Fréttablaðið - 26.02.2009, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 26.02.2009, Blaðsíða 4
4 26. febrúar 2009 FIMMTUDAGUR VINNUMARKAÐUR Alþýðusam- bandið, ASÍ, og Samtök atvinnu- lífsins, SA, hafa náð samkomulagi um að fresta endurskoðun kjara- samninga og þar með launahækk- unum, sem áttu að koma til fram- kvæmda 1. mars, fram í júní. SA hefur fallist á að hækka um næstu mánaðamót lágmarkslaun um 12 þúsund krónur með því að hækka lágmarkstekjutryggingu í 157 þús- und krónur. Félagsmenn fá líka einn orlofsdag í viðbót og fá því 30 daga sumarfrí á næsta ári. Vilhjálmur Egilsson, fram- kvæmdastjóri SA, segir að SA telji rétt að hækka lágmarkstekju- trygginguna strax því að það dragi það mikið úr hvötum til vinnu ef atvinnuleysisbætur séu hærri en lágmarkslaun. Samkomulagið nú sé frágengið og gildi líka fyrir félagsmenn verkalýðsfélaganna fimm sem hafa óskað eftir alls- herjaratkvæðagreiðslu um það. Endurskoðun fari fram fyrir 1. júlí. Sigurður Bessason, formaður Eflingar, segir að lágmarkstekju- tryggingin sé fyrst og fremst öryggisnet. „Væntanlega grípur það einhverja en vonandi verða þeir ekki margir.“ Reiði og hiti hefur kraumað meðal félagsmanna fimm stéttar- félaga vegna endurskoðunar kjara- samninganna. Gylfi Arnbjörns- son, forseti ASÍ, sendi félögunum nýlega fyrirspurn til að kanna hvort félögin vildu afturkalla umboð samninganefndarinnar og láta reyna á launahækkanir um mánaðamótin en meirihluti hefur verið fyrir því innan ASÍ að fresta endurskoðun kjarasamninga fram á sumar. Forystumennirnir svöruðu að þetta væri ekki svara vert og vís- uðu í tillögu sína um að fara í alls- herjaratkvæðagreiðslu innan ASÍ og leyfa félagsmönnum þannig að taka afstöðu til þess. „Þegar svona mikilvægt mál liggur fyrir þá er afar brýnt að félagsmenn geti tekið ákvörðun um það sjálfir,“ segir Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness. Gylfi segir að ASÍ hafi ekki umboð til að leggja málið í atkvæðagreiðslu. Félögin hefðu sjálf átt að gera það innan sinna raða. Frestunin taki til allra félag- anna. Í sumar verði svo reynt að ná þríhliða samkomulagi. En vafa- laust hafi þetta mál afleiðingar í framtíðinni. „Það er ekki bara þannig að þessir fimm félagar geti lýst yfir að þeir séu reiðir. Það eru margir aðrir yfir sig reiðir yfir því með hvaða hætti framgangan hefur verið.“ ghs@frettabladid.is Lægstu laun hækka um 12 þúsund krónur ASÍ og SA hafa ákveðið að fresta endurskoðun kjarasamninga þangað til í júní. Lágmarkstekjutrygging hækkar um 12 þúsund krónur og verður 157 þúsund, eða hærri en atvinnuleysisbætur. Margir sárir og reiðir eftir átökin innan ASÍ. ÁKVÁÐU AÐ FRESTA ENDURSKOÐUN Forystusveit ASÍ og SA ákváðu í gær að fresta endurskoðun kjarasamninga fram í júní. Lágmarkstekjutrygging hækkar þó í 157 þúsund krónur og verður því hærri en lágmarkslaun. Reiði er innan ASÍ vegna bréfs sem forseti ASÍ sendi til að kanna viðbrögð við hugmynd um að fimm verkalýðsfélög segðu sig úr samfloti hreyfingarinnar. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA T B W A \R e yk ja ví k \ S ÍA \ 0 9 4 1 9 7 RÚSSLAND, AP Rússneski olíujöf- urinn Mikhaíl Khodorkovskí og félagi hans, Platon Lebedev, hafa verið fluttir úr fangelsi í Síber- íu til fangelsis í Moskvu, þar sem halda á ný réttarhöld yfir þeim. Khodorkov- skí var í eina tíð ríkasti maður Rúss- lands. Hann var dæmdur árið 2005 til átta ára fangelsis fyrir skattsvik. Gagnrýnendur segja þau réttarhöld hafa verið sýndarréttarhöld, til þess gerð að styrkja stjórnvöld og þagga niður í Khodorkovskí, sem hafði gagn- rýnt stjórnina harðlega. Nýjar ákærur um svik og þjófn- að hafa verið lagðar fram. - gb Frá Síberíu til Moskvu: Réttað á ný yfir Khodorkovskí KHODORKOVSKÍ VEÐURSPÁ HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. Alicante Amsterdam Basel Berlín Billund Eindhoven Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London New York Orlando Osló París Róm Stokkhólmur 16° 8° 5° 4° 7° 8° 5° 5° 6° 6° 18° 12° 6° 22° 2° 12° 11° 2° Á MORGUN 5-13 m/s, hvassast með ströndum nyrðra. LAUGARDAGUR 3-10 m/s hvassast á Vestfjörðum. -1 -3 -5 -5 -6 -5 -7 -3 -2 3 -8 8 8 6 6 5 4 3 6 8 18 6 2 2 0 -2 -1 1 1 -1 -10 LÆGÐ Á LEIÐINNI Það vantar ekki lægð- irnar þessa dagana. Ein kemur í dag. Samfara því hvessir fyrir sunnan og vestan auk þess sem úrkomuloft siglir inná landið úr suðri. Því má búast við snjókomu á öllum suðurhelmingi landsins í kvöld. Allra