefndinni. „Ég
hefði gjarnan viljað sjá þetta inni
og hefði talið það afskaplega gagn-
legt,“ segir hann. „En við Indriði
vorum því miður í minnihluta í
nefndinni.“
Ólafur Darri segir það hafa
verið samkomulag frá upphafi að
skýrslan væri samantekt og inni-
héldi ekki beinar tillögur. Málin
skyldi vinna í sem mestri sátt og
það sem væri ágreiningur um yrði
einfaldlega látið kyrrt liggja. „Í
því ljósi gerði ég ekki ágreining
um það að þetta væri ekki inni,“
segir hann.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins voru það einkum nefndar-
mennirnir Tryggvi Þór Herberts-
son, fyrrverandi efnahagsráðgjafi
forsætisráðherra, og Vilhjálmur
Egilsson, framkvæmdastjóri Sam-
taka atvinnulífsins, sem voru and-
vígir því að fjallað yrði um þessi
mál í skýrslunni. stigur@frettabladid.is
Kafla Indriða um
skattaskjól hafnað
Ósk fyrrverandi ríkisskattstjóra um að fá að fjalla um eignir Íslendinga í skatta-
paradísum við úttekt á íslenska skattkerfinu fékk ekki hljómgrunn annarra í
nefndinni. „Hefði verið afskaplega gagnlegt,“ segir fulltrúi ASÍ í nefndinni.
ÓLAFUR DARRI
ANDRASON
NEFNDARMENN
■ Formaður: Friðrik Már Baldursson - þá
prófessor við HÍ, nú við HR.
■ Indriði H. Þorláksson - þá ríkisskattstjóri,
nú settur ráðuneytisstjóri í fjármálaráðu-
neytinu.
■ Tanya Zharov - þá lögfræðingur hjá
Íslenskri erfðagreiningu.
■ Maríanna Jónasdóttir - skrifstofustjóri í
fjármálaráðuneytinu
■ Vilhjálmur Egilsson - þá ráðuneytisstjóri
í sjávarútvegsráðuneytinu, nú fram-
kvæmdastjóri SA.
■ Ragnar Ingimundarson - hagfræðingur
BSRB
■ Ólafur Darri Andrason - hagfræðingur
ASÍ.
■ Tryggvi Þór Herbertsson - þá prófessor
við HÍ, síðar bankastjóri og efnahagsráð-
gjafi forsætisráðherra.
■ Þorlákur Björnsson - deildarstjóri hag-
deildar Orkuveitu Reykjavíkur (starfaði
ekki með nefndinni).
INDRIÐI H.
ÞORLÁKSSON
STJÓRNMÁL Ingibjörg Sólrún Gísla-
dóttir, formaður Samfylkingar,
hyggst kynna framtíðaráform sín
í stjórnmálum síðar í vikunni,
að því er segir í tilkynningu frá
Samfylking-
unni.
Hún hefur nú
snúið heim úr
þriggja vikna
leyfi sínu á
Spáni, þar sem
hún var að
jafna sig eftir
veikindi og
skurðaðgerðir
á heila. Hún er
sögð geta náð
sér að fullu, eftir einhvern tíma.
Ingibjörg mun þessa dagana
ræða við Jóhönnu Sigurðardótt-
ur forsætisráðherra og fara yfir
stjórnmálastöðuna. Hún hyggst
ekki ræða við fjölmiðla. - kóþ
Formaður Samfylkingar:
Kynnir áform
sín í vikunni
INGIBJÖRG SÓL-
RÚN GÍSLADÓTTIR
EFNAHAGSMÁL Geir H. Haarde,
fyrrverandi forsætisráðherra,
segist ekki taka
málflutning
Davíðs Oddsson-
ar persónulega
en hann sagðist
í Kastljósviðtali
í fyrradag hafa
ítrekað varað
ríkisstjórn-
ina við. „Þetta
mál er ekki á
persónulegum
nótum,“ sagði hann í samtali við
blaðamenn í gær.
Sagði Geir enn fremur að rann-
sóknarnefnd mundi leiða sann-
leikann í ljós í þessu máli og
réttast væri að bíða eftir þeim
úrskurði. Hann sagði einnig að
bankarnir bæru höfuðábyrgð
á því hvernig komið væri. Þeir
nutu góðs af því ástandi sem
var þegar nóg var af fjármagni
á lágu verði en voru svo ekki
í stakk búnir þegar ástandið
versnaði. - jse
Geir H. Haarde:
Nefndin sker úr
um sektina
GEIR H. HAARDE
STJÓRNMÁL „Engin breyting hefur orðið á fyrirhug-
uðum stuðningi ríkisstjórnarinnar við hugsanlega
málshöfðun skilanefnda Landsbankans og Kaup-
þings á hendur breska ríkinu. Íslenska ríkið yrði
hins vegar ekki beinn aðili að slíkum málum,“ segir
í yfirlýsingu frá Viðskiptaráðuneytinu frá í gær.
Var yfirlýsingin send vegna fréttar Financial
Times, þar sem Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra
sagði í viðtali við blaðamann að íslenska ríkisstjórn-
in hefði engar áætlanir uppi um að fara í mál vegna
frystingar eigna í Bretlandi við bankahrunið.
Í yfirlýsingunni kemur jafnframt fram að enn sé
verið að kanna möguleika á að vísa málum til Mann-
réttindadómstóls Evrópu.
Þórunn Sveinbjarnardóttir sagði á Alþingi í gær,
við fyrirspurn Sigurðar Kára Kristjánssonar, að
ákvörðun fyrri ríkisstjórnar varðandi málshöfð-
un og stuðning vegna málshöfðunar stæði. „Þar á
meðal var að leita allra leiða til þess að sækja málið
fyrir Mannréttindadómstóli Evrópu. En það er ekki
búið að leiða það til lykta eða kanna til þrautar. Eftir
því sem ég best veit er sú vinna enn í gangi og ekk-
ert útilokað í þeim málum,“ sagði Þórunn. - ss
Möguleikar á að draga Breta fyrir Mannréttindadómstól Evrópu:
Ekki ákveðið að hætta við
GYLFI MAGNÚSSON Blaðamaður FT virðist hafa misskilið
viðskiptaráðherra þegar Gylfi sagði íslensku ríkisstjórnina ekki
hafa plön um málaferli gegn breska ríkinu. FRÉTTABLAÐIÐ/ ANTON
VIÐSKIPTI Álverð er nú um sextán
prósentum lægra en Landsvirkj-
un miðaði við í arðsemisútreikn-
ingum sínum vegna byggingu
Kárahnjúkavirkjunar.
Í útreikningunum var miðað
við meðalverðið 1.550 Banda-
ríkjadali fyrir hvert tonn af áli.
Það hefur lækkað verulega frá
síðasta sumri, stóð í 1.264 dölum
í fyrradag og hafði þá ekki verið
lægra í sjö ár.
Verð á raforku til stóriðju er
tengt álverði og hefur þróun
álverðs lægri tekjur í för með sér
fyrir orkufyrirtæki. Þorsteinn
Hilmarsson, upplýsingafulltrúi
Landsvirkjunar, segir fyrirtæk-
ið hafa gert framvirka samninga
þegar álverð stóð í hæstu hæðum
og varið sig gegn lækkandi raf-
orkuverði. - jab/ Sjá síðu 18
Landsvirkjun setur upp varnir:
Álverð ekki
lægra í sjö ár
ÍRAN, AP Íranar og Rússar skýrðu
frá því í gær að fyrsta kjarn-
orkuverið í Íran hafi verið sett í
gang í tilraunaskyni.
Jafnframt segjast Íranar hafa
tekið í notkun þúsund skilvind-
ur í viðbót til auðgunar úrans og
eru skilvindurnar þar með orðn-
ar sex þúsund talsins.
Íranar halda því statt og
stöðugt fram að þeir hafi einung-
is í huga að nota kjarnorku í frið-
samlegum tilgangi, en stjórnvöld
á Vesturlöndum, einkum banda-
rísk stjórnvöld, hafa ítrekað talið
hættu á að Íranar muni nota
kjarnorkuna til að koma sér upp
kjarnavopnum. - gb
Samstarf Írana og Rússa:
Íranar ræsa
kjarnorkuver
FÓLK Hönnuðurinn Sruli Recht
sem býr og starfar á Íslandi
vann nýlega til IDA-verðlauna
eða International Design Awards
2008 fyrir hönnun á regnhlíf og
belti.
Hann sigraði í flokknum auka-
hlutir í ferðalög með regnhlíf
sem ber heitið The Umbuster en
handfang hennar er í líki hnúa-
járns.
Hann varð einnig í öðru sæti
í sama flokki með sylgjulausa
beltið ~Elt. Beltið er að öllu leyti
framleitt á Íslandi og skorið með
nýstárlegri tækni þar sem notuð
er mjó vatnsbuna.
-sg/Sjá ALLT
Hönnuðurinn Sruli Recht:
Fékk verðlaun
fyrir regnhlíf
SPURNING DAGSINS