syðst má reyndar búast við slyddu eða jafnvel rigningu. Frost verður um mestallt land en sunnan til hlánar þegar lægðin nálgast. Sigurður Þ. Ragnarsson veður- fræðingur BRETLAND, AP Sex ára gamall fjöl- fatlaður sonur Davids Cameron, leiðtoga breska Íhaldsflokksins, lést óvænt á sjúkrahúsi í Lundún- um í gærmorgun. Fréttin af and- láti drengsins sameinaði stjórn- málamenn úr öllum flokkum í að sýna fjölskyldu hans samúð. Ivan Cameron var elstur þriggja barna íhaldsleiðtogans og eiginkonu hans, Samönthu. Hann var spastískur og þjáðist auk þess af sjaldgæfu, alvarlegu formi flogaveiki. Gordon Brown forsætisráð- herra tjáði þinginu að „andlát barns er óbærileg sorg sem vart er á nokkurt foreldri leggjandi“. Fyrirspurnartíma forsætisráð- herrans var aflýst af þessu til- efni. - aa Íhaldsformaður missir son: Bretar samein- ast í samúð STJÓRNMÁL Jón Baldvin Hanni- balsson, fyrrverandi formað- ur Alþýðuflokksins og ráðherra, býður sig fram í eitt af átta efstu sætum Sam- fylkingarinn- ar í Reykjavík. Þetta kemur fram í tilkynn- ingu sem hann sendi fjölmiðl- um í gær. Í tilkynning- unni segir að framboðið sé sett fram án vís- unar til tiltekins sætis með fyrir- vara um og í trausti þess að boðað stjórnarfrumvarp um persónu- kjör nái fram að ganga þannig að væntanlegir alþingismenn öðlist ótvírætt umboð kjósenda. Jón Baldvin sat á þingi í 16 ár. Hann var fyrst kjörinn árið 1982 en hætti þingmennsku árið 1998. Eftir þingmennsku varð hann sendiherra í Bandaríkjunum og síðar Finnlandi. - th Jón Baldvin Hannibalsson: Býður sig fram með fyrirvara JÓN BALDVIN HANNIBALSSON SPÁNN Óánægður íbúi í baska- bænum Lazkao braust inn á kaffi- hús í bænum, þar sem aðskiln- aðarsinnar úr ETA-samtökunum hafa haft bækistöð. Maðurinn braut og bramlaði allt sem hann gat. Hann var reiður vegna þess að íbúð hans, sem var beint á móti skrifstofu Sósíalistaflokksins í bænum, skemmdist í sprengingu á sunnudagskvöld. Fjöldi bæjar- búa, þar á meðal hópur stjórn- málamanna, kom saman í bænum til að mótmæla ofbeldisverkum aðskilnaðarsinna, sem hafa færst í aukana nú í aðdraganda kosn- inga, sem verða í næsta mánuði. - gb Ráðist á bækistöð ETA: Baskar mót- mæla ofbeldi FJÖLMIÐLAR Íslandsbanki tók í gær tilboði Þórsmerkur í útgáfufélag- ið Árvakur, sem gefur út Morgun- blaðið. Hvorki kaupandi né bankinn gefur upp kaupverðið, að öðru leyti en því að tilboð Þórsmerkur hafi verið 200 milljónum hærra en næsthæsta tilboð, frá ástralska fjárfestinum Steve Cosser. Sá mun vilja fá staðfestingu á því að hann hafi ekki átt hæsta tilboðið og hefur verið boðið til fundar með bankamönnum í dag. Már Másson, fjölmiðlafulltrúi Íslandsbanka, segir að hæsta til- boðinu hafi vissulega verið tekið og að engar kröfur aðrar en fjár- hagslegar hafi verið gerðar til væntanlegra kaupenda. Árvakri fylgir meðal annars útgáfuréttur blaðsins, fasteign að Hádegismó- um og prentsmiðja. Meðal fjárfesta í Þórsmörk eru Óskar Magnússon, Gísli Baldur Garðarsson, Guðbjörg Matthí- asdóttir og Þorsteinn Már Bald- vinsson. „Morgunblaðið hefur verið rekið með ágætri afkomu um áraraðir,“ segir Óskar. „En svo hafa verið erfiðleikar undanfar- in ár. Ef mönnum tekst að skilja og fást við þá, ásamt með öðrum áformum sem við kunnum að hafa, getur þetta orðið prýðisrekstur í framtíðinni, eins og hann var í fortíðinni.“ Hann vill ekki ræða hverjir þessir erfiðleikar eru, né heldur um hugsanleg áform Þórs- merkur. Óskar segir að aukið samstarf milli prentmiðla á markaði, svo sem um prentun, geti vel komið til greina. „Og ég held að það gæti verið mjög hagkvæmt fyrir alla, án þess að það skekki samkeppni,“ segir Óskar. Spurður um áform til hagræðingar bendir Óskar á að starfsmönnum blaðsins hafi nú þegar verið fækkað verulega. Ekkert hafi verið rætt um aðrar mannabreytingar á ritstjórn. - kóþ Ástralska fjárfestinum Steve Cosser hefur verið boðið til fundar með Íslandsbankamönnum í dag: Þórsmörk festir kaup á Morgunblaðinu ÓSKAR MAGNÚSSON Óskar fer fyrir hópi fjárfesta undir nafninu Þórsmörk, en við kaupin færist hlutur núverandi hluthafa niður í núll. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA GENGIÐ 25.02.2009 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 177,3752 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 111,97 112,51 162,06 162,84 143,7 144,5 19,287 19,399 16,406 16,502 12,737 12,811 1,154 1,1608 165,49 166,47 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.